Alþýðublaðið - 21.01.1994, Qupperneq 13
Föstudagur 21. janúar 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 13
Evrópska efnahagssvæðið
AFLVAKIFRAMFARA
FRAM Á NÆSTU ÖLD
- segir Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, maðurinn sem EES-samn-
ingurinn tengist óhjákvæmilega með óvenjulegum og afdráttarlausum hætti -
Hver hefði trúað því að EES-samningurinn skapaði
strax í upphafí tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að
tífalda framleiðslu sína á saltfíski í neytendapakkn-
ingum? Þetta hefur gerst hjá Vinnslustöðinni í Vest-
mannaeyjum. Þetta er góð byrjun hjá Islendingum á
hinu Evrópska efnahagssvæði, sem varð að veruleika
nú um áramót. I stað þess að hætta vinnslu á saltfiski
tilbúnum til neytenda eins og til stóð hjá þeim Vest-
mannaeyingum, blása þeir í dag til stórsóknar á
mörkuðunum.
En hvað hefði gerst á íslandi ef sú leið hefði verið far-
in, sem meira en þriðjungur íslenskra þingmanna vildi,
að við höfnuðum Evrópska efnahagssvæðinu?
ALÞÝÐUBLAÐIÐ spurði Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra þessarar spumingar og nokkurra fleiri.
Jón Baldvin hafði á hendi stefnumótun og verkstjóm fyr-
ir hönd Islendinga, allan þann langa tíma sem EES-
samningurinn var í smíðum. Það er hreint ekki of djúpt
tekið í árina að fullyrða að samningurinn tengist nafni
Jóns Baldvins með óvenjulegum og afdráttarlausum
hætti.
„Án EES-aðildar hefðu íslendingar neyðst til þess að
lækka verð sín á útfluttum sjávarafurðum til jafns við
ráðandi verð tollfrjálsra keppinauta, til dæmis Norð-
manna. Það hefði trúlega þýtt meira en tveggja milljarða
tap á þessu ári.
Ávinningurinn af EES-samningnum er þó ekki fyrst og
fremst tollalækkunin, heldur tel ég hann miklu fremur
vera ný tækifæri fyrir íslenskan matvælaiðnað til að
komast inn á neytendavömmarkaði Evrópu".
Jón Baldvin Hannibalsson, ntanríkisráðherra og formaður Al-
þjðuflokksins, hafði á liendi stefnumótun og verkstjórn fyrir liönd
Islendinga, allan þann langa tíma sem EES-samningurinn var í
smíðum. Það er lireint ekki of djúpt tekið í árina að fullyrða að
samningurinn tengist nafni Jóns Baldvins með óvenjulegum og af-
dráttarlausum hœtti.
— En livað þýðir samningurinn fyrir allan almenning
á Islandi?
„Hagsbót almennings af EES-samningnum birtist ekki
fyrst og fremst sem eingreiðsla inn á íslenskan efnahags-
reikning. Hann birtist sem stöðugur vaxtarhvati fram á
næstu öld.
Með EES-samningnum hafa íslendingar yfirtekið lög
og samkeppnisreglur, sem tryggja rétt einstaklinga og
fyrirtækja í samkeppni á stærsta markaðssvæði heimsins,
en takmarka vald stjómvalda til mismununar og einok-
unar.
Sameiginlega munu EES-samningurinn 1994 og
GATT-samningurinn 1995 valda þáttaskilum varðandi
framtíðarþróun íslensks efnahagslífs: Hér eftir verður
ekki aftur snúið til einangrunar og verndarstefnu,,.
- Hvað boðar GATT-samningurinn okkur einn og
sér?
„Hann þýðir það til dæmis að alls staðar þar sern orðin
innflutningsbann eða leyfisveitingagjald koma fyrir í
landbúnaðar- og innflutningslöggjöf íslendinga, verður
að strika þau út.
Þetta þýðir einfaldlega að hornsteinar einokunar-
kerfís landbúnaðarins eru hrundir.
Stærstu ágreiningsmálin um landbúnaðarstefnuna
verða því senn að baki, svo að bændur og neytendur geta
snúið bökum saman um að hrinda núverandi kvóta-
kerfí í landbúnaði, til þess að bændur og framleiðendur
geti nýtt krafta sína í samkeppni um aukin gæði, aukna
vöruþróun og lægra verð til neytenda.“
Einn stjórnmálaflokkur stóð heill og óskiptur að EES frá upphafi til enda
- ALÞÝÐUFLOKKURINN - aðrir flokkar tvístruðust í afstöðu sinni og
Upphafsmaðurinn snerist gegn afkvæmi sínu
ALÞÝÐUFLOKKURINN var eini stjórnmálaflokkur landsins,
sem frá upphafi til enda stóð heill og óskiptur að baki þeirri stefnu
sem lá til grundvallar EES-samningnum. Þingmenn annarra flokka
tvístruðust út og suður í afstöðu sinni. A Alþingi og í blaðaskrifum
áttu sér stað ótrúiegar sennur, meðan aðrar þjóðir afgreiddu samn-
inginn nánast þegjandi og hljóðalaust sem hið sjálfsagðasta og besta
mál.
En lítum aðeins á afstöðu flokkanna til EES-málsins:
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN var í byrjun bæði hikandi og ráðvillt-
ur á árunum 1989-1991. Flokkurinn lýsti sig andvígan því að semja með
hinum EFTA-ríkjunum en vildi einhvers konar tvíhliða samning í stað-
inn. Þegar á reyndi snérust þrír þingmanna flokksins gegn samningnum,
og lögðust á sveif með afturhaldsöflunum, þeirEggert Haukdal, Eyjólf-
ur Konráð Jónsson og Ingi Björn Albertsson.
FRAMSÓKNARFLOKKURINN átti sinn þátt í að hefja samninga-
ferilinn. Formaður flokksins, Steingrímur Hermannsson var einn af
þjóðarleiðtogum EFTA á þessum tíma. I Osló gaf hann jáyrði sitt við því
að samningar hæfust. Kominn í stjómarandstöðu snérist Steingrímur á
óvæntan og ótrúlegan hátt gegn þessu aíþvæmi sínu. Flokkur hans hins-
vegar, klofnaði í herðar niður. Halldór Asgrímsson og fylgismenn hans
sátu hjá við afgreiðslu málsins á Alþingi, meðan Steingrímur lét sig hafa
það að greiða atkvæði á móti.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ átti aðild að ríkisstjóm fram til vors 1991.
Fram að þeim tíma hafði samningurinn efnislega verið frágenginn að
mestu. Ólafur Ragnar Grímsson formaður flokksins hafði setið í ríkis-
stjóminni án þess.að hreyfa legg né lið gegn EES-samningnum. í stjóm-
armyndunarviðræðum 1991 hét hann því að samningurinn myndi ekki
stranda á andstöðu Alþýðubandalagsins. Þegar á reyndi í atkvæða-
greiðslu stóð hann ekki við neitt. Alþýðubandalagið, trútt fortíð sinni,
snérist á einu bretti gegn samningnum.
KVENNALISTINN klofnaði í andstöðu sinni gegn samningnum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, nú væntanlegt borgarstjóraefni Reykvík-
inga, bjargaði andliú Kvennalistans með hjásetu sinni við atkvæða-
greiðsluna á Alþingi. Með því sýndi hún að það er i það minnsta einn
hugsandi stjómmálamaður, sem hefur að minnsta kosti efasemdir um
gildi þess að loka framtíðina úti.
Sú kemur tíð að þeir stjómmálamenn og flokkar sem beittu sér hvað
harðast gegn EES-samningnum, vilja ekki láta minna sig á, að þeir snér-
ust gegn einu stærsta hagsmunamáli þjóðarinnar í heila öld. Fyrir lesend-
ur dagsins í dag - og fyrir sagnfræðinga framtíðarinnar birtum við hér á
eftir svart á hvítu hvemig lokaatkvæðagreiðslan um EES-samninginn fór
fram á Alþingi íslendinga þriðjudaginn 12. janúar 1993.
Atkvæði féllu þannig:
Með: 33
Móú: 23
Hjáseta: 7
Þrjátíu og sjö þingmenn gerðu grein fyrir atkvæði sínu.
Þessir þingmenn greiddu atkvæði gegn EES-samningnum á Alþingi:
Framsóknarþingmenn:
Ólafur Þ. Þórðarson, Páll Pétursson, Stefán Guðmundsson, Steingrím-
ur Hermannsson, Guðmundur Bjamason, Guðni Ágústsson, Jón Helga-
son.
Alþýðubandalagsmenn:
Margrét Frímannsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson, Ragnar Amalds,
Steingrímur J. Sigfússon, Svavar Gestsson, Guðrún Helgadóttir, Hjör-
leifur Guttormsson, Jóhann Ársælsson, Krisúnn Gunnarsson.
Kvennalistaþingmenn:
Anna Ólafsdóttir Bjömsson, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Kristfn
Ástgeirsdótúr, Kristín Einarsdóttir.
Sjálfstæðisþingmenn:
Eggert Haukdal, Eyjólfur Konráð Jónsson, Ingi Bjöm Albertsson.
Þessir þingmenn sátu hjá:
Valgerður Sverrisdóttir (F), Finnur Ingólfsson (F), Halldór Ásgríms-
son (F), Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (Kv), Ingibjörg Pálmadóttir (F), Jó-
hannes Geir Sigurgeirsson (F), Jón Kristjánsson (F).