Vísir - 07.06.1975, Qupperneq 20
20 Visir. Laugardagur 7. júni 1975
| í DAG | í KVÖLOr í DAG | í KVÖLD | í DAG |
Faöirinn, Patrick Glover, er
leikinn af nafna sínum Patrick
Cargill.
Sjónvarp kl. 20,30
í kvöld: Elsku pabbi
alltaf í vandrœðum:
Kaupir
sprengju
í stað
verðlauna-
bikars
Elsku pabbi er I kiipu eins
og venjulega. Það á að bjóða
upp muni, sem gamla her-
deildin hans hafði haft undir
höndum, þvi leggja á deildina
niður. Ætlar pabbinn að kaupa
verðlaunabikar, sem deildin
hafði unnið. i stað þess kaupir
hann fulltaf gömiu drasii fyrir
of fjár. Meðal annars er í
draslinu sprengja. Gengur
grínið út á það, hvað eigi að
gera við sprengjuna.
Sjónvarpsáhorfendur mega
búast við að sjá elsku pabba
áfram á laugardögum, þangað
til sjónvarpið fer I sumarfri.
HE.
Uppáhaldsnemandinn
og kennslukonan
r
— Urvalsleikarar í aðalhlutverkum
boðið að halda fyrirlestur I
kvöidskóla i blaðamennsku.
Hann hafnar boðinu, þvi hann
trúir, því, að fólk læri mest af
reynslunni Hann fer þó á
staöinn, undir fölsku nafni.
Þykist hann vera nýr nemandi á
námskeiðinu. Kennarinn, sem
reynist vera ung og fönguleg
kona, leikin af Doris Day vill
óðfús tryggja honum sem mest-
an starfsframa.
Þrautreyndum blaðamanni,
leiknum af Clark Gable, er
SJÓNVARP •
Laugardagur
7. júni
18.00 íþróttir Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.30 Elsku pabbi Breskur
gamanmyndaflokkur.
Hættuástand.Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
20.55 Það eru komnir gestir.
Trausti Ólafsson ræðir við
listakonurnar Guðnýju Guð-
mundsdóttur, konsert-
meistara, Þórunni Magneu
Magnúsdóttir, leikkonu, og
Auði Bjarnadóttur, ballett-
dansara.
21.35 Uppáhaldsnemandinn
(The Teacher’s Pet)
Leikstjóri Gecrge Seaton.
Aðalhlutverk Clark Gable,
Doris Day og Gig Young.
Þýðandi Jón O. Edwald.
Þrautreyndur og háttsettur
blaðamaður fær skipun frá
húsbónda sinum um að taka
þátt i kvöldnámskeiði fyrir
blaðamenn. Hann tekur
þetta sem freklega móðgun,
en fer þó á námskeiðið undir
fölsku nafni. Hann reynist
að vonum vera úrvals
nemandi, og kennarinn,
sem er ung og fönguleg
kona, vill óðfús tryggja
honum sem mestan starfs-
frama.
23.35 Dagskráriok
vw
„Feginn að þetta
er búið, býst ekki
við að verða með
skemmtiþátt nœsta
Hermina og Jónas við upptöku á
uglunni. Mynd Bragi.
,,Við reyndum að gera öilum
aldurshópum til hæfis,” sagði
Jónas R. Jónsson, stjórnandi
vetur", -
skemmtiþáttarins Ugla' sat á
kvisti. ,,En liklega hefur
spurnin ga þátturinn sjálfur
höfðað mest tii eidra fólks, en
skemmtiatriðin til yngri áhorf-
enda”.
,,Ég samdi ekki spurningarn-
ar. Það gerði stelpa sem stund-
ar nám I islenzku við Háskólann
segir Uglu-Jónas
og vill haida nafni sinu leyndu.
.Yfirleitt voru áhorfendurnir i
sjónvarpssalnum fengnir i
gegnum starfsmannafélög.
Sendu þau okkur bréf og létu i
Ijós, að þau vildu vera við upp-
töku.
Ég hafði persónulega mest
gaman af siðasta þættinum,
þegar þeir stigahæstu, Arnþór
Sigurðsson og Heiðar Þór
Bragason leiddu saman hesta
slna,” sagði Jónas.
,,Ég hafði áhuga á að breyta
þættinum um áramót, en vegna
ýmissa ástæðna varð ekkert af
þvi.
Mérfannstmjög gott að vinna
með samstarfsfólki minu, allir
voru svo samtaka”.
Þegar Visir spurði hvort hann
yrði með skemmtiþátt næsta
vetur sagði Jónas: ,,Ég held ég
vilji ekki koma meira fram I
sjónvarpi Ibráð. Þetta er þreyt-
andi til lengdar. En verið gæti,
að ég stæði bak við einhvern
slikan þátt.”
HE.
— Mikið eruð þið vitlausir! — Getið þið ekki séð að ég hef lögin
min megin
Myndin er af aðalieikurunum, þeim Doris Day, Clark Gable og Gig
Young, sem leikur vin kennslukonunnar og aðalkeppinaut uppá-
halds ne.nandans I ástarmálunum.
Trausti óiafsson ræðir viö Guðnýju Guömundsdóttur konsertmeist-
ara.
„Það eru komnir
gestir" í kvöld:
Trausti
rœðir við
þrjór ungar
listakonur
Enn fær Trausti ólafsson
blaðamaður til sin gesti sina i
kvöid. Það er I þættinum „Það
eru komnir gestir”. Gestir
Trausta I kvöld verða þrjár
ungar konur sem getið hafa sér
gott orð á listasviðinu að undan-
förnu. Þetta eru Guðný Guð-
mundsdóttir konsertmeistari,
Þórunn Magnea Magnúsdóttir
leikkona og Auöur Bjarnadóttir
listdansari.
— JB.
Auöur Bjarnadóttir ballettdans-
ari vakti mikla eftirtekt fyrir
dans sinn i „Coppelíu”.
Úr leikritinu „Sjö stelpur”. Þór-
unn Magnea Magnúsdóttir (til
hægri) iék þar hlutverk einnar
stelpunnar.
Guðný Guðmundsdóttir kon-
sertmeistari á æfingu með
Sinfóniunni.