Vísir - 27.02.1979, Blaðsíða 10

Vísir - 27.02.1979, Blaðsíða 10
10 Útgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davlfi Gufimundsson Ritstjórar: úlafur Ragnarsson Hörður Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Ellas Snæland Jónsson. Fréttastjóri er- lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Halldór Reynisson, Jónina Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrln Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurður Sigurðarson, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson, Þor- valdur Friðriksson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmynd- ir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. útlit og hönnun: Jón Oskar Haf- steinsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og sKrifstofur: Sifiumúla 8. Simar 86611 og 82260. Afgreifisla: Stakkholti 2-4 simi 86611. Ritstjórn: Slöumúla 14 simi 86611 7 linur. Askrift er kr. 2500 á mánuði innanlands. Verfi i lausasölu kr. 125 eintakifi. Prentun Blafiaprent h/f Vinnwm skipulega að erkwsparnaði Svo virðist sem (síendingar séu nú almennt að vakna til vitundar um að hægt sé að spara orku með skynsam- legu móti. Orkusparnaður hef ur lítið átt upp á pallborðið hjá þessari velferðarþjóð undanfarin ár, jafnvel þótt olía hafi hækkað og sömuleiðis aðrir orkugjafar. Aðrar þjóðir hafa fyrir löngu gert ítarlegar áætlanir um það, hvernig þær hyggjast spara orku í framtíðinni og jafnframt hvernig þær ætla að verða sjálfum sér nægar um orku og eldsneyti, en slíkt eigum við eftir að gera. Sú litla viðleitni, sem hefur verið höfð í frammi til orkusparnaðar hér á landi, hef ur verið að frumkvæði á- hugamanna, og þá ekki sist kennara og nemenda í Vél- skóla Islands. Þeir gerðu f yrir nokkrum árum gangskör að því að breyta vélum skipa þannig að hægt væri að nota á þær svartoliu í stað gasolíu og jafnframt gengu þeir í hús og stilltu olíukeynditæki fyrir fólk með mjög góðum árangri. Þetta frumkvæði áhugamanna vakti stjórnvöld í síð- ustu olíukreppu og varð til þess að haldið var námskeið f yrir stillingamenn víðs vegar að af landinu. Þótt ýmsir væru í fyrstu vantrúaðir á notkun svartolíu í skipum, hefur þeim skipum sem nota það eldsenyti sífellt f jölg- að. Aukin virkjun jarðhita síðustu ár hefur orðiðtil þess að við erum ekki eins háðir olíu til húshitunar og við vorum, en þó eru ákveðnir landshlutar, þar sem lítil von eru um jarðhita, illa settir að þessu leyti. Olíuhækkanir erlendis og hrikalegar álögur ríkissjóðs á olíuverðið verða nú til þess að hitunarkostnaður þeirra, sem búa á köldu svæðunum, eykst um verulegar upphæðir, eða á þriðja hundrað þúsund á ári hjá hverri vísitöluf jölskyldu. Það er þvi mikið í húfi, að hægt sé að lækka þennan kostnað, til dæmis með stillingu kynditækjanna en mun árangusríkari yrði á hinn bóginn sú leið, sem bent var á i forystugrein Vísis i gær, það er að stjórnvöld skæru niður allar álagningarprósentur sínar á olíuverðið og semdu við Sovétmenn og Portúgali, sem við kaupum nú olíu af, um að innkaupsverð okkar á olíu f rá þeim breytist í sam- ræmi við breytingar á raunverulegu heimsmarkaðs- verði, en sveiflist ekki eftir dagprísum á olíumarkaðn- um i Rotterdam. Sömuleiðis þyrfti að leita eftir samn- ingum um kaup á olíuvörum frá öðrum löndum. En við megum ekki einblína á olíunotkunina varðandi kynditæki og skip. Bensínnotkunin er lika dýr þáttur i orkuinnf lutningu okkar og því er brýnt að horfa til f ram- tíðarinnar varðandi aðra orkugjafa. Koma þarf í fram- kvæmd athyglisverðum hugmyndum um framleiðslu á metanoli hér á landi, sem hægt yrði að blanda í bensín, þannig að smáttog smátt mætti draga úr bensíninnf lutn- ingnum. Mögulega notkun rafmagns til þess að knýja sam- göngutæki verður að kanna af alvöru og gera tilraunir með slíkt hér á landi. Jafnframt þessu þarf að leggja áherslu á orkusparn- að með ýmsu móti, ekki síst með stillingu ýmissa véla og tækja, reglulegum kynditækjastillingum, stillingu og eftirliti með bílvélum, breytingum eða hagkvæmari nýt- ingu skipavéla og skipulegum sparnaði rafmagns á heimilum og á vinnustöðum. Það gildir óvíða betur en á þessu sviði, að margt smátt gerir eitt stórt, og hver prósenta sem sparast til dæmis í olíu- og bensínnotkun þýðir milljónatuga sparnað fyrir þjóðarbúið í heild. Þriöjudagur 27. febrúar 1979 VÍSIR Einbeitnin leynir sér ekki á svip dansaranna Þó nýju dansarnirséu spennandi, standa gömlu dansarnir alltaf fyrir sfnu. ...Fyrst er tvistaö niður f góif og siðan teygöar upp hendurnar...

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.