Vísir - 14.03.1979, Page 14

Vísir - 14.03.1979, Page 14
14 Auglýsing um breytingu á ákvœðum um klœðningu botn- og flotvörpu Ráðuneytiðhefurgert eftirfarandi breytingar á ákvæðum um klæðningu botn- og flotvörpu, og taka þær gildi 1. apríl 1979: 1. Heimilt er nú að nota svonefnda „pólska klæðningu" á allt að 18 öftustu metra efra byrðis botnvörpu og efra og neðra byrðis f lot- vörpu. Aðeins er heimilt að nota eitt byrði slíkrar klæðningar. A svæðum þar sem 155 mm riðill er lágmarks- möskvastærð er aðeins heimilt að nota „pólska klæðningu" á þann hluta belgs og poka, sem gerður er úr riðli með lágmarks- möskvastærðinni 155 mm. 2. Lágmarkslengd þenslugjarða er 45/100 af strengdri lengd netsins, þar sem gjörðin er fest. 3. Heimilt er að hafa í poka botnvörpu mottu eða húð til hlífðar fyrir grjóti. Stærð motta skal mest tveir fermetrar samtals, og gildir það, hvort varpan hefur einn eða tvo poka. Sjávarútvegsráðuneytið, 12. mars 1979. Auglýsing um spœrlingsveiðar Ráðuneytið hefur ákveðið að eftirfarandi reglur gildi um spærlingsveiðar á þessu ári: 1. Leyfi til spærlingsveiða verða aðeins veitt bátum 500 lestir og minni. 2. Eigi má veiði annarra f isktegunda en spærl- ings nema meiru en 5% af heildaraf la hverrar veiðiferðar. 3. Eigi er heimilt að veiða á grynnra vatni en 60 föðmum. 4. Fjarlægð milli fiskilínu og fótreipis varpna sé minnst 40 cm. Sé ekki notað venjulegt fót- reipi skulu keðjur hanga i bugtum niður úr fiskilinu og skulu bugtirnar ná a.m.k. 40 cm frá fiskilínunni. Gildir þetta ákvæði bæði um botn- og flotvörpur, sem notaðar eru til spærlingsveiða. Umsóknir skulu sendar sjávarútvegsráðu- neytinu, og skal í umsókn greina, hvort skip notar botn- eða flotvörpu til veiðanna. Sjávarútvegsráðuneytið, 12. mars 1979. Sjúkrahús ó Akureyri Tilboðóskast i að Ijúka frágangi skurðdeildar o.fl. í nýbyggingu við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Verkinu skal að fullu lokið 15. apríl, 1981. Útboðsgögn verða afhent á skrifstof u vorri og skrifstofu bæjarverkfræðings á Akureyri gegn 75.000.- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri þriðju- daginn 24. apríl 1979, kl. 11.00, fyrir hádegi. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Blaðburðarbörn óskast í Keflavík strax Miðvikudagur 14. mars 1979 visin Vísir veitir verðiaun fyrir bestu auglýsinguna: Dómnefndinaðstörfum: Frá vinstri: Kristmann Magnússon frá Verslunarráði is- lands, Páll Stefánsson auglýsingastjóri Vísis, Rafn Jónsson frá Neytendasamtök- unum, Þröstur Magnússon frá Félagi íslenskra teiknara og Björn Vilmundarson frá Samtökum íslenskra auglýsingastofa. ,/Silfurvísirinn,/ veittur árlega Visir veitir i dag, í fyrsta sinn, „Silfurvis- inn”, verðlaun fyrir bestu auglýsinguna sem birtist i Visi á ár- inu 1978. Ákveðið hefur verið að Visir veiti árlega þessi verðlaun. Verð- launin eru veitt þeim aðila, einstakling eða fyrirtæki sem unnið hefur auglýsinguna eða auglýsingaherferðina. „Silfurvisirinn” er hin álitlegasta silfur- stytta, smiðuð að þessu sinni af Jens Guðjóns- syni gullsmið. Dómnefndin, sem skipuð er fimm mönnum, hefur lokiö starfi sinu nú, og verða verð- launin fyrir bestu auglýsinguna 1978, veitt i dag klukkan 15:30 i Skálafelli, Hótel Esju. Fer verð- launaafhendingin fram að viö- stöddum fulltrúum frá aug- lýsingastofum og auglýsendum þeirra auglýsinga sem komust i siðasta forval sem eru sex aug- lýsingar alls. Ein þeirra fær „Silfurvisinn”. Auk þess verða fleiri gestir viðstaddir. Dómnefndin er skipuð Páli Stefánssyni, auglýsingastjóra Vi'sis, Þresti Magnússyni frá félagi Islenskra teiknara, Krist- manni Magnússyni frá Verslunarráði Islands Rafni Jónssyni frá Neytendasamtök- unum og Birni Vilmundarsyni frá Samtökum Islenskra aug- lýsingastofa. Ifyrsta forvali voru valdar úr um 200 auglýsingar sem birtust i Visi á slðasta ári. í öðru voru valdar úr 45 auglýsingar og loks sex auglýsingar. Vandað skuli til aug- lýsinga Sjónarmið Visis eru þau að sjálfsagt þyki að efla þá þróun að vanda til auglýsinga i fjöl- miðlum, bæði hvað varöar útlit, efni og aðrar upplýsingar. Til- gangurinn meö verðlaunaaf- hendingunni er meðal annars sá, að skapa aukin kynni meðal þeirra sem starfa i auglýsinga- heiminum, og vekja athygli al- mennings á þvi að það er alls ekki sama hvernig auglýsing er úr garði gerð, heldur eiga þær að vera sem heilsteyptastar og aðgengilegastarfyrir neytendur og veita þeim einfaldan og sannan boðskap, eins og Páll Stefánsson auglýsingastjóri orðaöi það. Stefnt er að þvi aö afhenda verðlaunin fyrir lok janúar ár hvert. — EA „Förum í viðrœðurnar ón skuldbindinga" segir Björgvin Guðmundsson „1 bréfi frá iönaðarráöherra er skýrt frá þvi að skipulags- nefnd um raforkumál hafi lokið störfum og hún hafi gert tillögur um stofnun nýs raforkufyrir- tækis, sem væri sameining I.andsvirkjunar Laxárvirkjun- ar og byggðallna og það er ósk- að eftir þvi að Reykjavikurborg skipi fulltrúa til viðræöna unt málið á grundvelli þessara til- lagna, en þetta var rætt i borgarráði og það er vilji meiri- hluta borgarráðs að það veröi fariö i þessar viðræöur án nokk- urra skuldbindinga ” sagði Björgvin Guðmundsson borgar- ráðsmaður f samtali við Visi i morgun. „Samkvæmt lögum er ekki hægt að stofna þetta fyrirtæki nema með samþykki borgar- stjórnar Reykjavikur, þvi ber ekki að taka þetta orðalag i bréfinu of bókstaflega þvi ég held að það sé öllum ljóst að þetta verður að vera samnings- atriði Málið verður tekið fyrir á fundi borgarráös i dag. Skipuð verður fimm manna viðræðu- nefnd sem i eiga sæti þrir menn frá meirihluta borgarstjórnar, tveir frá minniiilutanum og auk þessmunborgarstjóri vinna með nefndinni” sagöi Björgvin. — JM

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.