Helgarpósturinn - 09.03.1995, Síða 7
FIMMTUDAGUR 9. MARS 1995
MORGUNPÓSTURINN
7
Stígamót stóðu fyrir göngu með þátttöku fjölda fólks sem vill
mótmæla hvernig tekið er á kynferðisafbrotum
Gengið fyrir bættu réttarkerfi
Kröfuganga fyrir betra réttarkerfi og gegn
kynferðisafbrotum var farin í gær á vegum
Stígamóta, samtaka gegn kynferðislegu of-
beldi, í gær á alþjóðlegum baráttudegi
kvenna. I broddi fylkingar gengu 30 konur,
klæddar í svarta kufla þar sem rétt rifaði í
augun en þær eru tákn fyrir þann fjölda
kvenna og barna sem sætir misnotkun í
skjóli friðhelgi heimilanna.
Alls 346 einstaklingar leituðu til Stíga-
móta á síðasta ári en tveir af hverj-
um þremur sem þangað leita eru
konur sem hafa orðið fórnarlömb
sifjaspella en afgangurinn vegna
nauðgana, ef frá eru taldir örfáir
sem leita þangað vegna kynferðis-
legrar áreitni á vinnustað eða börn
sem hafa orðið fyrir áreitni þar sem
þeim hefur verið sýnt klámefni.
Um sex prósent þeirra sem leita
til samtakanna eru karlmenn en
það var fyrst viðurkennt sam-
kvæmt íslenskum lögum árið 1992
að karlmenn gætu orðið fyrir kyn-
ferðislegu ofbeldi. Önnur samtök
sem nefhast Stráið eru einnig til en
þau aðstoða karla sem hafa lent í
þessum málum. 94 prósent skjól-
stæðinga Stígamóta eru konur og
80 prósent allra skjólstæðinga sam-
takanna hafa lent í ofbeldismálum
þegar þau voru böm. Engar tölur
eru til um hvað mörg brot voru
framin á síðastliðnu ári svo að töl-
fræðilega er ekki hægt að sýna fram
á að kynferðislegt ofbeldi hafi farið
vaxandi eða hvort umræða undanfarinna
ára hafi leitt til þess að það hafi minnkað.
I nauðgunarmálum eru gerendur í lang-
flestum tilfellum kunnugir konunni og það
á einnig við um sifjaspellsmál þar sem ger-
endurnir eru oft frændur eða fjöskylduvinir
en feður í 8 prósentum tilfella. Fast þar á eft-
ir fýlgja fósturfeður í 6 prósentum tilfella.
„Það hefur sýnt sig að ofbeldi í samfélaginu
fer vaxandi og þetta sker sig örugglega ekki
úr,“ sagði Áshildur Bragadóttir, starfskona
Stígamóta, í samtali við blaðið.
„Fæst þeirra mála sem koma inn á borð til
okkar eru kærð en af þeim örfáu sem eru
kærð þá fellur dómur í einu máli af sjö. Það
er ekki upplífgandi staðreynd en við berj-
umst fýrir bættara réttarfari hvað þetta varð-
ar. Það eru tvö ár síðan aðildaríki Samein-
uðu þjóðanna samþykktu að reyna að bæta
úr þessum málum en hvað Island varðar þá
hefur ekkert gerst.“
Betra að
nauðga en ræna
„Það er ótrúlegt hvað þessir menn fá
stutta dóma þegar á annað borð er réttað í
málinu,“ sagði Steingerður Kristjánsdótt-
ir, starfskona Stígamóta, og bætti við að það
væri með blendnum huga sem þær hvettu
konur til að kæra eins og meðferð þessara
mála væri í kerfinu. „Það er þó nauðsynlegt
að konur kæri ef einhver breyting á að verða.
Það er varla hægt að leggja þetta á konur,
hvað þá börn. Vinir mínir segja stundum við
mig að ef að það eigi að ræna leigubíl þá sé
best að kona sé undir stýri. Til að fá besta
meðferð í kerfinu þurfi glæpamaðurinn bara
að nauðga henni fyrst, þá eru yfirgnæfandi
líkur á að málinu sé vísað frá eða þá að við-
komandi fái vægari dóm. Við höfum gagn-
rýnt það að sönnunarbyrðin liggi alfarið hjá
konunni og öll rannsókn beinist að henni.
Af hverju eru kynhár nauðgarans ekki
kembd? Af hverju er hann ekki látinn ganga
undir líkamsrannsókn? Það gæti borið jafn-
mikinn árangur.“
Aðspurðar um þau mál sem hafa komið
upp þar sem menn hafa verið ákærðir og
jafnvel dæmdir ranglega, segja þær að slík
mál séu örfá miðað við þann mýgrút af mál-
um þar sem aldrei fellur dómur.
-ÞKÁ
f
burda
t
I hverjum mánuði kemur mikið úrval af Burda blöðum í verslanir,
enda er vaxandi áhugi á sauma- og prjónaskap. Burda blöðin mæta þörfum allra:
Anna
er hannyrðablað með sniðum og kemur mánaðarlega.
Verena
er prjónablað sem höfðar sér í lagi til yngra fólks og kemur
mánaðarlega.
Carina
er í senn sníðablað, einkum miðað við þarfir yngri kvenna, en
auk þess fullt af sniðugum hugmyndum um skreytingar inni á
heimilinu og kemur mánaðarlega.
Burcla iModen
er langstærsta og útbreiddasta blað sinnar tegundar og er fyrst
og fremst blað um fatasaum með fjölda sniða í hverju blaði.
burdQ«.
lyrir
stórar
konur
er saumablað með
sniðum fyrir konur í
yfirstærðum og kem-
ur nokkrum sinnum
á ári.
Itrúðu-
föt
er sérblað með snið-
um og prjónaupp-
skriftum til að búa til
brúðuföt. Kemur
einu sinni á ári.
Spariföt
er sérblað með snið-
um að glæsilegum
veislufatnaði fyrir
konur og karla.
Kemur einu sinni á
ári.
Lltsauniur
er sérblað um útsaum.
Bláðinu fylgja munstur
og uppskriftir. Kemur
einu sinni á ári.
Sináböru
er sérblað með
prjónauppskriftum
fyrir föt á yngsta fólk-
ið. Stærðir 62-92.
Herraföt
er sérblað með snið-
um að herrafötum
fyrir karlmenn á öll-
um aldri, bæði
hversdags- og spari-
fatnaði. Kemur út
einu sinni á ári.
Þessi blöð og möig fleiri frá Burda eru nú fáanleg á næsta útsölustað. Pantanasími er 551-7900.
Nemendur og kennarar
-og allir aðrir athugið
VERKFALLSTILBOÐ A
Tommahamborgurum Lækjartorgi
Tommi
franskar
og kók
aðeins
kr. 550.-
Tommi
TOMMA franskar og
hamborgarar freyðandi öl
LÆKJARTORGI aðeins
kr. 650.-