Vísir - 27.02.1979, Blaðsíða 13

Vísir - 27.02.1979, Blaðsíða 13
y' gplS L-__________________________________________ „Við stef num ó 5. sœtið" Frá Kjartani L. Pálssyni, blaðamanni Visis, á B-keppni Heimsmeistarakeppninnar i handknattleik á Spáni. Eftir leikinn gegn Spánverjum hitti ég | menn aö máli og spuröi þá um skoöun þeirra á leiknum. Jóhann Ingi, þjálfari: „Ég er ánægður meðþennanleik, ef slæmi kaflinn isiöari hálfleik er undanskilinn, en þá geröu minir menn margar skyssur. Leikur- inn gegn Hollandi veröur erfiöur, því aö þeir töpuöu aöeins meö 4 mörkum gegn Spánverj- um, viö meö fimm marka mun”. En viö | stefnum á 5. sætiö i keppninni”. Páll Björgvinsson: ,,Þetta var diki gott. Sjálfur komst éghvaö I eftir annaö i dauöafæri, en þessi markvöröur þeirra var hreint út sagt alltaf þar sem bolt- inn kom á markiö. Skiptingarnar hjá okkur á milli varnar og sóknar kunna ekki góöri lukku aö stýra, og eins ekki hringlanda- hátturinn meö vörnina. Ég byrjaöi t.d. i ööru horninu og endaöi f hinu. Þeir voru einfald-| lega betra liðiö.” Ólafur Benediktsson: „Undir eðlilegum kringumstæöum eigum I viöaö sigra þetta lið. Ég er nokkuö ánægöur meö minn hlut i þessum leik, en strákarnir fóru illa aö ráöi sinu og skutu spænska vörö- inni'stuömeð slökun og ótlmabærum skotum i siöari hálfleik”. klp-Barcelona/gk-. „Island betra ó Baltic Cup Dönsku dómararnir Jack Rodil og Kurt Olsen hafa oft áöur dæmt leiki hjá Islandi i handboitanum, og ég spurði þá hvernig þeim hafi fundist islenska libiö standa sig i kvöld. „Þetta lið spilaöi miklu slakar en libib sem ; lék í Baltik keppninni var miklu óöruggara. i Samt var leikur þessi ekki svo slæmur i 40 minútur, en kaflinn i siöari hálfleik var hörmulegur”. Hvaö tiiéu aiiar þcssar brottviS2i.ii. „Þetta er bara stefnan i dag. Þaö var ákveðiö á HM i Danmörku aö fara aö taka svona hart á grófum brotum, og viö dæmum bara samkvæmt þvi”, sögöu þeir félagar, sem sluppu vel frá leiknum, þótt hinir tiöu brottrekstrar leikmanna af velli kæmu oft einkennilega fyrir sjónir. klp-Barcelona/gk-. I Arsenal sló Forest út Nokkrir leikir fóru fram i bikarkeppnunum í knattspyrnu i Englandi og á Skotlandi i gær- kvöldi og uröu úrsiit þeirra þessi: England: 4. umferð: WBA — I.eeds 3:3 Oldhain — Leicester 3:1 Sunderland — Burnley 0:3 5. umferö: Shrewsbury — Aldershot 3:1 Ipswich — Bristol lt. 6:1 Nott.Forest—■Arsenal 0:1 C.Palace — Wolves 0:1 Nottingham Forest sótti nær látlaust gegn Arscnal, en Frank Stapleton skoraöi eina mark leiksins fyrir Arsenai á 78. minútu. Bikarnieistarar Ipswich voru imiklu stuöi gegn Bristol Rovers úr 2. deild. Hollenski leikmaöurinn Arnoid Muhren skoraöi eitt marka Ipswich, en hin geröu Alan Brazil 2, Mick Mills, David Geddes og Paul Mariner. Alan Young skoraöi þrennu fyrir Oldham gegn Leicester, og þeir Arthur Graham og Carl Harris jöfnuöu fyrir Leeds gegn WBA eftir aö Lceds haföi veriö undir 1:3 þegar 8 minútur voru til leiksloka. - gk. Þriöjudagur 27. febrúar 1979. VÍSIR VlSIR Þriöjudagur 27. febrúar 1979. Umsjói'i: Gylfi Kristjánsson — Kjartan L. Páls: s|on' — 4 - • . 1 11 ÞA K0M L0KSINS PÍNULÍTIL BUNA Frá Kjartani L. Páls- syni, blaðamanni Visis á B-keppni Heimsmeist- arakeppninnar í hand- knattleik á Spáni. Ólafur (Vikingur) Jónsson lenti heldur betur i ævintýri eftir leik- inn gegn Spánverjunum. Hann var tekinn í lyfjapróf ásamt ein- um spænskum leikmanni til aðat- huga hvort ekki væri allt i' lagi. Ólafur átti aö pissa i glas fyrir læknana i iþróttahöllinni, en þaö var sama hvernig hann rembdist, það vildi ekki koma buna! Eftir að Ólafur hafði rembst og rembst voru menn farnir aö ótt- astað hann myndi þurfaað remb- ast þarna aila nóttina, en þá var gripið til þess að gefa honum bjór að drekka. Sturtaöi hann i sig hverjum bjórnum á fætur öörum, og er fjórir iskaldir höföu farið niður i hann kom loks pinulitil langþráð buna! ’ygm*. wmmsmmmmm SJA EiNNIG ÍÞRÓTTIR c Páll Björgvinsson sem veriö hefur lykilmaöur I sóknarleik tslands aö undanförnu náöi sér ekki á strik I gærkvöldi og var óánægöur meö frammistööu sina. „ERUM ORDNIR JAFN GÓÐIR 0G ÍSLAND — segir þjólfari hollenska landsliðsins sem heldur að hans menn sigri ## Frá Kjartani L. Páls- syni, blaðamanni Vísis á Spáni: ,,Ég heid aö við sigrum tsíand”, sagöi Guusg And- erberhg, þjálfari hollenska liösiris eftir aö Spánn haföi sigraö tsland i gærkvöldi. „Okkur hefúr fariö mjög mikiö fram i handknattleik á siöustu árum, en ég merki ekki svo miklar framfarir hjá islenska liöinu. Fyrir tveimur árum voruö þiö ja&imiklu betri en HÓlland i handbolta og Holland er betra en tsland i knattspyrnu. En við höfum nú jafnaö þann mun i handboltanum, og dagskipun min til minna manna fyrir leik- inn við tsland veröur aö sigra. Holland og tsland eru þjóöir sem eiga aö leika I B-riöli, þær hafa ekkert aö gera í Aöal- keppni HM” sagöi sá hoUenski að lokum. klp-Barcdona/gk—. OLYMPIUDRAUMURINN ER 0REMNN AD ENGU — ísland getur nú ekki komist hœrra en í búðum leikjunum, sem það í 5. sœti í B-keppninni, þótt liðið sigri ó eftir að leika í Barcelona Þá er draumur Isienska lands- Uðsins um aö hreppa annað af tveimur efstu sætunum hér i B-keppninni ab engu oröinn, og draumurinn um aö komast á Óly mpiuleikana i Moskvu sömu- leiðis. tsland tapaöi fyrir Spán- verjum hér i Barcelona i gær- kvöldi 19:15 eftir aö hafa haft yfir ihálfleik 10:9, en hroðalegur kafli i siöari hálfleik kom i' veg fyrir islenskan sigur ööru fremur. „Ég er áþeirri skoðun aöþaö sé agaleysi, sem háir islenska Uöinu”, sagöi Ólafur H. Jónsson eftir leikinn i gær. „Menn gera einfaldlega ekki þaö sem fyrir þá er lagt, og þetta kemur óeölilega oft fyrir islenska Uöiö.” Þaö er full ástæöa til aö taka þaö fram að sumt af þvi sem Jóhann Ingi. landsliðsþjálfari hefur veriö aö láta liöiö æfa, er mjög snjaUt, en á löngum köflum ná leikmennirnir ekki aö útfæra það og allt leysist upp i fum og fát og menn fara ekki eftir þvi sem fyrir þá hefur veriö lagt. Þá er þvi ekki að neita aö lykil- menn i islenska liöinu brugöust hér ikvöld. Páll Björgvinsson var nánast sem skugginn af sjáifum sér og munar um minna enda var hann mjög óhresseftir leikinn. Þá hefur Axel ekki sýnt þaö hér i leikjunum sem hann á að geta,og er þaö skarö fyrir skildi, þvi aö skyttuleysi hrjátt liöiö mjög. Gangur leiksins var í stuttu máli sá að ísland komst i 2:0, en Spánn jafnaöi. Siðan var jafnt 5:5 en eftir aö Spánn haföi komist yfir, jafnaði Island og leiddi i hálfleik 10:9. I upphafi siöari hálfleiks voru Islendingarnir einum færri, þvi Ólafur Jónsson haföi verið rekinn útaf eftir aö leiktima fyrri hálf- leiks lauk. Og þeir spænsku voru B-KEPPNIN Á SPÁNI Kjartan L. Pálsson skrifar frá Barcelona ekki lengi aö notfæra sér þaö. Þeir jöfnuöu og komust yfir, en Viggó jafnaöi 12:12 úr tveimur vitaköstum. En nú hófst kafli sem var nánast sem martröö á aö horfa. Islenska liðið lék i næstu 21 minútu án þess aöskora mark, og Spánn svaraöi meðþvl aö breyta stööunni i 17:12 og úrslitin voru ráöin. A heildina litið afar gloppóttur leikur, liöiö sýndi ágætan leik i fyrri hálfleik, en siðari hálf- leikurinn var ömurlegur. Bestu mennvoru Ólafur Benediktsson i markinu, Viggó, sem var góöur framan af og Ólafur H. Jónsson, sem léku þokkalega. Mörkin skoruöu Viggó 7(3), Axel 2, Ólafur Vikingur, Bjarni, Þorbjörn J., Þorbjörn G. Páll og Steindór eitt ^ver- klp-Barcelona/gk—. Frá Kjartani L. Páls- syni, blaðamanni Visis á B-keppni Heims- meistarakeppninnar í handknattleik á Spáni. Talsverð meibsli eru nú meðal islensku leikmannanna hér i Barcelona, og ekki séö hverjir veröa úr leik á móti Hollandi af þeim sökum. Bjarni Guömundsson fékk inikiðhögg á munninn, og rifnaöi upp skurður sem hann haföi hlotiö rétt áöur en liðið hélt aö heiman, en Bjarni haföi einmitt sjálfur tekiö saumana úr sér eftir þab óhapp. Arnilndriöason fyrirliði erekki beint fallegur á aö lita, hann er meö glóöarauga á báöum og nef- brotinn i þokkabót. Þá er Jón Pétur meiddur og gat ekki veriö meö gegn SpánL klp-Barcelona/gk-. Ólafur var mikiö öfundaöur af leikmönnum íslands, sem mega alls ekki fá bjór aö drekka, ekki einu sinni einn á dag. En þarna hafði Ólafur fengiö fjóra iskalda eftir leikinn, og þaö á kostnaö spænska sambandsins! klp-Barcelona/gk-. ólafur Jónsson lenti f miklu ævin- týri í Barcelona i gærkvöldi. Dollaramellan Januz Czerwinski, fyrrum landsliösþjálfari Islands, er ekki vinsælasti maöurinn hér i Barce- lona i hópi islensku leikmann- anna. Þeir kalla hann sin á milli „dollaramelluna” enda mun Januz fús aö gefa upplýsingar á báöa bóga, fái hann greitt fyrir þaö. Hann hefúr eindregiö neitað aö vinna með spænsku leikmönnun- um, en þaö komst illa upp um hann igær. Þá þurfti Friðrik Guö- mundsson, einn af fararstjórum islenska liösins aö bregöa sér niö- ur i fundarsalinn, sem liöin hafa til aö skoöa myndsegulbönd og þar var Januz á fundi meö spænskalibinu. Og þaö var ekkert annaö en Isienska liöið, sem var á tjaldinu hiá honum. Januzi brá illa þegar hann sá hver kominnvarog reyndi aöfela sig. En þaötókst ekki betur en svo hjá honum aö nú vita allir á hótel- inu I hvaða hlutverki hann er hér. Þá sá ég til Januzar á leiknum, og var greinilegt aö hann var aö senda upplýsingar niöur á vara- mannabekk Spánverjanna, og mérerekkigrunlaustum aö hann hafi eitthvaðrætt við þá I hálfleik. klp-Barcelona/gk-. í t er komin i* f)Idt(i med Þokkabót \ Hér er a ferchnni eimtakle*ra -ktnnniiiU'ii t>«r n umhið plata þar *eni fara Miman 'el sanidir tt'viai oj> orótN tónli>t FÁLKIN N* ewmsmn SPRUNGNAR VARIR EITT NEFBROT 0G GLÓÐARAUGU! Mm msasBms Wb&s&tiSk-'. | HHRBPUR ■ , -- ^1™1***™ WV..MABTX. fcW/WW-M wum

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.