Alþýðublaðið - 21.01.1994, Page 1
Hagkaup mátti flytja inn skinku og hamborgarhryggi, segir Hæstiréttur - og Bónus þá í
fullum rétti að flytja inn og selja kalkúnalæri - Dómur hæstaréttar markar tímamót varð-
andi innflutning búvara - Stóryrði framsóknarmanna allra flokka eru dauð og ómerk
FJÖRBROT
einokunarkerfísins
„Við erum hér vitni að fjörbrotum einokunarkerfísins, sem framsóknarmenn allra flokka
hafa hlaðið utan um landbúnaðinn á undanförnum árum, bændum og neytendum til
skaða og skapraunar“, segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
Jón Baldvin Hannibalsson: „Þessi Hœstaréttardómur staðfestir end-
anlega að ég og minir samstarfsmenn i utanríkisráðuneytinu höfðum
rétt fyrir okkur varðandi þennan umrœdda innflutning. Hœstiréttur
hefur hérmeð fallist á að róksemdir okkar í málinu voru réttar. Stór-
yrði um að ég hefði beitt pólitískum geðþóttaákvörðunum og hundsað
landslög og œtti þar af leiðandi að scgja af mér eru hér með dauð og
ómerk.“
„Þessi Hæstaréttardóm-
ur staðfestir endanlega að
ég og mínir samstarfsmenn
í utanríkisráðuneytinu
höfðum rétt fyrir okkur
varðandi þennan umrædda
innflutning. Hæstiréttur
hefur hérmeð faiiist á að
röksemdir okkar í málinu
voru réttar. Stóryrði um að
ég hefði beitt pólitískum
geðþóttaákvörðunum og
hundsað iandslög og ætti
þar af leiðandi að segja af
mér eru hér með dauð og
ómerk“, sagði Jón Baldvin
Hannibalsson í viðtaii við
Alþýðublaðið í gærkvöldi
þegar fyrir lá dómur
Hæstaréttar Islands í
skinkumálinu, sem féll Hag-
kaupi hf. og þarmeð utan-
ríkisráðherra í vil.
Jón Baldvin sagðist álíta að
ríkislögmaður sem var nokk-
uð umdeildur í þessu deilu-
máli hefði fengið uppreisn
æru. „Hann hefur áður skilað
álitsgerðum þar sem hann
hefur haldið því fram að bú-
vörulögin hafi ekki að geyma
sjálfstætt viðbótarbann varð-
andi innflutning á búvörum
umfram það sem bundið er
leyfisveitingum í öðrum lög-
um. Hæstiréttur kemst að
þeirri sömu niðurstöðu og
segir það staðfest bæði í laga-
texta og greinargerð búvöru-
laganna. Og ennfremur að
enginn hafí getað sýnt fram á
ákvæði í öðrum lögum sem
heimili bann. Þetta þýði að
samkvæmt Hæstaréttardóm-
inum eru innflutningur frjáls
og fjármálaráðherra ber ein-
faldlega að leyfa tollaf-
greiðslu á slíkum vörum.
Landbúnaðaráðherrann hafði
enga lagaheimild til að synja
um innflutninginn og fjár-
málaráðherrann ekki til að
beita valdi tollstjóra til að gera
innflutninginn upptækan“,
sagði Jón Baldvin Hannibals-
son.
Aðspurður sagði hann þá
túlkun, að breytingar á bú-
vörulögunum ffá því fyrir jól
geri þessa niðurstöðu hæsta-
réttar marklausa, vera á mis-
skilningi byggð. Sú breyting
varðaði heimiidir til að leggja
á verðjöfnunargjöld á inn-
flutninginn en hafi ekki verið
viðbótarbann. Loks væri því
við að bæta að GATT- samn-
ingurinn muni á næsta ári gera
öll lagaákvæði um innflutn-
ingsbann og leyfisveitingar
úreltar.
„Með öðrum orðum. Við
emm hér vitni að fjörbrotum
einokunarkerfisins, sem
Framsóknarmenn allra flokka
hafa hlaðið utan um landbún-
aðinn .á undanfömum árum,
bændum og neytendum til
skaða og skapraunar“, sagði
ráðherrann að lokum.
Synjun yfirvalda á tollaf-
greiðslu á tonni af svínaham-
borgarhrygg og soðinni svín-
askinku, sem Hagkaup flutti
inn á síðasta ári reyndist ólög-
leg aðgerð samkvæmt dómi
Hæstaréttar í gærdag. Hag-
kaup hf. hafði stefnt fjármála-
ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs
og krafðist ógildingar úr-
skurðar um synjunina auk
þess sem krafist var skaða-
bóta. Þær fengust ekki, og
báðir málsaðilar taka á sig
sinn hluta kostnaðar við
málið.
Málið varðar ennfremur
innflutning Bónus- búðanna á
kalkúnalærum seint á síðasta
ári. Þá talaði fjármálaráðherra
um að utanríkisráðherra hefði
„málað sig út í horn“, eins og
hann orðaði það. Þau orð
þurfa endurskoðunar við í
ljósi nýjustu atburða.
Áhrif Evrópska efnahagssvæðisins: Tapi snúið í hagnað
og framleiðslan stóraukin þremur vikum eftir að
EES er orðið staðreynd
er vítamínsprauta
- segir Sighvatur Bjarnason, í Vinnslustöðinni í Eyjum,
sem ætlaði að hætta framleiðslu ef EES
kæmist ekki í gegn um áramótin
„EES veldur strauin-
hvörfum hvað fiskvinnslu
varðar. Það var nú þanu-
ig koniið fyrir þessari
framleiðslu okkar að við
ætluðum að hætta henni
um áramótin, nenia EES-
sanmingurinn næðist í
höfn‘% sagði Sighvatur
Bjarnason, frarn-
kvæmdastjóri Vinnsiu-
stöðvarinnar hf. í Vest-
mannaeyjum, í gær.
Hann sagði að frandeiðsla
á salffiski í nevtenda-
pakkninguin ykist trúlega
í ár í að verða 10% af
veltu fyrirtækisins, - eða
tvöfaldast frá því sein var
í fyrra. Og nn má gera ráð
Alþýðublaðið í dag er
24 síðna folað uni EES
— prentað í risaupplagi á mælikvarða Alþýðublaðsins
og sent til heimila allra íslenskra jafnaðarmanna
Alþýðublaðið í dag er helgað þátttöku fslands í Evrópska efnahagssvieðinu.
Á þessum stærsta neytendaniarkaði heims höfurn við verið í þrjár vikur, og
ijóst að iandsmenn eru þegar farnir að hagnast á þessari nýju Evrópusam-
vinnu. Blaðið leitaði til nokkurra aðila í opinberu lífi og atvinnulífinu og spurði
þá um EES-samninginn.
Spumingar Alþýðublaðsins eru eftiri'arandi:
1. Hvert er álit þitt á samningunum um-Evrópska efnahagssvæðið?
2. Hvað áhrif telur þú að samningurinn hafi á þá atvinnugrein sem þú starfar við?
3. Hvert telur þú að framhald verði eða ætti að verða á samstarfi íslands
við Evrópubandalagið?
fyrir að saltfiskurinn skili
hagnaði í stað taps.
Sighvatur sagði að fyrir-
tækið hefði tapað miklu fé á
framleiðslu saltfisks í neyt-
endaumbúðum til Suður-
Evrópu.
Hann sagði að það væri
engin spumtng að samning-
urinn kæmi fiskiðnaði
landsmanna stórlega til
góða í komandi framtíð og
væri þegar farinn að virka
til góðs.
„Samningurinn er algjör
vítamínsprauta", sagði Sig-
hvatur. Nú gætu menn farið
að huga að fullvinnslu af-
urða í ncytendapakkningar í
meira mæli en gert hefur
verið.
Sala slíkra afurða hefði
verið t gífurlegri samkeppni
við þjóðir sem haft hafa frí-
an aðgang að Evrópumörk-
uðum meðan við höfum
greitt háa tolla og borið
minna úr býtum en keppi-
nautamir.
Aðspurður sagðist Sig-
hvatur undrast það að þing-
tnenn skyldu margir hverjir
hafa lagt til að fella EES-
samningítln.
Gneinilega veitti mörgum
þingmönnum ekki af að
skoða og kynnast fiskiðn-
aðinum, lifibrauði okkar,
eilítið bctur.
Skipting eigna 1. janúar 1994
Raunávöxtun Islenska lífeyrissjóðsins á síöasta ári,
að frádregnum kostnaði, var 12%.*
Allar nánari upplýsingar gefa ráðgjafar Landsbréfa
og umboösmenn Landsbréfa í Landsbanka íslands
um allt land.
*Ávðxtun á síftasta ári var óvenju há vegna mikillar vaxtalækkunar
sem jók verðmæti sjóösins verulega.
Ávöxtun í fortíö þarf ekki að gefa vísbendingu um ávöxtun í framtíö.
íslenski lífeyris sjóóurinn
— Séreignasjóður í umsjá Landsbréfa hf.
Lífeyrissjóður í umsjá sérfræðinga.
Xraust fjárfestingarstefna.
Lágmarkskostnaður við rekstur.
Framúrskarandi ávöxtun.
Framlag sjóðfélaga er séreign þeirra.
Greinargóð yfirlit, ársfjórðungslega.
LANDSBRÉF HF.
Landsbankinn stendur með okkur
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavlk, sími 91-679200, tax 91-678598
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aöili aö Veröbrétaþingi Islands.