Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1953, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1953, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 611 Persixuv kkind Gxúf . ztmwauti} _ *•* Magwa. \bmtdi /'Alena a\ Ahmadi v x^Botoan Oil Field __________ \ NEUTRAL T^RR ITORY Kuwait og nágrannalöndin Það hefir orðið bylting í Ku- wait á þessum árum. Gömlu kof- arnir í höfuðborginni hafa verið rifnir niður og nýtízku stórhýsi byggð í staðinn. Hreinlegar og breiðar götur eru gerðar með skolpræsum og vatnsleiðslu og raf- magnsljósum. Westinghouse-félag- ið í Bandaríkjunum hefir byggt bæði rafmagnsstöð og vatnsstöð fyrir höfuðborgina. Er vatnið eim- að úr sjó og nemur 3—4 milljónum lítra á dag. Nýar verslanir hafa þotið upp og ný fyrirtæki. Tvær nýar borgir eru að myndast í grend við höfuð- borgina, þar sem ekkert hús var áður og ekkert nema rjúkandi sandur. Önnur borgin heitir Mena Ahmadi (Ahmadihöfn) og hefir olíufélagið látið gera þar höfn og gríðarmikla hafskipabryggju, þar sem hin mörgu olíuskip geta hlaðið sig. Félagið hefir 7165 menn í þjón- ustu sinni og er meiri hluti þeirra Kuwaitmenn og aðrir Arabar. Fyr- ir þessa menn hefir félagið stofnað sérstakan skóla þar sem fram fer kennsla í iðnfræði og vélfræði. Vegna þessa uppgangs ríkisins hefir fjöldi fólks frá nágranna- löndum streymt þangað, aðallega kaupmenn sem vilja sitja að eld- inum meðan hann brennur. Sigl- ingar hafa og aukizt stórkostlega og vöruflutningar. Kuwaitmenn eiga t. d. ekkert byggingarefni í landinu og hafa orðið að flytja inn timbur frá Indlandi. Húsagerð þeirra hefir því aðallega verið þannig, að þeir hafa komið upp kofum úr leir, en í rigningartíð eru þetta ekki góð húsakynni, því þeg- ár leirinn blotnar rennur hann niður og húsin verða ónýt. Nú eru flutt inn ósköpin öll af sementi til þess að byggja ný hús og steypa götur. Mikið hefir verið gert í heil- brigðismálum annað en það að út- vega hreint vatn og auka þrifnað. í höfuðborginni hefir verið reistur ríkisspítali með 120 rúmum. Er þar allt með nýtízku sniði. Þá hefir verið reist hæli fyrir berklasjúkl- inga með 160 rúmum. Var þessa ekki vanþörf, því að hirðingjarnir í landinu eru mjög næmir fyrir berklaveiki, þótt hraustir sé að eðlisfari, og hefir þessi sjúkdómur strádrepið þá á undanförnum ár- um. Þá hafa verið stofnsettar tvær lækningastofur fyrir almenning í höfuðborginni og te'kur hvor þeirra á móti um 100 sjúklingum á hverj- um degi að meðaltali. Þá hefir einnig verið reistur þar dýraspít- ali. Þangað koma menn með sjúk- ar skepnur og fá þær læknaðar, ef unt er. Þetta er meðfram gert til þess, að dýralæknarnir fylgist með þeim pestum, sem koma upp í kvikfé og geti gert sínar ráBsíaf- anir til þess að hindra útbreiðslu þeirra. Heilbrigðismálaráðuneytið lætur dreifa DDT skordýraeitri um öll hús, bæði íbúðarhús og geymsl- ur og gripahús. Skólar hafa verið reistir víðsveg- ar um landið, og það er merkileg- ast við þessa skóla, að þeir eru jafnt fyrir stúlkur og pilta. Hvergi í Austurlöndum mun þess annars staðar vera dæmi, að stúlkurnar séu gerðar jafn réttháar drengjun- um um menntun. Vegna þessa munu Kuwaitbúar skara fram úr öðrum um menningu þegar fram í sækir. Svo er verið að reisa fram- haldsskóla og 124 ungir menn, sem eiga að taka við þeim, eru nú við nám erlendis og kostar stjórnin nám þeirra. Skólabörnin fá auðvit- að ókeypis kennslu, en þau iáiíka ókeypis miðdegisverð, föt og lækn- ishjálp. Oliuhöfnin mikla, Mena Ahmadi, og borgin, sem þotið liefir upp á nokkr- uin árum t i

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.