Alþýðublaðið - 18.10.1986, Page 20
20
Laugardagur 18. október 1986
Ályktanir kjördæmisþings Alþýöuflokksins í Vestfjaröakjördæmi:
ítarlegar reglur
um prófkjör
1. Prófkjör skal fara fram síðari
hluta nóvember 1986 samkv.
nánari ákvörðun stjórnar kjör-
dæmisráðsins, en hún skal jafn-
framt vera yfirkjörstjórn próf-
kjörsins og bera ábyrgð á fram-
kvæmd þess gagnvart kjördæm-
isráðinu.
2. Kosið skal í prófkjörinu um tvö
efstu sæti á væntanlegum fram-
boðslista. Rétt til framboðs hafa
þeir stuðningsmenn Alþýðu-
flokksins, sem kjörgengi hafa til
Alþingis og hafa meðmæli
minnst 25 flokksbundinna Al-
þýðuflokksmanna í Vestfjarða-
kjördæmi með framboði sínu.
Kosningarétt í prófkjörinu hafa
stuðningsmenn Alþýðuflokks-
ins á Vestfjörðum, sem kosn-
ingarétt hafa í kjördæminu.
3. Kjörstaðir skulu vera þar sem
Alþýðuflokksfélög eru starfandi
í kjördæminu svo og í skrifstofu
Alþýðuflokksins í Reykjavík.
Stjórnir Alþýðuflokksfélaga eða
Á undanförnum mánuðum hefur
heldur birt til í hrunadansi efna-
hagsmála þjóðarinnar. Má það
fyrst og fremst þakka ytri skilyrð-
um og þeim kjarasamningum, er
gerðir voru á liðnum vetri. Þó ber
þann skugga á, að innlendi þáttur-
inn byggist einvörðungu á fórnum
þess fólks, sem vinnur í útflutnings-
atvinnugreinunum og annarra
þeirra er vinna á strípuðum launa-
töxtum og hafa ekki notið launa-
flokksmenn tilnefndir af þeim
skulu starfa sem undirkjör-
stjórnir á hverjum kjörstað og
bera ábyrgð á framkvæmd próf-
kjörsins á þeim stöðum gagnvart
yfirkjörstjórn. Yfirkjörstjórn er
heimilt að ákveða kjörstaði víð-
ar í kjördæminu að höfðu sam-
ráði við frambjóðendur og að
fengnu samþykkt næsta Alþýðu-
flokksfélags. Flokksfélag, sem
samþykkt hefur slíkan kjörstað,
skal bera ábyrgð á framkvæmd
prófkjörsins þar. Kjósendur
(þátttakendur í prófkjörinu)
skulu skrá nöfn sín aldur og
heimilisföng á þar til gerða skrá
sem kjörstjórn lætur útbúa.
Nafnaskrá þessar skulu fylgja
öllum öðrum kjörgögnum til yf-
irkjörstjórnar að kosningum
loknum.
4. Yfirkjörstjórn setur nánari regl-
ur um framkvæmd kosninganna
þ. á m. um framboðsfrest, gerð
kjörseðla og um framkvæmd ut-
skriðs.
Óþolandi er að lítill hluti þjóð-
arinnar, sé látinn bera kostnað, af
óstjórn efnahagsmála undanfar-
inna ára og því krefst þingið þess:
„Að launakerfi útflutningsatvinnu-
veganna verði tekið til gagngerðrar
endurskoðunar og það tryggt að í
næstu kjarasamningum verði mið-
að við að lágmarkslaun tryggi að
framfærslueyrir fjölskyldu fyrir
dagvinnu, nægi fyrir öllum þeim
ankjörfundaratkvæðagreiðslu.
Kosningar skulu aðeins fara
fram á áður auglýstum kjörstöð-
um og á áður auglýstum tímum.
Heimilt er þó að senda atkvæða-
seðla í pósti til þeirra, sem ekki
búa í nágrenni við auglýstan
kjörstað, óski þeir þess sjálfir að
taka þátt í prófkjörinu og hafa
til þess rétt. Yfirkjörstjórn ann-
ast sjálf slíkar sendingar at-
kvæðaseðla.
5. Frambjóðendur skulu hafa rétt
til þess að hafa fulltrúa sína við-
stadda á kjörstað þegar kosning
fer fram. Mótmæli fulltrúi
frambjóðanda kosningaþátt-
töku einhvers á þeim grundvelli
að þátttakandi eigi ekki rétt á að
fá að taka þátt í prófkjörinu skal
kjörstjórn eigi að síður heimila
þátttökuna en þá því aðeins að
atkvæði þess kjósanda sé inn-
siglað og þannig sent eða afhent
þörfum, sem Hagstofa íslands telur
að þurfi til lífsviðurværis, sam-
kvæmt framreiknaðri neyslukönn-
un og kaupmáttur þar tryggður“.
Þessu verði meðal annars náð með
því að flytja a.m.k. 2A hluta vægis
bónusgreiðslna yfir á dagvinnu-
kaup. Einstaklingar er beri úr být-
um tvöföld lágmarkslaun eða meir,
fái engar launahækkanir
Þingið mótmælir þeim auknu
skattabyrðum, sem lagðar hafa ver-
yfirkjörstjórn til úrskurðar áður
en talning fer fram.
6. Að prófkjörskosningunum
loknum skal senda yfirkjör-
stjórn öll kjörgögn og að þeim
fengnum lætur hún fram fara
talningu á einhverjum einum
stað í kjördæminu þar sem
frambjóðendum og/eða fulltrú-
um þeirra gefist kostur á að vera
viðstaddir. Öll ágreiningsefni í
sambandi við kosningarnar skal
úrskurða áður en talning hefst
og ræður einfaldur meirihluti í
yfirkjörstjórn úrskurði. Slíkum
úrskurði má áfrýja til endanlegr-
ar afgreiðslu kjördæmisráðsins
en slík áfrýjun getur þó ekki
hindrað að talning fari fram. Yf-
irkjörstjórn skal varðveita öll
kjörgögn i a.m.k. 60 daga eftir
að talningu lýkur. Kjördæmis-
ráðið svo og frambjóðendur og
fulltrúar þeirra skulu þann tíma
hafa óskoraðan aðgang að þeim
gögnum.
7. Að lokinni talningu skilar yfir-
kjörstjórn niðurstöðum til kjör-
dæmisráðsins sem svo lýkur
gerð framboðslistans og afgreið-
ir hann endanlega samkvæmt
samþykkt kjördæmisráðsfund-
ar og lögum Alþýðuflokksins.
8. Prófkjörið verður opið og þátt-
takendur undirrita engar skuld-
bindingar eða stuðningsyfirlýs-
ingar.
ið á launafólk og ítrekar kröfur Al-
þýðuflokksins um afnám tekju-
skatts á almennar launatekjur.
Öllum er ljóst að sú launastefna
sem verkafólk hefur mátt sætta sig
við, er meðal annars að ganga frá
útflutningsatvinnuvegunum og er
svo komið, að ekki tekst að ráða
nægjanlegt vinnuafl, til að atvinnu-
greinin geti afkastað þeim afla er að
Iandi berst, og á láglaunastefna
stjórnvalda hvað stærstan þátt í
þessari þróun.
Þingið krefst þess einnig afAl-
þingi og ríkisstjórn: „Að séð verði
til þess að útfíutningsatvinnuveg-
unum verði sköpuð þau rekstrar-
skilyrði, að þeir geti boðið upp á
eftirsóknarverð launakjör.
Peningastefna að leggja
landsbyggðina í rúst
Kjördæmisþing Alþýðuflokksins
í Vestfjarðakjördæmi, haldið i
Hnífsdal 27. sept. 1986, harmar þá
peninga- og efnahagsstefnu, sem
átt hefur sér stað í landinu, undir
handarjaðri Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknar.
Sú stefna er nú á góðri leið með
að leggja landsbyggðina í rúst, á
sama tíma og ofþensla, offjárfest-
ing og peningaflæði ræður ríkjum á
Reykjavíkursvæðinu.
Þessi sameiginlega stefna núver-
andi stjórnarflokka hefur í vaxandi
mæli hert að landsbyggðarfólki og
í auknum mæli gengið á rétt þess á
sama tíma og fjármagni hefur verið
dælt út á Reykjavíkursvæðið með
þeim afleiðingum að landflótti er
brostinn á frá hinum dreifðu byggð-
um til Suðvesturhornsins.
Á nánast öllum sviðum er lands-
byggðin látin blæða.
Nægir þar að nefna samgöngu-
mál. Vel flestir vegir á Vestfjörðum
hafa verið óökufærir á þessu sumri.
Svipað er ástatt á Vestfjörðum
varðandi hafnarmálin, á því land-
svæði, sem yfirgnæfandi meirihluti
fólks lifir á fiskveiðum og fisk-
vinnslu, og matar þannig þjóðarbú-
ið sem heild.
Þingið krefst þess af stjórnvöld-
um, að þau láti af þeirri áráttu að
bjóða Vestfirðingum ávallt upp á
annars eða þriðja flokks þjónustu
miðað við aðra landsmenn.
I þeim efnum svo og öðrum skor-
ar þingið á alla Vestfirðinga að snúa
vörn í harða sókn, og láta einskis
ófreistað til að knýja á um úrbætur
Vestfirðingum til handa.
Þá varar þingið við áframhald-
andi ofstjórnun fiskveiða.
Kvótinn, kontóristakerfið úr
Reykjavík, sem farið hefur verst
með Vestfirðinga, er þó einn versti
hluti stefnu núverandi stjórnar-
flokka.
Þeirri óstjórn verður að hnekkja,
nema það sé meining stjórnar-
flokkanna, að rústa sjávarplássin,
sem skapa þjóðarauðinn.
Þingið mótmælir hai^lega yfir-
lýsingum sjávarútvegsráðherra um
áframhaldandi kvótakerfi og krefst
þess að það verði afnumið.
Framfærslueyrir fyrir dag-
vinnu nægi fyrir nauðþurftum
„Oþolandi ástand
í skattamálum“
— segir í ályktun aðalfundar Alþýðuflokksfélags Vest-
mannaeyja
Elín Alma Arthursdóttir var kos-
in formaður Alþýðuflokksfélags
Vestmannaeyja á aðalfundi félags-
ins í lok september. Auk hennar
skipa stjórnina þau, Ebenezer Guð-
mundsson varaformaður, Sólveig
Adólfsdóttir, gjaldkeri, Stefán
Jónsson, ritari og Ágústína Jóns-
dóttir meðstjórnandi. í varastjórn
eru þau Þorgerður Jóhannesdóttir
og Magnús Kristleifsson.
Á fundinum var samþykkt eftir-
farandi ályktun: „Það ástand sem
nú er í skattamálum þjóðarinnar er
með öllu óþolandi. Tekjuskatturinn
er í raun launþegaskattur og engu
líkara en launþegar séu komnir í
þegnskylduvinnu hjá ríkisvaldinu.
Einnig er ljóst að miklir brestir
eru í söluskattskerfinu.
Þrátt fyrir góð orð núverandi rík-
isstjórnar, um að lækka tekjuskatt-
inn, hefur núverandi fjármálaráð-
Opið hús —
Háskóli íslands
Muniö opna húsiö í Háskóla íslands á morgun,
sunnudag, frá kl. 10—18.
Alls verða 19 byggingar opnar.
Allir velkomnir.
Háskóli íslands.
Elln Alena Arthursdóttir
herra, og þingmaður Vestmannaey-
inga, Þorsteinn Pálsson, hækkað
tekjuskattinn á launþegum um
tæpar 700 milljónir.
Fundurinn skorar á þingmenn
Alþýðuflokksins að beita sér af al-
efli fyrir þvi að hart verði tekið á
þessum málum hið bráðasta".
Jóhanna Sigurðardóttir o.fl.:
Barnabætur
greiðist til
18 ára aldurs
Jóhanna Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir, Karvel
Pálmason, Guðrún Helgadóttir og
Guðmundur Bjarnason hafa lagt
fram á Alþingi, frumvarp til laga
um breytingu á lögum um atvinnu-
leysistryggingar.
Markmið frumvarpsins er að
tryggja að bætur atvinnuleysis-
trygginga, vegna framfærslu barna,
séu greiddar þar til barn verður 18
ára í stað 17 ára eins og nú er.
Um er að ræða ákvæði um at-
vinnuleysistryggingar því sem er í
öðrum hliðstæðum lögum og regl-
um um framfærslu barna. Má þar
nefna:
— barnalögin, þar sem réttindi og
skyldur framfærenda miðast
við 18 ára aldur barns,
— reglur lífeyrissjóða um barna-
bætur,
— ákvæði almannatryggingalaga
um barnalífeyri, meðlög,
mæðralaun og sjúkradagpen-
inga þar sem bótaréttur og
framfærslaerumiðuðvið 18ára
aldur barns.
Öll þessi ákvæði, sem hér hafa
verið tilgreind, kveða annaðhvort á
um framfærsluskyldu framfærenda
eða bótarétt þeirra til 18 ára aldurs
barna. Af sjálfu leiðir að forsenda
fyrir greiðslu atvinnuleysistrygg-
inga á barnabótum til 18 ára aldurs
er sú sama. Þar er um að ræða að
tryggja framfærslu barna og bóta-
rétt ef atvinnuleysi hindrar fram-
færanda í að afla vinnutekna.
Ef til vill má benda á ákvæði um
sjúkradagpeninga í almannatrygg-
ingalögum sem helstu hliðstæðu
við greiðslu atvinnuleysistrygginga-
bóta. Sjúkradagpeningar eru
greiddir ef launatekjur falla niður
vegna veikinda. Bótaþegi á þá rétt á
greiðslu dagpeninga og til viðbótar
ákveðinni upphæð fyrir hvert barn
á framfæri til 18 ára aldurs. At-
vinnuleysisbætur eru greiddar þeg-
ar launatekjur falla niður vegna at-
vinnuleysis. Bótaþegi á þá rétt á
greiðslu dagpeninga og til viðbótar
ákveðinni upphæð vegna barna
yngri en 17 ára á framfæri sinu.
Ætla verður að misbrestur hafi orð-
ið á því að færa ákvæði atvinnuleys-
istryggingalaga, að því er varðar
bótarétt vegna barna, til 18 ára ald-
urs, en í kjölfar barnalaganna, sem
sett voru árið 1981, voru almanna-
tryggingalögin samræmd þeim lög-
um að þessu leyti.
Með hliðsjón af þeim breyting-
um, sem orðið hafa á hliðstæðum
lögum og áður hefur verið rakið,
verður að ætla að viðtæk samstaða
geti náðst um það frumvarp sem
hér er flutt.
Samkvæmt upplýsingum At-
vinnuleysistryggingasjóðs hafa
barnadagpeningar undanfarin ár
numið á bilinu 3,8% til 4,2% af
heildarbótagreiðslum atvinnuleys-
istrygginga. Sú breyting, sem hér er
gert ráð fyrir, leiðir af sér hækkun
barnadagpeninga í u.þ.b. 5,9% af
heildarbótagreiðslum. Árið 1985
voru heildarútgjöld atvinnuleysis-
trygginga vegna barnabóta rúmar
6,4 milljónir króna. Útgjöld at-
vinnuleysistrygginga hefðu því auk-
ist um 400 þús. kr. á árinu 1985
vegna ákvæða þessa frumvarps.
Af framangreindu er ljóst að
frumvarpið felur það eitt í sér að
löggjafinn lagfæri ákvæðin um
barnabætur svo að þau samræmist
Framh. á bls. 22