Vísir - 02.06.1978, Blaðsíða 27

Vísir - 02.06.1978, Blaðsíða 27
31 VTSIR Föstudagur 2. júnl 1978 Maraþonvako plötusnúðs í Keflavík: Lœknar höfðu hann í rúmið eftir 65 klukkustunda vöku — 103 stunda metið fró í fyrra því óhaggað John Chadwell útvarpsstjóri. Vlsismynd: Gunnar Plötusnúðar bandarisku útvarps- stöðvarinnar á Kefla vikurflug- velii efna ár hvert til maraþon- keppni i vöku og að þessu sinni reyndi Sam Spears að halda vöku sinni sem lengst. Hann hóf vök- una á mánudag en á miðviku- dagskvöld, eftir 65 tima vöku, ráðlögðu læknar honum að hætta. — Hann var nú ekkert á því, taldi sjáifur að sér væri ekkert að van- búnaði að halda áfram", sagði einn starfsmanna útvarps- stöðvarinnar i samtaii við Vísi i gær. Enlæknarnir höfðu sitt fram og um miðjan dag i gær svaf Sam enn sem fastast meðan félagar hans héidu keppninni áfram. John Chadwell útvarpsstjóri sagði i samtali við okkur, aö svo margir heföu verið búnir aö greiða fyrir flutning á lögum að ógerningur hefði verið að hætta, þótt Sam heföi lagt sig. „Við höld- um þvi áfram til miðnættis”, sagöi John. Tilgangur maraþonkeppninnar er sá, að safna fé fyrir hjálpar- Sam Spears viö stjórnvölinn I maraþonkeppninni, en myndin var tekin á þriöjudagskvöld. stofnun bandariska sjóhersins og gegn greiöslu fá hlustendur óska- lög si'n leikin. Sá þulurinn sem vakir er alltaf i beinni útsendingu og stjðrnar plötuspilaranum. Keflavikurmetið i þessari keppni er 103 timar og var það sett á siöasta ári. Hins vegar sagði John Chadwell okkur aö heimsmetið i greininni væri rúm- ir 220 timar samkvæmt metabók Guinnes, en ekki mundi hann hvar þaö var sett né hvenær. —Gsal ] VIÐ LUMUM A LAUSN FYRIRÞIG! Möguleikar svampsins eru óendanlegir og verðið mjög hagstætt. Hann fæst stinnur, mjúkur, léttur, og þungur og er fáanlegur með eða án áklæðis i fjölbreyttasta úrvali. Láttu sjá þig, við lumum á lausn sem hentar þér og þínum aðstæðum. Hvort sem er fyrir heimilið, ferðalagið, sumarbústaðinn eða vinnustaðinn. Lystadún húsgagnasvampurinn er efni til að spá í, af alvöru! SENDUM í PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT. LYSTADÚN LYSTADÚNVERKSMIÐJAN, DUGGUVOGI 8. SÍMI 84655. Ragnar Björnsson Í Kirkjumól Dómorganistamáliö viröist ekki vera alveg úr sögunni. Félag islenskra organleikara ^hefur nú sent frá sér yfir- lýsingu þarsemlýster undrun og óánægju meö brottrekstur ^Ragnars Björnssonar frá í Dómkirkjunni. Félagiö telur ekki aö liggi' fyrir þau rök að réttlæti slikan 1 brottrekstur og hefur sent sóknarnefnd dómkirkjunnar 2 bréf þar að lútandi og jafn- framt leitað eftir sáttum. ; Harmar félagið aö sóknar- y nefnd hefur ekki verið til við- ; ræðna um sættir. Þar sem .1 Ragnar Björnsson hefur nú á ný sótt um stööu dómorgan- ista og er reiðubúinn til sam- starfs við presta og sóknar- nefnd, skorar félagiö á for- ráðamenn Dómkirkjunnar aö endurskoða hug sinn. Nú reynir semsagt á sáttfýsr kirkjunnar manna. • • Sorgirnar ,,Af hverju ertu svona sorg- mæddur á svipinn, Mangi?" „ílg var aö reyna aö drekkja sorguni minum, en það mistókst?” „Hvernig stóð á þvi?" ,,Konan min var búin að læra að synda". • • Sigurjón Snú snú Það er dálitið ga man að sjá hversu menn geta verið snöggir að snúa sér i hring. Stjórnarandstaöan hefur látið ómældar skammir dvnja á fyrirtækjum og stofnunum, bæði i einkaeign og opinberri, fvrir að greiða ekki fullar visi- tölubætur á laun. Rikisstjórnin hefur auðvitað fengið sinn skammt lika, i skæruherferö verkalýðs- foringjanna og stjórnarand- stöðunnar gegn henni. Alþýðubandalagsmenn hafa gengið sérstaklega hart fram og sagt að atvinnuvegirnir megi vel við þvi að greiða full- ar vis itölubætur og ef þeir ekki geri það skuli þeim komið á tné. Nú er Alþýðubandalagið bú- íð að taka við borgarstjórn i Revkjavik og ber þá auövitaö nokkra ábyrgð á fjárhag hennar. Og aöspuröur um visi- :ölubæturnar segir Sigurjón Pétursson hógværlega. að veriðsé að kanna hvort borgin íafi efni á þeiin. — ÓT.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.