Vísir - 14.03.1979, Side 4

Vísir - 14.03.1979, Side 4
4 MiOvikudagur 14. mars 1979 Katrin Jónsdóttir verkakona: Finnst bónusfyrirkomulagiö ágætt. „Fyrstu 10 mánuöi siöasta árs var framiegö Fiskiöjuvers Bæjarútgeröar Reykjavflcur 20% sem þykir mjög gott samkvæmt landsmeöaltali. Frystihúsiö er siöur en svo eftirbátur annarra húsa hér á landi”, sagöi Einar Sveinsson annar framkvæmda- stjóri BÚR. Hjá Bæjarútgerð Reykjavikur hafa verið gerðar miklar breytingar á húsnæðinu til þess að auka afkastamöguleika auk Vísir heimsœkir Fiskiðjuver Bœjarútgerðar Reykjavíkur: „HÚSIÐ EKKI LAKARA EN ÖNNUR FRYSTIHÚS" segir Einar Sveinsson, framkvœmdastjór: BÚR þess sem húsnæðið hefur verið endurnýjað. Gott loftræstikerfi hefur verið sett upp i vinnslusöl- um og sérstakt efni hefur verið sett á gólfin sem gerir það að verkum, að þau eru ekki eins hál og áður. I húsinu hefur verið tekið upp nýtt bónuskerfi. sem þjóna á margþættum tilgangi s.s. aö bæta meðferð hráefnis nýting þess, auka vinnuhraða, vinnuvöndun og siðast en ekki sist að gera fólki kleyft að afla sér meiri tekna og þá með betri vinnu i staðinn. Löndun aflans löndunaraðstöðu togara Bæjarút- gerðarinnar að þeir landa núna i vesturhöfninni við svonefnda Bakkaskemmu. Með þessari nýju tilhögun er losnað við allan vöru- bilaakstur. Aflanum er landað beint inn i skemmuna þar sem hann er geymdur i einn eða tvo daga eða þar til hann fer i vinnslu. Að sögn Kristvins Kristvinsson- ar verkstjóra i Bakkaskemmu er mikil hagræðing fólgin i hinu ný ja löndunarfyrirkomulagi og sparar það mikla fyrirhöfn og fé. Flökunarsalur Þegar hefja á vinnslu aflans er honum ekiö að fiskiðjuverinu og frá móttökunni er hann fluttur á færibandi upp á næstu hæð en þar er flökunarsalurinn. Að sögn Einars Sveinssonar er hægt að vinna tvær tegundir af fiski i flökunarsalnum i einu ef nauðsyn krefur. Annars geta flökunarvélarnar afkastað um 80 tonnum af karfa á 10 timum. f raun og veru eru flðkunar- vélarnar á 2. hæðinni undirstaða nýja bónusfyrirkomulagsins. Þarna eru tvær flutningsrásir i tvær flökunarvélar en væntan- lega bætist sú þriðja við á næst- unni. 1 flökunarsalnum vinna um 25 manns. Snyrting og pökkun I pökkunarsalnum fer fram snyrting og pökkun fiskflakanna. Þar fer hin eiginlega bónusvinna fram. Þvi bónuskerfi sem BÚR hefur tekið upp fylgja ýmsir erfiðleikar að sögn yfirmannanna. Að sögn Sturlu Erlendssonar verkstjóra, hefur nýja bónus- kerfið tvimælalaust sannað gildi sitt en ennsem komið er á fólk er- fitt með að áttasig á eðli kerfisins en búast má við að þegar meiri reynsla verði komið á kerfið þá aukist afköstin enn meir. Bónuskerfið nýja Mjög nákvæmt bókhald er haldið um vinnu hverfrar ein- stakrar manneskju. Skráðer hrá- efnið sem kemur á borðið það sem af gengur, vinnuvöndun, hraði og þyngd þess sem fram- leitt er. Vissar tölur eru reiknaðar af þessari framleiðslu og niðurstöðutölur þeirra er bónusupphæðin. Til þess að tryggja að vel sé unnið er öll framleiðslan rannsökuð af þar til bærum eftirlitskonum, sem skrá þær villur sem koma í ljós. Reyn- ist það koma oft fyrir að gallar finnist i pakkningum lendir hlut- aðeigandi starfsmaður i svoköll- uðum refsibónus eða fellur al- gjörlega úr bónuskerfinu i lengri eða skemmri tima i einu. Hvað segir starfsfólkið? Margrét Einarsdóttir, trúnaðarkona starfsfólks: ,,Að minu mati er ekki hægt að vinna i fiski án bónusfyrirkomu- lags. Þetta er ekki það skemmti- leg vinna þannig að nauðsynlegt er að borgað sé eftir afköstum. Ég kann vel við bónusinn. Það Sú breyting hefur verið gerð á t flökunarsalnum. Hann hefur veriö endurskipulagöur og geta þær tvær flökunarvélar seni eru I honum afkastaö 80 tonnuin á 10 tímum. Elfn Hallgrlmsdóttir, eftirlits- kona viö snyrtingu og pökkun. VisismyndirGVA Kristvin Kristvinsson verkstjóri i Bakkaskemmu. I

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.