Morgunblaðið - 16.02.2001, Síða 4
Þangað sagði flugmaðurinn vera
meiri mótvind og þar sem hann
óttaðist að vera tæpur með elds-
neyti og í því væri auk þess vatns-
myndun væri um neyðarástand að
ræða hjá sér og vildi hann heldur
fá að koma til Reykjavíkur.
Þegar svo er ástatt á flugmað-
urinn síðasta orðið hvert farið er
og því lenti hann í Reykjavík.
Frá Grænlandi flaug flugmað-
urinn á öðrum hreyfli og tók flug-
MIKLAR varúðarráðstafanir voru
gerðar við Reykjavíkurflugvöll
þegar norsk flugvél af gerðinni
Piper Navajo, lenti þar klakklaust
um klukkan 17 í gær. Vélinni var
snúið við yfir Grænlandi vegna
vélarbilunar og fylgdi þyrla Land-
helgisgæslunnar, TF-LÍF, henni
síðasta spölinn til Reykjavíkur.
Að sögn varðstjóra í flugstjórn-
armiðstöðinni á Reykjavík-
urflugvelli fór vélin í loftið í
Reykjavík klukkan 11:19 í gær-
morgun áleiðis til Godthåb í
Grænlandi, sem var næsti við-
komustaður hennar á vesturleið.
Þegar hún var yfir Kulusuk á
austurströnd Grænlands klukkan
14:23 tilkynnti flugmaðurinn að
hann yrði að snúa við vegna bil-
unar í eldsneytiskerfi vinstri
hreyfils.
Óskað var eftir því að hann
sneri til Keflavíkur og lenti þar.
ið frá austurströndinni hálfa
þriðju klukkustund. Flugvélin er
af gerðinni Piper Navajo og átta
sæta en um borð voru tveir menn.
Lögreglan lokaði Suðurgötu
vegna komu vélarinnar og
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
var með mikinn viðbúnað, m.a.
var köfunarsveit þess á vettvangi
og fjöldi sjúkrabíla og dælubíla á
vettvangi.
Morgunblaðið/Júlíus
Lögregla og slökkvilið hafði mikinn viðbúnað þegar vélinni var lent á Reykjavíkurflugvelli um kl. 17 í gær.
Mikill viðbúnaður vegna norskrar flugvélar sem lenti á Reykjavíkurflugvelli
Morgunblaðið/Júlíus
Flugmaðurinn tilkynnti
um neyðarástand
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sléttari húð, aukinn ljómi og
fullkomin ró. Róandi næturkrem
sem færir húðinni vítamín.
Útsölustaðir:
Andorra Hafnarfirði, Bjarg Akranesi,
Bylgjan Kópavogi, Fína Mosfellsbæ,
Hjá Maríu Amaró, Akureyri, Hygea Kringlunni,
Hygea Laugavegi, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ.
l i :
i i, j i,
l j i, í ll ,
j í , i, i l i,
i, ti l i l i .
D-STRESS NÆTURKREM
Verkfallsboð-
un samþykkt
SJÓMENN í Verkalýðs- og
sjómannafélagi Keflavíkur og
nágrennis hafa samþykkt að
fara í ótímabundið verkfall 15.
mars nk. að því gefnu að ekki
hafi þá verið samið í kjaradeil-
um Sjómannasambands Ís-
lands og Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna.
Verkfallsboðunin var sam-
þykkt með 80% greiddra at-
kvæða, nei sögðu 20%. 88 eru á
kjörskrá og greiddu aðeins 25
þeirra, eða 28% félagsmanna,
atkvæði. Sjómannasambandinu
hefur verið falið umboð félags-
ins til að boða verkfall.
LENGING klifurreina og lýsing
ásamt aukinni þjónustu á Suður-
landsvegi frá Reykjavík að
Þrengslum og til Hveragerðis, eru
meðal aðgerða sem skoða á sérstak-
lega samkvæmt tillögu til þings-
ályktunar sem þrír þingmenn stjórn-
arflokkanna hafa lagt fram á Alþingi.
Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er
Kristján Pálsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, en meðflutningsmenn
þeir Ísólfur Gylfi Pálmason, Fram-
sóknarflokki, og Guðmundur Hall-
varðsson, Sjálfstæðisflokki.
Tillagan gerir ráð fyrir að sam-
gönguráðherra verði falið að gera til-
lögu um aðferðir til að mæta hárri
tíðni umferðaróhappa á Suðurlands-
vegi, enda hafi komið í ljós við athug-
un á slysatíðni á fjölförnustu þjóð-
vegum landsins að slysatíðni á
Hellisheiðarvegi milli Reykjavíkur
og Hveragerðis sé mjög há og óvið-
unandi. Því sé nauðsynlegt að grípa
til ráðstafana sem geti dregið úr
slysum á þessari leið, sem sé sú
þriðja fjölfarnasta á þjóðvegum
landsins.
Þá segir að ein af áhrifaríkari að-
ferðum sem beita megi til að fækka
slysum sé að greiða fyrir umferðinni
og bæta líðan ökumanna við akstur-
inn. Ljóst sé að of hæg umferð auki
hættu á framúrakstri en alvarleg-
ustu slysin verði einmitt við fram-
úrakstur. Með lengingu klifurreinar
upp heiðina frá Reykjavík mætti að
mestu taka fyrir framúrakstur á
þessari leið, þar sem mikið er um
blindhæðir og beygjur.
Í greinargerð með tillögunni kem-
ur jafnframt fram, að Vegagerðin
meti það svo að kostnaður við leng-
ingu klifurreinarinnar um 20 km yrði
um 600 milljónir kr.
„Lýsing leiðarinnar frá Hafnar-
firði til Reykjanesbæjar hefur sýnt
svo ekki verður um villst að slík að-
gerð dregur mikið úr óhöppum en
samkvæmt úttekt fækkaði óhöppum
á Reykjanes braut sunnan Hafnar-
fjarðar um 55% fyrstu tvö árin eftir
lýsingu. Þeir sem aka þessa leið dag-
lega geta einnig borið vitni um það
hve aksturinn varð allur auðveldari
eftir lýsinguna. Lýsing Hellisheiðar
mun kosta um 200 millj. kr. Slík
framkvæmd mun skila sér margfalt
til baka með fækkun slysa. Þjónusta
á Hellisheiðinni þarf endurskoðunar
við og þá sérstaklega yfir vetrartím-
ann. Skoða þarf sérstaklega hálku-
eyðandi aðgerðir og eftirlit lögreglu
með hraða,“ segir ennfremur í álykt-
uninni.
Þá er bent á að vegaáætlun verði
brátt endurskoðuð í heild sinni. Við
þá endurskoðun verði að ganga frá
því að Reykjanesbraut frá Hafnar-
firði til Reykjanesbæjar verði tvö-
földuð á tímabilinu 2002–2004. Vest-
urlandsvegur verði tvöfaldaður á
sama tímabili en Vesturlandsvegur
og Reykjanesbraut séu á fimm ára
vegáætlun 2000–2004 að hluta og
Reykjanesbrautin öll á langtíma-
áætlun í vegagerð. Úrbætur á Suð-
urlandsvegi séu hins vegar hvorki á
vegaáætlun til fimm ára né langtíma-
áætlun. Mjög áríðandi sé að þessi
framkvæmd komist á vegaáætlun við
næstu endurskoðun hennar og að
framkvæmdinni ljúki á tímabilinu
2002–2006.
Bætt umferðaröryggi á Suðurlandsvegi
Tillaga um lýsingu og
lengingu klifurreinar
Íslenskum harðviði ehf.
á Húsavík haldið gang-
andi næstu þrjá mánuði
Skipaaf-
greiðslan
tekur
reksturinn
á leigu
SKIPAAFGREIÐSLA Húsavíkur
ehf. tók í gær á leigu rekstur
þrotabús Íslensks harðviðar til
þriggja mánaða. Að sögn Helga
Pálssonar framkvæmdastjóra
Skipaafgreiðslu Húsavíkur er
markmiðið með leigusamningnum
að halda rekstri Íslensks harðviðar
gangandi svo ekki tapist verðmæti
sem felast í þekkingu starfsmanna.
Ennfremur á að koma í veg fyrir
að framleiðsluvörur fyrirtækisins
detti út af markaði.
Niðurstaða rekstrar-
ráðgjafa í marsbyrjun
Gert er ráð fyrir að niðurstaða
rekstrarráðgjafa PriceWater-
HouseCoopers um framtíðarmögu-
leika Íslensks harðviðar muni
liggja fyrir í marsbyrjun. Að feng-
inni umsögninni verður ljóst hvort
rekstrinum verður haldið áfram að
þriggja mánaða leigutímanum liðn-
um. Á leigutímanum er áætlað að
framleiða allt að 5 þúsund fer-
metra af parketi. Átta starfsmenn
verða við vinnu í fyrirtækinu en
voru 20 áður en það varð gjald-
þrota.
Stöðugleikinn
skiptir máli
„Það skiptir máli fyrir stað eins
og Húsavík að það ríki stöðugleiki
í umhverfinu, þannig að menn
reyna að gera eitthvað til að halda
fyrirtækinu gangandi,“ sagði
Helgi. „Það verður þó ekki farið af
stað aftur til frambúðar nema það
liggi ljóst fyrir að það sé hægt að
halda rekstrinum áfram af viti. Ef
skýrsla PriceWaterHouseCoopers
reynist neikvæð, þá hefur enginn
hug á því að fara af stað aftur.“
Stjórn Íslensks harðviðar ehf. ósk-
aði eftir gjaldþrotaskiptum síðla
síðasta mánaðar í kjölfar þess að
Byggðastofnun synjaði fyrirtækinu
um fjárhagsaðstoð. Um 170 millj-
ónir króna hvíla á fyrirtækinu og
eru stærstu kröfuhafar Byggða-
stofnun og Húsavíkurkaupstaður.
Hjá Skipaafgreiðslu Húsavíkur
ehf. vinna 13 starfsmenn. Skipa-
afgreiðslan hefur umboð fyrir
Eimskipafélag Íslands og afgreiðir
Samskip ennfremur. Hún er þjón-
ustuaðili Kísiliðjunnar og er
stærsti vörubrettaframleiðandi á
Íslandi.