Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1953, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1953, Qupperneq 1
Friðrik Ásmimdsson Brekkan: Amtmannsstofan hefir fengið nafn af einkennisbúningi Bjarna Þorsteinssonar amtmanns. SÝNINGARSALUR sá, er tekur við inn af „Vefjarstofunni“, er hvað gripaval snertir að mestu leyti áframhald af henni, tré- skurður, útsaumur og vefnaður, að viðbættum búningum, ásamt siif- ursmíði (og látúns), einkum skrauti, sem tilheyrt hefur kven- búningum. Þá eru hér og nokkrir merkisgripir erlendir, og hafa þeir flestir tilheyrt þekktum íslenzkum mönnum. Salur þessi hefur fengið nafnið „Amtmannsstofan“ eftir einkenn- isbúningi Bjarna amtmanns Þor- steinssonar, sem þar er til sýnis á „gínu“ í skáp inni við gaflinn. — Þar eru einnig tvennir skautbún- ingar, eins og þeir voru á síðari hluta 18. aldar og fram yfir miðja 19. öld, — er önnur samfellan saum- uð af Guðrúnu Skúladóttur fógeta, Magnússonar. Einn skautbúning- ur er þarna af nýu gerðinni, þ. e. samkvæmt teikningum Sigurðar Guðmundssonar málara. Þá er þar peysubúningur frá því um miðja 19. öld, er peysan prjónuð úr fínu svörtu ullarbandi — mjög vönduð vinna — og karlmannsbúningur frá sama tíma, silfurhneppt stutt- treyja og buxur úr svörtu vaðmáli og skotthúfa. Lengst til hægri eru kvenreiðföt, upphár höttur með á- föstum hálskraga og axlaslagi og svört síðhempa lögð með flosborð- um. Er búningur þessi talinn vera frá því um 1800, höfuðbúnaðurinn getur þó verið talsvert eldri. Þá

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.