Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1996, Síða 17
5u myndröð. Nöfn þeirra eru skráð á fótstailinn.
HORFT niður íkórinn. T.h. er predikunarstóllinn sem Lauritz Gottorp gaf kirkjunni 1696.
-
.
'' H Rv-
JH
myndir af postuiunum tólf standa í röð undir stjörnum prýddri hvelfingu.
hurfu allir ísar og jörð skipaðist svo skjótt til
gróðrar að búfénaði var sleppt til beitar aðeins
örfáum dögum eftir að ákvörðunin var tekin
um kirkjubygginguna. Fleiri dularfullir atburðir
tengjast Þingeyrum og margir telja enn þann
dag í dag að meiri gæfu sé vart hægt að öðlast
í lífinu en að fylgja manns eigi rætur á Þingeyr-
um.
Kirkja reis því á Þingeyrum strax í upphafi
kristni og mun guðshús hafa staðið þar allar
götur síðan. Munkaklaustur var stofnað á Þing-
eyrum árið 1133 og var staðurinn eitt af mestu
menntasetrum á Islandi næstu aldir á eftir. Var
það fyrsta klaustur sem stofnað var á landinu.
Þar voru skrifuð ýmis fornrit sem varðveist
hafa. Þeirra á meðal er Sverris saga konungs,
meistaraverk að máli og talin auk þess sann-
fræðileg heimild. Fylgdi klaustrið munkareglu
Benedikts af Nurcia en kirkjan var helguð hei-
lögum Nikulási. Munkar urðu að heita því að
dveljast ævilangt í klaustrinu, halda klausturs-
iði alla og hlýða yfirboðurum. Þeir máttu ekki
kvænast og ekkert eiga, stórt né smátt.
Jafnframt því sem andleg menning og rit-
störf blómguðust í Þingeyraklaustri varð það
auðugt á veraldarvísu. Margir gáfu þvi jarðeign-
ir sér til sálubóta og aðrir gerðust próventu-
menn. Um siðaskipti var svo komið að klau-
strið átti flestar jarðir í Þingeyrasveit, Vatnsd-
al, Asum og fjöldamargar í öðrum byggðarlög-
um auk hlunninda og ítaka. Klaustrið stóð frá
árinu 1133 til siðaskipta eða í rúmlega 400 ár
og á þeim tíma munu ábótar hafa verið tuttugu
og fjórir að tölu. Með hinum nýja sið voru dag-
ar Þingeyraklausturs taldir. Konungur tók und-
ir sig eignir þess og setti umboðsmann yfir sem
greiddi árlegt gjaid til konungs og innheimti
landskuldir. Flestir klausturhaldaranna urðu
efnaðir menn og sumir stórríkir á þeirra tíma
vísu. Lauritz Gottrup (Lárus Gottrúp) lögmað-
ur, danskur að ætt, fékk staðinn árið 1683 og
sat af mikilli reisn. Arið 1695 lét hann reisa
nýja kirkju að Þingeyrum, stafakirkju úr timbri,
og fékk til hennar ágæta gripi sem sumir hverj-
ir eru enn í kirkjunni.
Ásgeir Einarsson (1809-85) alþingismaður
fluttist að Þingeyrum vorið 1860 en þá var þar
torfkirkja hrörleg. Ákvað hann að byggja upp
kirkju á staðnum úr íslensku gijóti þrátt fyrir
að hvergi væri stein að fá í mýrunum umhverf-
is Þingeyrar. Veturinn 1864-65 lét Ásgeir flytja
gijót vestan úr Nesbjörgum að kirkjustæðinu
þar sem kirkjan stendur nú og var gijótið dreg-
ið á sleðum yfir Hópið sem þá var ísi lagt. Er
leiðin um átta kílómetrar. Var hestum beitt
fyrir sleðann yfir Hópið en þaðan og heim að
kirkju drógu uxar ækin. Valdi Ásgeir kirkjunni
stað þannig að hún sæist sem víðast frá og
mun hún sjást úr sjö hreppum sýslunnar en
alls voru þeir tólf.
Sverrir Runólfsson steinhöggvari sá um
veggjahleðsluna og munu þeir Ásgeir saman
hafa lagt á ráðin um gerð hússins en steinamir
í veggjum hennar eru límdir með kalki í hleðsl-
unni og hafa ekki haggast frá því Sverrir lagði
þá á sinn stað. Byggingin stóð yfir í þrettán ►
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 21. DESEMBER 1996 17