Vísir - 17.11.1978, Blaðsíða 3
VTSIR Föstudagur 17. nóvember 1978
Flugslysið á Ceylon
3
Rcmnsóknin beinist
að „svarta kassanum"
Orsakír hins mikla flugslyss á
Sri Lanka munu veröa verkefni
sérstakra rannsóknarnefnda
næstu vikur eöa jafnvel mánuöi.
Alþjóölegir samningar mæla
fyrir um þaö hvernig haga skuli
rannsókn flugslysa og þar er
Itrustu nákvæmni gætt.
Aöalsönnunargagniö þegar
flugslys veröa eru yfirleitt tveir
kassar. Annar þeirra sem
kallast „Cockpit voice record-
er” er segulbandstæki sem tek-
ur upp allt þaö sem sagt er I
stjórnklefanum. Þar eiga aö
vera öll samtöl áhafnar og allt
þaö sem hefur komiö frá flug-
turni. Þetta band tekur ekki upp
nema hálftima i einu þannig aö
rannsóknaraöilar munu aöeins
heyra hvaö var sagt siöasta
hálftimann fyrir slysiö. Hitt
tækiö sem er sjálflýsandi.
appelsinurautt á lit, er tengt viö
mælitæki þotunnar. Þar kemur
meöal annars fram flughæö,
flugtlmi, flughraöi og fleira.
FlugmálastjórnSri Lanka sér
um aö koma þessum tækjum til
aöila sem geta lesiö úr þeim.
Ekki er búist viö aö slfk
„aflestrartæki” séu á Sri Lanka
og veröur þvi væntanlega fariö
meö kassana til Bretlands,
Bandarlkjanna eöa annarra
staöa þar sem aöstaöa er fyrir
hendi.
Þessir kassar eru UbUnir
þannig aö þeir eiga aö bjargast,
sama hvað gerist raunveruléga
I flugvélum. Sérstakar rann-
sóknarstofnanir sem hafa til
þess löggildingu fá kassana til
meðferðar.
Fulltrúar flestra þeirra aöila
sem á einhvern hátt tengjast
flutningunum munu væntanlega
fara til Columbo I Sri Lanka til
aö aöstoöa við rannsókn á
orsökum slyssins. Framleiö-
endur bæöi hreyfla og skrokks
vélarinnar munu aö öllum llk-
indu senda fulltrUa sem og
eigendur vélarinnar og fleiri aö-
ilar. Flugmálastjórn Sri Lanka
munhinsvegar hafa yfirumsjón
meö rannsókninni.
Þaö má þvl bUast viö aö þaö
taki nokkurn tima þar til öll kurl
veröa komin til grafar I þessu
mesta flugslysi sem orðiö hefur
i leiguflugi.
—BA
Herrafötin
komin
Flauelssetvin
komin
Laugavogi 37,
Laugavegi 89,
Haffnarstrcuti 17