Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1996, Blaðsíða 21

Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1996, Blaðsíða 21
í HEIÐMÖRK. Vífilfell í baksýn. ' . HÚS f Þingholtunum. SANDNÁM utan við Reykjavík. Að Ifkínd- um hefur málarinn fundið þennan stað f nágrenni við Elliðaárvog. grein. Sjálfsmynd hans sem hér birtist ber vott um góða fæmi í þessri grein; hún er „gott málverk" og kannski bezt af þessum verkum. Meðan á íslandsdvölinni stóð hefur Harald Erikson litast um í kringum bæinn; hann máiaði Rauðhólana meðan eitthvað var eftir af þeim; hann málaði mann við laxveiðar í Elliðaám og hraunið í Heiðmörk með Vífilfell- ið í baksýn. En flest eru málverkin af húsum, götum og stöðum innan gamla bæjarins eins og hann var þá og þar af þrjú frá höfninni. Myndimar bera með sér að Harald Erikson hefur erið trúr sinni akademísku skólun; hann er ekki módemisti eða tilraunamaður og stíl- færir ekki neitt viðlíka og Þorvaldur Skúlason gerði á sama tíma í sínum hafnarmótífum. Þá sjaldan útlendir málarar hafa sett niður trönur sinar hér, þá virðist okkur fyrr og síð- ar að þeir sjái landið allt öðruvísi en við. Það verður þó naumast sagt um Harald Erikson. Bæði Reykjavíkurmyndirnar og þær sem hann málaði utan við bæinn, birta að minnsta kosti þeim sem eldri eru harla kunnuglega sýn. Hitt er svo annað mál að sú Reykjavík sem Harald Erikson túlkaði 1947, er ekki til leng- ur nema að litlu leyti. LAXVEIÐAR f Elliðaánum. BÁTAR í Reykjavíkurhöfn. GATA í Reykjavík. I Meban íslenzkir málarar voru annadhvort med I trönur sínar í landslaginu eba ab fást vib mód- I emískar tilraunir} sá HaraldErikson ab nóg I var afyrkisefnum í Reykjavík. Þessi málverk komu til Islands ab málaranum látnum ogþau hafa aldrei verib sýnd opinberlega. EYÞÓR RAFN GISSURARSON JÓLIN NÁLGAST kaffihús full af fólki sem horfír út um rákfrosnar rúður á þá sem ganga um göturnar líkt og fljót sem flæðir áfram á milli húsanna hanga jólaljós og jólamyndir eldrauð einmana kerti með heilaga gula geislabauga sumir með sína gleði tilhlökkun, óskir sem ef til vil rætast aðrir bera angur glataðar vonir og söknuð - sorg en Jesú er minnst um jólin hvernig sem örlögin móta mennina undir ísuðum glugga stjama sem búa hátt á himnum Höfundur er kennari. THOMAS HOOD AND- VARP í LJÓÐI ARNHEIÐUR SIGURÐARDÓTTIR ÞÝDDI. Lyft henni hljóðlega upp, ber hana blíðlega héðan. Ó, sjá hve fíngerð öll hún er ung og svo skær. Systurleg, bróðurleg, móðurleg, föðurleg ástúðin þessara allra varflúin burt. Orsökin varð á svipstundu augljós: Kærleikans himinn var brostinn, og sjálf náð drottins náði ekki að bæta þar úr, af því að hún virtist næstum því stöðnuð. Lífíð var orðið kolmyrkt. ViIIt æddi hún gegnum dauðans port. Bara burt - bara burt í bláinn og ei hingað aftur að koma! Lyft henni hljóðlega upp, ber hana blíðlega héðan. Ó, sjá hve íturvaxin hún er ung og svo litfríð. Vonleysið laust hana, forsmánin elti hana, harðýðgin kvaldi hana, vitfirringin tætti hana í sig. - Nú hefur hún loks fundið frið. Legg saman hendur hennar, í hljóði bæn sendir hjartað sem þjáðist og þjáist enn. Höfundurinn er enskt skáld. Ljóóiö er til minningar um unga stúlku sem brast undan oki heimsins. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 21. DESEMBER 1996 21

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.