Alþýðublaðið - 21.01.1994, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 21.01.1994, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ T Föstudagur 21. janúar 1994 Bjarni Finnsson ___ / EES og verslun á Islandi Með lögum númer 2 frá 13. janúar 1993 var veitt heimild til þess að fullgilda hér á landi samning um Evrópska efna- hagssvæðið og EES-samning- inn. A Islandi gilda þær reglur að þjóðréttarsamni ngar sem gerðir eru milli Islands og ann- arra landa, fá ekki lagagildi nema með setningu sérstakra laga á Alþingi. Þar af leiðandi þurfi að setja ótal ný lög og reglugerðir til þess að samn- ingurinn öðlaðist giidi. En eins og kunnugt er nær þessi samning í megin atriðum til þriggja þátta. I fyrsta lagi vöruviðskipta, í öðru lagi fijálsra flutninga fjármagns og í þriðja lagi ftjálsra flutninga vinnuafls milli aðildarland- anna. Þar sem EES-samningurinn Qallar fyrst og fremst um við- skipti þá hlýtur hann að snerta alla landsmenn og ekki síst þá sem stunda þessa atvinnu. Með samningnum er rutt úr vegi hindrunum í viðskiptum svo að ekki verði hægt að mis- muna þjóðum eða einstakling- um. Til þcss að tryggja slíkt hafa samkeppnisreglur innan land- anna sem eru í EB og þeirra sem undirrituðu EES-samn- inginn verið samræmdar. Gæðastaðlar eru samrýmdir og bann lagt við hvers konar ríkisstyrkjum eða niður- greiðslum framleiðsluþátta annarra en í landbúnaði. Margir hafa að sjálfsögðu spurt, hvemig hægt sé að tryggja að öll ákvæði samn- ingsins gangi eftir, sérstaklega í samskiptum lítillar þjóðar eins og Islendinga við stór- þjóðir. Þau atriði sem talin em hér á undan munu meðal annars tryggja það, en auk þess verður haft strangt eftirlit með fram- kvæmd samningsins. EFTA- ríkin hafa komið sér upp eftir- litsstofnun ESA sem annast eftirlitshlutverkið. Þess skal gengið að nú starfa við þá stofnun um 90 manns og em að minnsta kosti 10% þeirra Islendingar og á væntanlega eftir að fjölga. Má það teljast góður árangur lítillar þjóðar sem sýnir að við búum yfir menntun og þekkingu, auðsjá- anlega til jafns við stærri þjóð- ir. Má vera að þetta gefi nokkra vísbendingu um stöðu okkar í ffamtiðinni meðal þeirra þjóða sem við höfum gert samninginn við. Sé litið til smásöluverslun- arinnar, þar sem ég starfa, má reikna með þvf að hún geti átt von á aukinni samkeppni í ff amtíðinni og er það ein af af- leiðingum samningsins. Hugsanlegt er að erlendir aðilar innan þessarar atvinnu- greinar telji sér hag í því að setja á stofn hér eigin fyrirtæki eða í samstarfi við Islendinga. I sjálfu sér er ekkert við það að athuga annað en að búa sig undir þá samkeppni. Við höf- um orðið vör við ýmsar breyt- ingar á undanfömum mánuð- um, þar sem íslenskar verslan- ir hafa með auknu erlendu samstarfi boðið vörur á sam- bærilegu verði hér á landi og á meginlandinu. Við höfum einnig horft upp á það að íslensk smásöluversl- un hefur haslað sér völl utan fslenskra landsteina og segir mér hugur að framhald verði á því. Það er alls ekki fráleitt að hugsa sér að íslensk smásölu- verslun flytji út hugvit og jrekkingu og nái fótfestu í löndum innan EB. Sem kunn- ugt er byggist verslunin mikið á því að öll fjármagnsþjónusta sé sem ódýmst og eðlilegust. Hugsanlegt er að erlendir bankar og fjármagnsstofnanir bjóði fram þjónustu sína hér á landi og það leiði til þess að samkeppni aukist innan þess- arar atvinnugreinar og fjár- magnskostnaður lækki fyrir ís- lensk fyrirtæki. Slfkt mun bæta samkeppnisstöðu fslenskrar verslunar. I umræðunni um EES- samninginn er það áberandi hvað efasemdarmenn hræðast mjög frjálsa flutninga vinnu- afls hingað til lands. Margir hafa í því sambandi óttast að hingað streymi fólk sunnan úr álfúnni sem bjóði fram vinnu sína á mun lægri launum en greitt er fyrir nú. Samkvæmt athugunum sem gerðar hafa verið á þessum þætti til dæmis í Danmörku, kom f ljós að fleiri Danir fluttu til landa suð- ur í Evrópu heldur en þeir sem fluttust frá löndum í Suður- Evrópu til Danmerkur. Fjöldi eldri Dana búa hluta ársins í heitari löndum Suður- Evrópu og mikill straumur ferðamanna frá norðri til suð- urs. Hvað okkur varðar hér á landi njótum við mikillar fjar- lægðarvemdar í þessu tilliti auk þess sem veðrátta hér á landi fellur þeim ekki í geð sem sunnar búa. Þar að auki eigum við erfitt tungumál sem er óskylt þeim tungum sem tal- aðar eru vfða í Evrópu og setja menn það fyrir sig. Varðandi fijálsan flutning fjármagns milli landa getur það komið lslendingum til góða. Oft hefur það háð ís- lensku atvinnulífi hversu strangar reglur hafa gilt um eignaraðild erlendra fyrirtækja að íslenskum fyrirtækjum. Með þessu ákvæði megum við vænta góðs fyrir atvinnu- lífið hér á landi. Hávæmstu raddir gegn EES-samningnum, sérstaklega eftir að hann var samþykktur, hafa heyrst frá forsvarsmönn- um bændasamtakanna. Ótti þeirra við afleiðingar samn- ingsins er eðlilegur í ljósi þess hve lengi íslenskur landbúnað- ur hefur haft um sig alls kyns vemdarmúra. Ég held að íslenskir bændur muni fljótt aðlagast breyttum aðstæðum, og em nú þegar famir að skoða nýja möguleika í framleiðslu vistvænnar/um- hverfisvænnar vöm til útflum- ings. Reyndar tel ég stórkost- lega möguleika felast í „líf- rænum landbúnaði" og vísa til ráðstefnu sem fjallaði um það efni á vegum bændasamtak- anna fyrir stuttur. Við sem störfum innan verslunarinnar stöndum frammi fyrir miklum breyting- um á næstu ámm. Við höfum gert EES-samninginn og með þvr móti fengið aðgang að markaði þar sem búa um 380 milljón manns. Það eitt hlýtur að gefa versluninni betra tæki- færi til öflunar viðskiptasam- banda sem mun koma okkur landsmönnum til góða í betri og ódýrari vöm og þjónustu. Höfundur er formaður Kaupmannasamtaka íslands. wuOw HAFNARFJÖRÐUR Grunnskólakennarar Vegna forfalla vantar nú þegar kennara í Hvaleyrar- skóla til að kenna 18 kennslustundir á viku í 4. bekk. Nánari upplýsingar hjá skólastjóra í síma 65 02 00. HAFNARFJÖRÐUR Auglýsing um fasteignagjöld Álagningarseðlar fasteignagjalda í Hafnarfirði árið 1994 hafa verið sendir út ásamt gíróseðl- um vegna fyrstu greiðslu gjaldanna. Gjalddagar fasteignagjalda eru 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars og 15. apríl. Sérstakur fasteignaskattur vegna fasteigna, sem nýttar eru við verslunarrekstur eða skrif- stofuhald, er með sömu gjalddaga og er hluti fasteignagjalda verslunar- og skrifstofuhús- næðis. Fasteignaskráning, Strandgötu 6, 3. hæð, veitir upplýsingar um álagningu gjaldanna, sími 5 34 44. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði, 18. janúar1994. Sjúkrahúsiö á Húsavík Sjúkrahúsið á Húsavík sf. auglýsir hér með stöðu framkvæmdastjóra Sjúkrahússins og Heilsugæslustöðvarinnar á Húsavík lausa til umsóknar. Æskilegt væri að umsækjandi hefði reynslu í stjórnun. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 1994. Umsóknir sendist til formanns sjúkrahússtjóm- ar, Hilmars Þorvaldssonar, Baldursbrekku 15, 640 Húsavík. Upplýsingar um starfið veitir Ólafur Erlendsson, framkvæmdastjóri, sími 96 - 4 13 33. Sjúkrahúsið á Húsavík sf. /jkTTAX VERKAMANNAFÉLAGIÐ |P.M§BRtJN.J DAGSBRÚN Leiðbeiningar við framtalsgerö Verkamannafélagið Dagsbrún gefur félags- mönnum sínum kost á leiðbeiningum við gerð skattaframtala helgina 5.-6. febrúar 1994 með sama hætti og undanfarin ár. Þeir sem hug hafa á þjónustu þessari eru beðn- ir um að hafa samband við skrifstofu Dagsbrún- ar, síma 2 56 33, og láta skrá sig til viðtals eigi síðar en 4. febrúar nk. Ekki er unnt að taka við beiðnum eftir þann tíma. Verkamannafélagið Dagsbrún. Arnar Sigurmundsson EES og fiskvinnslan Evrópska efnahagssvæðið er loksins orðið að veruleika. Breyt- ingamar sem það hefur í för með sér fyrir íslenska fiskvinnslu eru ekki famar að koma í ljós ennþá, enda gerðu menn varla ráð fyrir að um mikla stökkbreytingu yrði aðræða. Breytingamar munu þó vænt- anlega verða nokkrar á næstu mánuðum, og það sem flestir vilja sjá em áhrif tollalækkana á verð þeirra afurða sem tollamir lækka mest á. Þessar afurðir em saltfisk- ur, söltuð flök og fersk flök. Þótt við væntum þess að tollalækkanir verði til þess að hækka skilaverð á þessum afurðum megum við ekki gleyma því að þegar tollar hérlendis lækka á innflutningi er það ævinlega neytendum hér á landi f hag. Væntanlega verður það sama upp á teningnum í við- skiptalöndum okkar, að neytend- ur í þessum löndum koma úl með að njóta tollalækkanna á íslensk- um fiski, að minnsta kosti að hluta. Það verður því ekki fisk- vinnslan á fslandi ein, sem mun njóta tollalækkanna á þessum af- urðum. Staða frystingarinnar mun ekki breytast við tilkomu EES þar sem við höfum búið við tollfrelsi á frystum afurðum samkvæmt bókun sex t samningi okkar við EB. Norðmenn hafa hins vegar þurft að búa við tolla á sínum frystu afurðum sem falla nú niður og má því segja að frystihúsin á íslandi muni lenda í harðari sam- keppni um Evrópumarkaðinn við kollega sína í Noregi með til- komu EES. Tollaiækkanir á ferskum flök- um munu væntanlega leiða til mestra breytinga í fiskvinnslu hér á landi á næstunni. Ef tilraunir með útflutning á ferskum flökum í gámum með skipum til Evrópu gefast vel getur það leitt til þess að útflutningur á óunnum fiski dregst enn meira saman en orðið er og jafnframt veitt sjófrystum fiski nýja samkeppni. Þá mun út- flutningur á flökum f lofttæmdum eða loftskiptum umbúðum einnig geta orðið vænlegur kostur, en nokkur fiskvinnslufyrirtæki hafa þegar fest kaup á tækjum í þeim tilgangi að hefja og hafa jafnvel hafið slíka framleiðslu. Þess ber þó að geta að markaður fyrir fersk flök er lítt þekkt stærð og það á eftir að koma í ljós hversu mikið magn tekst að selja af þessum af- urðum. Ekki er enn ljóst hvort aðild okkar að EES veiður til þess að erlendir kaupendur leiti í auknum mæli á fiskmarkaðina hér á landi til að verða sér úti um fisk til að flytja óunninn úr landi. Ef þetta verður reyndin er nauðsynlegt að setja um þau viðskipti sérstakar reglur þar sem ekki getur talist eðlilegt að skerða kvóta þeirra skipa sem selja á mörkuðunum, en samkvæmt núgildandi reglum ætú að gera það eins og um út- flutning skipanna sjálfra væri að ræða. Aðalfundur Samtaka fisk- vinnslustöðva 1992 ályktaði um þetta mál og reyndar síðasta Fiskiþing einnig: Ályktanir em báðar í þá vem að setja verði jöfn- unargjald á slíkan útfluúiing úl að vega upp á móú þeim styrkjum sem fiskvinnsla EB nýtur. Ekki dugar að heimila þessum aðilum, og reyndar kaupendum frá fleiri þjóðum, að koma hingað með fullar hendur styrkjafjár og taka hráefni frá innlendri vinnslu og störf frá íslensku fiskvinnslufólki. I þessu sambandi sakar ekki að rifja upp að styrkir EB og ein- stakra landa innan þess úl sjávar- útvegsins em samtals um 80-100 milljarðar íslenskra króna á ári og styrkir Norðmanna em um 1,5 milljarður á þessu ári. Með úlkomu EES opnast okk- ur Islendingum einnig möguleik- ar á að leita fjármagns til rann- sókna- og þróunarverkefna fyrir sjávarútveg frá sjóðum EES. Fyr- ir nokkm var stofnaður svonefnd- ur Samstarfsvettvangur sjávarút- vegs og iðnaðar í jreim tilgangi að auka vinnsluvirði og tækniþróun fyrir fiskvinnslu og útgerð. Vett- vangurinn nýtur fjárstuðnings frá opinbemm aðilum, frá samtökum sjávanitvegs og iðnaðar og Rann- sóknaráði, en jafnframt mun hann sækja fjármagn í erlenda sjóði sem við eigum nú aðgang að. Með inngöngu okkar i EES er- um við að sú'ga afdrifaríkt skerf inn í fijálsara og jafnframt harð- ara samkeppnisumhverfi í öllum fyrirtækjarekstri. Þessu hafa fylgt ýmis konar lagasetningar sem ekki sfst snúa að framleiðslu sjáv- arafurða. Flesúr era sammála því að þetta hafi verið óumflýjanlegt því að öðmm kosti hefðu fisk- vinnslufyrirtæki orðið að sæta leyfisveiúngum framkvæmda- stjómar EB og efúrlitsmanna þeirra úl að fá að framleiða fyrir Evrópumarkað. Ákvarðanir um vinnsluleyfi fyrir EB-markað hefðu verið í freirra höndum. Nú er það hins vegar Fiskistofa sem fer með það vald. Aðild okkar að EES gerir meiri kröfur úl samkeppnishæfni fs- lensks sjávarútvegs, en veitirokk- ur í staðinn víðtækari möguleika til að markaðssetja afuiðir okkar. Öllum má vera ljóst að staða sjáv- arútvegs á íslandi er bágborin eft- ir skuldasöfnun verðbólguáranna og samdrátt þorskveiðanna, en þorskurinn hefur verið okkur verðmætasta afurð og gefið sjáv- arútveginum mestan arð. Sjávar- útvegurinn býr hins vegar yfir dugmiklu fólki sem ávallt hefur verið reiðubúið að takast á við ný verkefni af einuið og árvekni og því horfum við með hóflegri bjartsýni úl framú'ðar og þeirra nýju tækifæra sem bjóðast okkur með aðild að Eviópska efnahags- svæðinu. Höfundur er formaður Samtaka fiskvinnslustöðva. Fcilltrúaráð fflþýðuflokksfálaganna í Raykjavík FRfiMBOÐ I REYKJflVÍK Kouiing falltráa filþýðuflokksins í 4. og 9. sarti á samaiginlegan framboðslista til borgarstjórnarkosninga í Raykjavík. vorið 1994. fer fram í Rósinni að Hverfisgötu 8-10. laugardaginn 5. febráar og sunnudaginn 6. febráar nastkomandi. Rétt til framboðs og þátttöku í kosningu hafa allir flokksbundnir filþýðuflokksmenn. samkvarmt félagatali 15. janáar 1994. sem lögheimili hafa i Reykjavik. Framboðsfrestur er til klukkan 12 á hádegi, þriðjudaginn 25. janáar nazstkomandi. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofum filþýðuflokksins. - Stjórn fulltrúaráðs Rlþýðuflokksfclaganna í Reykjavik.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.