Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1943, Qupperneq 12

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1943, Qupperneq 12
388 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS r Jón Þorleifsson: Skjaldbreiður. í þessari grein gerir Jón Þorleifsson í stuttu máli grein fyrir því, hvert er takmark myndlistamanna, að opna augu almennings fyrir fegurð náttúrunnar í lín- um, litum og formi, og hvernig íslenzk myndlist þró- ast í þá átt að fá á sig sérkennilegan blæ. Frá unga aldri langaði mig til að verða málari, sagði Jón Þorleifsson er við töluðum sam- an stundarkorn á dögunum um málaralist almennt og störf hans sérstaklega. — Hvað örfaði þig til þess að leggja út á þá braut? — Eg minnist þess ekki, að eg hafi á uppvaxtarárum mínum fengið nokkra uppörfun til þess. Enginn var þá austur í Horna- firði, það er eg vissi, sem hafði áhuga fyrir þeim málum. Eg fékkst snemma við smíðar, átti að heita búhagur, sem kallað er, þegar eg fór að stálpast. Hafði gaman af allskonar smíða- föndri og hef það réyndar enn. Afi minn, Jón Jónsson frá Hofi í Álftafirði var ágætis smiður og hafði lært smíðar. Talið var að mér kippti í kynið með smíða- hneigðina. Ilann var af hinni al- kunnu Eydalaætt. Sem barn hafði ég ákaflega gaman af myndum, sem ég sá í blöðum og bókum. En ekki var mikið um þær í uppvexti mínum. Því eru mér eðlilega minnisstæð dönsk myndablöð, sem ég sá, er eg heimsótti Otto Tulinius á bernskuárum mínum. Hann var þá kaupmaður í Höfn í Horna- firði. — Hvernig leizt foreldrum þín- um og skyldfólki á málarahug- leiðingar þínar? — Lítið var um það talað. Meðan eg var heima að Ilólum í Ilornafirði gekk eg að allskonar vinnu, réri á sjó, er eg hafði ald- ur til, gekk að heyskap, smalaði fjöll og smíðaði. Þessu hélt eg áfram, þangað til eg var 27 ára gamall. nema hvað eg var á Flens- borgarskólanum í tvo vetur. Þá sá eg eina sýningu Ásgríms Jóns- sonar. Vakti hún hjá mér mikla aðdáun, varð mesta uppörfun, sem eg hafði fengið til þess að halda fast við ákvörðun mína. NÁMSÁRIN — Hvernær byrjaðir þú á námi? — Eg fór til Ilafnar haustið 1918. Var þá sem sagt 27 ára gamall, fæddur á jólum 1891. Nokkru áður hafði ég fengið vatnsliti, pensla og pappír, og byrjað að gera smámyndir. En lengi hafði ég teiknað eitt og ann- að, rnest í sambandi við smíða- föndur mitt. Er til Hafnar kom, gekk eg í „Tekniske Selskabs Skole“, og var þar í 3 vetur við nám, en heima á sumrin. Fyrstu sýningu hélt ég haustið 1919 hérna í Goodtemplarahúsinu, fór síðan með myndirnar til Akureyrar og Seyðisfjarðar og hélt þar sýn- ingu. Haustið 1921 fór eg til Parísar, var þar í einn vetur og teiknaði í „Academy de le Croquier.“ Ilaustið 1922 gifti eg mig og sigldum við hjónin til ITafnar, keyptum hús í úthverfi borgar-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.