Alþýðublaðið - 21.01.1994, Qupperneq 20
20 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
T
Föstudagur 21. janúar 1994
Vilhjálmur Lúðvíksson
vísinda-
Á undanfömum tveimur ár-
um hafa íslendingar hafið
mikla sókn inn í evrópskt sam-
starf á sviði vísinda og tækni.
Með gildistöku EES-samnings-
ins um áramótin opnaðist þeim
aðgangur að Rammaáætlun
Evrópubandalagsins að rann-
sókna- og þróunarsamstarfi á
Ijölmörgum sviðum og geta nú
fengið styrki úr sameiginlegum
sjóðum Rammaáætlunarinnar.
Fyrir síðustu áramót höfðu Is-
lendingar fengið aðild að tólf
verkefnum innan
- Rammaáætlunarinnar og ef
EES-samningurinn hefði tekið
gildi, eins og upphaflega stóð til
í ársbyrjun 1993, þá hefðu ís-
lendingar nú þegar notið hærri
styrkja úr sameiginlegum sjóði
en nemur framlagi okkar til
þess sjóðs samkvæmt EES-
samningnum. Um það bil 70 til
80% af verkefnum þar sem Is-
lendingar voru meðumsækj-
endur hafa verið samþykkt og
er það mun hærra hlutfall en
gerist hjá öðrum EFTA-þjóð-
um. Þetta er því vænlegur vett-
vangur til samstarfs.
A árunum 1985 til 1986 hóf
Rannsóknaráð nkisins að
kanna möguleika Islendinga á
aðild að Rammaáætlun Evr-
ópubandalagsins með tvíhliða
samningi. Þær viðræður tóku
mun lengri tíma en búist var
við, meðal annars vegna breyt-
inga á lagagrunni og skipulagi
Evrópubandalagsins með setn-
ingu Einingarlaganna. Nýr
skriður komst á máiið þegar
viðræður um Evrópska efna-
hagssvæðið hófust. Rann-
sóknaráð, í samvinnu við Vís-
indaráð, hóf fljótlega kynningu
hérlendis á einstökum þáttum
Rammaáætlunarinnar og þeim
möguleikum sem þar byðust. Á
árunum 1992 og 1993 leituðu
nokkrar íslenskar stofnanir og
fyrirtæki eftir þátttöku í sam-
starfsverkefnum innan
Rammaáætlunarinnar og hefur
árangurinn af þeirri sókn orðið
ótrúlega góður. Þannig hafa Is-
lendingar fengið aðild að tólf
verkefnum þar sem hlutur Is-
lands er áætlaður 3,2 milljónir
ECU, eða um 256 milljónir
króna. Ef EES-samningurinn
hefði tekið gildi fyrr og Evr-
ópubandalagið styrkt þessi
verkefni eftir reglum Ramm-
áætlunarinnar, hefði þetta þýtt
endurgreiðslu til íslands langt
umfram það sem Island greiðir
til sameiginlegs sjóðs sam-
kvæmt EES-samningnum.
Af þessum tólf verkefnum
eru tvö innan iðnaðar- og efnis-
tækniáætlunarinnar (Brite Eur-
am), tvö innan landbúnaðar- og
sjávarútvegsáætlunarinnar
(AAIR-áætlunin), tvö á sviði
líftækni, tvö á sviði umhverfis-
mála og Ijögur innan áætlunar
um vísindasamskipti (Human
Capital-áætlun).
Þær íslenskar stofnanir sem
aðallega hafa tekið þátt í þessu
eru Iðntæknistofnun, Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins,
Líffræðistofnun Háskólans,
Veðurstofan og Norræna eld-
Ijallastöðin, auk þess hafa
starfsmenn Raunvfsindastofn-
unar Háskólans og nokkrir ein-
staklingar fengið styrki til dval-
ar við erlendar vísindastofnanir.
Fyrirtækin Marel hf. og Alpan
hf. hafa einnig tekið virkan þátt
í þessu samstarfi.
Þetta verður að teljast góður
árangur í fyrstu tilraun og bend-
ir úl þess að íslenskir vísinda-
og tæknimenn séu að fást við
verkefni sem þykja áhugaverð í
alþjóða samstarfi. Er þetta mik-
il hvatning fyrir rannsóknastarf
hér á landi. Þá er það einnig
ljóst af áformum sem liggja fyr-
ir um innihald næstu
Rammaáætlunar Evrópu-
bandalagsins fyrir tímabilið
1994 til 1998, að íslendingar
eiga fullt erindi í þetta samstarf.
Þar er að finna áherslur sem
falla vel að mörgum áhugasvið-
um Islendinga. Raunar hefur
verið tekið tillil úl þeirra
áherslusviða sem Islendingar
og Norðmenn meðal annars
létu koma fram í viðræðum um
endurskoðun fjórðu Ramm-
áætlunarinnar sem væntanlega
verður samþykkt nú með vor-
inu.
Um áramótin tóku Islending-
ar við forystu í EFTA og veita
þar með formennsku í viðræðu-
nefndum EFTA og Evrópu-
bandalagsins meðal annars á
sviði vísinda- og tæknimála.
Þorsteinn Gunnarsson, alþjóða-
fulltrúi menntamálaráðuneytis-
ins, með aðsetur við sendiráðið
í Brussel, gegnir formennsku í
samstarfsnefnd EFTA og Evr-
ópubandalagsins á sviði vís-
inda- og tæknimála. Hann var á
ferð hér á landi um áramóún og
greindi frá áformum um að ráða
fólk frá EFTA-ríkjunum í stöð-
ur hjá Evrópubandalaginu.
Meðal annars er gert ráð fyrir
sextán stöðum sem snerta vis-
inda- og tæknisamstarf. Telur
Hugmyndasamkeppnin
SNJALLRÆÐI
er kjörið tsekifæri
til að koma
góðri hugmynd
á framfæri
Markmið samkeppninnar er
að hvetja einstaklinga til að koma
hugmyndum sínum á markað.
Þannig vilja aðstandendur samkeppn-
innar efla nýsköpun í íslensku atvinnulífi.
Við mat á hugmyndum er áhersla lögð á
markaðsmöguleika þeirra.
Snjallræði fór fyrst af stað seinni hluta ársins 1992
en þá bárust um 250 umsóknir.
Upplýsingar og þátttökueyðublöð fást hjá
Björgvini Njáli Ingólfssyni,
Iðntæknistofnun íslands, Keldnaholti. Sími 91-687000.
Umsóknarfrestur er til 1 8. febrúar 1 994
Sláðu til, þú gætir verið sá snjalli!
löntæknistofnunl?
HDNAÐARRÁÐUNEYTIÐ (jj) IÐNLÁNASJÓÐUR j jj IÐNÞRÓUNARSJÓÐUR
Þorsteinn ekki óeðlilegt að fs-
lendingar setji sér það mark að
fá tvær af þessum stöðum.
Skiptir miklu að hæft fólk gefi
sig fram þegar að því kemur.
Samkeppni og samvinna
milli þjóða eru tvær hliðar á
aukinni alþjóðavæðingu og
stækkun markaðsheilda. Sam-
vinna á sviði vísinda og tækni
er ein besta leiðin fyrir einstök
ríki að styrkja stöðu sína í vax-
andi alþjóðasamkeppni. Fyrir
íslendinga er þetta auðvitað sér-
staklega mikilvægt. Við þurf-
um að afla okkur bestu fáan-
legrar tækniþekkingar sem get-
ur komið okkur til góða til að
styrkja stoðir atvinnu- og efna-
hagslífsins hér á landi og eins er
samstarf á sviði vísinda og
tækni í mörgum tilvikum góð
leið að öðlast þekkingu á mark-
aði og samkeppnisforsendum í
helstu markaðslöndunum, ekki
síst í Evrópu. Sjálfsagt er því að
leggja rækt við samstarf á þessu
sviði.
En íslendingar hafa einnig
náð góðum árangri í gegnum
fleiri áætlanir en Rammaáætl-
anir Evrópubandalagsins.
Þannig hefur samvinna í gegn-
um EUREKA þegar komið
nokkrum framsæknum há-
tæknifyrirtækjum úl góða. EU-
REKA-áætlunin er meira ætluð
fyrirtækjum sem hyggja á bæði
tæknilegt og markaðslegt sam-
starf og liggja flest EUREKA-
verkefni því nær markaðnum
en þau sem unnin eru innan
Rammaáætlunar Evrópubanda-
lagsins. Frammistaða Fangs hf.,
Vaka hf. og Marel hf. á þessum
vettvangi hefur vakið athygli.
Loks hafa nokkrar stofnanir
fengið aðgang að samstarfs-
verkefnum innan COST. I
COST-samstarfinu er ekki um
að ræða styrki úr sameiginleg-
um sjóðum, en reynt að sam-
hæfa vinnu á ýmsum sviðum
vísinda og tækni. COST-áætl-
unin hefur lengi verið rammi
Evrópubandalags og EFTA-
rikja til samstarfs á sviði vís-
inda, en í vaxandi mæli er þetta
einnig vettvangur fyrir sam-
vinnu EFTA- og Evrópubanda-
lagsríkja við ríki fyrrum Aust-
ur-Evrópu. Gagnsemi COST
felst ekki síst f því að byggja
upp tengsl milli vísinda- og
tæknimanna á ákveðnum þekk-
ingarsviðum. Þau tengsl geta
síðan fætt af sér afmörkuð verk-
efni sem hugsanlegt er að vinna
að, annað hvort innan Ramma-
áætlunar Evrópubandalagsins
eða EUREKA-áætlunarinnar.
Nú mætti spyrja hvort þessi
góði árangur sem náðist áður en
EES-samningurinn raunveru-
lega tók gildi um sfðustu ára-
mót, geti haldið áfram og ís-
lendingar þá notið styrkja úr
sameiginlegum sjóði Ramma-
áætlunar Evrópubandalagsins
eftir gildistöku EES-samnings-
ins. Þær upplýsingar sem nú
liggja fyrir hjá Rannsóknaráði
og Vísindaráði, benda eindreg-
ið til þess að sótt sé fram á ljöl-
mörgum nýjum sviðum og að f
undirbúningi séu fjölmörg
verkefni með samstarfsaðilum,
bæði í EFTA- og EB-löndun-
um. Verður spennandi að sjá
hvað út úr því kemur. Með nýju
Rammaáætluninni sem nú er í
undirbúningi vex umfang vís-
inda- og tæknisamstarfs í Evr-
ópu og þar með svigrúmið til að
fjármagna verkefni á ýmsum.
áhugasviðum Islendinga. Má
þar nefna verkefni á sviði hag-
nýtrar h'ffræði í þágu landbún-
aðar og sjávarútvegs, á sviði líf-
tækni og læknisfræði, umhverf-
ismála, orkunýtingar og fleira.
Rannsóknaráð ríkisins og
Vísindaráð starfrækja saman
upplýsingaskrifstofu fyrir Evr-
ópusamstarf og hafa ráðið sam-
eiginlegan starfsmann, Elísa-
betu Andrésdóttur, sem mun
leitast við að halda stofnunum,
fyrirtækjum og einstaklingum
upplýstum um þá möguleika
sem þama opnast.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Rannsóknaráðs ríkisins.
Sveinn Hannesson
Jákvætt fyrir
iðnaðinn í heild
1. Jöfnun á
starfsskilyrðum
Samningurinn er nauðsyn-
legt og eðlilegt framhald á að-
ild íslands að EFTA árið 1970
og fríverslunarsamningnum
við EB árið 1972. Þá var það
aðeins iðnaðurinn sem þurfti
að mæta óheftri samkeppni en
nú bætast fleiri greinar í hóp-
inn, einkum á sviði fjármála
og þjónustu. Samningurinn er
til góðs fyrir íslenskt atvinnu-
líf og voru þess þegar farin að
sjást merki fyrir gildistöku
samningsins. Má þar benda á
breytingar í starfsskilyrðum,
svo sem niðurfellingu að-
stöðugjalds sem má tvímæla-
laust rekja úl áhrifa frá samn-
ingnum og breytingar í lög-
gjöf, svo sem hin nýju sam-
keppnislög sem þegar em far-
in að hafa talsverð áhrif.
Samningurinn er til góðs
vegna þess að hann stuðlar að
því að gera starfsskilyrði ís-
lensks atvinnulífs sambærileg
við starfsskilyrði erlendra
keppinauta.
2. Heildaráhrifin
án nokkurs vafa jákvæð
Samtök iðnaðarins em
mjög stór samtök sem hafa
innan sinna vébanda mjög
marga félagsmenn sem stunda
fjölbreytta starfsemi. Það gef-
ur því augaleið að áhrif EES-
samningsins verða mjög mis-
munandi, allt frá því að vera
hverfandi og til þess að verða
umtalsverð. Sem dæmi um
þetta mætti annars vegar taka
úl dæmis bakarann á hominu.
Hann mun tæpast verða var
við hinn nýja samning í sínum
daglega rekstri, að öðm leyú
en felst í þeim almennu breyt-
ingum á löggjöf og starfsskil-
yrðum sem áður er vikið að.
Hins vegar mætti benda á
Jámblendiverksmiðjuna á
Gmndartanga. Fyrir áramótin
setú EB refsitoll á framleiðslu
þeirra og fleiri verksmiðja ut-
an bandalagsins vegna
meintra undirboða. Vegna
EES-samningsins féllu toll-
amir niður um áramótin gagn-
vart Jámblendiverksmiðjunni
en ekki gagnvart öðmm verk-
smiðjum utan EES-svæðisins.
Af þessu leiðir að samkeppn-
isstaða Jámblendiverksmiðj-
unnar batnar vemlega.
Það er mat Samtakanna að
heildaráhrifin, bæði bein og
óbein, af EES-samningnum
verði án nokkurs vafajákvæð
fyrir iðnaðinn í heild sinni.
3. Óskynsamlest að
skoða ekki allaKosti
Á þessu súgi er ómögulegt
að spá fyrir um hvemig sam-
starfið við EB verður í fram-
tíðinni. Enn er ekki útséð
hvort og hve mörg EFTA-ríki
verða aðilar að EB í kjölfar
þeirra aðildarviðræðna sem
nú standa yfir. Þess vegna er
framú'ð, bæði EFTA og EES,
mjög óljós. Það virðist vera
um það pólitísk samstaða, að
minnsta kosti á yfirborðinu að
aðild að EB komi ekki til
greina að óbreyttri ftskveiði-
stefnu EB. Af því leiðir að Is-
land verður að finna sam-
skiptum sínum farveg annað
hvort með tvíhliða samningi,
ef EES líður undir lok í núver-
andi mynd, eða með samstarfi
við önnur ríki sem koma ný
að þessu vestræna viðskipta-
samstarfi og er þar átt við ríki
Mið- og Austur-Evrópu.
Það er óskynsamlegt að
skoða ekki alla kosú í stöð-
urini. Það virðist augljóst að
það verða breytingar á næstu
missemm sent Islendingar
verða að bregðast við. Það er
þess vegna skylda stjómvalda
og atvinnulífs að stilla upp
þeim kostum sem við stönd-
um frammi fyrir til þess að
unnt sé að velja þann skyn-
samlegasta sem í boði verður
þegar þar að kemur. Eg lít svo
á að niðurstaðan úr aðildar-
viðræðum frændþjóða okkar
ntuni ráða úrslitum um það
hvaða stefnu við tökum í
þessum málum.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samtaka iönaðarins.