Alþýðublaðið - 21.01.1994, Page 24

Alþýðublaðið - 21.01.1994, Page 24
24 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MMUMDID Föstudagur 21. janúar 1994 „ ÞÁ RÁÐUM VÉR SJÁLFIR...“ Það ríkti stórhugur og bjartsýni rneðal þeirra fjölmörgu íslendinga sem sóttu stofnfund Hf. Eimskipafjelags íslands, laugardaginn 17. janúar 1914. Þjóðin hafði sameinast um að stofna eigið skipa- félag og taka þannig skipaferðir til útlanda í eigin hendur. Mikið var í húfi, eins og lesa má í upphaflega hlutaútboðsbréfinu: „Þá ráðum vér sjálfir, hvert skip vor sigla. Þá látum vér þau sigla til þeirra landa, sem bjóða oss bezt kjör á hverri vörutegund og gefa oss bezt fyrir afurðir vorar... “. En þó að hátt væri stefnt er óvíst að nokkurn fundarmanna hafi órað fyrir þeim stórstígu framförum sem framund- an voru í íslensku þjóðlífi á næstu áratugum og hið nýstofnaða skipa- félag átti eftir að taka þátt í að móta. Eimskip hefur enn, áttatíu árum síðar, mikilvægu hlutverki að gegna í vaxandi samskiptum þjóðarinnar við umheiminn - sem nútíma flutningafyrirtæki að störfum fyrir íslenskt atvinnulíf. Verkefni okkar allra er enn sem fyrr að nýta af stórhug og bjartsýni þau margvíslegu tækifæri sem framtíðin býr yfir. EIMSKIP Fyrir íslenska þjóð HVÍTA HÚSIÐ / SÍA

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.