Helgarpósturinn - 09.03.1995, Qupperneq 32
álftinn hafinn á netinu
IT/.llillil.l-.UMI
Kosningabaráttan virðist ætla að leita í nýja farvegi að einhverju leyti. Velti-
skiltaauglýsingar eru á öðru hverju götuhorni og það veltur á því hvorum meg-
in götunnar menn koma hvort þeir sjá engilfríða ásjónu Halldórs Ásgríms-
sonar eða hvessilegar brúnir Jóns Baldvins. Internetið hefur einnig vakið at-
hygli eftir að Guðmundur Árni reið þar á vaðið fyrir prófkjörið, en hann lét
skattgreiðendur reyndar bera kostnað af þvi. Björn Bjarnason er kominn
með eigin síðu á eigin kostnað og Sjálfstæðisflokkurinn og Heimdallur munu
vera á leiðinni með áróðurssíður. Þá er Þjóðvaki kominn með slatta af síðum á
netinu. Lengst ætla þó sjálfstæðismenn að ganga, því Samband ungra sjálf-
stæðismanna ætlar að Oþna sérstaka kosningaútvarpsstöð á næstu dögum...
Hemmi fékk nei
Hemmi Gunn óskaði
sérstaklega eftir því
við yfirboðara sína
að 100. þátturinn
hans yrði í beinni út-
sendingu, enda hefur
hann verið óánægður með það fyr-
irkomulag að taka allt upp fyrirfram.
En svarið sem hann fékk var þvert
nei og sparnaði borið við...
Hófí malar Lindu sem kvenfyrirmynd ■ Mörður og Hannes að verða eins
■ Agnes kölluð Barbí von Styrmlet ■ Mannlíf fagnar á Skuggabarnum
í nýjasta Mannlífí völdu konur
sér fyrirmyndir úr hópi fjölda
kvenna og gáfu einkunn og kom
þar í ljós að HóFÍ er konum ansi
hugleikin en hún fékk hæstu meða-
leinkunn, eða 8,1.
Linda Pétursdóttir fékk hins
vegar 5,2 og einungis ÁGNES
Bragadóttir blaðamaður fékk
fleiri núll eða alls fimmtán talsins.
Þegar kom að því að spyrja um
kynæsandi karla var sjö þekktum
karlmönnum til að dreifa sem kon-
urnar gátu gefið einkunn. Þá fóru
að sjást öllu lægri einkunnir. Nafn-
arnir Ingvi Hrafn BINGÓKALL og
Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri
fúxuðu en Ingvi Hrafn fékk lægstu
meðaleinkunn, 2,4, en Hrafn
Gunnlaugsson fékk 3,1. Hrafn
Gunnlaugsson flaggaði hins vegar
fleiri núllum, eða þremur betur en
Ingvi Hrafn, því að samtals 49 kon-
ur gáfu honum núll. SlGURÐUR
Sveinsson dúxaði hins vegar með
hæstu meðaleinkunn en honum
gáfu konurnar að meðaltali 7,8 en
annað kyntröll, nefnilega Egill
ÓLAFSSON, fékk flest tíu en dugði
þó ekki til að fleyta honum í fyrsta
sætið. Ein spurningin hljóðaði
þannig: „Ef þú værir gift og Tom
Cruise vildi sofa hjá þér, mynd-
irðu gera það?“ Já sögðu 19 prósent
78 prósent sögðu nei, Aðeins 2,7
prósent vissu ekki hver hann er. En
athyglisvert er að ein af hverjum tíu
giftum konum í hópi svarenda
svöruðu því játandi. Það eru því til
giftar konur sem eru til í að hoppa
uppí með Tom Cruise...
Tjörupósturinn, sem gefinn er út
í kringum árshátíð starfsmanna
Morgunblaðsins, inniheldur grín
og glens og fá margir starfsmenn
blaðsins pillur í blaðinu. Heyrst
hefur að háðið að þessu
BRAGADÓTTUR.
nes er víst kölluð Barb
von Styrmiet og þykir
mönnum sú nafngift
augljós þar sem Agnes
hafi verið náinn sam-
starfsmaður STYRMIS
GUNNARSSONAR ritstjóra. Auk
nafngiftarinnar er henni gefin
ákveðin bókmenntaleg tenging
með því að skrýða hana í búning
Barböru Cartland...
Það má búast við því að Skugga-
barinn verði þéttsetinn í kvöld
klukkan átta. Þangað hefur Mannlíf
boðað fjölda manns til að fagna
hundraðasta tölublaðinu með
freyðivíni og skemmtilegheitum og
þar verður margt fjölmiðlafólk að
samfagna. Heyrst hefur að veislu-
haldarar eigi nokkur leyninúmer
uppi í erminni. Jafnvel að hljóm-
sveitin Skárr’n ekkkert með Guð-
MUND STEINGRÍMS-
SON HERMANNS'
SONAR hafi verið
fengin til að létta
fólki lund í bland
við freyðivínið.
Ritstjórarnir
Bjarni Brynj-
ÓLFSSON Og KRISTJÁN
Þorvaldsson verða væntanlega
bísperrtir enda frágengið að þeir
verði áffam með blaðið...
Ólafur Ragnar Grímsson skýt-
ur föstu skoti í blaði stjórnmála-
fræðinema að fýrrum upplýsinga-
fulltrúa sínum Merði Arnasyni,
sem skipar þriðja sæti lista Þjóð-
vaka í Reykjavík í komandi Alþing-
iskosningum. Mörður er með inn-
slag í félagi við HANNES HÓLM-
stein Gissurarson í 19:19 eins og
kunnugt er og er Ólafur inntur eftir
áliti sínu á þættinum af stjórnmála-
fræðinemunum. Ólafur segist ótt-
ast að Mörður muni færast svo
hratt til hægri að innan tíðar verði
hann eins og Hannes og óneitan-
lega sé hann kominn á visst hættu-
svæði...
Kaffí-
drykkja
á ínter-
netinu
í kvöld verður gjörbylting í kaffi-
húsalandslagi borgarinnar þegar
fyrsta netkaffihús landsins verður
opnað í kjallara Bíóbarsins. Þar
verður hægt að setjast niður við sex
tölvur af Laser-gerð og tengjast
hinu óendanlega víðfeðma Inter-
neti í gegnum Miðheima, ná sam-
bandi við alla þá gagnabanka sem
menn hafa lyst á, detta inni í há-
spekilega samræðuhópa, eða bara
skoða heimasíður aðdáendaklúbbs
Tom Jones og sötra yfir þessu
ljúfar veitingar: kaffi, bjór eða te.
Þá geta tækjafríkin, sem ganga
með tölvurnar undir hendinni,
einnig gert sig heimakomin og
stungið sér í samband í næsta vegg.
Staðir sem þessir hafa sprottið
upp eins og gorkúlur í útlöndum
og ganga þar undir samheitinu
cyberia (samanber kaffiteria). Það
er Einar Örn Benediktsson sem
er í forsvari fýrir kaffihúsið og eins
og honum er lagið var hann fljótur
að snara hinu erlenda samheiti net-
staðanna yfir á íslensku og gefa
staðnum nafnið Síbería. Og eins og
segir í fréttatilkynningu frá staðn-
um verður jafnframt boðið upp á
alla almenna þjónustu við
ferða(tölvu)langa svo sem hleðslu,
mótaldstengingu og útprentun.
andres@centrum.is
Menntahlunkur
á Austurvelli
Fulltrúar allra námsmannahreyf-
inganna á íslandi komu í gær
fyrir hnullungi á Austurvelli.
Hann er úr íslensku gabbrói og í
grafið slagorðið „Menntun er
hornsteinn". Með þessu þykjast
stúdentar leggja táknrænan
hornstein að framförum og
framtíð þjóðarinnar. Hann á að
vera þarna I mánuð sem áminn-
ing til námsmanna og annarra
um það að gera menntamálin að
raunverulegu kosningamáli í
þetta sinn. Ekki var fengið leyfi
fyrir steininum, svo það er óvíst
hvort hann endist þarna út mán-
uðinn.
Sagnameistararnir ætla að koma saman í Kaffileikhúsinu á miðvikudagskvöldið. F.v: Matthías Bjarnason,
Vilborg Harðardóttir, Ása Richardsdóttir, Guðrún Hallgrímsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir og Einar Thor-
oddsen.
Sögumenn segja sögur af sjálfum
sér og öðrum í Kaffileikhúsinu
Sagnabrunnurinn
er ótæmandi
„Ég er bara peð sem verð trekkt-
ur upp til að segja eitthvað," er það
fyrsta sem Einar Thoroddsen,
læknir og vínfrömuður, hefur að
segja um þá nýjung Kaffileikhúss-
ins að halda sögukvöld á miðviku-
dagskvöldum. „Þetta verða svona
smásögur, líkast til hrakfallasögur,
sagðar af sjö til átta sögumönnum
auk virkrar aðstoðar áhorfenda úti í
sal. Það er að segja ef einhverjir
mæta.“
Sögukvöldin taka við af leiksýn-
ingum Kaffileikhússins sem verið
hafa í gangi undanfarna fimm
mánuði. Meiningin er að fá þekkta
og óþekkta sagnamenn til að gera
grín að sjálfum sér og öðrum í
heyranda hljóði og ef vel tekst til
ættu fjörugar umræður að skapast.
Sögumennirnir á fyrsta kvöldinu
verða aldeilis ekki af lakara taginu.
Auk Einars munu verða þarna
gnægtarbrunnar sagna eins og
Friðrik Þór Friðriksson, Einar
Kárason, Steinunn Sigurðar-
dóttir, Kristjana Samper og síð-
ast en ekki síst Matthías Bjarna-
son. „Hann ku vera mikill sagna-
brunnur enda búinn að lifa tímana
tvenna. Það verður skemmtilegt að
hlusta á hann.“
En hvað œtlar lœknirinn sjdlfur að
segja? Verða kannski sagðar gaman-
sögur af samskiptunum við sjúk-
linga?
„Nei, enda er ég bundinn
þagnareiði og hef því ekki leyfi til
að nafngreina einn né neinn. Ég
þyrfti þá fyrst að fá leyfi fyrir því og
ég var nú ekki kominn svo langt
ennþá,“ svarar Einar hlæjandi en
bætir svo við. „Ég hef nú ekki
ákveðið neitt ennþá og býst ekki við
að ég geri það fyrr en á síðustu
stundu. Enda verð ég að yfirvinna
sviðsskrekkinn fýrst.“
Bih
Veðrið um helciina
t dag verður allhvasst eða hvasst
fyrir norðan og mun snjókoma fylgja
í kjölfarið. Syðra verður að mestu
þurrt og hægt í veðri. Veðurhorfur
næstu daga:
Á föstudag er búist við suðaustan
átt, kalda eða stinningskalda. Snjó-
koma verður um austanvert landið
og á annesjum noröan lands en úr-
komulaust annars staðar. Austan
eða suðaustanátt verður á laugar-
daginn, hvasst á Vestfjörðum en
mun hægara annars staðar á land-
inu. Rigning eða súld verður suð-
austan og austan lands en úrkomu-
laust annars staðar. Hiti verður 3-4
stig.
Á sunnudag verður síðan vestan
eöa norðvestanátt, víðast hvar frem-
ur hæg. Él eða slydduél víða sunnan
og vestan lands en úrkomulaust
annars staðar. Hiti verður frá frost-
marki og upp í tvö stig.
Er Jóhönnu Sigurðardóttur
treystandi sem
forsœtisráðherra?
18.16
19,90 krbnur mínútan
I hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur, sem þeirgeta kosið um í síma 99 15 16.