Helgarpósturinn - 09.03.1995, Side 6
6
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 9. MARS 1995
vikunnar
Gaf fórnar-
lambi árás-
ar 9.300
krónur
Það er alltaf ógeðfellt þegar fólk
reynir að slá sjálft sig til riddara út á
ófarir annarra. Dæmi um slíkt
háttalag er til dænris þegar stjórn-
málamenn, leikarar og aðrir popp-
arar mæta á hungur- eða átaka-
svæði með það að yfirlýstu mark-
miði að láta gott af sér leiða, en
gæta þess jafnframt að gera fjöl-
miðlum rækilega viðvart af ferðurn
sínum til þess að allir fái séð hvílík
góðmenni eru á ferð. Sambærileg
dæmi skjóta upp kollinum við og
við hér á íslandi eins og annars
staðar. Skemmst er að minnast þess
þegar bílaumboðið Ingvar Helga-
son sendi mæðrastyrksnefnd nokk-
ur hangikjötslæri og Lottóið styrkti
sörnu góðgerðarsamtök um ein-
hverjar krónur, þá létu forráða-
menn þessara fyrirtækja fjölniiðla
vita af þessari gjafmildi sinni. Og
fengu fyrir vikið myndir af sér og
umfjöllun í fjölmiðlunum. Þetta er
náttúrlega ekkert annað en auglýs-
ingamennska af ákaflega ógeðfelldu
tagi. í DV á þriðjudag skaut upp
kollinum dæmi um „góðmennsku“
af þessu tagi. í frétt blaðsins segir
frá því að ungum manni, Ásgeiri
Ásgeirssyni, hafi runnið svo til
rifja örlög ungrar utanbæjarstúlku
sem varð fyrir því að tveir menn
réðust á hana og rændu, að hann
hafi ákveðið að gefa henni sömu
peningaupphæð og var rænt ef
henni. Og auðvitað gætti Ásgeir
þess að hringja í DV og láta vita af
þessu örlæti sínu; og auðvitað út-
listar Ásgeir fyrir blaðamanni hvað
það hafi verið sem fékk hann til
þess að reiða þessa gjöf, 9.300 krón-
ur, af hendi.
„Mér brá svo þegar ég las um
ránið og stúlkuna í bæjarferð í
heimsókn. Það er greinilega ekki
hægt að koma í bæinn án þess að
vera rotaður og rændur. Ég sárvor-
kenndi henni. Mig munar nú ekk-
ert um þetta. Það er gott að láta
eitthvað af sér leiða öðru hvoru.
Maður setur annað eins í hluti af
rninna tilfelli," sagði Ásgeir í DVog
maður sér krókódílatárin fyrir sér
streyma niður kinnarnar á honum.
En Ásgeir fékk það sem hann ef-
laust ætlaði sér: frétt í blaðið og
mynd af sér að afhenda fórnar-
lambinu gjöfina á baksíðu.
Umhverfisráðuneytið skipar hússtjórninni að rífa niður skilrúm sem þeir
settu upp við íbúð Bents
Bent sigrar
þjóridíkuna
Páll Asgeir Tryggvason, fomnaður hússtjómar, villað
„furðufuglinn snauti í burtu.“
Ég geri mér vonir um það að
þeir láti af þessu, hætti við frekari
málaferli, sem eru þegar búin að
kosta alltof mikið og valda leiðind-
um. Auðvitað hafa þeir kost á því að
hlaupa með þetta fyrir dóm en þá
eru þeir ekki lengur í máli við Bent,
þá eru þeir komnir í mál við Össur
Skarphéðinsson eða hans emb-
ætti,“ sagði Bent Scheving Thor-
steinsson, íbúi í Breiðabliki, eða
Beverly Hill eldra fólksins að Efsta-
leiti.
Undanfarin ár hefur Bent staðið í
illdeilum við íbúa hússins sem hafa
innréttað ölstofu í sameign hússins
sem er fyrir utan íbúð Bents. Hefúr
Bent fullyrt að þar sitji ákveðnir
menn að sumbli og valdi honum
óþarfa ónæði með leiðindum. Nú
síðast voru sett upp skilrúm sem
stúkuðu íbúð Bents af sem hann tel-
ur rýra verðgildi hennar. Breyting-
arnar voru samþykktar í stjórn hús-
félagsins, í byggingarnefnd og hjá
Skipulagi ríkisins en nú hefur um-
hverfisráðuneytið úrskurðað að
skilrúmin skuli rifin niður.
Umhverfisráðuneytið
fullt af idjótum
;,Þetta eru bara idjótar,“ segir Páll
Ásgeir Tryggvason, sendiherra og
formaður hússtjórnar. „Við erum
að gera stofú í húsinu okkar, fyrir
fólkið í húsinu. Allir eru inn á þessu
nema einn maður og það er búið að
samþykkja þetta í bygginganefnd
Reykjavíkur. Síðan er sent á okkur
Skipulag ríkisins og þeir samþykkja
þetta allt saman. Þá er bara komið
með umhverfisráðuneytið inn í
stofu til okkar. Ég get sagt þér það
að við ætlum ekki að gefast upp.“
Páll Ásgeir er afar ósáttur við þrá-
kelkni Bents því þetta eru ekki einu
málaferli íbúanna. Bent, ásamt
Herði Þorleifssyni og Emmanúel
Morthens, höfðuðu mál til að
koma í veg fyrir sölu íbúðar hús-
varðar og hjúkrunarfræðings sem
stjórnin hafði áður samþykkt. Hér-
aðsdómur felldi úrskurð Bent í vil
en gert er ráð fyrir að Hæstiréttur
felli úrskurð sinn í næstu viku.
Varaformaður hússtjórnar er Karl
Eiríksson en af öðrum sem Bent
hefur kvartað mest yfir má nefna
Ebeneser Ásgeirsson og Óttar
Möller.
Páll Ásgeir Tryggvason „Þetta er ekkert gaman að hafa svona furðu-
fugla eins og hann í húsinu. Það er óttalega leiðinlegt að hafa svona
dela inn á sér og það er bara vonandi að hann snauti í burtu.“
„Þetta er ekkert gaman að hafa
svona furðufugla eins og hann í
húsinu. Það er óttalega leiðinlegt að
hafa svona dela inn á sér og það er
bara vonandi að hann snauti í
burtu,“ segir Páll Ásgeir.
Ett er engin von á sáttum?
„Sáttum? Hann er ekki í neinum
sáttahug. Ekki aldeilis. Hann hefur
voðalega gaman af því að erta fólk til
reiði. Elskar það alveg. Ef menn hafa
ekkert að gera er náttúrlega upplagt
að reyna að egna fólk til reiði. Það er
hans sérgrein.“ -pj
Atök í Lögmannafélagi Islands vegna mannréttindaáhuga Ragnars Aðalsteinssonar formanns
Telja sig fórnarlömb áhugamála formannsins
Það hlýtur að teljast mikið áfall
fyrir formann Lögmannafélags Is-
lands að fá yfir sig undirritaða álykt-
un ffá átta fyrrverandi formönnum
þar sem hann er gagnrýndur fyrir að
blanda sér í mál óskyld félaginu. Það
stefnir því í að síðasti aðalfundur
Ragnars Aðalsteinssonar sem for-
manns verði átakafúndur en aðal-
fúndur félagsins er annað kvöld.
Það er hins vegar ekkert nýtt að
það gusti um Ragnar í formannssæt-
inu en hann hefúr um langt skeið
verið umdeildur og rétt náði að
hrista af sér mótframboð Eiríks
Tómassonar hæstaréttarlögmanns
á aðalfundinum í fyrra. Framboð Ei-
ríks var mjög stutt af Jóni Steinari
Gunnlaugssyni, höfúðandstæðingi
Ragnars, en þeir tveir hafa deilt mik-
ið undanfarið vegna breytingar á
stjórnarskránni. Hélt Ragnar því
ávallt fram að í raun væri )ón Steinar
í framboði en þetta var í fýrsta skipti í
sögu félagsins sem boðið var fram
gegn sitjandi formanni. Var óánægja
meðal margra lögmanna þá að Jón
og Eiríkur skyldu ekki láta líða eitt ár
þegar Ragnar léti hvort sem er af
störfum. Framboðið var kynnt sem
„spurning um stíl“ og þótti mörgum
það léttvæg rök til að bijóta gegn
þeirri hefð að bjóða ekki fram gegn
sitjandi formanni. Nú er Þórunn
Guðmundsdóttir ein í framboði.
Persónulegar
og pólitískar deilur
Þessi deila er í senn persónuleg og
pólitísk. Ragnar hefur þótt nokkuð
hrokafullur í formannssætinu,
gjarnan lesið lögmönnum pistilinn
ef honum hefur boðið svo við að
horfa. Fyrir nokkrum árum var
mikið deilt um hvað ætti að gera við
Ábyrgðasjóð lögmanna sem tæmd-
ist þá í kjölfar gjaldþrotahrinu lög-
manna en sjóðurinn varð að bæta
skjólstæðingum þeirra tjón sitt. Þá
vildu margir leggja niður sjóðinn en
til þess þarf breytingu á lögum um
málflytjendur sem einmitt eru í
endurskoðun nú. Margir lögmenn
— og þá sérstaklega þeir yngri —
töldu óeðlilegt að greiða háar upp-
hæðir í sjóð til að standa straum af
svikum kollega sinna. Sérstaklega í
ljósi þess að félagið hafði lítið sem
ekkert um það að segja hvernig
menn störfuðu og hafði ekkert virkt
eftirlitsvald. Vildu þeir frekar að
lögmenn keyptu sér starfstryggingu
en margir bentu á mótsögn þess að
menn tryggðu sig fyrir eigin þjófn-
Skeljungsránið enn óupplýst
Rangur maður í haldi
Nær fullvíst að um fíkniefnainnflutning varað ræða.
Skeljungsránið frá því á mánu-
deginum í lok síðasta mánaðar er
enn óupplýst og það fékkst stað-
fest í gærkvöid innan RLR að
gæsluvarðhaldsfanginn tengdist
ráninu væntanlega ekkert. Fyrir
viku var Kristján Hauksson úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 13.
mars eftir handtöku á Keflavíkur-
flugvelli með nærri sjö hundruð
þúsund krónur f erlendri mynt.
Farseðilinn til Amsterdam hafði
hann staðgreitt daginn sem ránið
var framið og hefúr hann enn ekki
getað gert neina grein fýrir þeim
miklu Ijármunum sem hann hafði
undir höndum.
Eins Og MORGUNPÓSTURINN
hefúr greint frá telja flestir að um
venjulega innkaupsferð á fíkniefn-
um sé að ræða enda bendir upp-
hæðin frekar til þess en að um
stóran ránsfeng sé að ræða. Þá er
maðurinn þekkt nafn innan lög-
reglunnar í tengslum við fíkniefni
og smáþjófnaði.
Þótt handtakan hafi komið til í
tengslum við rannsókn Skeljungs-
ránsins hefur ekki tekist að tengja
hann við ránið og ekkert kom
fram við húsleit sem gerð var
heima hjá honum. Það fékkst stað-
fest innan RLR í gærkvöld að nær
fullvíst sé talið að Kristján tengist
ekki ráninu og að um innkaupa-
ferð sé að ræða. Engin játning ligg-
ur þó fyrir.
Kristján kærði gæsluvarðhalds-
úrskurðinn til Hæstaréttar og
hafði málið ekki verið tekið fyrir i
gær.
-PÍ
Ragnar Aðalsteinsson, formað-
ur Lögmannaféiags íslands, ligg-
ur undir ámæli ýmissa félags-
manna en hann lætur af embætti
á aðalfundi félagsins á morgun.
aði! Ragnar taldi hins vegar að
Ábyrgðasjóðurinn yrði að vera
áfram við lýði og hafði sigur.
í tengslum við aðalfúndinn í fyrra
var Ragnar einnig gagnrýndur fýrir
að hafa dregið félagið inn í alls kyns
samtök og fundarhöld sem í raun
væru fyrir utan starfssvið félagsins.
Komu meðal annars upp á yfirborð-
ið ásaknir um óheyrilegan ferða-
kostnað formannsins sem tengdist
mennréttindaáhuga hans. Mun
ferðakostnaður hans fýrsta árið í
starfi hafa verið nokkuð hár. Gagn-
rýnisraddir sögðu að hann hefði
byrjað að sækja fundi og mæta hjá
ýmsum samtökum án þess að
ákvörðun félagsins lægi þar fyrir.
Báðir aðilar smöluðu á fiindinn í
fýrra og hafði Ragnar sigur.
Reynt að halda pólitík
út úr stjórnarskránni
Breytingin á stjórnarskránni var
síðan næsta sprenging í samskiptum
Ragnars og lögmanna. Mörgum
þótti það nokkuð kaldhæðnislegt að
halda Ragnari fyrir utan breytingar
á mannréttindakafla stjórnarskrár-
innar — manni sem hafði að ýmsu
leyti orðið holdgervingur mannrétt-
inda hér á landi. Ekkert skjal er pól-
itískara en stjórnarskráin og því
reyndi þingið að mynda þverpólit-
íska samstöðu um breytinguna til að
missa ekki pólitísk deilumál þar inn
Jón Steinar Gunnlaugsson,
hæstaréttarlögmaður. Hann telur
að formaðurinn hafi misnotað að-
stöðu sína.
sem hefðu sett allt í loft upp. Þegar
frumvarpið birtist þóttust margir
hins vegar sjá að sjónarmið hægri-
manna hefðu orðið þar ofan á. Fé-
lagsleg, efnahagsleg og menningar-
leg réttindi fundust ekki í skránni,
mörgum vinstrimönnum til hrell-
ingar. Viðbrögðin voru harkaleg og
fremstur í flokki gagnrýnenda var
Ragnar Aðalsteinsson.
Gremja vegna
álitsgerða
Mörgum gramdist álitsgerðir sem
komu fram í nafni Mannréttinda-
skrifstofú Islands og Lögmannafé-
lagsins en á báðum stöðum sat
Ragnar. Sem dæmi um reiðina sem
kraumaði undir niðri má benda á
ofsafengna árás Geirs H. Haarde á
Mannréttindaskrifstofuna síðasta
starfsdag Alþingis þegar hann sagði
skrifstofuna hafa dreift óhróðri er-
lendis um breytinguna á lagafrum-
varpinu. Seinna um daginn kom hið
rétta í ljós; starfsmaður Ríkisút-
varpsins hafði sent upplýsingar inn
á Internetið sem kallað höfðu á við-
brögð erlendis frá. Geir sá sig því
knúinn til að bakka með yfirlýsingu
sína um kvöldið. Að lokum var síð-
an deilt um hve miklar breytingar
hefðu orðið á frumvarpinu —
Ragnar taldi sig hafa fengið ffarn
meiriháttar breytingum en Geir tal-
aði um smávægilegar lagfæringar.
Greiðslur til Mannrétt-
indaskrifstofunnar
I ályktunartillögu formanna fýrr-
verandi segir að; ...það samrýmist
ekki eðli og tilgangi Lögmannafélags-
ins samkvœmt samþykktum þess og
ákvæðum laga utn málflytjendur, sem
kveða á um skylduaðild lögmanna að
félaginu, að félagið eigi aðild að eða
taki þátt í starfsemi félagasamtaka utn
þjóðfélagsmál, né heldur að gefttar séu
út álitsgerðir, umsagnir eða ályktanir,
þarsetn pólitísk afstaða er tekin í nafni
félagsins í umdeildum þjóðfélagsmál-
uttt. Fyrir því ályktar fundurinn, að
hætta beri aðild félagsins að Mann-
réttindaskrifstofunni og stjóm félags-
ins gæti þess framvegis að ekki séu
gefnar út pólitískar ályktatiir í nafni
þess. “ Það er hverjum manni augljóst
að deilurnar undanfarið um stjóm-
arskrána eru undanfari þessarar
ályktunar sem undirrituð er af
hæstaréttarlögmönnunum; Gesti
Jónssyni, Guðmundi Ingva Sig-
urðssyni, Hákoni Árnasyni, Helga
V. Jónssyni, Jóhanni H. Niels-
syni, Jóni Steinari Gunnlaugs-
syni, Sveini Snorrasyni og Þor-
steini Júlíussyni.
Andstæðingar Ragnars telja að
ekki hafi verið staðið rétt að kynn-
ingunni á þátttökunni í Mannrétt-
indaskrifstofunni gagnvart félags-
mönnum og að kynningin hafi verið
mjög lítil. Þetta telja stuðningsmenn
Ragnars ekki rétt. Heimildir eru fýrir
því að á fúndinum verði farið fram á
upplýsingar um það hvað félagið hef-
ur greitt til Mannréttindaskrifstof-
unnar en andstæðingar Ragnars telja
sig hafa upplýsingar um að þangað
hafi verið greitt 200.000 krónur, að
því er þeir telja án heimildar.
Aðrir hafa orðið til að benda á að
það segi beinlínis í lögum félagsins að
það. eigi að skipta sér af þjóðmálum;
það sé því eðlilegt að það álykti um
þjóðfélagsmál. Ef tillagan er skoðuð
þá liggur beint við að álykta að Lög-
mannafélagið geti ekki ályktað um
frumvörp samin af Alþingi þar sem
ekki sé hægt að ímynda sér þjóðfé-
lagsmál sem ekki séu umdeilanleg.
Þá má benda á að félagið hefur
stjórn og ekki annað vitað en að
stjórnarsamþykktir séu fýrir flestum
þessara ákvarðana.
SMJ/ÆÖJ