Alþýðublaðið - 21.01.1994, Page 15
Föstudagur 21. janúar 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 15
Gunnar Svavarsson
Ekki útilokað að
EB-aðild verði skoðuð
1. Árangur undir
„keppendum“ kominn
Samningurinn um Evr-
ópskt efnahagssvæði er fyrst
og fremst samningur um við-
skiptareglur og honum er ætl-
að að auðvelda öll viðskipti
milli aðila samningsins. Hann
er eðlilegt framhald af viðbót
við fríverslunarsamningana
sem EFTA-ríkin gerðu við
EB árið 1972. EB eða Efna-
hagsbandalagið hefur reyndar
öðlast nýtt nafn og heitir nú
Evrópusambandið, skamm-
stafað ES.
Samningurinn um EES
einkennist af því að hann set-
ur þátttakendum tilteknar
leikreglur, en tryggir ekki á
nokkurn hátt að þeir nái ár-
angri. Þvf má líkja við að taka
þátt í starfi íþróttafélags.
Maður gengur í félagið, fær
aðstöðu til æfinga og keppni
og gengst um leið undir reglur
félagsins. Hvaða árangur
næst í íþróttinni er eingöngu
undir manni sjálfum komið.
Þar ræður eigin ástundun,
eljusemi og þrautseigja. Þessu
er ekki ólíkt farið með Evr-
ópska efnahagssvæðið.
Samningurinn setur leikregl-
umar sem fara þarf eftir, en
aðildarríkin, stjómvöld, fyrir-
tæki og einstaklingar verða
sjálf að ná árangri.
EES-samningurinn segir
lítið sem ekkert til um starfs-
skilyrði atvinnulífsins. Hann
segir ekkert um hvemig eigi
að skattleggja fyrirtæki. Hann
segir ekki hversu hár virðis-
aukaskattur eigi að vera og
hann segir ekkert um hverjir
vextir skuli vera. Samningur-
inn kveður heldur ekki á um
umsvif hins opinbera, erlend-
ar skuldir eða greiðslubyrði
erlendra lána. Þjóðin hefur á
hinn bóginn innritað sig í
„íþróttafélagið“ og gerir sér
þar með ljóst að hún þarf að
standa sig í samkeppni. Það
gerir hún með því að búa at-
vinnulífi sínu sem hagstæðust
rekstrarskilyrði. Það verk er
þegar hafið. Félag íslenskra
iðnrekenda, ásamt öðmm
samtökum atvinnulífsins,
hafði barist fyrir afnámi að-
stöðugjaldsins í áratugi. Er
það hrein tilviljun að gjaldið
var loks fellt niður fyrir ári
síðan? Tekjuskattur fyrir-
tækja hefur nú lækkað til
samræmis við það sem al-
gengt er í öðmm Evrópuríkj-
um, úr 45% í 33%. Er það
einnig tilviljun?
2. Aðgangur að
rannsoknastarfí
Áhrif EES á íslenskan iðn-
að em ekki jafn augljós og til
dæmis á sjávarútveg, flug-
samgöngur, fjármagnsvið-
skipti, þjónustu og atvinnu-
réttindi. Með fríverslunar-
samningnum 1972 hafði þeg-
ar verið samið um gagn-
kvæma niðurfellingu tolla á
iðnvamingi. Iðnaðurinn mun
hins vegar njóta þess að nú
falla fleiri greinar undir frjálsa
samkeppni og væntanlega
lækkar þá verð á þjónustu og
öðmm aðföngum frá þeim
greinum.
Einnig má nefna, að með
samningnum opnast íslensk-
um aðilum aðgangur að rann-
sókna- og þróunaráætlunum
ES. Það kerfi er að vísu þungt
og svifaseint, en ef unnt er að
yfirvinna þá ókosti fást vem-
legar íjárhæðir til ráðstöfunar
og tækifæri til samstarfs við
erlenda aðila opnast.
Að síðustu má nefna að
EES-samningurinn eykur
möguleika á gagnkvæmum
íjárfestingum í atvinnulífi
milli landa. íslendingar vilja
laða að erlend fyrirtæki til
fjárfestinga hér á landi. Þótt
óliklegt sé að útlendingar
streymi liingað með íjármagn
sitt og fyrirtæki, er þátttaka Is-
lendinga á Evrópska efna-
hagssvæðinu ótvíræð yfírlýs-
ing um að sömu viðskiptalög-
mál gildi hér á landi og annars
staðar á svæðinu. Slík trygg-
ing er fjárfestum mikilvæg.
3. Ekki útilokað að
EB aðild verði skoðuð
íslendingar tóku þá
ákvörðun að aðild að EES
væri sú leið sem hentaði þjóð-
inni best. Það var ekki unnt að
gangast undir lög og reglur
Evrópusambandsins í við-
kvæmum málallokkum. Jafn-
vel þótt aðrar EFTA-þjóðir
hafi flestar sótt um inngöngu í
ES, er ekki útséð um hvenær
eða jafnvel hvort þær ganga í
sambandið. Enn frernur em
uppi hugmyndir innan ES,
þess efnis að Evrópska efna-
hagssvæðið þróist sem fram-
tíðarskipan fyrir þær þjóðir
sem vilja ganga í sambandið
en uppfylla ekki kröfur þess.
Meðan þetta millibilsástand
varir, hljóta íslendingar að
nota tímann til að búa sig und-
ir þá kosti sem upp kunna að
koma. Á þessu stigi er ekki
unnt að útiloka að mál þróist
með þeim hætti, að raunhæft
þyki að skoða beina aðild að
Evrópusambandinu, standi
hún yfir höfuð til boða. Til
þess kernur varla næstu miss-
erin, en nauðsynlegt er að
nálgast málið með opnum
huga, vega það og meta með
heildarhagsmuni þjóðarinnar
að leiðarljósi.
Höfundur er forstjóri
Hampiöjunnar og varaformaður
Samtaka iðnaðarins.
*
Magnús Arni Magnússon
Er þetta ekki
dæmigert?
Er þetta ekki dæmi-
gert? Ef það glittir í
eitthvað sem getur
orðið pöplinum á
þessu landi til góða þá
er það umsvifalaust
drepið. Þannig er með
smugur í landbúnað-
anriúmum, þannig
var með lágt. verð á
undanrennu og þann-
ig er það nú með nið-
urfellingu tolla á vör-
um sem ekki em
framleiddar hér á
landi. Ákvæði vegna
hins velmeinandi
EES-samnings? Nei,
vöruverð á Islandi má
ekki lækka. Það er
lögmál. Það má ekki
lækka.
„Fógetinn í
Nottingham“
í stað þess að leyfa
mér og þér og okkur
sem ekki erum ryk-
sugur á ríkiskassann
að njóta gróðans af
EES þá skal „fógetinn
í Nottingham" finna
upp nýja tegund skatt-
heimtu sem hann kall-
ar í þetta skipti vöru-
gjöld.
Nú hafa bjartsýnir
menn kært þennan
gjöming til eftirlits-
stofnunai' EFTA en
það verður einhvem
veginn hægt að kom-
ast fram hjá því pípi.
Ríkisstjórnir
róandi lífróður
Sama er þetta á hin-
um Norðurlöndunum.
Svíar og Norðmenn
sáu allt í einu fram á
það að hugsanlega
treysti einhver þeim
annars vel menntuðu
og velmeinandi þjóð-
um til að versla sér
hvítvínsflösku með
fiskpinnunum útí búð,
hjá kaupmanninum á
horninu, í stað þess að
bíða í ríkisskipaðri
biðröð eins og við
þekkjum s-vo vel. Nei,
polisen mætti á svæð-.
ið með skammbyssur
og kylfur og rak pakk-
ið heim og gerði
„óhollustuna" upp-
tæka á staðnum.
Kaupmennirnir
kærðu, en nú em rík-
isstjómir beggja landa
róandi lífróður í Brux-
elles til að reyna að „-
bjarga löndum sínum
frá bráðu fári“.
Er þetta ekki dæmi-
gert? Við berjumst
fyrir frelsinu og þykj-
umst hafa fundið það
á stundum, en alltaf
kemur einhver and-
skoti og tekur það
strax aftur af okkur.
Höfundur er formaður og
framkvæmdastjóri
Sambands ungra
jafnaðarmanna.
BORGfiRSTJÓRNfiRKOSmNGfm 1994
Nceslkomandi laugardagskvöld. 22. janúar, verðcir
haldið frambjóðendakvöld í Rósinni, félagsmiðstöð
jafnaðarmanna í Reykjavík að Hverfisgötu 8-10.
í Rösinni þetta kvöld verða þeir sjö frambjóðendur
sem nú þegar hafa gefið kost ó sér í kosningu
filþýðuflokksfélaganna í Reykjavík ó sameiginlegan
framboðslista til borgarstjórnarkosninga vorið 1994.
Sjó myndir hér að ofan. Kosningin mun fUra fram
í Rósinni 5. og 6. febrúar.
Húsið verður opið fró klukkan 21 til Ol.
Gpplýsingar eru gefnar ó skrifstofum filþýðuflokksins.