Vísir - 02.06.1978, Blaðsíða 24

Vísir - 02.06.1978, Blaðsíða 24
28 BÍLAVARAHLUTIR Cortina '67-70 Renault R-4 72 Willys '54-#55 Vauxhall Viva '69 Chevrolet Impala '65 Peugeout 204 70 Fiat 128 72 Rambler American 1967 SKRAUTFISKAR NÝ SENDING KOMIN ítt Smurbrauðstofan \Á BJORNINN Njálsgöfu 49 — Simi 15105 Gullfískabúðin Grjótaþorpi Fischersundi — simi 1175^- Gullfiskabúðin Skólavörðustig 7 DRIGIÐ VERÐUR í HAPPDRÆTTINU 1. júli n.k. HflLLO KRflKKflR! SÖLU- OG BLAÐBURÐARHAPPDRÆTTI VÍSIS! Þátttökurétt i happdroettinu hafa tölu- og blaðburðarbörn Visis um allt land. ísmí 1. vinningur: Danskt SCO-rciöhjól frá Reiðhjólaversluninni ÖRNINN að verðmæti um kr. 75.000 9000061 000000 0 0 0 0 0‘0 2. vinningur: Texas Instruments tölvuúr frá ÞÓR hf. að verðmæti kr. 8.000 3.-8. vinningar: Texas Instruments tölvur frá ÞÓR hf., hver að verðmæti kr. 6.000 VISIR BILAPARTASALAN Hotóatuni 10, simi 1 1397. Opiö fra kl. 9 6.30. iaugardaga kl. 9-3 oy sunnudaqa k I 13 Amerískur Islands- vinur með sýningu Kunnur amerískur listamaöur, Morris Redman Spivack, heldur málverkasýningu í Gistiheimilinu Víkingi, að Rá'nargötu 12, dagana 3. til 17. júní næstkomandi. Þar mun hann sýna 25 lista- verk i sinum eigin stil, sem hann kallar: ,,The Cubism of ideas”. Málverkin hefur hann öll gert á meðan hann dvaldist hérlendis i vetur og vor, en .Spivack er mikill íslandsvinur. Sýningin er opin daglega á milli 16.00 og 18.00. Már Magnússon „FRJOTT OG ANÆGJU LEGT AÐ KENNA SÖNG Á ÍSLANDI" — segir Mór Magnússon, óperusöngvari, sem syngur í Norrœna húsinu í kvöld ,,Kg söng I fyrsta skipti opin- berlega i heimavistarskólanum á Núpi i Dýrafirði eins og þú kannski manst eftir,” sagði Már Magnússon, gamall skólabróðir og núverandi óperusöngvari, sem heldur söngtónleika i Norræna húsinu i kvöld (föstudag) kl. 20.30. Már var þá fjórtán ára polli, en söng „Búöarvisurnar” með miklum virðuleik, við gifurlegan fögnuð tilheyrenda. Söngnám byrjaði hann svo árið eftir hjá Sigurði Demetz og var jafnhliða i tónlistarskólanum. ,,Ég var hjá Sigurði i tvö ár og svo hjá Maríu Markan og loks i Tónlistarskólanum hjá Einar Kristjánssyni siðasta veturinn áöur en ég fór til Vinarborgar,” Til Vinar kom Már 1964 og hóf söngnám ieinkatimum en byrjaði svo i Tónlistarakademiunni 1968. Þar kom hann fram i sýningum sem skólinn gekkst fyrir en 1976 var hann ráðinn til Vinar- kammeróperunnar. Það var dálitiö skemmtileg til- viljun að þá hittist svo á að tveir Islendingar voru þá erlendis aö syngja sama hlutverkið, i Pygmalion. „Sigurður Björnsson var þá i Múnchen að syngja sama hlut- verk og ég söng i Vin og ég hafði dálitið gaman af þvi. Annars hafði ég ekki mikinn tima til hug- renninga af neinu tagi þvi ég þurfti að læra hlutverkið á hálfum mánuði og það krefst gifurlegrar einbeitni. „Þetta ár sem ég var við Vínar- Kammeróperuna var erfitt ár, en ég lærði meira á þvi en á töluvert lengri tima sem ég hafði verið i skóla.” Við söngskólann „Og svo snerir þú heim til gamla landsins.” „Já, svo kom ég hingað og byrj- aði strax að kenna við söngskól- ann. Þar hef ég verið i vetur og jafnframt haldiö námskeið hjá kórum úti á landi. Það er frjótt og ánægjulegt að vinna viö söngkennslu á Islandi og þaö er mikill kostur að geta fengiö slikt starf, það gefur þó alltaf salt i grautinn. Erlendis fá atvinnulausir söngvarar ekki annað að gera en syngja i kórum og það er mun verra fyrir röddina en að kenna..” „Ætlarðu aö ilendast hérna?” „Ég veit nú ekki hvað á endanum verður. Ég hef á prjón- unum áætlanir um að fara út aftur, aö minnsta kosti um ein- hvern tima. En það er ekkert fastákveöið ennþá. Til þess að fá vinnu úti þurfa menn að vera á staðnum til þess að geta látið i sér heyra hjá þeim sem ráða söngvara. Og það leyfir fjár- hagurinn ekki i bili. Ég er nú að reyna að minnka aöeins náms- skuldirnar og svo sé ég til hvað gerist þegar það er afstaðið.” „Mér sýnist útilitið vera að batna fyrir.óperusöngvara hér á landi. Það er ýmislegt i bigerð hjá Þjóðleikhúsinu og það er búið að stofna óperufélag. Hinsvegar er þvi ekki aö neita að það eru fleiri lærdómstækifæri erlendis. 1 Vinarborg tók ég til dæmis þátt i tónlistarhátiðum, söng i kór til að vinna mér inn aukaskilding. Og i Vin fær maður tækifæri til að starfa með „toppfólki”. Ég get nefnt sem dæmi um sjálfan mig, Teresu Berganxa, Reri Grist og Rostropovitch. Það er aö visu ekki náið sam- starf þar sem svo margir eru samankomnir, en það fer ekki hjá þvi að maður lærir eitthvaö af þvi aö vera i grennd við svo mikla listamenn”. A tónleikum sinum i kvöld syngur Már Magnússon islensk og itölsk sönglög, svo og óperuariur. Undirleik annast Jónina Gisladóttir. —ÓT. Erfðafrœðilegir blóðsjúkdómar ó Islandi Ólafur Jensson læknir, for- stöðumaður Blóðbankans mun á morgun verja ritgerð sina „Studies on four Hereditary Blood Disorders in Iceland” til doktorsnafnbótar i læknisfræði. Fer doktorsvörnin fram i hátiðasal Háskólans og hefst kl. 5 e.h. Andmælendur af hálfu lækna- deildar verða þeir próf.dr. med. Kaare Berg frá háskólanum i Osló og prof. dr. med. John Edwards frá háskólanum i Birmingham. öllum er heimill aðgangur

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.