Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1943, Blaðsíða 21

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1943, Blaðsíða 21
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 397 líka hrædd, því þegar hún heyrði málróminn og leit á konuna, sem hvíslað hafði, þá þekkti hún hana, það var grannkona hennar, sem var látin fyrir mörgum árum, og þegar hún nú litaðist um í kirkj- unni, mundi hún vel, að hún hafði séð bæði prestinn og marga úr söfnuðinum, og allt var það fólk löngu dáið. Það fór hrollur um hana af ótta, hún sveipaði laust nm sig kápunni og lagði af stað en þá fannst henni allt fólkið anúa sér við og reyna að ná í hana, og hún ætlaði að hníga ni&- «r. Þegar hún kom út úr kirkju- dyrunum, fann hún, að það var íekið í kápuna hennar, hún sleppti þá kápunni og flýtti sér heim allt hvað hún gat. Þegar hún kom heim að dyrunum, sló kirkju- klukkan eitt, og þegar hún kom inn, var hún nær dauða en lífi of ótta. Um morguninn, þegar fólk kom til kirkju, fann það kápuna á tröppunum, rifna í tætlur. Móðir mín hafði oft séð þessa kápu, og ég held jafnvel að hún hafi séð einhverja af tætlunum." Börnin, sem höfðu sýnt ýms hræðslumerki, meðan á frásögn- mni stóð, endurtóku nú, að þau vildu ekki heyra meira af svona ljótum sögum. Þau höfðu skriðið upp í sófann og upp á stólana, því þeim fannst einhver vera und- ír borðinu, sem væri að reyna að ná í þau. En nú voru borin inn kertaljós, og voru kertin í göml- um, stórum stjökum, og við ljós- ið rénaði hræðsla bamanna, ekki síst, þegar farið var að bera inn jólaköku, aldinmauk og ýmist kaffibrauð. Þessar góðgjörðir ráku á brott allar draugasögur og allan geig, og var nú farið að ræða um dagleg málefni. Að lok- um kom hrísgrjónagrauturinn og steikin, og var þessum ágætu rétt- um gerð góð skil. Eftir máltíðina fór fólk að hátta og skildi með óskum um gleðileg jól. En ég átti ekki rólega nótt í vændum. Eg veit ekki hvort það voru sögurnar, eða maturinn, sem ég hafði neytt, það að ég var enn ekki búinn að ná mér, eða allt þetta til samans, sem olli þrí. Eg lá og bylti mér í rúminu og var að hugsa um húsálfa, huldufólk og vofur alla nóttina, eða ef ég blund aði, þá dreymdi mig þetta allt. Að lokum ók ég í sleða til kirkju, og mér fannst ég aka í loftinu. Kirkjan var uppljómuð og þegar ég kom inn, þá var þetta kirkjan heima í dalnum, þar sem foreldrar mínir bjuggu. Fólkið var í þjóðbúningi og hafði tjald- að því besta, sem það átti til. Presturinn stóð í prédikunar- stólnum, það var hann afi minn sálugi, sem hafði dáið, þegar ég var lítill strákur. Og allt í einu, þegar hann var í miðri ræðunni, stökk hann ofan úr stólnum og niður á gólf. Mér leitst ekki á blikuna, en í sama bili vaknaði ég við það, að tekið var í öxlina á mér, og sá mann með stóra loðhúfu lúta yfir mig og stara á mig. „Þig er að dreyma eitthvert rugl, drengur minn, þú ert kóf- sveittur,“ heyrði ég hann segja. ,,Eg á að skila til þín bestu jóla- óskum frá föður óskum frá föður þínum og öllum heima í dalnum, og biður fólkið þess að þú sért í guðs friði! Hér er bréf frá skrif- aranum, og feldur handa þér, og Stóriskjóni stendur hér fyrir utan.“ „Er mig að dreyma, eða ert það þú, Þór?“ En Þór var ráðs- maður föður míns, mesti öðlings- maður. „Hvemig í ósköpunum ert þú hingað kominn?“ hrópaði ég glaður í bragði. „Ja, það skal ég segja þér“, svaraði Þór. „Eg kom með Skjóna en annars var ég úti á nesjum með skrifaranum, og svo sagðí hann: „Nú er ekki langt til bæj- arins, svo að þú skalt taka hann Skjóna og fara og sjá hvemig liðsforingjanum líður, og sé hann orðinn svo hraustur að hann só ferðafær, þá komdu með hann.“ Þegar við lögðum af stað úr borginni var aftur farið að rofa til, og komið ágætasta færi. Skjóni var ekki seinn í ferðum, og aldrei hefir mér liðið eins vel nokkur jól á æfi minni, eins og þessi. Þegar hún var komin út úr kirkjudyrunum var tekið í kápu hennar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.