Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1968, Qupperneq 8
Blíðviðrið í haust kom þeim
á óvart, sem búa:st við sífellt
harðnandi vetrum. Að vísu
benti margt til þess, að veður-
farið færi he'ldur kólnandi og
sáu menn fyrir sér Svipað harð-
indatímabil og um og eftir 1880.
Meðalhitinn lækkaði, sjávarhit-
inn lækkaði, hafísinn jókst og
vorharðindi eftir því.
Áður fyrr hefði þetta vor
orðið eitt af hinum svonefndu
fellisvorum. Þá hefðu menn
flosnað upp frá búum sínum, en
fénaður horfallið. Þarna erum
við ekki eins berskjaldaðir og
áður. Nú er meira að segja
komin á laggirnar Haifísnefnd
til að bægja þessum vágesti
frá. Hvar værum við staddir,
ef við hefðum ekki allar þess-
ar nefndir, rómaðar fyrir dugn
að sinn og framsýni.
Menn voru farnir að gera því
skóna, að naumast yrði lifvæn-
legt í þessu landi, ef hitastigið
féili eitthvað frá því sem kom-
ið var. Við værum þar með
komin öfugu megin við marka-
línuna, sannarlega utan marka
hins byggilega heims.
En engir spámenn eru eins
líklegir til að bregðast og veð-
urspámenn. Þegar þetta er skrif
að lítur helzt út fyrir, að fólk
hér um slóðir komist ekki á
skíði í vetur. Bkki harma
ég það og þó finnst mér
gaman á skíðum. Sjálfsagt
eru erfiðleikarnir af völd-
um snjóalaga miklu þyngri
á metunum en ánægja barn-
atma og petrra, sem bregða sér
á skíði um helgar. Ekki má
heldur g'leyma því, að snjórinn
ikostar okkur stónfé: Stanzlaus
mokstur á vegum og allur
moksturinn á götum Reykjavík-
ur. Blíðviðrið kemur sem smá-
vegis búbót í hinum efnahags-
legu harðindum og veitir víst
ekki af.
Nú á jólaföstunni var ég á
gangi við höfnina og virti fyrir
mér varninginn, sem bómurnar
sveifluðu út yfir skipshliðina;
jólavarningur margt af því. —
Sumir telja að toættur væri
skaðinn þótt við létum eitthvað
af glerkúnum óinnflutt og bök-
uðum okkur tertubotna sjálfir.
í nútíma neizluþjóðfélagi fara
mikil verðmaati í súginn. Þegar
maður sér ibómurnar rétta bil-
farma af papakössum upp á
bryggjuna, þá hvarflar sú hugs-
,un að manni, að óhæfilega stór
hluti þessara verðmæta hafni í
öskutunnunni. Við því verður
trúlega ekkert .gert; þetta er
krafa tímans. Umbúðir utan um
tiltölulega ódýran og þýðingar-
lítinn varning eru prentaðar í
öllum regnbogans litum á papp-
ír, sem hér á íslandi mundi
ekki einu sinni notaður í við-
Irafnarútgáfur þjóðskáldanna.
Þrátt fyrir harðindin og haf-
ísinn í fyrra, hefur íslenzk
veðrátta í tíð núiifaindi manna
naumast sýnt sitt harðaista. En
við því mlá alltaf búast. Auk
þess gleymist það oft, að
við búum í efldifj alilalandi,
sem getur heldur fyrirvara-
lítið tekið , uppá því að
Ihrista sig. Á þetta vorum
við minnt snemma í desember
þegar óþyrmilegur kippur, ætt
aður af Krýsuvíkursvæðinu,
skaut mörgum skölk í bringu á
þéttbýlissvæðinu við Faxaflóa.
Mörgum brá illilega og hvin-
urinn isem jafnan fylgir jarð-
skjálftum, er eitthvert óhugni-
anlegasta hiljóð, sem heyrist.
Að visu mun það rétt vera, að
við jánnbindum siteinkassana
okkar svo gífurlega, að meira
en lítið þarf á að ganga til að
þeir láti sig. Annað mál er með
allt tvöfalda glerið, sem kostar
skilding nú á dögum. Það
mundi sjálfsagt þola takmark-
aða slinki, enda sögðu sumir
um daginn, að þeim flaug á
augabragði í hug fínu, tvö-
földu glerrúðumar heima hjá
sér, þegar kippurinn reið yfir.
Hinu má hefldur ekki gleyma,
að eldstöðvar eru í nánd við
mesta þéttbýli landsins og þá
vaknar sú spurning, hvort það
sem einu sinni hefur gerzt, geti
ekki gerzt afitur. Er þá ekki
fullkomið ábyrgðarleysi að
byggja á hrauni? Einn afi jarð-
fræðingum okkar hefur sagt
það firæðilegan möguleika, að
hraun renni niður í byggð í
Hafnarfirði á nokkrum mínú't-
um. Þar eru iheilu hverfin
byggð, þar sem áður brann
hraunið. Hvað gera Hafnfirðing
ar, ef goðin reiðast að nýju?
Er unnit að stöðva hraunrennsli
með nútíma tækni, til dæmis
með því að smala samain jarð-
ýtum og skófla upp stóreflis
görðum. í Reykjavík stendur
ekki byggð á hrauni, en ein-
hverntíma alllöngu fyrir ís-
landsbyggð rann hraun efitir
farvegi Elliðaánna og állar göt
ur út í Elliðaárvog. Það má
imynda sér ástandið ef slíkt
enduntæki sig. Þá færu á einu
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
23. des. 1068