Helgarpósturinn - 09.03.1995, Side 27
I
MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF
27
FIMMTUDAGUR 9. MARS 1995
Helgi Þorgils í Nýlistasafninu
Skírskotun
til rótarinnar
„Sumir hafa túlkað myndirnar
mínar þannig að í þeim séu mann-
eskjur í nokkurs konar sæluríki en
ég er ekki fyililega sammála því. Ég
vil frekar tala unt þetta sem mann-
eskjur í umhverfi og það getur ver-
ið mis hlýlegt. Yfirleitt er bak-
grunnurinn úr íslenskum veruleika
og landið er leiksviðið. Ef Island er
sæluríki þá er fólkið í sæluríki,“
segir Helgi Þorgils Friðjónsson
myndlistarmaður en á laugardag-
inn opnar hann sýningu á verkum
sínum í Nýlistasafninu. Helgi sem
verið hefur í fremstu röð íslenskra
málara um árabil hefur ekki haldið
einkasýningu á olíuverkum hér-
lendis um sex ára skeið og hlýtur
hún því að vera hvalreki fýrir list-
kera. Auk manneskjunnar eiga dýr
og ávextir tilvist í verkum Helga allt
að „komposisjónum skildum
Mondrian“ eins og hann orðar það
sjálfur. „Ég er með myndröð með
íslenskum fuglum og það má segja
að þeir tákni það sama og landið í
hinum myndunum, einhvers konar
kringumstæður þess manns sem
eigrar um,“ segir Helgi um tákn-
ræna merkingu dýra í myndum
sínum. „Hver og einn verður að
meta tilganginn í því.“
Helgi kveðst ekki vera draum-
óramaður. „Myndirnar eru draum-
kenndar í útliti en þær hafa jarð-
bundna tengingu og skírskotun til
rótarinnar."
Helgi segir- myndirnar á sýning-
unni í Nýlistasafninu vera rökrétt
framhald af fyrri verkum sínum en
engu að síður hafi list hans tekið
miklum breytingum. „Myndirnar
verða flóknari og flóknari með
hverju árinu en markmiðin verða
ákveðnari með hverri mynd fyrir
sig. Þær geta þó haft ólík markmið
en saman mynda þær eina heild."
Að gefnu tilefni vill Helgi fyrir-
byggja þann miskilning að verk
hans séu myndskreytingar við goð-
sögur. „Þetta er eins og tungumál-
ið, röð af orðum sem mynda eitt-
hvað rökrétt í nútíma samhengi.“
Auk málverka sinna verður Helgi
með „lítilræði af skúlptúrum" á
sýningunni eins og hann orðar það.
Helgi Þorgils Frið-
jónsson segir myndir
sínar jarðtengdar þótt
þcer kunni að virka
draumkenndar við
fyrstu sýn.
„Uppáhaldsspilið mitt er Killer Instinct en það er
splunku nýtt slagsmálaspil fyrir tvo leikmenn," segir
Geir Þorsteinsson, starfsmaður í leiktækjasalnum
Tralla á Skúlagötu. „Það sem gerir spilið skemmtilegt
er hvað hreyfingarnar á bardagamönnum eru eðlilegar
og grafíkin er flott. Þetta er 64 bita grafík frá Nintendó
en það er nýjasta og fullkomnasta grafíkin. Spilið geng-
ur út á að ná sem flestum höggum á andstæðinginn
án þess að hann komi höggi á þig. Þetta er samt ekki
blóðugur leikur þannig séð heldur bara slagsmála-
leikur." Geir segist vera ágætur í Killer Instinct en
NBA er sennilega besta spilið hans.
„Fjórir leikmenn geta spilað NBA í einu en uppá-
haldsgaurinn rninn er Rodman í Spurs. Daytona
USA er fullkomnasta bílaspilið á íslandi í dag en það
er nokkurs konar bílhermir sem maður sest inn í.
Það eru 4 gírar, bremsa og inngjöf og stýrið tekur í
þegar maður beygir alveg eins og í raunveruleikan-
um. Virtual Fighter 2 er raunverulegasta slagsmála-
spilið upp á hreyfingar en karatebrögðin eru mjög
vel útfærð. Leikmennirnir berjast í sýndarveruleika-
umhverfi og þetta er nýjasta tæknin sem er að ryðja
sér til rúms í spilunum. Við erum að bíða eftir spiii
sem heitir Virtual Cop sem er skotspil með tveimur
byssum. Þeir sem spila setja þá á sig sýndarveruleika-
gleraugu og ráðast gegn bófunum.
Demolition Man er mjög fullkomið kúluspil en eru
alltaf vinsæl þrátt fýrir öll tölvuspilin. Ég er búinn að
vinna í þessum bransa í 7 ár og þróunin hefur verið gíf-
urlega hröð, sérstaklega undanfarnin 5 ár.“ Aðspurður
segir Geir aðsóknina vera jafna og góða í spilasalina en
hann hefur ekki orðið var við meiri aðsókn þrátt fyrir
kennaraverkfallið.
Trimm
Að vísu er svolítið hált ennþá,
en þetta er allt að
koma. fyrst allir eru
búnir að missa
áhugann á þolfim-
inni, meira að segja
Evrópumeistarinn
sjálfur, er bara eitt
til ráða; það er að
fara út að trimma.
Það er angan af vori
í lofti. Beljurnar eru
að fara að brjálast og orka
mannskepnunnar þarf ekki síð-
ur útrás. Og vel að merkja,
þetta er ókeypis íþrótt.
Vesturbærinn
Hefursosum löngum verið heit-
ur, allavega hefur hann lengi
verið vel volgur. Nú er hann
hins vegarsjóðheitur. Sérstak-
lega sögur úr Vesturbænum
sem margar hverjar eru krass-
andi um þessar mundir. Það
sama verður ekki sagt um Vest-
urbæinn í Hafnarfirði, en löng-
um hefur loðað við illa greiddar
hafnfirskar konur að þær væru
með Vesturbæinga í hárinu.
Unda Pé
Svar Stöðvar 2-manna við Unni
Steinsson og hinum
þulunum á Sjón-
varpinu. Karakter,
sjarmi og kynþokki
Lindu Péerengum
líkurog erá við
sömu eiginleika að
minnsta kosti tíu
þula hinum megin. Linda hefur
auk þess kjark; sem sýndi sig
meðal annars í því að hún hef-
ur tekið betur á löggunni en
jafnvel Birna Þórðardóttir.
Tékkneskar myndir
Á besta tíma á iaugardags-
kvöldum á Ríkissjónvarpinu.
Það finnst að minnsta kosti
mörgum ef marka má aðsókn-
ina að myndbandaleigunum
síðastliðið laugardagskvöld.
Þegar rétt var liðið á þá tékk-
nesku (maður allavega reyndi
að horfa) var búið að leigja út
öll vídeótæki og flestar bestu
spólurnar. Maðursat því heima
með sárt ennið.
Slíf ÁfENGIS-
DRYKKJA
Eins og grey ung-
lingarnir þurfa að
leggja á sig áður en
þau skella sér inn á skólaböllin.
Það er alveg óskiljanlegt að
þau fái ekki að neyta víns inni
á dansleikjum. Þetta er nefni-
lega aldrei öðruvísi en svo að
ef maður ætlar sér að detta
í'ða þá gerir maður það, hvort
sem maður er fimmtán eða
fimmtugur.
Kosningabaráha
TIL VINSTRI
Það er að segja yfirlýsingar ein-
stakra flokka um
hvernig þeir
ætla að bregð-
ast við ef Sjálf-
stæðisflokkur-
inn leitar á þá
eftir komandi
kosningar.
Þetta tekur út eitt skemmti-
legasta elementið úr stjórn-
málunum, nefnilega hið óút-
reiknanlega.
Heitt & kalt á að lesa sem dægradvöl.
Fullyrðingar af þessu tagi byggjast
ekki á traustum grunni vísindalegra
staðreynda.
IF