Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1968, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1968, Side 11
Ferðamanninum verður léttara um and- ardráttinn að koma út úr þessari villtu og viðsjárverðu náttúru og út á hina undur frjósömu akra Jerikósléttunnar, þar sem loftið angar af fíkiutrjám og döðlupálmarnir veifa blævængjiun sín- um hátt við himin. í austur frá Jerikó, rétt áður en Jórd- an gengur til hvílu í Dauðahafinu, beyg- ir hún við hið fagra Makhadet-el-Hijla eða Rapphænsnavaðið, þar sem Jesús var skírður samkvæmt venjum Gyð- inga. Þetta er yndislegur staður, skyggð ur pílviðartrjám og eterolíuviði. Sá síð- arnefndi er ástralskur landnemi, en að öðru leyti er umhverfið í stórum drátt- um með sama svip og á dögum Krists. Á lágum ásum i grenndinni hafa marg- vísleg kirkjufélög reist klaustui- og kap- ellur, og þaðan ko'ma prestar og munk- ar gangandi niður að fljótinu helga til þess að skíra verðandi trúbræður. Þ.»J er furðulegt að sjá, hversu trúarsiðir og guðsþjónustur kristinna manna birt- ast í mörgum og ólíkum myndum. Hér gefur að líta kristna Etíópíumenn, sem þenja trumbur sínar við skírnar- atliöfnina, og .þarna ko'nna egyps'kir katolikkar, sem skaka einkennilegt skröitinstrúment, svokailað sistrum. Fyr- ir tveimur árum stóð sjálfur páf- inn þarna í eigin persónu, drap höndum sinum í fljótið helga og stökkti vatninu yfir sanntrúað fylgdarlið sitt. A vorum dögum er Jórdan þrætu- epli Araba og ísraelsmanna, sem deila um vatnsréttindin í fljótinu, er að mikl- um hluta rennur um þyrkingslegar lendur og ófrjóar eyðimerkur, sem ekki verða ræktaðar án stórfelldra áveitna. En nægilegt vatn er ekki fyrir hendi handa þessum nágrönnum, hversu bróð- urlega sem því yrði skipt. Þetta' hefur leitt til endalausra átaka og flókinna deilna, sem kryddaðar eru ós!£jkkvandi og rótgrónu hatri. Deilur þessar blossuðu upp fjöllun- um hærra 1964, þegar ísraelsmenn opn- uðu kranann á 142,5 km langri vatns- leiðslu sinni frá Jórdan yfir í Negev- eyðimörkina og kostað hefur þá sem svarar 4,5 milljörðum ísl. króna. Arab- arnir ákváðu þá að grafa mikla skurði og veita vatninu úr tveimur uppsprettu- lindum Jórdan, þveránum Hasbani og .Banias. ísraelsmenn gerðu þeim þegar ljóst, að slíkt tiltæki gæti haft hinar alvarlegurstu afleiðingar í för með sér. Arabar svöruðu því til, að ekki mundi heldur standa á þeim að grípa til óþveg- inna ráða ef ísraelsmenn gerðu alvöru úr því að leiða vatnið út í Negeveyði- mörkina. ísraelsmenn vinna nú að stórfelldum framtíðaráætlunum um ferskvatns- vinnslu úr Rauðahafi og Miðjarðarhafi. Þetta er ennþá tæknilega óleyst þraut, og svo getur farið, að þeir neyðist til að yfirgefa ýmis ræktunaráform sín og snúa sér þess í stað að einhvers konar iðnvæðingu, sem krefst lítillar eða engrar vatnsnotkunar. En Jórdan heldur áfram að renna ó- snortin heiftarlegum yfirlýsingum og vopnaviðskiptum. Áformaðar vatns- veituframkvæmdir kunna að gera neðsta þriðja hluta hennar að óveru- legri lækjarsytru. En alltaf kemur vor á ný, og á hverju vori stígur vatnið, alveg eins O'g það gerði á dögum biblí- unnar. Því að þetta er fljótið helga, lofsung- ið í ffúsund söngvum sungnum af millj- ónum radda. Á bökkum þess hafa verið töluð ódauðleg orð, sem mótað hafa sögu mannsandans í árþúsundir. Hún hefur einnig sáð sundrungu og hatri, en vonandi kemur einhvern tíma sá dagur, að þessa þröngsýnu og hatri blinduðu þjóðir læri að taka höndum saman til lausnar vandamálum sínum, — láti skynsemina ráða í anda bræðralags og mannkærleiita, samboðnum trésmiðs- syninum, sem einu sinni gekk götu- slóðana meðfram þessu villta og sér- kennilega fljóti og gaf mannkyninu nýja trú. (Ritað 1966). JÓN ÚR VÖR: úr Ijóðaflokki frá 1943, áður óprenfuðum Hinn hl jóði altur Ég er hinn hljóði akur allra vinda og veðra, ég er hin frjósama jörð, er þarfnast sólar og regns, til þess að geta borið ávöxt. Mín rauða mold bíður síns tíma opnum örmum, að þú lítir til mín í náð. Ást þín er sól mín og regn. Ef þú elskar mig er ég skáld og get sungið. Andvaka Andvaka ofin mjúkum þræði úr silki. Sefur hún kannski, vakir hún, sefur hún? Eins og geislar norðurljósa fer kvikul hugsun mín um alla heima. Ég heyri börn á grænu túni hlæja og syngja. Hve ég óttast svefninn að hann steli mér úr örmum hins bjarta draums. Myndskreyting: Eiríkur Sniith. 23. des. 1968 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS H

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.