Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1968, Page 22

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1968, Page 22
Kirkjuklukkurnar hafa hringt inn jólin og fólkið geng- ur prúðbúið út úr kirkjunni. Fólkið í klettunum við hafið. Menn heilsast og óska hver öðrum gleðilegra jóla og hand- tökin eru föst og traust. Það er ekkert hálfkák í handtak- inu eins og hjá smeðjulegum smáborgara, þarna heilsast vinnandi hendur, sjó, regn og vindbarnar. Það er hátíðasvip- ur á fólkinu, því að jólin eru komin inn í hjörtu fólksins og heimilin og það er líka hátíð- legt að skila einu árinu enn í safn tímans. Fólkið streymir ennþá út úr kirkjunni og kirkj- an er eins og blómkróna, sem springur út af mislitum blóm- um. Það er eitthvað tóm í huga mínum þar sem ég geng í logn- kyrrum snjó frá kirkjunni. Guðshúsi, sem getur sameinað alla til þess að líta hærra. Ekki tóm þreytu eða lífsleiða, heldur tóm djúprar kyrrðar. Á ieiðinni heim frá kirkj- unni kem ég við í kirkjugarð- inum til þess að ganga fram hjá leiðum míns fólks, sem þar hvílir. I garðinum loga þúsund- ir Ijósa, sem ástvinir hafa kom- ið fyrir á skreyttum grenigrein- um, og jólatrjám. Eins og ljós- in loga í kirkjugarðinum, loga minningarnar í huga okkar um félaga og vini, sem hafa kvatt þetta ævistig. Söknuðurinn get- ur verið sár, en við þökkum fyrir fylgdina það sem af var leiðinni og eigum stoðir í minn- ingunni. Kirkjugarðshliðið lokast að baki mér, heimur minninga, og ég geng aftur inn í iðandi um- hverfi hversdagsleikans, sem nú hvílist í helgi jólanna. Það brakar í troðnum snjónum og það eru heiðskír hvít jól. Allsstaðar stafar ljómabiirta út úr gluggum húsanna og einnig þeir bera svip jólanna, róseminnar og hreinleikans. í mútímaþjóðfélagi er um- myndunin margskonar, bæði á betri og verri veg, en eru ekki jólin takmark þar sem menn byggja sig upp aftur eftir at- hafnir í eitt ár. Kyrrð, sem yf- irleitt getur aðeins sikapazt úti í náttúrunni verður vettvangur fólksins á jólum. Það er kannski ys og þys á jólunum nú til dags, en samt sem áður lsetur fólkið eril hvers dagsleikans í friði og vindur sér yfir í gleðina frá boðskap jólanna. Menn gefa sér tíma tiíl að setjast niður og hugleiða ár- ið og árin, sem eru liðin og það stórkostlega er að menn ná aldrei fremur en á jólum sátt- ■um við sjálfa sig og aðra. í stofunni, sem við erum í stendur gamii ruggustóllinn á sama stað og hann hefur stað- ið frá því að ég man eftir mér. Hann er á sínum stað, hann ruggar eins, það brakar eins í honum, hann hvílir mann, og hjá honum er maður aldrei einm. Hann er eins og jólin. Ruggustóllinn er kyrr eins og lygn þarapollur á k'löppum, þeg ar fjara er. Ég sezt í stólinn og hann fer á hreyfingu. Það er eins og að henda steinvölu í spegilsléttan sjó, hann hreyf- ist og hreyfist eins og hring- gárarnir á vatnisfletinum og minningarnar koma og fara eins og hringarnir frá stein- kastinu, sem að lokum hverfa inn í sjál'fa sig í fjarlægðiinni. f gamni og alvöru tek ég nokkra gára úr liðnum at- burðum og huigleiðingum. Minningar, seim koma og ■fara eins og hvað annað, og hripa þær niður án sér- staks tilgangs eða fyrirheits. Því að ósjálfrátt reikar hug- urinn vítt og breitt þar, sem ég sit í ruggustólnum: FYRSTI GÁRI Niðri í kjal’lara heima hjá mér er blómaverzlunin. Nú dormar hún í rökkrinu og það eru fá blóm eftir í vösum, því að blómin fylgja jólaljósunum. Rétt áður en jólamessan hófst lauk mamma við að skúra í búðinni og pabbi sópaði í geymsl unni þar, sem skreyttu greni- greinarnar höfðu verið í fyrra- dag. Það er svolítið undarlegt að sjá harðskeyttan skipstjóra eins og hann skreyta greni- greinar á leiði. En það er venja að setja greinar á leiðin og það er venja að fá þær í b'lómabúð- inni, og það er líka skemmti- legt að skreyta. Annars er það ennþá undar- legra að sjá þegar hásetar og skipstjórar koma inn í búðina á Þorláksmessu með danska eða kúbanska vindla og velja blóm í vasann á jólaborðið. Þeir mylja ekkert moðið í orðavali og hafa gaman af öllu saman. Oft koma þeir sem verzla í blómabúðinni í kaffi upp á loft þar, sem eldhúsið er, fyrir eða eftir erindið í búðina. En fyr- ir stórhátíð hefur enginn tíma til þess, því að það er margt, sem þarf að gera fyrir jólin og ekki hægt að skeggræða í bi'li yfir rjúkandi kaffibolla. Ann- ars er nú í rauninni stöðugt á könnunni og etnn og einn skýzt upp. Allt árið er umferð í eldhús- inu heirna, stundum eins og á járnbrautarstöð. En nú er eng- in umferð; jólin eru kom- in og nú haida aliir hátíð á sérhverju heimili og niðri er blómabúðin með örfáum túli- pönum búin að rækja hlutverk sitt fyrir þessi jól. Það er stund um talað um að kaupmennsk- an sé orðin of mikil um jólin og auðvitað er hægt að gera of mikið af öl'lu, en fólk vill hafa eitthvað sérstakt á jólunum og „þau eru nú aðeins einu sinni á ári“, sagði göm'Ul kona, sem ihlakkaði tii. Reyndin er líka sú, að f'ólk dríf- ur í mörgu, sem það hef- ur ætlað að gera fyrir jól- in, það er einmitt að ljúka við 'ákveðið markmið á árinu. Stundum er að vísu óforsjálni í fjármálum, en kannski verða jólin breytt þegar við íslend- ingar verðum orðnir forsjálir í þeim málum. Það hafa ailtaí frá örófi alda verið gefnar gjafir og fóilk gef- ur fyrst og fremst vegna þess að því finnst gaman að gefa. Gjafir eru engin tízka og fólk ætti að skilja að atriðið er ekki að gefa stórt endilega, heldur að gefa eitthvað fallegt. Mesta ánægjan fyrir þiggjand- ann er gjöfin sjálf, viljinm og hugurinn á bak við. f þessu umhverfi ólzt ég upp og lærði að gera stórt úr smáu, lærði að líf okkar verð- ur ekkert merkilegra en hjá öðrum hvað svo sem á dynur, það verður bara öðru vísi. Einn berst meira á en annar og þann ig verður það alltaf en allir Gygn þarapollur á klöppum Álseyjar. Maður og drengur standa á flánni milli klettanna og horfa út yfir liafið. í fjarska rís ein af Vestmannaeyjunum, Suðurey, upp úr úðaslæðu morgunsólar- innar. — Ljósmynd: Sigurgeir Jónasson. GÁRAR á hljóðri nótt Eftir Árna Johnsen Lítið barn við ströndina horfir á gárur speglaðs hafs. í fjarska: Yzti-klettur, Elliðaey og Bjam- arey til hægri. — Ljósmynd Sigurgeir Jónasson. 22 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 23. des. 1968

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.