Vísir - 21.07.1978, Page 6

Vísir - 21.07.1978, Page 6
«' é H / * 6 NYKOMNIR amerísku háskóla- BOLIRNIR Laugavegi 37 Laugavegi 89 12861 13008 Hafnarstrœti 17 Glœsibœ 13303 H Smurbrauðstofan BJORNINN Njálsgötu 49 — Simi 15105 DaDaaaaaaaDaaaaaaaaaDaDDDDaoaDDDaDQDDaaDDDDa BILASALA með innisýningarsal til leigu eða sölu. fullum rekstri Tilboð sendist augld. Visis fyrir fimmtudagskvöld merkt „Bílasala' a a D a D D a D a D D a D D D D D D D r. DDDDDoaaaaaaaaaaaaoDoaaaDDi-aDaaoaaaDaaoDaaac VISIB Bergþórugata jk Frakkastigur Kárastigur _ - _ - __ Höfðahverfi frá 1/8 BLAÐBURÐAR- Borgartún .. Hátún BORN Miðtún • Þórsgata afleysingar ÖSKAST I Freyjugata AFLEYSINGAR Lokastigur VISIR Föstudagur 21. júll 1978 vtsm Umsjón: Guömundur Pétursson f Farand-meistarakokkurinn Ffeff ofan af dófenfe Einn af þessum mönnum, sem sérhæfa sig i ■málefnum ákveðinna landa er Robert nokkur Conquest, sem er kallaður Sovétsérfræðingur, en hann skrifar nýlega grein, þar sem hann ræðst að hugtakinu ,,kalda striðið” — Honum finnst það villa um fyrir mönnum varðandi pólitiskar stað- reyndir lifsins. ,,Er kalda striðið liðið?” spyr hann i grein sinni, en við þvi kunna vestrænir fréttaskýrendur tvenn svör: 1. Að það sé liðið. 2. Að það sé ekki liðið, en ætti að vera það. Conquest telur, að þessi svör ættu að vekja meö mönnum grun um, hvað „kalda strlðs”- hugtakiö er falskt og blekkj- andi. bað gæti táknað tvennt. Þaö gæti verið lýsing á alþjóö- legri spennu, og það gæti verið slagorð, sem einhver hendir á loft i hvert skipti, sem uppvist verður um eitthvað miður hrós- vert hjá Sovétrikjunum. 1 fyrri notkun þess er gjarnan visað til spennunar milli austurs og vesturs á valdatimum Stal- ins, eða þegar Berlinardeilan reis hvað hæst og þegar Kóreu- striöiö stóð yfir. Ef umtalsverð slökun á þeirri spennu ætti að skoðast sem endalok kalda striðsins, hlýtur endir Berlinar- deilunnar 1949 aö flokkast undir slik timamót. En ef gengiö er út frá þvi, aö i kaldastriðinu hafi Sovétrikin staðið i samkeppni viö Vestur- lönd um yfirráö og áhrif á gang heimsmála, væri nær aö spyrja, hvort átt hafi sér breyting i þeirri afstööu hjá leiötogum So- vétrikjanna, og fyrir þá sök sé kalda striðið liðið. Ef Sovét- stjórnin hefur ekki gefist upp i „stéttarbaráttunni” og fleygt frá sér þvi grundvallarsjónar- miöi að standa uppi i hári landa, þar sem kommúnistar hafa ekki komist til valda, þá stendur auðvitað kalda striöið ennþá, þótt Kreml hafi tekiö upp aðrar aöferðir til þess að komast hjá vopnuðum árekstrum. Robert Conquest telur, að tog- streitan um heimsyfirráöin hafi ekkert breytst, að öðru leyti en þvi að nú er beitt öðrum aðferö- um. Margir fréttaskýrendur supu á sinum tima hveljur þegar So- vétrikin beittu Varsjárbanda- laginu fyrir sig til innrásar i Tékkóslóvakiu 1968. Sögöu þeir að Sovétrikin hefðu tekið upp breytta og árásarhneigðari stefnu. — „Það var misskiln- ingur þeirra. Sovétrikin höfðu ekki breytt stefnu sinni”, skrif- ar Conquest. „Aö innrásin var mönnum svona mikið áfall staf- aði af þvi, að þeir höfðu gert sér ranga hugmynd um stefnu So- vétstjórnarinnar.” Af fjölmörgum ástæöum leik- ur vafi á vilja Sovétstjórnarinn- ar til friðsamlegrar sambúöar rikjanna. A meðan vestrænir fjölmiðlar reyna að túlka stefnu Sovéts á sem elskulegastan máta, halda Sovétmenn áfram áróðursherferð sinni gegn vest- urlöndum með rikisfjölmiðlum sinum. Conquest heldur þvi fram, að um þessar mundir reki sovésku fjölmiðlarnir gegndarlausan áróður gegn vestrinu með ein- hliða frásögnum áf málum, eins og meintum grimmdarverkum breskra hermanna á N-lrlandi, itarlegum lýsingum á samvinnu Bandarikjanna og Suður-Afriku til smiöi á kjarnorkusprengju fyrir S-Afriku, um nasistaveiði- menn, sem miðli herþjónustu Israels af persónunjósnum sin- um, um miklar peningagjafir Bandarikjamanna til andófsins i Sovétrikjunum, um vestur- þýskar sviviröingar sem beinist gegn Tékkóslóvakiu og fleiri slikar tilbúnar grýlur, sem allar eru búnar til af kommúnista- flokknum, allt liður i stefnu hans. — Enda er þaö sama kerf- ið, sem rikir i Sovétrikjunum i dag og gerði á Stalinstimanum, segir Robert Conquest. Þeir, sem halda þvi fram, aö Sovétrikin hafa breytt stefnu sinni, verða aö færa einhverjar sönnur fyr.ir þvi. Þaö er ekki nóg að fullyrða, að hlutirnir hafi breytst. Auðvitað hefur eitt og annaö breytst. Til dæmis eru ekki lengur teknir af lifi af handahófi heilir þjóðarhlutar eins og á Stalínstimanum, en stjórnin heldur áfram ofsóknum á and- stæðingum sinum með skugga- legum ráðum. í utanríkisstefn- unni er enn stefnt að heimsyfir- ráðum. Sovétrikin vilja, að hið kommúnistiska kerfi nái áhrif- um um heim allan. Conqest sér litla ástæðu til þess að fagna þvi, þótt Sovétrikin sjái sér i bili bestan hag i ,,détente”-stefnu i Evrópu meðan gamla fjand- skaparstefnan og árásarhneigð- in þykir koma þeim betur I Afriku. Vissulega sýnist Conquest hafa rétt fyrir sér i útskýringum sinum á kalda striðinu og dé- tente (slökunarstefnunni, þiö- unni) virðist hafa komið frétta- skýrendum til þess að skoða ástandið i björtu ljósi. Hin gegndarlausa hervæðingar- stefna Sovétmanna og ýmsir al- þjóðlegir ásekstrar, sem oröiö hafa vegna áhrifafiknar þeirra, krefjast þess, aö lýöræðisrikin spyrni við fæti og taki fastar á móti. Það er til dæmis alveg furðulegt, að vesturlönd skuli styðja Sovétrikin með tækniað- stoö, áhaldasölu og lánum (sem hafa verið efnahagslifi Sovét- rikjanna nauðsynleg) og Kúbu með sömu hjálp, sem veitt er þróunarlöndunum, meöan þessi riki leynt og ljóst stefna aö þvi aö brjóta það kerfi, sem er viö líði hjá vesturlöndum. Það sýndist ekki vera ósanngjörn krafa og skilyrði fyrir áfram- haldandi tækniaöstoð, að Sovét- menn hættu áróðursherferð sinni gegn vesturlöndum og dragi úr ævintýramennsku sinni i alþjóðamálum. Þá fyrst er hægt að tala um détente. Kalt strið verður svo lengi sem So- vétrikin stefna að heimsyfirráð- um.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.