Alþýðublaðið - 30.11.1995, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 30.11.1995, Qupperneq 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ HELGIN 30. NÓVEMBER - 3. DESEMBER 1995 v i t i m e n n „Ég hef fallið frá öllum hugmyndum um hernaðarlega lausn og styð Dayton-samkomulagið.“ Radovan Kardzic forseti Bosníu-Serba er ekki í vandræðum með að skipta um skoðun. Morgunblaðið í gær. „Ég lauk öllum prófum mínum við utanríkisvið- skiptadeildina en ég lauk aldrei náminu formlega með meistaraprófsgráðu.“ Aleksander Kwasniewski nýkjörinn forseti Póilands viður- kennir að hafa logið til um menntun sína í kosningabaráttunni. Morgunblaðið í gær. Baldvin segir að kjötinu hafí verið illa pakkað svo plastpakkningar hafí opnast og kjöt skemmst. í einhverj- um pakkningum hafí hár fundist á kjötinu. Baldvin Jónsson um útflutning lambakjöts til Bandaríkjanna. Morgunblaðið í gær. Það hlýtur fleiri sjálfstæðismönnum en mér að hafa brugðið við að heyra í fréttatíma síðastliðinn laug- ardag frá fundi sem haldinn var í Valhöll þann sama dag. Lesendabréf í DV í gær. Hitt er svo augljóst að mikill hluti þjóðarinnar sættir sig ekki lengur við þá launastefnu sem birst hefur að undanförnu í stórauknum launamun. Leiðari DV í gær. f réttaskot úr fortíð Prófessorar dæmdir í fangelsi Þegar Þjóðverjar réðu lögum og lofum í Belgíu stofnsettu þeir há- skóla í Flandem. Fjórir prófessor- anna við þann háskóla hafa nú af Belgum verið dæmdir í 2-10 ára fangelsi fyrir að taka að sér að kenna löndum sínum undir stjóm Þjóðverja. Auðvaldssinnar og þjóðrembingsmenn fara ekki í manngreinarálit þegar þeim er gert á móti. Alþýðublaðið 5. ágúst 1920 Að flokka sundur og saman „Sú saga bendir til að aðferðafræði þeirra, sem vildu endurskipuleggja flokkakerfíð, hafí verið í meira lagi misráðin. Þessar tilraunir eiga nefnilega það eitt sameiginlegt að þær hafa engum árangri skilað, þrátt fyrir þá staðreynd, að stéttapólitík millistríðs- og kreppuáranna, heyrir til Iiðinni tíð“. Er flokkakerfið úrelt? Sundrar það þeim sem saman eiga? Rekur það þá saman í rétt, sem eiga fátt sameiginlegt? Hvar birtast okkur í stærstu málum samtímans hinar stóm pólitísku andstæður? Em andstæðurnar ef til vill meiri innan flokka en milli flokka? Hvert er bindiefnið, sem heldur hinum hefðbundnu flokkum saman: Stéttahagsmunir eða hugmynda- fræði og hugsjónir? Háborðið Jón Baldvin É Hannibalsson skrifar Hvers vegna tala þeir mest um „sameiningu jafnaðarmanna“, sem harðast hafa gengið fram í að sundra jafnaðarmönnum? Hvemig má það vera að stjómmálamaður, sem taldi sig ekki getað starfað innan Alþýðuflokksins út af meint- um málefnaágreiningi, hefur engar áhyggjur af málefnaágreiningi við sammna fjögurra flokka, sem standa þó frammi fyrir miklu djúp- stæðari ágreiningsmálum en nokkm sinni vom uppi innan Al- þýðuflokksins? Þeir sem segja að flokkakerfið sé úrelt hafa nokkuð til síns máls. Það flokkakerfi sem mótaðist á öðmm og þriðja tug aldarinnar og menn kenna gjaman við Jónas frá Hriflu var byggt á stéttapólitík. Jónas var guðfaðir beggja, Fram- sóknarflokksins og Alþýðuflokks- ins/Alþýðusambandsins. Fram- sóknarflokkurinn var og er flokkur bænda, (um það bil 60% bænda kjósa enn Framsókn en innan við 20% kjósa Sjálfstæðisflokkinn) sveitamenningar og dreifbýlis. Al- þýðuflokkurinn var hinn pólitíski armur Alþýðusambandsins, það er að segja stéttarfélaga verkamanna og verkakvenna og sjómanna, í rís- andi þéttbýli við sjávarsíðuna, Jón- as þóttist skilja að bændur og verkamenn/sjómenn ættu ekki samleið í einum og sama flokkn- um. Hins vegar vildi hann að þess- ir tveir flokkar störfuðu saman og héldu þar með Sjálfstæðisflokkn- um, flokki útgerðar og kaupsýslu, utan stjómarráðsins. Stofnun Sjálf- stæðisflokksins 1929 við sammna Ihaldsflokksins og Fijálslynda- flokksins var að hluta til viðbrögð við stéttapólitík Jónasar frá Hriflu. Menn mega ekki gleyma því að þetta var þriggja flokka kerfi. Sjálfstæðis- og Framsóknarflokk- urinn hafa lcngst af haldið þeirri stöðu að vera stærstir fjögurra flokka þjóðarinnar. (Framsókn varð þó minnst til dæmis 1978). Vegna þjóðflutninga úr sveit að sjávarsíðu mátti reikna með því að fylgi Framsóknar og valdagmnnur skryppi saman. Alþýðuflokkurinn hefði hins vegar átt að vera vax- andi flokkur vegna þess að verka- fólki og sjómönnum við sjávarsíð- una fjölgaði stöðugt. Sjálfstæðis- flokknum gat líka staðið stuggur af þeirri þróun. Að deila og drottna Það sem breytti þessu flokka- kerfi í grundvallaratriðum var til- koma Kommúnistaflokksins (1930) og síðar Sósíalistaflokksins (1938). Kommúnistar skilgreindu sig fyrst og fremst sem fjandmenn jafnaðarmanna. Þeir höfðu Sovét- ríkin að þjóðfélagsfyrirmynd; höfnuðu lýðræði og þingræði; og hófu borgarastyijöld innan verka- lýðshreyfingarinnar, oft í banda- lagi við Sjálfstæðisflokkinn. For- senda þess vanhelga bandalags var að báðir, kommúnistar og sjálf- stæðismenn, litu á Alþýðuflokkinn sem hinn sameiginlega óvin. Með stofnun Kommúnista/Sósí- alistaflokksins og borgarastyijöld- inni innan verkalýðshreyfingarinn- ar var botninn dottinn úr hinu upp- haflega valdakerfi Jónasar frá Hriflu. Borgarastyrjöldin innan verkalýðshreyfingarinnar og kjör- dæmaskipun og kosningalög, sem drógu taum sveita og dreifbýlis á kostnað þéttbýlisins, er megin- skýringin á því að Alþýðuflokkur- inn varð ekki hinn stóri meirihluta- flokkur lýðræðisjafnaðarmanna, eins og niðurstaðan varð annars staðar á Norðurlöndum. Sjálfstæðisflokkurinn færði sér klofning verkalýðshreyfingarinnar í nyt; deildi þar og drottnaði í bandalagi við kommúnista/sósíal- ista. Tilraunir jafnaðarmanna til þess að knýja fram lýðræðislegar umbætur á kosningakerfinu kallaði á átök við bændaíhaldið í Fram- sókn. Það var fyrst og fremst vax- andi styrkur Kommúnista-Sósíal- istaflokksins, á kostnað Alþýðu- flokksins sem knúði Framsókn og Sjálfstæðisflokk til ríkisstjómar- samstarfs og færði Sjálfstæðis- flokknum pólitískt frumkvæði í baráttunni um völdin í þessu fjór- flokkakerfi. Áhlaupum hrundið Þetta flokkakerfi hefur staðið af sér öll áhlaup í meira en 60 ár. All- ar tilraunir til að endurskipuleggja það hafa mistekist hingað til. Þjóð- vamarflokkurinn var eins-máls hreyfing (gegn NATO-aðild og vem vamarliðsins). Hann var stofnaður vegna þess að hreinrækt- aðir þjóðemissinnar áttu bágt með að eiga þann málstað sameiginleg- an með Moskvukommúnistum. Hann reyndist skammlífur og leif- amar runnu að stærstum hluta inn í Alþýðubandalag og Framsókn. Kosningabandalag Hannibals við Sósíalistaflokkinn (undanfari Alþýðubandalagsins) forðaði Sósí- alistaflokknum frá hruni eftir inn- rás Rauða hersins í Ungveijaland 1956. Hannibal hvarf frá því kosn- ingabandalagi saddur pólitískra líf- daga 1967. Þá skipti Sósíalista- flokkurinn uin nafn (hefur síðan heitið Alþýðubandalagið) en Hannibal stofnaði Samtök fijáls- lyndra og vinstri manna til þess að „sameina jafnaðarmenn". SFV átti aðild að einni misheppnaðri ríkis- stjórn. Leifar samtakanna mnnu síðan inn í Alþýðuflokkinn og í minna mæli Alþýðubandalagið. Vilmundur Gylfason yfirgaf Al- þýðuflokkinn og stofnaði Banda- lag jafnaðarmanna utan um rót- tækar hugmyndir um stjómkerfis- breytingar: Beint kjör forsætisráð- herra og skýr skil milli löggjafar- framkvæmda- og dómsvalds. Bandalagið entist eitt kjörtímabil. Flestir forystumenn þess og fylgis- menn gengu síðan til liðs við Al- þýðuflokkinn á ný. Jóhanna Sigurðardóttir yfirgaf Alþýðuflokkinn og stofnaði hreyf- ingu utan um sjálfa sig út af meint- um ágreiningi um útgjöld á fjár- lögum til félagsmála á samdráttar- límum. Flestum ber saman um að Þjóðvaki fari sömu leið og aðrir smáflokkar, sem stofnaðir hafa verið utan um einstakar persónur á grundvelli „populisma". Borgara- flokkur Alberts Guðmundssonar reyndist einnota hreyfing af því tagi. Ahrif Borgaraflokksins vom þau helst að koma í veg fyrir stór- sigur Alþýðuflokksins í kosning- unum 1987 og þar með að koma í veg fyrir myndun viðreisnarstjóm- ar á þeim tíma. Dýrkeyptar lexíur Hvað er hægt að læra af þessari sögu? Að fjögurra-flokka-kerfið hefur reynst lífseigt og hrundið öll- um áhlaupum hingað til? Sú saga bendir til að aðferðafræði þeirra, sem vildu endurskipuleggja flokkakerfið, hafi verið í meira lagi misráðin. Þessar tilraunir eiga nefnilega það eitt sameiginlegt að þær hafa engum árangri skilað, þrátt fyrir þá staðreynd, að stétta- pólitík millistríðs- og kreppuár- anna, heyrir til liðinni tíð. Þrátt fyrir þá staðreynd að hug- myndagrundvöllur kommún- ista/sósíalista/alþýðubandalags er fyrir löngu brostinn. Og þrátt fyrir þá staðreynd að atvinnurekstrar- kerfi SIS, sem var bakhjarl Fram- sóknarflokksins, er horfið með verðbólguþjóðfélaginu sem ól það. Og þrátt fyrir þá staðreynd að ís- lenska þjóðin hefur gengið í gegn- um heimskreppu og heimsstyrjöld, uppgangstíma og hnignunarskeið í sjávarútvegi, þjóðflutninga úr sveit í borg og stendur nú frantmi fyrir mótun nýrra og gerbreyttra þjóðfé- lagshátta, allt í kringum okkur, í aðdraganda nýrrar aldar. Samt blí- fur þetta flokkakeifi, þótt það sé löngu hætt að endurspegla sam- stæður og andstæður í pólitískri skoðanamyndun fólksins í land- inu. Helstu andstæður íslenskra stjómmála eru ekki lengur milli verkalýðs og atvinnurekenda, milli kommúnista og lýðræðissinna, milli hægri og vinstri. Þessar and- stæður eru milli þjóðlegra íhalds- manna annars vegar og fijáls- lyndra jafnaðarmanna hins vegar. Milli þjóðemis- og einangmnar- hyggju annars vegar og alþjóða- hyggju og jákvæðrar afstöðu til Evrópusamrunans hins vegar; milli þeirra sem veija sérhagsmuni í skjóli einokunar, fákeppni og rík- isforsjár annars vegar og hinna, sem vilja innleiða frjálsa sam- keppni og fríverslun á sem flestum sviðum. Sumsé. Milli þjóðemis- sinnaðra íhaldsmanna og ftjáls- lyndra umbótasinna. Afl umbóta- sinnanna er því miður sundrað í mörgum flokkum. Þeir sem í ein- lægni vilja leysa þetta afl úr læð- ingi verða að læra lexíuna sína af mistökum fortíðarinnar, áður en þeir láta til skarar ski íða með meiri von um árangur en fyrrirrennarar þeiiTa. Meira um þetta næst. Höfundur er formaður Alþýðuflokksins og alþingismaður. Hótmberg Gíslason vegfar- andi: Nei. Ég man ekkert hvað gerðist þá. Þóra Jónasdóttir þjónn: Nei. Ég veit ekki hvað á að halda upp á. Björg Jónsdóttir húsmóðir: Nei, ég held ekki formlega upp á fullveldisdaginn. Lúther Ólason húsasmiður: Já. Þá fæ ég útborgað.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.