Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1968, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1968, Síða 3
< ÞIN ER LEITAÐ TIL SANINGAR Jólahugvekja eftir sr. Sigurð Hauk Cuðjónsson Dýrð sé Guði í upphæðum, friður á jörðu, velþóknun Guðs yfir mönnunum. Þessi orð og tónar rufu myrkrið í Betlehem forðum. Himinn laut að jörðu. Við réttum í mót þessum röddum það fegursta, er jarðheimur á, lít- ið barn og í þá umbú!ð lagði Guð hjarta sitt, kærleika sinn. Sveinninn óx og við heyrðum Guð tala, er hinn ungi maður lauk upp munni sínum, isáum almættið að starfi í verkum hans. Fagnað- arbylgja fór um mannheim. Menn lögðu frá sér amstur sitt og önn og fylgdu honum. Þetta þoldi ekki maður, sem í hásætið hafði skriðið. Það er erfitt að sitja í hásæti, sem þegnarnir snúa baki í. Og gjöfin frá Guði var endursend til himna. En Kristsmynd af róðukrossi frá Ufsum í Svarf aðardal. Talin frá 12. öld og líklega elzta Kristsmynd, íslenzk, sem varðveitzt hefur. það var mismunur á svipunni og kærleikanum. Svipain fellur til jarðar með þeim er ber hana, byssan hættir að myrða, er enginn er t.þ.a. toga í gikkinm. Kærleikurinn er tundur hjartna, geisli af himnum sendur. Menn getum vjið krossfest en aldrei kær'leika himinsins. Hann skríður umdan önglunum og tekur sér bólfestu í sláandi hjörtum. Þetta gerðist á Golgata, og því var sem krossfesit- ingin þar yrði sáning til nýrrar aldar. Hún fór sigurför um heiminn og hefir lyft hluta hans nær hi.mni en nokkru sinni fyrr. í þeim sem með okkur ganga erum við hætt að sjá fjendur aðeins heldur einnig bræður, sem eru átgöngu þroskans. Það var iitla barnið í jötunmi, sem gaf okkur þennan skilning. Við erum hætt að þola rétt hnefans, rétt klóa og tanna, heldur verndum við hinn veika með lögum. Jó'labarnið kenndi okkur það. Við erum hætt að krækja framhjá hinum sjúka en reisum líknarstöðvar og óttumst þar ekki leng- ur reiði Guðs. Jólabarnið gaf okkur þennan skiin- ing. Við erum flest hæftt að álíta umbrot náttúr- unnar magaverki guðdómsins sem aðeins læknist með fónnum jarðarbarna. Það er vegna þess, að Kristur, jólabarnið, gaf okkur Guð að föður, kær- leiksríkur faðir, er þráir að lyfta okkur móti ljósi sammileikans. Hinn kristni heimur er heimur framfaranna, heimur þeirra, er ly’fzt hafa hæst frá jörðu. Hverjum eigum við það að þakka? Kærieika heims ins sem ekki tókst að krossfesta. Víst vantar mik- ið á, að við séum enn fullkomin. Dýrð í okkur nær stundum yfirhöndinni. Það er eð'lilegit, þar sem við erum bæði mold og andi. Og margir eiga stóra líkami en litlar sálir. Stuindum hefir moldin kom- izt í hásætið og við kropið henmi. Þá hefir jarð- heimur skolfið. En hver kenndi okkur að þetta er ekki það sem vera á? Kristur, jólabarnið. Hver hefir sagt ungu fólki, að ráðast gegn hræsni okk- ar hinna eldri? Jólabarnið, sem benti okkur á veg sannlleikans. Sveltandi smábörn inaga göld brjóst mæðra sinna víða í veröldinni í dag. Þeim þjóðum eru færðar tvennar gjafir. önnur er gjöf jólabarnsins: Maftur og hjálp ti’l sjálfsbjargar. Hin gjöfin er frá sál- arlausu skrokkunum, sem með loðkrumlum kúgar- ans hafa skriðið uppí stjórnarstólana, og þeirra gjafir eru vopn og þrælsfestar. Á jólum er gaman að vera til, af því að þá er- um við umvafin kærleika heimsiins og við verðum eins og velilandi lind, er gjafir og góðvilji streyma frá. Veiztu, að kristindómurinn þráir að færa jarðheimi eilífa jólahátíð, tíð kærleikans? En til þess þarf hjarta þitit að tengjaist hijómfalli radd- anna á Bethlehemsvöllum. Það þarf þitf ljós og þína rödd útá veginn, svo að fólk skilji það að jólin eru annað og meir en hátíðin, þegar altt er hægt að seilja, skilji það, að þau eru haldin hátíðleg vegna þess, að okkur var gefinn heimurinn í arf, okkur breytt úr dýrum í menn. Guð gefi heimi öllum gleði og frið jóla, ei'lífra jóla. 23. des. 1968 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.