Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 25
-5 )3%
"#
" " %" & %
%
" 3% '4
H"
#"!
/
hagsleg áhrif núverandi starfsemi á flugvell-
inum með því að byggja á svæðinu. Stefán
Ólafsson, höfundur skýrslu um valkostina fimm
og atkvæðagreiðsluna, segir að ef gert sé ráð
fyrir svipuðum margföldunaráhrifum 5.000
nýrra starfa og eru af núverandi flugvallar-
störfum megi búast við tífalt meiri atvinnuþýð-
ingu af hugmyndum svæðisskipulagsnefndar
en flugvallarstarfsemin veitir nú, eða um 110
milljarða kr. veltu í stað 11 milljarða kr. Tekur
hann fram í skýrslu sinni að þetta sé óvíst því ný
störf geti haft meiri eða minni margföldunar-
áhrif í hagkerfinu en núverandi flugvallarstörf.
Tekjuöflunarmöguleikar borgarinnar vegna 12
þúsund manna íbúðabyggðar bætist svo við.
„Við verðum að venja okkur af því að taka
alltaf afstöðu til mála út frá einhverjum sveit-
arfélagamörkum sem kannski verður til þess að
við tökum vondar ákvarðanir fyrir framtíðina,“
segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
þegar hún er spurð hvort henni þætti ekkert
óþægilegt að taka þátt í að vísa fluginu úr borg-
inni.
„Staðreyndin er sú að störf í Reykjavík eru
miklu fleiri en Reykvíkingar á vinnumarkaði.
Það vantar störf í sveitarfélögin fyrir sunnan
okkur. Flutningur vallarins gæti í því ljósi verið
liður í jöfnun atvinnutækifæra á svæðinu öllu
enda kom það mér verulega á óvart hversu vel
fjárhagslega sá kostur kom inn í myndina að
flytja völlinn suður fyrir Hafnarfjörð. Á hinn
bóginn vitum við að flutningaleiðir og sam-
göngumannvirki hafa alltaf vegið mjög þungt í
skipulagi borga og því er hugsanlegt að með
flutningi vallarins myndi þungamiðjan jafn-
framt flytjast sunnar ef innanlandsflugvöllur
væri kominn í Vatnsleysustrandarhrepp og
stórskipahöfn í Straumsvík, til viðbótar milli-
landafluginu í Keflavík. Ef ég horfi á þetta ein-
göngu út frá sjónarmiði Reykvíkinga væri ef til
vill ástæða til að hafa áhyggjur, en sé horft út
frá sjónarhorni höfuðborgarsvæðisins alls, væri
kannski í lagi þó þungamiðjan flyttist sunnar.
Svo stendur maður frammi fyrir því að meta
hvað geti komið í staðinn sem kunni að vega
þessa þungamiðju upp og þá veltir maður vöng-
um yfir því hvað skiptir orðið máli í nútíma sam-
félagi. Hvort vegur orðið þyngra flugvöllurinn
eða þekkingin? Ég veðja á að Háskóli Íslands
komi til með að verða segull fyrir þekkingar-
miðstöð sem gæti orðið til hvort sem flugvöll-
urinn fer að öllu leyti eða að hluta, “ segir Ingi-
björg Sólrún.
Flutningur til Keflavíkur
slæmur kostur að margra mati
Flutningur innanlandsflugsins til Keflavíkur-
flugvallar mun væntanlega hafa afdrifaríkar af-
leiðingar fyrir innanlandsflugið. Um það vitna
stjórnendur flugfélaga og höfundar skýrslna
sem vitnað er til. Ferðatími farþega mun lengj-
ast verulega og fargjöld hækka – og farþegum
fækka. Sennilega er þó ofmælt að innanlands-
flugið leggist af, erfitt er að sjá það fyrir sér.
Forsvarsmenn af landsbyggðinni hafa miklar
áhyggjur af hugmyndum um flutning flugsins
til Keflavíkur, telja að það muni skerða mjög
aðgengi íbúa þeirra staða sem eru háðir innan-
landsflugi að höfuðstjórnsýslu landsins í höf-
uðborginni. Þeir gera þá kröfu að Reykjavík
standi undir höfuðborgarnafnbótinni. Borgar-
stjórinn í Reykjavík segir að líta verði á höf-
uðborgarsvæðið allt í þessu efni, ekki einungis
miðborg Reykjavíkur. Flutningur innanlands-
flugsins á annan flugvöll á eða við höfuðborg-
arsvæðið væri mun betri kostur að mati flestra
viðmælenda, en flutningur flugsins til Keflavík-
ur, það er að segja ef nógu gott og fjárhagslega
hagkvæmt flugvallarstæði finnst.
Ferðaþjónustan og þeir sem starfa við flugið
á Reykjavíkurflugvelli hafa áhyggjur af flutn-
ingi vallarins annað, telja að það skaði ferða-
þjónustuna. Þær raddir heyrast þó frá ferða-
þjónustufólki úti á landi að bein tenging
innanlandsflugsins við millilandaflugið á Kefla-
víkurflugvelli gæti jafnað samkeppnisstöðu
þeirra.
Loks má nefna að flutningur sjúkra- og neyð-
arflugs til Keflavíkur gæti skert mjög öryggi
borgaranna, að mati forstöðumanna heilbrigð-
isstofnana, landlæknis og Almannavarna. Sam-
göngur eru órjúfanlegur hluti af heilbrigðis-
þjónustu og almannavörnum og skiptir máli að
hafa flugvöllinn sem næst stóru sjúkrahúsunum
í Reykjavík og björgunarsveitunum á höfuð-
borgarsvæðinu.
!"
#"$%
#"&" !"
#"$%
#"&" )3%&" " A 7 IA 3 4
" %&&7 -**9-
F)6!7"
%
7 % &" "#
" ()"$
/
/
. /
.
/
J@)3 % "3
%"2" K"$@!
"<"
@!4 ""$ 7 ()"$ %
$"%%"
4
7
( &-$@!"5%"
&" K3 4
A" )3%&"
>K3 2" K ?A!"A(
!2" K
! ""#$% & "<"
@!4 "
<
( &-$@!"5%"
&"
TENGLAR
...........................................................
Greinaflokkurinn birtist einnig á
Morgunblaðsvefnum: www.mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 25
Skortir húð þína raka?
Tilboð á rakakremum. Fjórar gerðir, allt eftir
húðgerð. Með kremunum fylgir glær snyrtitaska
full af lúxus sýnishornum,
ásamt hárklemmu
og svampi.
w
w
w
.b
io
th
er
m
.c
o
m
Laugavegi 23, sími 511 4533
Kynning í dag og á
morgun laugardag.
Líttu við og fáðu ráðgjöf
og sýnishorn.
Allir kostir fela í sér losun lands
Hugmyndir um nýtingu Vatnsmýrarinnar
miðað við ýmsa kosti.
Á morgun, 17. febrúar
FRAMTÍÐ FLUGVALLAR
Koma má ábendingum vegna greina-
flokksins til annars höfundarins, Jóhönnu
Ingvarsdóttur: join@mbl.is, og Skapta
Hallgrímssonar: skapti@mbl.is, vegna
fjarveru hins, Helga Bjarnasonar.
Viltu vörur án aukefna?
Á heimasíðu Náttúrulækningafélags
Íslands er gagnabanki með innihalds-
lýsingum á heilsuvörum, slóðin er:
www.heilsuvernd.is
Berum
ábyrgð á
eigin heilsu