Vísir - 07.06.1975, Side 2
2
Visir. Laugardagur 7. júni 1975
Thntsm--
Heldur þú að
íslenzka
„Mér líður alltaf bezt
- segir Krístín Waage, sem er orðin þekkt fyrírsœta á meginlandi Evrópu
knattspyrnan
haldi
styrkleika
sínum?
Torfi Kristjánsson (i atvinnu-
leit): Já, þeir fara batnandi með
hverjum deginum.
Guðmundur (Gumbi) Sæmunds-
son, nemi: Já, ef landsliðið hefur
algeran forgang fyrir deilda-
keppni og Knattspyrnusamband
Islands verður gert valdalaust.
Jdn Sveinsson, fangavörður: Ég
ætla að vona það. Ég held þeir
hafi góðan þjálfara og geti þvi
haldið sinu striki.
Arný Birna, fóstra: Æ, ég veit
ekkert um knattspyrnu.
Asdis Guðmundsdóttir, starfs-
stúika i Iðnó: Ég held hún hljóti
að gera það.
Guðmundur Kristjánsson, eftir-
litsmaður hjá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna: Ég held þetta hafi
verið hálfgert gri's hjá þeim i gær-
kvöldi. Ég held að Frakkar og
Þjóðverjar hafi ekki náð styrk-
leika sinum i leikjunum hér.
Við könnumst vist
flest við hana Kristinu
Waage. Fyrst munum
við liklega eftir henni
sem „ungfrú unga
kynslóð” árið 1967. En
siðan höfum við séð
hana á siðum erlendra
tizkublaða eins og Elle,
Petru, Vogue,
Glamour, Seventeen og
fleiri.
Hun er ekkert llk sjálfn sér á þessari tlzkumvnd, hún Kristfn —
enda hefur farðinn breytt henni. Með honum má gera ótrúiega hluti
eins og sjá má.
Kristin er hér I sumarfrii og
sótti blaðamaður Visis hana
heim.
Sagðist Kristín vera á stöðug-
um ferðalögum um Evrópu og
Bandarikin og væru ferðalögin
helzti kosturinn við starfið.
„Auðvitað býður starfið upp á
mikið skemmtanalif. En það
þýðir ekkert að djamma fram á
rauða nótt og vera svo með
bauga undir augunum i
vinnunni daginn eftir. Annars
finnst mér skemmtilegast að
fara I bió og leikhús.”
Launamöguleikar eru mjög
góðir, sagði Kristin. Þeir eru þó
nokkuð mismunandi. Verðlist-
arnir borga bezt.
Vel á minnzt, þá notar Kristin
ekki nafnið sitt við sýningar-
störfin, þvi það er of algengt. 1
staðinn fékk hún lánað nafn
systur sinnar og kallar sig
Sigrúnu Waage.
,,Ég borða eins og hestur,”
sagði Kristin. „Mér finnst
sælgæti allt of got.t. En ég geng
lika mikið og það jafnar þetta
upp.
Skemmtilegast finnst mér
að koma fram i sjónvarps-
auglýsingum. Ég hef fengið eitt
kvikmyndatilboð. Var það
aðalhlutverk i kvikmyndinni
„Emmanuelle”. Leikstjórinn,
Just Jaechen, var þekktur ljós-
myndari áður en hann tók til við
kvikmyndirnar. Myndin fjallar
um unga nútimastúlku og
hennar einkalif. Ég hafnaði
tilboðinu vegna þess að það voru
nektarsenur i myndinni. Það er
farið að sýna þessa. mynd og
hefur hún fengið ágæta dóma.
Mér finnst þessi kvikmynd
annars mjög falleg.
Ég er búin að vera i sýningar-
starfinu i tæp fjögur ár. Ég er
þvi orðin svolitið þreytt á þvi, og
vil fara að koma heim, og ég
sakna alltaf fjölskyldu og vina”,
sagði Kristin. „Nei, ég er
hvorki trúlofuð eða gift.
Þegar ég kem heim gæti ég
hugsað mér að vinna á ferða-
skrifstofu. Þá gæti ég notað
málakunnáttu mina. Það eina,
sem gæti freistað min til að vera
lengur úti, er vinna við
kvikmyndir. En það er bezt að
drlfa sig heim áður en maður
smitast af kvikmynda-
bakteriunni.” -HE-
Engin furða þótt kavalerinn sé A
hrifinn af Kristínu. Þessi mynd er &
úr italska tlzkutimaritinu Giola. r
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
Hver hefur
mest úthald?
Lesandi slmaði eftirfarandi
eftirverkfallspistil:
„Maraþonlangir samninga-
fundir voru orðnir daglegt
brauð I deilunum innan rikis-
verksmiðjanna. Fundirnir stóðu
allt að48klukkustundum. Hver
áhrif hafa slikar vökur á hæfni
manna? Ég leitaði til tveggja
lækna hér f borginni og innti þá
álits. Þeir voru báðir sammála
um að dómgreindin minnkaði.
Viss vilji til að gefa eftir gerði
vart við sig er menn tæki að
syfja. Báðir lögðu áherzlu á að
þetta væri ákaflega
einstaklingsbundið. Akvarðanir
sem teknar eru undir þessum
kringumstæðum hafa áhrif á
allt þjóðarbúið.
Rökréttast virðist þvi vera að
menn séu valdir i samningalið
með hliðsjón af hæfni þeirra til
vinnu án nægs svefns.
I umferðarlögunum segir að
menn eigi ekki að keyra ef þeir
eru svefnlausir.
Með setningu vökulaganna
var gert ráð fyrir a.m.k. 6 tfma
samfdld.um svefni.
Hver ræður þessari
ómanneskjulegu aðferð við að
ná samkomulagi?”
■ ÞETTA GERIST
INÚ EKKI NEMA j.
J| VIRKFALIU-J
SAMIÐ í MORGUN
Heiðrum þessa kappa
Einn af þeim ánægðu hringdi:
„Það gladdi mig að sjá að
rtkisstjórnin átti i það minnsta
tvo fulltrúa á vellinum á
fimmtudagskvöldið til að verða
vitni að stórglæsilegum sigri is-
lenzka landsliðsins.
Þessi sigur hefur sannarlega
ekki verið færður okkar ágæta
landsliði á silfurfati, heldur
hefur það mátt leggja hart að
sér við endalausar æfingar.
Strákarnir hafa þrælað sér út
kauplaust til að sanna að litlu
þjóðirnar geta staðið uppi i hár-
inu á þeim stóru.
Fyrst sýndu þeir Frökkunum i
tvo heimana og nú unnu þeir
Austur-Þjóðverjana. Betri land-
kynning getur ekki hugsazt.
Mér finnst að við ættum að sam-
einast i þvi að þakka þessum
piltum og ætti rikisstjórnin að
ganga þar i fararbroddi með þvi
að halda þeim opinbera veizlu.
A þeim timum þegar allt i
þjóðfélaginu er að fara i hund-
ana er það virkilega mikilvægt
að geta glaðzt yfir þvi sem vel
heppnast.”