Alþýðublaðið - 21.01.1994, Qupperneq 18
18 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Föstudagur 21. janúar 1994
• •
Ogmundur Jónasson
Tollalækkanir og skipulegt
samstarf eru jákvæðar hliðar
1. Álit þitt á
EES-samningnum?
Þetta einmitt spumingin
sem brann á mönnum að fá
að svara í þjóðaratkvæða-
greiðslu áður en gengið
var frá samningnum í upp-
hafi síðasta árs. Jákvæðu
hliðamar á EES-samn-
ingnum era tollalækkanir
fyrir ýmsar afurðir okkar
og skipulegt samstarf við
evrópskar þjóðir um ýmis
hagsmunamál. Þetta sam-
starf þurfum við að reyna
að nýta til hins ítrasta.
A hinn bóginn setur
samningurinn um Evr-
ópskt efnahagssvæði okk-
ur að ýmsu leyti skorður.
Því með honum höfum við
undirgengist að skipu-
leggja íslenskt samfélag á
markaðsvísu, í ríkari mæli
en margir ætluðu að ég
hygg. Það er altént stað-
reynd að margir þeirra sem
lögðu blessun sína yfir
samninginn á sínum tíma,
án mikillar umhugsunar,
reka nú annað veifið upp
stór augu yfir ýmsu sem
EES-reglurnar leiða af sér.
2. Samningurinn gengur
fyrst og fremst út
á markaðsvæðingu
Samningurinn hefur
ekki mikil bein áhrif á
starfsemi stofnana og fyr-
irtækja sem félagsmenn
BSRB vinna hjá en að
sjálfsögðu hefur hann
mjög mikil óbein áhrif
enda allt samfélagið undir.
Það er ljóst að EES-
samningurinn gengur fyrst
og síðast út á markaðsvæð-
ingu og þótt ekki séu bein
fyrirmæli um einkavæð-
ingu á opinberum rekstri er
ljóst að hagsmunaaðilar
munu ganga fram í að
skjóta álitamálum fyrir eft-
irlitsstofnanir EES i þeirri
von að þær dæmi sér í hag
og reyni þannig að brjóta
hagsmunum sínum farveg.
Þegar hefur Verslunarráð-
ið riðið á vaðið með til-
raunum til að koma tóbaki
og áfengi inn á samkeppn-
ismarkað.
3. Stuðlað verði
að félagslegum
umbótum
Um það er víðtæk sam-
staða að íslendingar óski
ekki eftir aðild að Evrópu-
samfélaginu í bráð og veg-
ur fiskveiðistefna ES þar
þyngst. Eg tel hins vegar
brýnt að í því Evrópusam-
starfí sem við tökum þátt
leggjumst við, eftir því
sem frekast er kostur, á
sveif með þeim öflum sem
vilja knýja á um að bæta
félagsleg réttindi og stuðla
að því að uppræta atvinnu-
leysi.
Þetta hljótum við að
gera á vettvangi EES og í
öllu samstarfi sem við
kunnum að eiga við Evr-
ópusamfélagið. Verka-
lýðshreyfingin í EFTA-
ríkjunum hefur haft sam-
starf um stefnumótun í
þessu efni, bæði sín í milli
og einnig við verkalýðs-
hreyfinguna í Evrópusam-
félaginu. Ég tel að íslend-
ingar eigi að beita sér fyrir
ofangreindum markmið-
um hvar svo sem þeir
koma að borði í samstarfi
við erlendar þjóðir.
Höfundur er formaður BSRB.
filþýðciflokkcirinn - Jafnaðarmannaflokkcir íslands
FLOKKSSTJÓRNfiR-
FCINDCIR
fithugið breyttan
filþýðuflokkarinii - Jafnaðarmannaflokkcir
Islands - boðar til flokksstjórnarfundar
lacigardaginn 29. janúor 1994.
Fandurinn vorður haldinn í
fitthagasal Hótal Sögu, Reykjavík,
og hefst klukkan 10.15.
Dagskrá:
1. Sjávarátvegsmál.
2. Önnur mál.
fið venju er fundurinn opinn öllum
flokksmönnum. en ef til atkvazðagreiðslu
kemur hafa einungis kjörnir fulltrúar í
flokksstjórn atkvazðisrétt.
Formaður.
I
I
- J
Syeinbjörn Björnsson
Einstakt
tækifæri
til athafna
Besti kosturinn
í stöðunni
EES-samningurinn
markar tímamót í sam-
skiptum Islendinga við
umheiminn og verður
öragglega skráður í Is-
landssöguna sem slík-
ur. Hann vekur ugg í
bijósti sumra en hon-
um er tekið fagnandi af
öðram.
Ég lít á hann sem
einstakt tækifæri til at-
hafna og besta kostinn
í stöðunni.
Full aðild
að samstarfl
EES-samningurinn
opnar Islendingum
leiðir til þátttöku í sam-
starfsverkefnum Evr-
ópubandalagsins um
menntamál og veitir
okkur fulla aðild að
samstarfi Evrópuþjóða
um rannsóknir og þró-
un. Áður þurfti tvíhliða
samninga um aukaað-
ild að einstökum verk-
efnum. Nú verðum við
fullgildir þátttakendur
með rétt til að móta
þróun samstarfsins.
í menntamálum
verða áhrif samnings-
ins mikil. Við höfum
alla tíð sótt nám til
annarra landa, en nú
munu nemendur geta
stundað hluta af námi
sínu hér og erlendis og
tekið þátt í þjálfunar-
og rannsóknaverkefn-
um og þátttökuland-
anna. Búseturétturinn
og gagnkvæm viður-
kenning prófa munu
breyta miklu fyrir fólk
í námi. Samvinna
kennara við starfs-
bræður í EES-löndun-
um á einnig eftir að
aukast veralega.
Mikið færst
ífang
Ég sé ekki í bráð fyr-
ir mér neitt næsta skref
í þessum efnum. Með
þessu skrefi sem nú er
verið að stíga er mikið
færst í fang.
EES eða megininn-
tak þess verður áfram
til þótt einhver eða
jafnvel öll lönd EFTA
kjósi að ganga inn í
EB.
Höfundur er rektor
Háskóla íslands.