Vísir


Vísir - 14.03.1979, Qupperneq 6

Vísir - 14.03.1979, Qupperneq 6
* + * ★ -X * * * * FREEPORTKLUBBURINN Spilakvöld verður fyrir félaga og maka þeirra í kaffiteríunni í Glœsibœ, fimmtudaginn 15. mars kl. 8.30 Skemmtinefndin ■*★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ ENDURREISN í ANDA FRJÁLSHYGGJU í kvöld verður haldinn fundur í Valhöll, Háaleitisbraut 1, um efnahagsfrumvarp Sjálfstœðisflokksins FUNDURINN HEFST KL. 20.30 Jónas Framsöqumenn: Jón Sólnes, alþingismaður Jónas Haraldz, bankastjóri Landsmálafélagið Vörður Allir velkomnir! UNGLINGA DANSLEIKUR FYRIR 16ARA OG ELDRI FRÁ 8-1130 iVIíck íeQcc HEFUR NÁÐ TAKMARKINU ! 1200 TIMUM EN HANN HELDUR ÁFRAM OG ÆTLAR SÉR AÐ GERA BETUR ”GLEYMD BÖRN’79. ÞAKKA - BLIKK OG STÁL- VEITTA FJARHAGSAÐSTOÐ video YMSIR KUNNIR LISTAMENN Munið söfnunina GLEYMD BÖRN 79, Miövikudagur 14. mars 1979 vtsm Lee Marvin og æskuvinkona hans Pameia, sem hann kvæntist I staö Michelle. Málaferli Lee Marvin Kví kmy ndaleikarinn, Lee Marvin, var á dögunum leiddur sjálfur fram sem vitni i mála- ferlunum milli hans og fyrrverandi sambýlis- konu hans, Michelle Triola Marvin. Bar hann það, að Michelle hefði eitt sinn boðið honum, að draga sig út úr lifi hans og að þau yrðu skilin að skipt- um, ef hann greiddi henni út i hönd 100 þúsund dollara. Eins og fram hefur komið i fréttum, hefur Michelle gert kröfu til helming tekna Lee Marvins á þvi sex ára bili, sem þau bjuggu saman. Þær tekjur eru sagðar hafa numið 3,5 milljónum dollara. — Segist hún hafa fórnað sinum eigin frama- vonum i söngnum til þess að annast Marvin, sem hafi þakkað henni með þvi að varpa henni á dyr. Málið hefur vakið feikna athyglifyrir það, að þar er riðið á vaðið með að sambýliskona úr óvigðrisambúðgerir sömukröfur til skipta við aðskilnað, og eiginkona getur átt rétt á við hjónaskilnað. Fyrsta árið eftir að þau slitiu samvistum greiddi Lee Marvin Michelle lifeyri, 833 dollara á mánuði, en hætti þvf siðan. Lögfræðingur Marvins hefur visað skiptakröfum Michelle al- gerlega á bug oghefur i málaferl- unum lagt sig fram við að gera fullyrðingar hennár tortryggileg- ar um, að hún hafi elskað Lee Marvin og annast, eins og umhyggjusamasta eginkona. Hefúr hann meðal annars leitt fram vitni, mann.sem segist hafa staðið i föstu ástarsambandi við Michelle um hrið, þegar hún bjó með Marvin. Vitnið bar, að Mich- elle hefði ennfremur sagt sér að öðrum friðli, sem hún hefði staðiö i sambandi við á þeim árum. I vitnastúkunni nú á dögunum sagði Lee Marvin, að veturinn 1969 hefðu þau Michelle rætt fjármál, og hún þá boðist til þess að hverfa á braut úr lifi hans, ef hann gerðihana út með 50þúsund dollara. — Nokkrum mánuðum siðar hefði málið svo aftur borið á góma þeirra í milli, en þá heföi Michelle hækkað sig upp i 100 þúsund dollara. Lee Marvin sagði ennfremur, að hann hefði að minnsta kosti tvivegis sagt Michelle hreint út, að hann vildi ekki hafa hana nærri sér. — Við töku myndarinn- ar „The Dirty Dozen” i Englandi sagði hhann henni að halda sér fjærri honum. Siðar i Nevada við töku myndarinnar ,,The Professionals”. Lykilorðið að talna ásunum er: ÁST! Ráöuneytin I Bonn hafa öll séö ástæöu til þess aö hengja upp á veggi hjá sér viövaranir til starfsstúlkna. Nefnilega til þess aö þær láti ekki njósnara kommúnistarikjanna draga sig á tálar. A spjöldunum stendur m.a.: „Eitt lykilorö gengur aö öllum læstum hirslum: AST!” Yfirmaöur gagnnjósna V- Þýskalands segir, aö þessum viövörunum sé einkum beint til kvenna, sem komnar eru yfir þritugt, en reynslan sýni, aö jiær hafi veriö veikastar fyrir aust- antjaldsflögurum, sem meö ból- fimi sinni hafi komist yfir margt rikisleyndarmáliö. Keppa að útnefn- ingu til forseta- framboðs Loweil Weicker, öldunga- deildarþingmaöur repúblikana, sem hvaö haröast gagnrýndi sinn eigin flokk og þáverandi forseta, Nixon, vegna Water- gatehneykslisins, lýsti þvi yfir um helgina, aö hann mundi sækjast eftir útnefningu repú- blikanaflokksins tii forseta- framboös 1980. Hann er þriöji repúblikaninn, sem vitaö er, aö stefnir aö for- setaframboöi. Hinir eru John Connally, fyrrum fjármálaráö- herra (og áöur þingmaöur demókrata), og ihaldsmaöurinn Philip Crane frá Illinois. Lancia og Saab saman um bíl Lancia á ttaliu og Saab-Scania i Sviþjóö hafa á prjónunum ráögerðir um að framleiöa I sameiningu nýjan bll á næsta ári, eftir þvi sem talsmaöur Lancia sagöi I Tórino fyrir skemmstu. Meö þvi hyggjast þessi fyrir- tæki reyna aö halda niöri hönn- unar- og framleiðslukostnaöi. Þessi fyrirætlun á þó enn eftir aö fá lokasamþykki aöalstjórna verksmiöjanna.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.