Vísir - 17.11.1978, Page 10

Vísir - 17.11.1978, Page 10
10 Föstudagur 17. nóvember 1978 vism VÍSIR Útgefandi: Reyk japrent h/f ' Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. úlafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Ellas Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Umsjón með Helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaðamenn: Berglind Asgeirsdóttir,Edda Andrésdóttir, Gisli Baldur Garðarsson, Jónlna Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrín Páls- dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Stefán Kristjáns- son, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Útlit og hönnun: Jón óskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingarog skrifstofur: srðumúla 8. Simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611. Ritstjórn: Síðumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 2400.- á mánuði innanlands. Verð i lausasölu kr. 120 kr. eintakið Prentun Blaðaprent h/f. UTANRÍKISRÁÐHERRA Á HÁLUM ÍS Islensk stjórnvöld hafa gert f remur lítið af því að mót- mæla innanríkispólitík í öðrum ríkjum með virkum stjórnmálalegum aðgerðum. Frá þessari meginreglu hefur nú verið vikið með því að stöðva för Hans G. Andersens sendiherra í Washington til Chile, en áður hafði verið ákveðið að hann afhenti viðkomandi stjórn- völdum þar í landi trúnaðarbréf sem sendiherra Islands. Benedikt Gröndal utanríkisráðherra hefur upplýst, að hann hafi afturkallað ákvörðun fyrrverandi utanríkis- ráðherra, Einars Agústssonar, varðandi skipan sendi- herra í Chile. Utanríkisráðherra sagði á flokksþingi Alþýðuf lokksins fyrir nokkrum dögum, að hann teldi að Islendingar gætu ekki af hent handhöf um ógnarstjórnar- innar í Chile sérstakt bréf um trúnað. Það er rétt hjá utanríkisráðherra að ærin ástæða er til að vinna gegn fasistastjórninni í Chile, enda hefur hún þverbrotið allar grundvallarreglur um mannréttindi. En i þessu sambandi hlýtur það að vera álitaef ni með hvaða hætti við vinnum gegn ríkisstjórnum er fótumtroða lýð- réttindi. Fram til þessa höfum við ekki látið óánægju og and- stöðu við innanríkispólitík l öðrum löndum hafa áhrif á stjórnmálasamband við þau. Á hinn bóginn varð land- helgisdeila okkar við Breta tilefni til stjórnmálaslita. Þar var um að ræða sérstaka milliríkjadeilu en ekki mótmæli gegn innanríkisástandi í Bretlandi. Islendingar hafa ævinlega verið I harðri andstöðu við ólýðræðislega stjórnarhætti í Ráðstjórnarríkjunum og lýst andúð sinni á því hvernig þarlend stjórnvöld hafa virtað vettugi alþjóðlegar samþykktir um mannréttindi. Ráðstjórnarríkin eru ekkert annað en fangabúðir frjálsrar hugsunar. Austur-Þýskaland er annað dæmi. Þar er um að ræða eiginlegar víggirtar fangabúðir. Út fyrir múrinn fá menn ekki að fara fyrr en þeir eru komnir á eftirlauna- aldur. Þrátt fyrir þetta höldum við uppi stjórnmálasam- bandi við þessi ríki og ýmis fleiri, sem svipað er ástatt um„og utanríkisráðherra tekur þátt í hanastélsveislum með sendimönnum þessara ríkja. Kjarni málsins er sá, að við verðum að gera það upp við okkur, hvort nota eigi stjórnmálatengsl við önnur ríki til þess að sýna andstöðu okkar við stjórnarhætti I við- komandi ríkjum. Ef við veljum þá leið komumst við ekki hjá því að takmarka eða rjúfa stjórnmálasamskipti við allar ógnarstjórnir. Með afstöðu sinni hefur Benedikt Gröndal í raun og veru lýstyfir samstöðu með stjórnvöldum í Kreml. Hann telur, að islensk stjórnvöld geti látið sérstakt trúnaðar- bréf liggja hjá þeim stjórnvöldum, sem sendu Júrí Orlov i fangabúðir vegna skoðana sinna. Með þessari ákvörðun hefur Benedikt Gröndal með formlegum hætti mótmælt ógnarstjórninni í Chile, en hann hef ur um leið lagt blessun sína yf ir mannréttinda- brot stjórnvalda í Ráðstjórnarríkjunum með því að kalla ekki heim sendiherra íslands l Moskvu. Oðru vísi getur hann ekki verið samkvæmur sjálfum sér. Kjarni málsins er sá, að það er vitlaust og óviturlegt að nota stjórnmálatengsl við önnur rlki í þessu skyni. Við eigum að halda áfram stjórnmálasamskiptum við Ráð- stjórnarríkin þrátt fyrir ólýðræðislega stjórnarhætti og gróf ustu mannréttindabrot. En þessi regla verður þá að gilda almennt. Geðþóttaákvarðanir í tilvikum sem þess- um eru slæmar. Utanríkisráðherrann er á hálum ís. Hvað var við Aðaistrœti austan götu? A svæöinu, þar sem nií er „Hallærisplaniö”, Aöalstræti7 og Miöbæjarmarkaöurinn, var áöur fyrrum hluti innréttinga Skiila fógeta, þar sem Miöbæjarmark- aöurinn stendur nií var forstjóra- húsiö. Þá var „prentsmiöju- pósturinn” á einum tima þar sem nú er inngangurinn i Herragarö inn, þar hittust bæjarbúar og skiptust á slúöursögum og gamanmálum. Seinna varö þetta svæöi eitt þéttbyggöasti blettur landsins, þar sem nú er „Hallærisplaniö” var Vöruhúsiö, ein þekktasta verslun landsins, eign Jensen Bjerg. Þar var samtimis Hótel Is- land á tima stærsta hótel bæjar ins, eign Rosenbergs. A Hótel ísland voru veitinga- staöir, danssalur og samkomu- salur — Nýja Bíó. Þá var sungiö — „Jeta saman Jótar tveir, Rosenberg og Jensen Bjerg, og rifast um hvor riöi meir, Jensen Bjerg eöa Rosenberg”. Noröan Austurstrætis var „Veltan”,þar verslaöi Thor Jen- sen um tima þar var verslun As- geirs Gunnlaugssonar, þar var Guöni Jónsson úrsmiöur. Þar var Sápuhúsiö, og á tima ein besta bókaverslun bæjarins „Mlmir”, eign Eggerts Briem. Bifreiöastöö Steindórs var á þeim sama staö og hún er enn þann dag I dag, á horni Aöalstrætis og Hafnar- strætis. A þessum timum var Aöalstræti 9, eitt stærsta hús bæjarins, byggt af Reinhold Andersen sænskum klæöskera, sem seinna verslaöi á Laugavegi 2. Þar var tíl húsa Braunsverslun, ein helsta fatnaöar og vefnaöar- vöruverslun landsins. Þar var úr- smiöja Sigurþórs, þar var Mat- stofan og siöar Gildaskálinn. Þar vorutil húsa ýmis verslunarfyrir- tæki og þekktir menn, til dæmis Eggert Kristjánsson, heildsali, Bernhard Petersen, lýsissali, Buckles fiskikaupmaöur, þeir Steinnessbræöur, Bjarnasynir, Gisli lögfræöingur, Hálfdán, siöar Genua-konsúll, Páll lögfræöingur og útgeröarforstjóri og siöast en ekki sist Björn Bjarnason magist- er, f kunningja hópi kallaöur „Bjúsi”. 1 Aöalstrapti 9 var Rebekka Hjaltþórsdóttir, þekkt- asta saumakona bæjarins, hún saumaöi m.a. búninga fyrir leik- félag Reykjavikur. Þar var dag- blaöiö Visir. Þar var byggingarverslun 1- leifs Jónssonar, nærfatagerö Is- lands, skóverslun Jóns Þorsteins- sonar, þar var verslunin Gullfoss, og þar var teppaverslun Siguröar Arnasonar.Teppi hf. og svo má lengi telja. I Aöalstræti 9 réö húsum, um aldarþriöjungsskeiö úrsmiöa- meistarinn Þóröur Jónsson, þekktur meöal gamalla Reykvik- inga, undir nafninu Þóröur úri. Þá var ort: Eitt stendur hús viö Aöalstræti, oft mun þaö veröa i sögum skráö. Eftir þunga dagsins og þras og læti, þar hefur margur á heimleiö áö. Þar stýrir bar, sem þegna kætir, Þóröur aö nafni úrsmiöur. A barnum er löngum gleöi og glaumur, góölátlegt rabb og skattarif, þar liöur ævin eins og draumur: Afengi, peningar, matur, vlf. Aþetta er úrarinn aldrei naumur, enda er þaö hans hálfa llf. Þó var I sumar þögn um Briem Ó, þyrnirósum er braut vor stráö. A brott var Stefán og Baröi farinn og burt höföu úrarann meö sér náö. A strætum vappaöi vinaskarinn, vantaöi Þórö sinn justitsráö. Fýrir dyrum úti er Dóri staddur, Þá drffur aö tiginn hópurinn, Isleifur, Þóröur, Garöar (Gaddur) Gústaf, Baröi og Þórarinn, og úrarameistarinn sæll og saddur segir: velkomnir til min inn. Skýringar viö vísurnar: Barinn, svokallaöur, var skrif- stofa Þóröar Jónssonar I Aöal- stræti9, Þar voru margir þekktir Reykvikingar heimagangar. Main komu þarna saman marga virka daga millikl. 5-7 á heimleiö af skrifstofum sinum. Þeir menn, sem nefndir eru 1 visunum eru: Stefán Jóhann Stefánsson, forsætisráöherra, Snjórinn frá liðnum vetri Ungir menn sem tóku nltjándu öldina I arf og mótuöu tuttugustu öldina á Islandi, voru eölilega svolltiö ringlaöir, þegar þeir komust I bland viö latlnuhesta menningarlifsins hvort heldur var I mynd menntaskólakennara eöa þeirrastásslegu borgara sem höföu efni á rauöum plusstjöldum fyrir glugga. Lofthár skáldskapur stóö fyrir sjónum þeirra, hvert sem litiö var og fagurgerö orö- gnóttin féll aö eyrum þeirra eins og klnverskir blævængir áöur en hún hvarf úr notum eins og kalkaöar málstoöir. Unglingar og nýfullorönir menn mátu llfsgildin út frá staöreyndum nítjándu aldar en uröu engu aö slöur aö taka á slnar heröar aö koma þjóöinni út úr rimnakveöskap og húslestrum, finna andlegu llfi nýja farvegi i menningarlegu tíl- liti og þola breytingar sem voru svo átakamiklar, aö þeir stóöu þær aöeins af sér sem menn trú- ir minnum aldar sem þeir höföu ekkert meö aö gera lengur. Þetta kemur svona I hugann viö fljótlegan lestur Sjömeistarasögu Halldórs Laxness sem hefur nú lokiö þriggja binda verkijskáld- sögum I ritgeröarformi, um æskuár sln og lifiö i Moskó og Reykjavik, og er Sjömeistara- saga miöbindiö. Halldór Laxness hefur fundiö sér hiö frjálslegasta form fyrir þau minningabrot, áréttingar og myndbirtingar sem hann birtir i bókunum þrem- ur. Hann hefur glatt lesendur sina og aödáendur meir en oröum tek- ur meö óbrigöulli frásagnarlist, ýmist gamansamri eöa þungoröri og öllu þar i milli og varpaö skáldskaparlegu ljósiá timabil og menn sem fyrst og fremst hefur veriö taliö tilheyra uppkasti lang- sum og þversum og ööru pólitísku basli sem Halldór lýsir raunar yfir aö hann hafi aldrei kært sig um aöskilja. Og Sjömeistarasaga er kannski drýgst á mannlýsingar þegar fólkiö dó úr spönsku veik- inni haröa veturinn 1918, og fjór- tán skáld voru talin I fjóröa bekk Menntaskólans, baráttublaöinu Láka var hleypt af stokkunum og Siguröur Einarsson kom vestan úr Bjarnarhöfntil aö strjála ösk- unni af vindlingnum (Hiree To- wers) yfir heimalesturinn viö morgunveröarboröiö. Manniveröuráaö skella upp úr ámörgum stööum i bókinni, sem annarser aö sumu leyti dapurleg. En ævinlega, þegar kemur aö þeim atriöum, stillist mál höfund- ar og styttist, svo harmaefnin farahjá eins og „þytur vængja.” Þaö heyrist á, aö Halldór hefur gert sér far um aö hitta vini aö máli, svona til aö rétta söguefniö af, þótt „vormennirnir” séu farn- ir aö gamlast. Aörir eru látnir. Hvergi örlar á þvi, aö Halldór hafi átt I deilum, þegar hér er komið sögu, og fer vlst svo um flest rifrildisefniö. Annars mun þaö sannast mála aö hann mun ekki hafa eldað hiö gráa silfur viö gamla félaga, hvaö sem annars bar á milli. Má þaö heyra á frá- sögnum hansaf skiptum viö Guö- mund G. Hagalin og Tómas Guö- mundsson, sem aö vlsu hittu höf- und þessarar bókar fyrir tima gerskra ævintýra og gróöurs og sandfoks. Engu aö siöur mun þaö aldrei hafa gerzt aö þeir þrlr, Halldór, Tómas og Guömundur hafi látið dægurmálin skyggja á gamalt vinfengi og er þaö raunar nokkur vitnisburöur um heilindi manna I þessu landi Jx-asgirninn- ar. Ingimar Jónsson, skólastjóri, er einnig enn á llfi af upptöldum félögum og vinum I Sjömeistara- sögu og fær kannski einna stór- brotnasta lýsingu aö undanskild- um Siguröi Einarssyni. Um Ingi- mar segir: „Hann haföi ofsmá augu og ofþykk gleraugu og var svo stórskorinn I andliti aö þegar hann var setztur innan um aöra menn, þá verkuöu þeir á mann eins og fimmtlu aura búöardúkk- ur.” Þeir Guömundur og Tómas eru af vandalausum kannski einna mest viöriönir uppvöxt Halldórs þennan vetur, þótt Guömundur hafi veriöfjórumárumeldri. Þeir Tómas og hann og svo Siguröur

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.