Alþýðublaðið - 21.01.1994, Síða 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Föstudagur 21. janúar 1994
Tilurð
17. janúur 1989
Jacques Delors leggur til að nánari samvinna
verði tekin upp milli EFTA og EB.
15. mars 1989
Leiðtogar EFTA-ríkja taka jákvætt í tillögur Delors.
28. aprfl 1989
Viðræður hefjast.
21. ol«L€ól>er 1991
Ráðherrafundur EFTA/EB nær endanlegu samkomulagi.
14. desember 1991
Dómstóll EB fjallar um lagalegar hliðar samningsins og
álítur að sameiginlegur EES-dómstóll samræmist
ekki Rómarsáttmálanum.
J anúar/febrúar 1992
Viðræður sem miða að því að samræma samninginn
sjónarmiðum EB- dómstólsins leiða til stofnunar sérstaks
EFTA-dómstóls sem hefur ráðgefandi hlutverk.
lO. apríl 1992
Evrópudómstóllinn leggur fram jákvætt álit
sitt á EES- samningnum.
2. maí 1002
EES-SAMNINGUR UNDIRRITAÐUR
í OPORTO í PORTÚGAL.
€». desember 1002
Kjósendur í Sviss hafna EES-samningnum
í þjóðaratkvæðagreiðslu.
13. desember 1002
Kjósendur í Lichtenstein samþykkja
EES-samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu.
12. janúar 1003
EES-SAMNINGUR SAMÞYKKTUR Á
ALÞINGIMEÐ 33 ATKVÆÐUM GEGN 23,
SJÖ ÞINGMENN SÁTU HJÁ.
PALLBORÐIÐ: Margrét Valdimarsdóttir skrifar
Gegn vinnubrögðum
og spillingu
sjálfstæðismanna
Nú þegar prófkjör AI-
þýðuflokksfélaganna í
Reykjavík vegna væntan-
legra borgarstjómarkosn-
inga stendur fyrir dymm er
það gleðiefni fyrir alla jafn-
aðarmenn hér í borg, að
Bolli Runólfur Valgarðsson
hefur tilkynnt um framboð
sitt í 2. sætið á lista Alþýðu-
flokksins - og þar með í 9.
sætið á sameiginlegum lista
minnihlutaflokkanna í borg-
arstjóm.
Starfið
Bolla Runólf þarf vart að
kynna fyrir alþýðuflokks-
mönnum hér í Reykjavík,
því hann hefur verið virkur
og áberandi í starfi flokksins
undanfarin ár. Bolli Runólf-
ur hefur staðið fyrir öflugu
starfi innan Félags ungra
jafnaðarmanna í Reykjavík
og verið formaður þar und-
anfarin ár.
Félagið hefur blómstrað
og margir nýir félagsmenn
hafa komið til liðs við það -
og þar með Alþýðuflokkinn.
Bolli Runólfur hefur einnig
verið framarlega í starfi
Sambands ungra jafnaðar-
manna og er þar nú varafor-
maður. Hlutur hans hefur
ekki verið lítill í að rífa SUJ
upp úr öldudalnum sem það
var í um árabil. SUJ hefur
nú vaxið á þremur og hálfu
ári úr fámennri klíku upp í
það að vera kraftmikil og
sterk stjómmálahreyfing -
tekið er eftir því sem þar fer
fram.
Bolli Runólfur hefur lagt
sig fram við að hvetja aðra
unga jafnaðarmenn áfram í
starfinu innan flokksins og
að þeir verði virkari og sýni-
legri í störfum hans - ein-
skorði sig ekki við SUJ.
Hann hefur sem sagt ekki
bundið starf sitt við hreyf-
ingu ungra jafnaðarmanna
heldur beitt sér innan Al-
þýðuflokksins og lagt metn-
að sinn í að ná sem bestu
Margrét Valdimarsdóttir.
samstarfi milli ungra og
eldri jafnaðarmanna. Leiddi
þessi viðleitni hans meðal
annars til stofnunar sameig-
inlegra málefnanefnda Fé-
lags ungra jafnaðarmanna í
Reykjavík og Alþýðu-
flokksfélagsins í Reykjavík.
Segja má síðan að ný-
stofnsettar málefnanefndir
framkvæmdastjómar Al-
þýðuflokksins á landsvísu
séu ávöxtur þess brautryðj-
endastarfs. Veit ég það fyrir
víst að vilji Bolla Runólfs
liggur í að festa nefndimar í
sessi í lögum Alþýðuflokks-
ins, að þær starfi vel á milli
flokksþinga sem mótandi afl
í stefnumótun jafnaðar-
manna og nefndarmenn
verði gerðir ábyrgir fyrir
starfi þeirra.
Vegna þeirra starfa sem
Bolli Runólfur hefir unnið
fyrir Alþýðuflokkinn tel ég
hann verðugan fulltrúa
flokksins í starfi á vegum
hans á víðari vettvangi en
flokksstarfið er og þar á
meðal inni í borgarstjóm.
Áhersluatriðin
Fái Bolli Runólfur til þess
stuðning í prófkjörinu
hyggst hann leggja áherslu á
atvinnumálin og húsnæðis-
mál ungs fólks. Þessi mál
em í miklum ólestri hér í
borginni og við þurfum öfl-
ugan málsvara til að fá fram
úrbætur - einhvem sem við
treystum til að takast á við
þessi málefni af fullum
þunga.
Þá möguleika sem
Reykjavíkurhöfn býður upp
á leggur Bolli Runólfur
áherslu á að virkja. Hann
vill að staðsetning hafnar-
innar verði nýtt betur svo
hún fái blómstrað sem fiski-
höfn og umskipunarhöfn.
Hvað seinna atriðið varðar
má sjá glögglega hversu
mikla möguleika það gefur.
Til dæmis er hægt að láta
Tollvörugeymsluna fá aukið
athafnasvæði og búa til frí-
svæði þar. Einnig vill Bolli
Runólfur að Reykjavíkur-
borg haldi áfram á sömu
braut í ICENET-sæstrengs-
verkefninu.
Skipulagsmálin í borginni
em eitt af baráttumálum
Bolla Runólfs. Hann vill að
borgin standi fyrir átaki og
geri til að mynda Breiðholt
og Arbæ að vistlegri og
manneskjulegri hverfum.
Hann hyggst ennfremur
beijast íyrir því, að þegar
verið er að byggja upp
hverfi í borginni þá verði
stofnanir sem þar á að kom á
fót (skólar, leikskólar og
þjónustustofnanir) lámar
taka mið af íbúafjöldanum
og ráðist verði af myndar-
skap í að koma þeim upp.
Ekki megi halda áfram á
þeirri braut að láta mikil-
vægar stoíhanir mæta af-
gangi.
Bolli Runólfur leggur á
það þunga áherslu að borgin
setji strangari reglur um útlit
og umhverfi bygginga.
Þannig mætti að hans mati
koma í veg fyrir skipulags-
slys sem blasa síðan við
hveijum manni um ókomna
framtíð, samanber staðsetn-
ingu væntanlegt hús Hæsta-
réttar.
Bolli Runólfur Valgarðsson.
Ljóst er að ijárhagsstaða
borgarinnar og stofnana
hennar er slæm vegna fram-
kvæmda á borð við Ráðhús-
ið og Perluna. Bolli Runólf-
ur telur það nauðsynlegt að
forgangsröðun hjá borginni
verði endurskipulögð og
mið tekið af íjárhagsstöðu
þegar ákvarðanir um fram-
kvæmdir em teknar.
Hann leggur einnig á það
ríka áherslu að borgarfull-
trúar og embættismenn
borgarinnar verði ábyrgir í
störfum sínum og þeim
vinnubrögðum og spillingu
sem einkennt hafa valdaferil
sjálfstæðismanna hér í borg
verði útrýmt.
Að lokum: Þar sem að
málefnasamningur minni-
hlutaflokkanna er ekki frá-
genginn, er það trú mín með
tilliti til fyrmefndra atriða,
að Bolla Runólfi sé einna
best treystandi til að taka
þátt í þeirri vinnu sem eftir
er og standa vörð um þau
áhersluatriði sem jafnaðar-
menn vilja að komi skýrt
fram í málefnasamningnum.
Bolla Runólf í borgar-
stjóm!
Höfundur er stjórnarmaður í Félagi
ungra jafnaðarmanna í Reykjavík.
LETTOSTAR
þrjár tegundir á léttu nótunum
MUNDU EFTIR OSTINUM
Léttostur lettostur
IWTi
Vinningstölur r miðvikudaginn:|19. jan. 1994
j VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
IH 6 af 6 2 17.001.030
jci 5 af 6 iLaO+bónus 1 1.138.355
0j 5af6 8 33.977
|0l 4af6 281 1.538
Bta 3 af 6 ICfl+bónus 903 205
i mmVinningur fór til: slands og Finnlands
Aðaltöfur:
fifetib
io;(36;(43
BÓNUSTÖLUR
T)(5T)(S)
Heildarupphæð þessa viku:
36.029.524
á Isl.:
. 19.028.494
UPPLÝSINOAR, SÍMSVARI 91-68 15 11
LUKKULÍNA 99 10 00-TEXTAVARP 451
B»RT MEÐ EYftmVARA OM PfiENTVlLLOR