Helgarpósturinn - 24.04.1996, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL1996
27
Dan Morgan sem áöur rak skemmtistaðinn Bóhem hefur nú opnaö
annan nektardansstaö viö Laugaveg og harðneitar öllum ásökunum
um vafasamar athafnir gegn samkeppnisaðilunum...
„Munum hrekj a þá úr
bransanum með löglegum hætti“
Þar sem skemmtistaðurinn
Tveir vinir var áður til
húsa við Laugarveginn hefur
nú nektardansstaðurinn Vegas
tekið til starfa. Dan Morgan
sem áður rak Bóhem er fram-
kvæmdastjóri þar á bæ. Samú-
el Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Bóhem, ásakar Dan í við-
tali við HP um ítrekaðar hótan-
ir, rúðubrot, rógsherferð og
annað slíkt athæfi til að kné-
setja rekstur Bóhem á ólögleg-
an hátt. Blaðið gerðist milli-
gönguaðili í málinu.
Dan, hvernig svarar þú
þessum ásökunum Bóhem-
manna?
„Þessar ásakanir eru alger-
Iega út í hött. Ég hef aldrei tal-
að við þennan Samúel. Ég er
alltof upptekinn til að vera
leika barnalega leiki, eins og
að hella bensíni yfir staðinn.
Ég hef einnig heyrt að ég hafi
átt að vera hlaupandi um í Bó-
hem öll kvöld og dunda mér
við að brjóta rúður og þess
háttar. Öfugt við þá, haga ég
mér ekki eins og barnaskóla-
krakki. Ég er athafnamaður en
ekki trúður. Og sögur um að ég
sé að fá einhverja menn til
landsins til að herja á Bóhem-
mönnum eru algerlega úr
lausu lofti gripnar. Hins vegar
veit ég, að það eru að koma að-
ilar frá umboðsskrifstofu fata-
fellna í Kanada til að rukka inn
peninga sem þeir telja að Bó-
hem skuldi sér. Einnig skulda
þeir mér peninga og ég er nú
að höfða mál gegn þeim. Við
munum hrekja þá úr bransan-
um með löglegum hætti.“
Hvernig œtlarðu að fara
að því?
„Vegas verður miklu huggu-
legri og hreinni staður en Bó-
hem. Ennfremur verður stjórn-
un staðarins betri og það verð-
ur ekkert dóp hér inni eða full-
ir dansarar — öfugt við það
sem gerist á Bóhem. Ég hef
löngu sannað, að ég er miklu
betri í að reka svona stað en
þessi Samúel, sem veit ekkert
hvað hann er að gera. Við
munum einfaldlega hafa þá
undir í heiðarlegum viðskipt-
um. Vegas er hannaður fyrir
allt öðruvísi fólk en Bóhem.
Vegas er staður fyrir vel
klædda athafnamenn og fólk
sem vill koma á hreinan og
huggulegan stað. Þetta verður
staður sem á engan sinn líkan
á íslandi. Það verður opið hér
á hverjum degi frá tólf á há-
degi. Við munum þá bjóða upp
á dýrindis hlaðborð og stúlk-
unar munu dansa upp á sviði
allan daginn."
Heldurðu í alvöru að þú
getir fengið allt þetta fólk
Samúel Sveinsson er framkvæmdastjóri á Bóhem. I
samtali við HP kom í Ijós aö hann á í útistöðum við
rekstraraðila nýja strippstaðarins Vegas. En Samúel
hefurgaman af starfinu..
„Fatafellumar geta verið
bölvaðar frekjur“
Hinn rúmlega tvítugi Samú-
el Sveinsson tók við sem
framkvæmdastjóri Bóhem fyr-
ir um mánuði síðan. Kanada-
maðurinn Dan Morgan var þá
rekinn úr starfi og hefur væg-
ast sagt andað köldu milli
þeirra síðan. Dan er nú að
opna svipaðan strippstað í
miðbæ Reykjavíkur sem kall-
aður er Vegas. En hvernig kom
það til að Samúel gerðist fram-
kvæmdastjóri á nektardans-
staðnum Bóhem?
„Ég hafði séð um barinn
hérna á staðnum og unnið á
fjölmörgum skemmtistöðum
áður. Og þegar Dan var látinn
fara þá bað eigandinn mig um
að taka við staðnum. Hann
hafði trú á að ég gæti rekið
þetta með sóma og ég hafði þá
trú líka. Svo einfalt var nú það.
Áður en að ég tók við hafði ver-
ið mikið agaleysi á starfsfólk-
inu, en ég hef tekið það í gegn
og sé til þess að fólk vinni pg
geri það skikkanlega til fara. Ég
búinn að mála og í raun taka
allan staðinn í gegn og gera
hann huggulegri. En hann er
ennþá frekar sóðalegur.“
Hundraðþúsund
krónur á kvöldi
Hvernig er að vinna á
svona stað, sem hefur orð á
sér fyrir að vera hið mesta
syndabœli?
„Þetta er allt öðruvísi en á
öllum þeim stöðum sem ég
unnið á. Það eru allsberar
stelpúr kringum mann alla
daga; nokkuð sem mér fannst
fremur skrýtið til að byrja
með. En eftir vikuna þá var ég
hættur að taka eftir þessu og
nakið kvenholdið varð bara
eðlilegur hlutur. Ég bý með
nokkrum vinum mínum og
núna þegar ég kem heim eftir
vinnu finnst mér eiginlega hálf-
furðulegt að sambýlisfólk mitt
sé ekki allsbert. Þegar félagar
mínir fréttu að ég væri búinn
að taka við staðnum þá hristu
þeir bara hausinn og sögðu
mig kominn á botninn. Mér
finnst þessi vinna hins vegar í
góðu lagi og hef gaman af. —
Já, og flestir halda líka að mað-
ur sé sofandi hjá þessum stelp-
um, en svo er ekki.“
Hvaða laun eru í boði fyr-
ir góðar fatafellur?
„Það er í raun algerlega und-
ir þeim komið. Og fer eftir því
hvað þær eru duglegar við að
láta bjóða sér upp á kampavín,
hvort þær hafi mikið að gera í
borðdansi — og síðan einka-
dansi í bakherberginu, sem
gefur náttúrlega best. Á góðu
kvöldi geta þær gengið út með
allt að hundraðþúsund krónur
í vasanum. Fatafellurnar geta
aftur á móti verið bölvaðar
frekjur og þær vaða gjörsam-
lega yfir mann ef maður er ekki
harður við þær. Það eru bölv-
aðir dyntir í þeim og þetta
gengur ekki nema þær geri það
sem ég segi.“
Nú er annar fatafellustað-
ur að opna um helgina. Eruð
þið ekkert hrœddir við sam-
keppnina?
„Áð sjálfsögðu eru við dálítið
smeykir. Þeir eru búnir að
eyða mörgum milljónum I
Samúel Sveinsson: „Þeir sem reka
þennan Vegas-stað eru algerir titt-
ir. Þeir hafa ítrekað hringt hingað
og hótað mér öllu illu, og jafnvel
brotið nokkrar rúður á staðnum
... En allt það sem þeir gera okkur
fá þeir borgað til baka. þeir geta
bókað það.“
breytingar á staðnum og borga
stórfé í leigu. Og auk þess eru
þeir að flytja inn tólf stelpur —
sem kostar stórfé. Þannig að
ég held að staðurinn fari á
hausinn innan þriggja mánaða.
Þeir sem reka þennan Vegas-
stað eru algerir tittir. Þeir hafa
ítrekað hringt hingað og hótað
mér öllu illu, og jafnvel brotið
nokkrar rúður á staðnum. Um
daginn hringdu þeir og spurðu
hvort við fyndum ekki lykt af
bensíni. Dyravörðurinn fór
fram og fann þá bensínbrúsa
fyrir utan sem var búið að
hella úr yfir alla glugga. Einnig
hef ég heyrt að þeir hafi verið
að ljúga því, að ég sé að selja
dóp hérna inni og koma óorði
á mig á þann hátt. En allt það
sem þeir gera okkur fá þeir
borgað til baka. þeir geta bók-
að það.“
inn á nektardansstað í
Reykjavík um hábjartan
dag?
„Eg er sannfærður um það.
Það vantar svona stað í
Reykjavík. Það er ekki mikið
um að vera hér á daginn og
fólki langar oft að skreppa á
huggulegan og skemmtilegan
stað sem er fullur af glæsileg-
um stúlkum. Og það góða við
þetta er, að þetta mun ekki
vera mikið dýrari staður en
aðrir í Reykjavík. Það eru mjög
fjársterkir aðilar á bak við mig
og ég veit að ég get rekið stað-
inn með sóma. Ég rak bar á
svona stað í Kanada og ég veit
hvernig á að umgangast stelp-
urnar, sem er mjög erfitt fyrir
óreynda menn. þannig að við
erum ekki að fara út í neina vit-
leysu.“
Stúlkurnar á Vegas: „Þetta verður staður sem á engan sinn líka á ís-
landi. Það verður opið hér á hverjum degi frá tólf á hádegi. Við munum
þá bjóða upp á dýrindis hlaðborð og stúlkunar munu dansa upp á sviði
allan daginn,“ segir Dan Morgan, framkvæmdastjóri nektardansstaðar-
ins Vegas.
Onnur kanadísk snót sem dansar nakin er
hintvítuga Joanna...
„Hef alltaf haft gaman
af því að stríða strákum“
Kanadíska stúlkan Joanna
er tvítug fatafella og hefur
dansað nakin fyrir íslendinga
um mánaðarskeið. „Þetta er
enginn sorabransi og ég hef
gaman af því að dansa. Og ég
græði alveg fullt af peningum á
þessu og hef því efni á að gera
það sem mig lystir. En þetta
getur líka verið erfitt eins og í
kvöid þegar við erum aðeins
þrjár. Þá eyðum við of miklum
tíma upp á sviði og höfum ekki
tíma til að næla í peningana.
Ég meina: við getum ekki verið
að sýna á okkur rassinn fyrir
ekki neitt. Og þótt karlarnir
séu að drekka þá rennur það
ekki í okkar vasa. Nektardans
er mjög mismunandi fyrir
hverja og eina stúlku, en þær
sem geta gert þetta að at-
vinnugrein sinni geta grætt
mikla peninga. Að vísu græðir
maður ekki mikið í fyrstu, en
þegar maður lærir að táldraga
karlana þá er hægt að hafa fínt
upp úr þessu. í fyrstu eyddi ég
hverjum eyri sem ég græddi
og lifði frekar hröðu glamorlífi
— fór út að skemmta mér á
hverju kvöldi. Núna er ég hins
vegar farin spara.“
Hvernig byrjaði ferillinn
hjá þér?
„Þegar ég var að læra stjórn-
málafræði í Kanada og orðin
blönk kynntist ég atvinnu-
strippara sem var orðin alveg
moldrík. Þá hugsaði ég með
mér að fyrst hún gæti þetta
hlyti það sama að gilda um
mig. Ég var til að mynda bæði
yngri og fallegri en hún — og
svo hef ég líka alltaf haft gam-
an af því að stríða strákum.
Þessi bransi var að vísu miklu
ábátasamari fyrir nokkrum ár-
um. Nú eru komnar miklu fleiri
stelpur í þetta og samkeppnin
er harðari. Maður þarf að
beita ákveðinni tækni við að
ná sem mestum peningum út ú
kúnanum. Nauðsynlegt er að
koma á augnsambandi við
hann og æsa hann vel upp. Þá
er oft hægt að ná stórfé af
þeim. Ég elska að dansa og hef
mjög gaman af því að strippa.
En starfið er þó mjög stress-
andi og ég tek mér yfirleitt
. ■
Joanna: „Íslendingarnir geta orðið erfiðir og reyna oft að káfa á manni,
enda halda þeir að maður sé hóra. En þegar kvöldið er á enda þá er ég
ríkari og þeir fátækari. Svo hver er fíflið?"
pásur á þriggja mánaða fresti
og ferðast um allan heiminn.
Síðan kem ég fersk til baka —
reiðubúin í slaginn að nýju.“
Hver er munurinn á
bransanum hér og í Kan-
ada?
„Þetta listform er í raun mun
styttra á veg komið hér og
þessi staður mun sóðalegri en
ég er vön. Karlarnir geta líka
verið mjög ágengir og drekka
mun meira en Kanadamenn.
íslendingarnir geta orðið erfið-
ir og reyna oft að káfa á manni,
enda halda þeir að maður sé
hóra og líta margir niður á
okkur. En þegar kvöldið er á
enda þá er ég ríkari og þeir fá-
tækari. Svo hver er fíflið?"
Heldurðu að þessi fata-
felluferill eigi eftir að hafa
áhrifá framtíð þína?
„Ég vil gjarnan fara aftur í
skóla og klára námið. Ég veit
ekki hvort þetta muni hafa þau
áhrif, að ég verði ekki ráðin í
vinnu. Ég vona ekki. Ég veit til
dæmis um stelpur, sem eru í
góðri vinnu og með doktors-
próf, en dansa nektardans um
helgar til að hafa í sig og á.
Þannig að dansinn þarf ekki að
hafa neikvæð áhrif. Fordóm-
arnir eru vissulega til staðar
og ég hef til dæmis ekki sagt
foreldrum mínum frá því sem
ég geri. Þau hafa lagt hart að
sér svo ég geti komist áfram í
lífinu.“