Helgarpósturinn - 09.03.1995, Page 15
FIMMTUDAGUR 9. MARS 1995
MORGUNPÓSTURINN VÍN, VÍF OG SÖNGUR
15
Eru einhverjir frambjóðendur heitari en aðrir? Vilja Framarar fá Davíð eða freistar
Mörður meira? Björn Ingi Hrafnsson fékk nokkra flokkseigendur til að benda á hverjir
það eru úr röðum andstæðinganna sem þeir vildu helst sjá á sínum lista
Ágúst Einarsson
Þjóðvaka í Reykjavík
Steinunn: „Það er alltaf gott að
fá einhvem í bókhaldið."
Birgir: „Miðað við það sem
hann hefur sagt og skrifað á
undanförnum árum er ótrúlegt
að hann skuli binda trúss sitt
við afskaplega gamaldags
vinstristefnu."
Arni Mathiesen
Sjálfstæðisflokki á Reykjanesi
Flosi: „Flann var í brúarvinnu
hjá pabba og hlýtur að hafa
lært eitthvað þar. Síðan er öll-
um flokkum auðvitað hollt að
hafa innan sinna vébanda einn
og einn hrossalækni."
Steinunn: „Til að lækna öll dýrin
stór og smá.“
Ámundi: „Að taka hann væri
náttúrlega viss áhætta. Nafni
hans Johnsen gæti nefnilega
fylgt með.“
Björn Bjarnason
Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík
Steinunn: „Það er alltaf þörf fyr-
ir húmorista eins og Björn.“
Davíð Oddsson
Sjálfstæðisflokki í Reykjavík
Oddur: „Vegna þess að hann
dregur æ meiri dám af læriföð-
ur sínum Ólafi Jóhannessyni og
er óðum að tileinka sér lands-
föðurlega framkomu hans.“
Finnur Ingóifsson
Framsókn í Reykjavík
Steinunn: „Þá þyrfti hann að
taka sér orðið kvenfrelsi í
munn. Svo væri líka mjög gam-
an að sjá hann í grænni dragt.“
Friðrik Sophusson
Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík
Steinunn: „Það er aldrei nóg af
lögfræðingum."
Alitsgjafarnir
Ámundi Ámundason
Birgir Ármannsson
Flosi Eiríksson
Hrannar B. Arnarsson
Oddur Ólafsson
Steinunn V. Óskarsdóttir
Guðmundur
Bragason
Alpýðubandalaginu Reykjanesi
Ámundi: „Hann er glæsilegur
fulltrúi íþróttamanna og hefur
ekkert að gera í Alþýðubanda-
laginu."
Guðmundur Árni
Stefánsson
Alþýðuflokki á Reykjanesi
Steinunn: „Af því að við erum
að spá í að halda listahátíð og
hann g'æti bæði nýst okkur
bæði sem framkvæmdastjóri
og listamaður."
Helgi Hjörvar
Alþýðubandalagi í Reykjavík
Hrannar:Fluggáfaður og fram-
bærilegur fulltrúi sameiningar-
sinna. Því er leiðinlegt að sjá
hann læsast í klóm gamla
flokkakerfisins."
Ámundi: „Ég væri til í að bjóða
honum sjö kvöld í röð á Bost-
on-kjúklinga ef það mætti vera
til þess að fá hann í mínar raðir.
Hann er einn af fáum frambæri-
legum mönnum sem enn eru
eftir í Alþýðubandalaginu."
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Kvennalista í Reykjavík
Hrannar:Hún er einn frambæri-
legasti stjórnmálamaður lands-
ins og þess vegna er vel þess
virði að forða henni frá niður-
lægingu Kvennalistans í næstu
kosningum."
Jóhanna
Sigurðardóttir
Þjóðvaka í Reykjavík
Oddur: „Hún er einlægur and-
stæðingur íhalds og krata."
Jón Baldvin
Hannibalsson
Alþýðuflokki í Reykjavík
Oddur: „Honum er manna best
lagið að þjappa bændafylkinu
um Framsóknarflokkinn."
Katrín Fjeldsted
_ Sjálfstæðisflokki Reykjavík
Ámundi: „Ég myndi gera hana
strax að varaformanni."
Hrannar: „Besti
fulltrúi frjáls-
hyggjunnar í
Sjálfstæðis-
flokknum.“
Margrét
Guðmundsdóttir
Alþýðubandalaginu Reykjanesi
Hrannar: „Það er svo erfitt að
hafa tengdamömmu á lista
andstæðinganna."
Ólafur Ragnar
Grímsson
Alþýðubandalagi á Reykjanesi
Steinunn: „Ef hann er með þá
er aldrei hætta á því aö það
komi vandræðaleg þögn á
fundurn."
Oddur: „Aldrei hafa verið
bundnar meiri vonir við hann en
ar hann var í Framsóknar-
flokknum."
Það væri
aman að siá
inn Ingó
í grœnm dragt
Kristín
Ástgeirsdóttir
Kvennalistanum í Reykjavík
Oddur: „Hún myndi ekki
skyggja á kvennablóma Fram-
sóknar.“
Kristín Á.
Guðmundsdóttir
Alþýðubandalagi í Reykjanesi
Ámundi: „Hún á að koma til
okkar og gerast þingmaður.
Það er ekkert of seint fyrir
hana.“
Mörður Arnason
Þjóðvaka í Reykjavík
Flosi: „Ég held að það sé feiki-
lega skemmtilegt að sjá hann í
þessu nýja hlutverki sem sátta-
semjari og málamiðlari. Ég vil
eiginlega ekki missa af því.“
Steinunn: „Hann viljum við fá
því þá kæmi Hannes örugglega
líka.“
Ámundi: „Hann á að vera löngu
kominn í flokkinn. Ég get gert
hann að manni ef hann kemur
til okkar."
Olafur G.
Einarsson
Sjálfstæoisflokki á Reykjanesi
Steinunn: „Maður með yfir-
burðaþekkingu og áhuga á
mennta- og menningarmálum
nýtist alltaf vel.“
Olafur Orn
Haraldsson
Framsókn í Reykjavík
Flosi: „Þessar auglýsingar sem
hann hefur verið að keyra í
Mogganum undanfarið eru lík-
lega þær hallærislegustu sem
lengi 'hafa sést. Þetta er svo
ótrúlega lummulegt að maður-
inn hlýtur að hafa eitthvað fram
að færa.“
Birgir: „Hann er að stela sen-
unni frá Finni Ingólfs og hann
virðist vera ágætur áróðurs-
maður. Hins vegar held ég að
hans stíll fari svolítið fyrir
brjóstið á gömlu Frömmurun-
um.“
Ámundi: „Ég vil fá hann um leið
og hann þiðnar. Að vísu með
einu skilyrði: Hann má alls ekki
láta Finn Ingólfs fylgja með.“
Siv Friðleifsdóttir
Framsókn á Reykjanesi
Birgir: „Það væri gaman að sjá
sjávarútvegsstefnu sjúkraliðans
íframkvæmd.“
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
Kvennalista í Reykjavík
Flosi:Þessi æðislega forsíða á
Veru slær allt út. Þar að auki
stend ég alltaf með fyrrverandi
Kópavogsbúum."
Birgir: „Hún passar illa inn í
þetta hugmyndafræðilega
nunnuklaustur með sína víð-
sýni.“
Ámundi: „Ég væri til í að bjóða
henni 25 barnaísa. Hún yrði
góður þingmaður okkar og ég
ætla að leggja snörur fyrir hana
strax eftir kosningar."
Ogmundur
Jónasson
Alþýðubandalagi í Reykjavík
Steinunn: „Mig dreymir um að
sjá þessar raðir óháðra."
Össur
Skarphéðinsson
Alþýðuflokknum í Reykjavík
Steinunn: „Af því að hann er
fyndinn og feitur."
Birgir: „Hann hefur verið á svo
hraðri leið til hægri á unfanförn-
um árum frá því hann var rit-
stjóri Þjóðviljans að það væru
engin stórtíðindi þótt hann end-
aði í Sjálfstæðisflokknum. Síð-
an spillir ekki fyrir að hann er
stórskemmtilegur maður sem
hefur gaman að því sem hann
er að gera og aukaprikið fær
hann síðan fyrir slaufuna sína.“
Hrannar: „Hann er svo góður
að koma sjálfum sér á forsíð-
Lítrabjórinn er kominn til landsins
Síðan bjórmenningin hélt inn-
reið sína í íslenskt samfélag hefur
ýmislegt vökvakennt runnið til
sjávar. Augljóslega. Frá því allur
bjór var seldur í 33 cl. umbúðum
eru hálfslítra dósir nú allsráðandi.
Þróunin heldur áfram og næsta
skref er að við fáum bjór í lítra-
flöskum eins og þekkist úti í hinum
stóra heimi.
Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, segir að ekkert sé því til fyr-
irstöðu að fluttur sé inn bjór í slík-
um umbúðum.
„Það eina sem við gerum kröfu
um er að magn hverrar sölueining-
ar sé ekki minna en tveir lítrar. Það
eru innkaupareglurnar sem við
fylgjum,'1 segir hann. Höskuldur
segir að stærsti hluti bjórs sé nú
seldur í hálfslítra umbúðum. „Það
er lang algengast núna. Það er eng-
in ein skýring á því hvers vegna ts-
lendingar fóru svona hratt yfír í
þessar umbúðir. Erlendis er mun
algengara að notaðar séu 25 cL eða
33 cl. umbúðir.“
Ingvar Karlsson, franikvæmda-
stjóri Heildverslunar Kárls Karls-
sonar, segir að fyrirtækið flytji nú
Ingvar Karlsson heildsali með
San Miguel-bjórinn í lítraflöskum.
„Það eru öruggiega einhverjir
sem vilja þetta.“
þegar inn spænska bjórinn San
Miguel í lítraumbúðum. „Við
geymum hann í Tollvörugeymsl-
unni og hann er afhentur gegn dags
fyrirvara. Það eina sem þarf að gera
er að fara í Heiðrúnu, sérverslun
ÁTVR, og panta hann.“
Stendur ekki til að hefja sölu á
bjórnum almennt í Ríkinu?
„Það hefur ekki verið rætt neitt
sérstaklega. ÁTVR hefur þessa
tveggja lítra reglu og eins og er get-
um við ekki límt tvær flöskur eða
fleiri saman, þannig að við höfum
haft þennan háttinn á.“
Ingvar segir að nú þegar séu
nokkrir skemmtistaðir farnir að
bjóða upp á þennan valkost. „Ég er
ekki viss um að þetta verði svo út-
breitt en það verða örugglega alltaf
einhverjir sem vilja þetta. Það er
bara komin svo mikil kútamenning
hingað. Nú kaupir fólk bara bjór-
kúta við minnstu tilefni og skenkir
beint í glös.“
1 spænskum borgum veifa ung-
lingarnir lítrabjór og hver veit
nema það sama verði uppi á ten-
ingnum í miðbæ Reykjavíkur áður
en langt um líður — lítrabjór taki
við af vodkabokkunni.
Bih
Þetta verður geðveikt stuð
segir Þór Eldon í Unun,
„Pað er víst óhætt að segja að
þetta verði geðveikt stuð. Þetta er
alvöru tækifæri til að fara á reyk-
vískt sveitaball og ég veit ekki um
nokkurn mann sem vill missa af
því.“
Það er gítarsnillingurinn Þór
Eldon í Utiun sem hefur orðið.
Sveitaballið, sem hann lýsti svo
fjálglega, verður haldið á hinu mjög
svo sveitalega Hótel Islandi um
næstu helgi, nánar tiltekið föstu-
dagskvöldið 17 mars næstkomandi.
Mikill fjöldi stórsveita mun stíga
þarna á stokk, auk Ununar verða
þarna Spoon, SSSól, Tweety og -Vin-
ir vors og blóma. Auk þess verður
tískusýning á vegum Icelandic
Models auk þess sem dansfríkin
geta tjúttað í þar til gerðum hliðar-
sölum.
Eða eins og Þór Eldon orðar það:
„Þetta verður megaball ársins og
það ætti enginn að láta þetta fara
fram hjá sér.“
Þar hafiði það. Bih
-i