Vísir - 21.07.1978, Síða 7
Tveir kaupsýslumenn í
Auckland í Ástraliu hafa
verið handteknir vegna
tengsla við smygl á kanna-
bisefnum fyrir 82,5 millj-
ónir dollara til austur-
strandar Ástralíu.
Tveir lögreglumenn i Auckland
og tveir erindrekar eiturlyfja-
varna Astraliu höföu áöur njósn-
að um kaupsýslumennina sam-
fleytt i tvo sólarhringa, en grunur
haföi falliö á þá eftir handtöku
ellefu Astraliumanna fyrr i þess-
um mánuði.
Eftir þvi sem látiö hefur veriö
uppi, keyptu smyglararnir fimm
og hálfa smálest af kannabis i
Thailandi. Þvi var fyrst smyglað i
japönskum togara til Astraliu, en
undan landi var farminum um-
skipaö i skemmtisnekkju. Þegar
landa átti farminum skammt frá
Port MacQuarie á strönd Nýja
Carter vill
góða sambúð
við Sovét
Suöur-Wales, beiö lögreglan
snekkjunnar og allir um borö (ell-
efu manns) voru handteknir. 1
þeim hópi var fyrrverandi lið-
þjálfi úr rannsóknarlögreglunni.
„Angóla verður stœrsta
herveldið“
— spóir Neto hróðugur
Agostinho Neto, forseti
Angóla, skýrði leiðtogum
Afríkulanda frá því, að
kúbönskum hermönnum í
landi hans yrði fjölgað, ef
nauðsyn þætti krefja.
Á fundi einingarsamtak-
anna sagði Neto, að
kúbanska herliðið mundi
ekki verða á brott úr
Angóla — ekki einu sinni
þótt hann mælti sjálf ur svo
fyrir — ef haldið yrði
áfram fjandskap við land
hans.
„...svo lengi, sem haldið veröur
uppi hernaðarlegum, stjórnmála-
legum eöa diplómatiskum árás-
um,” eins og Neto forseti oröaöi
þaö.
Hann bætti þvi siðan viö, að
„viö veröum sennilega eitt
sterkasta herveldið i suöurhluta
Afriku”.
Ráðstefnu einingarsamtaka
Afrikulanda lýkur i dag en gripa
þurfti til næturfundar i nótt til
þess að standast áætlun, vegna
mikils málþófs um þrjú striö i
Afriku. Chad hafði veitst aö Libýu
fyrir að hernema norðurhluta
landsvæðis Chads, Sómalia haföi
ráöist að Eþiópiu fyrir aö hafa á
sinu valdi hina umdeildu Ogaden-
eyöimörk, og ýmis riki lágu
Marokko og Mauritaniu á hálsi
fyrir að skipta á milli sin Spönsku
Sahara. Hinir sátu aö sjálfsögöu
ekki þegjandi undir þessum árás-
um og svöruöu meö gagnásök-
unum, sem aftur kröföust svara,
og þannig koll af kolli fram á
rauða nótt.
Sumir þjóöarleiðtogar hafa
yfirgefið ráðstefnuna vegna „að-
kallandi verkefna heima fyrir”,
eins og Sadat Egyptalandsforseti
og Kenneth Kaunda, forseti
Zambiu.
„Við vöruðum þig
við að fljúga
of lógt,
herra forseti"
Kœmist
aldrei,
ef...
Djan Madruga, brasiliski
sundkappinn, sem rekinn var
úr landsliði Brasiliu fyrir
heimsmeistarakeppnina,
vegna þess aö hann þótti hafa
kysst vinkonu sina yfirmáta
og ofurheitt fyrir allra augum
á flugvellinum I Rió, hefur nú
verið takinn aftur i liðið.
Honum var fyrirgefiö, eftir
aö hann játaði I sjónvarpsviö-
tali, aö hann haföi breytt
rangt, þegar hann gagnrýndi
forseta brasiliska sundsam-
bandsins fyrir aö fetta fingur
út I kossa hans og vinstúlk-
unnar. Forsetanum haföi
fundist „blesskossinn” ganga
full langt.
í viðtalinu sagöi Madruga
svo: „Ef ég verö rekinn úr liö-
inu 1 hvert skipti sem ég kyssi
stúlku, kemst ég aldrei út fyrir
landsteinana.”
Teknir með 5,5
tonn af kannabis
Carter Bandaríkjafor-
seti sagði í gær, að hann
ætlaði sér engan veginn að
hef ja hefndarherferð gegn
Sovétríkj unum vegna
mannréttinda. Sagðist
hann ekki ætla að hafast
meira aðen banna söluna á
tölvunni til Tass-frétta-
stofunnar.
Carter bar til baka orðróm um,
aö Bandarikin stæöu nú I samn-
ingum við Sovétstjórnina um aö
fá láusa úr haldi, Anatoly
Scharansky og Alexander Ginz-
burg, sem hlutu þunga fangelsis-
dóma i siöustu viku.
Þessi svör Carters þykja
óvenju mild miöaö viö fyrstu víö-
brögö eftir fréttirnar um dómana
yfir andófsmönnunum. Ýmsir
vilja leiöa getum aö þvl, aö lesa
megi út úr þessari mildi, aö
Bandarikjastjórn ætli aö freista
þess aö semja á bak viö tjöldin
um frelsi handa þessum tveim.
Carter kvaöst vilja leggja
áherslu á, aö hann vildi láta
mannréttindamálin til sin taka,
en jafnframt vildi hann gööa
sambúö við Sovétrikin.
Kólera í
Indónesiu
Kólera hefur brotist ut I bæ
einum tólf km sunnan viö
Jakarta, höfuðborg Indónesiu,
og hefur kólerufaraldurinn
kostað ellefu manns llfið til
þessa.
Sjötiu manns hafa veikst af
kóleru frá þvi á mánudag,
eftir þvi sem heilbrigðisyfir-
völd segja.
BEGIN GAGNRÝNDUR
Dularfullt mannslút
í S-Afríku
Sex lögreglumenn og
tveir borgarar hafa verið
kærðir fyrir morð á
blökkum öryggisverði,
sem lét lífið í varðhaldi
fyrir fjórum mánuðum í
Suður-Afriku.
Þessi tiöindi þykja likleg til
þess aö magna enn ólguna, sem
er i Jóhannesarborg vegna
dularfullra dauösfalla blökku-
manna i haldi lögreglunnar. En
i blaöafréttum i gær var greint
frá enn einum blökkumanni,
sem látist hafi á spitala fyrir
viku af meiðslum, sem hann
sagöist hafa hlotiö af barsmiö
lögreglunnar, meðan hann var i
varöhaldi.
Fyrr i þessum mánuði lét enn
einn blökkumannafangi lifiö,
þegar hann féll út um glugga á
fimmtu hæð hússins, þar sem
hann var i yfirheyrslu hjá lög-
reglunni i Port Elizabeth.
Af negraöryggisverðinum,
sem fyrst var minnst á, segja
fréttir, að hann hafi dáið átta
dögum eftir aö hann og fjórir
félagar hans voru handteknir
fyrir innbrot.
Þrem hvitum liöþjálfum og
fjórum óbreyttum blökkum lög-
reglumönnum hefur veriö vikiö
úr starfi meöan rannsókn fer
fram I málinu.
Stjórn Menachem Begins
forsætisráðherra sætir nú
mikilli gagnrýni heima
fyrir eftir að hafa hafnað
nýjustu tillögum Egypta-
lands um friðarsamninga
og fyrir að þverskallast við
kröfum um breytta af-
stöðu gagnvart friðar-
samningum.
Mosche Dayan, utanrikisráö-
herra Israels, sem kom heim I
gær aö loknum viöræöum við
Mohammad Kamel, starfsbróður
sinn frá Egyptalandi, i Leeds-
kastala i Bretlandi, sagöi viö
heimkomuna, að skilmálar
Egypta væru algjörlega óað-
gengilegir.
„Viö getum rætt, hvaö sem
vera skal, en þaö er ekki til neins
aö vera aö gera kröfur, áöur en
viö erum sestir niður til viö-
ræðna,” sagði Dayan.
Stjórnarandstaða bar i gær upp
vantrauststillögu á Begin og
stjórn hans vegna frammistöðu
hans i þessu máli. Meöal þeirra,
sem lagt hafa orö I belg, er Golda
Meir, fyrrum forsætisráöherra,
sem sagöist ekki geta setið aö-
geröarlaus hjá, meöan Begin
klúðraöi friðarviöleitni Sadats
Egyptalandsforseta. Shimon
Peres, leiðtogi verkamanna-
flokksins, sagði á flokksfundi i
gær, að forsætisráöherra væri
ekki fær um aö varöveita rikis-
leyndarmál.
Likud-flokkur Begins hefur
vlsað þessum ásökunum á bug, og
segir, aö verkamannaflokkurinn
hafi nú gripiö til persónuniös á
forsætisráöherrann.