Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 46
MINNINGAR 46 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Þegar ég brosti, brostir þú og oft þurftum við ekki nema augnabliks augnsamband til að vita hvað annað okkar átti við. Væntumþykjan var al- ger og gagnkvæm og í öllum mínum störfum varstu mín dyggasta stoð og tryggur vinur. Við áttum okkur margar uppáhaldsstundir og ein þeirra var þegar þú komst í dyra- gættina hjá mér, hristir góðlátlega höfuðið og gekkst síðan inn til þín. Þá stóð ég upp og elti, oftast nær að reyna að sannfæra þig um eitthvað og síðan hlógum við bæði. Önnur stund var þegar við buðum hvort öðru góðan daginn á morgnana, það var forgangsverkefni hjá okkur báð- um. Hugsanlega mun ég aldrei geta útskýrt fyrir öðrum hvers konar vinasamband þetta var, en það var mikið, einstakt og mér mjög kært. Í mínum huga varstu ávallt einn verðmætasti starfsmaður Morgun- blaðsins og verður alltaf. Þú varst perlan mín. Sama á hverju gekk þá varst þú alltaf á staðnum og tókst öllu með jafnaðargeði. Oft varst þú að niðurlotum kominn, áreitið var mikið og álagið eftir því. Samt fórstu aldrei og varst manna lengst í vinnunni; blaðið gekk alltaf fyrir öllu. Ég man þegar Jónína eiginkona þín nefndi fyrst við mig að hafa áhyggjur af þér. Það var á SÍA árshátíð árið 1997. Ári síðar nefndi hún sama áhyggjuefnið aftur og það var þá fyrst sem ég velti því fyrir mér hvort eitthvað væri að. Ég var fegin því þegar þú loksins meðtókst að fara í læknisskoðun en ekkert okkar grunaði hvaða upphaf að endi þetta var. Síðastliðið ár hef ég viljað trúa því að þú sért enn þar sem þú varst á Mogganum og að einn daginn munir þú hringja og bjóða mér í mat á 5. hæð í mötuneytinu. Það var samningurinn sem við gerðum þegar að ég hætti og við kvöddumst eftir síðasta samstarfsdag. En þannig hefur þetta ekki verið, eitt leiddi af öðru í veikindunum og allt réttlæti virðist hafa farið fyrir bí. Það er því erfitt að horfast í augu við að þurfa að kveðja þig, vinur, ég er ekki tilbú- in til þess en mun reyna þrátt fyrir allt. Jonný hældirðu alltaf óspart og ég skaut því oft að þér hvort þú myndir ekki örugglega eftir því að segja henni allt það sem þú sagðir um hana við mig. Það voru mikil og einlæg hrósyrði sem ég vona að hafi komist til skila. Hún var kletturinn við hlið þér, þekkti þig manna best og þér mikilvægust af öllum. Ég votta Jonnu, börnum, tengdabörnum, barnabörnum og öðrum vinum og vandamönnum mína dýpstu samúð. Sjálf trúi ég því að við munum ræða aftur saman en þar til þá mun ég varðveita minninguna um góðan vin og einstakan mann. Þín Rakel. Segja má að ég hafi átt viðskipti við auglýsingadeild Morgunblaðsins í fjörutíu og þrjú ár. Um tíma var fyrirtæki mitt einn allra stærsti aug- lýsandi blaðsins og sá ég um auglýs- ingarnar. Það gefur augaleið að ég þurfti gott samstarf við starfsmenn auglýsingadeildarinnar sérstaklega af því að ég vildi útbúa auglýsing- arnar sjálfur með þeirra aðstoð. Með allri virðingu fyrir öllu því góða starfsfólki sem ég hef unnið með á auglýsingadeild Morgunblaðsins, var Ragnar Örn Ásgeirsson minn allra besti aðstoðarmaður. Þessi rólegi, prúði og velviljaði maður varð í tímans rás vinur minn og mér þótti vænt um hann eins og trúlega öllum sem kynntust honum. Ragnar var afburða útsjónarsamur varðandi uppsetningu auglýsinga. Hans fágaði smekkur bjargaði oft „árásargjörnum“ auglýsingum mín- um og hann hafði sérstakt lag á því að fá mig til að sjá hvar ég fór offari. Stundum fannst mér ég vera orðinn eins konar starfsmaður auglýsinga- deildarinnar miðað við hvað ég var mikið á staðnum. Ragnar þurfti því oft á sinni rómuðu þolinmæði að halda gagnvart mér og hafði ég á til- finningunni að hann sýndi þessa þol- inmæði gagnvart flestum og er ekki víst að það hafi farið vel með hann. Að vera „prímus mótor“ á auglýs- ingadeild Morgunblaðsins er ekki tekið út með sælunni. Af og til ræddi ég um þetta við hann og hann brosti bara sínu góðlátlega brosi og sagði að þetta væri allt í lagi. En stundum fannst mér það alls ekki í lagi en að sjálfsögðu var það ekki í mínum verkahring að gera eitthvað í því nema hvað mig varðaði. Eftir að ég hætti aðalrekstri mín- um urðu ferðirnar færri á auglýs- ingadeildina en alltaf var mér tekið vel þegar ég þurfti að auglýsa og var Ragnar þar fremstur í flokki. Stund- um kom ég bara til að spjalla eins og góðum sveitamanni sæmir og jafnvel þó allt væri á öðrum endanum að vanda gaf Ragnar sér tíma til að tala við mig þótt það hafi örugglega kom- ið niður á vinnuálagi hans seinna um daginn. Aldrei heyrði ég Ragnar hallmæla nokkurri manneskju. Þegar ég ræddi við hann landsmálin eða önnur mál sem ég hafði að vanda sterka skoðun á, hafði Ragnar sömu aðferð við mig og þegar hann fágaði auglýs- ingarnar mínar, kom með annan flöt og rétti mig af. Það voru mikil sér- réttindi að fá að kynnast og „starfa“ með Ragnari Erni Ásgeirssyni. Fyr- ir það verð ég ávallt þakklátur. Ég veit að við eigum eftir að hittast aft- ur. Hann fór á undan mér „heim“ og það verður gott að hafa hann þar þegar ég kem þangað. Ég þakka Ragnari Erni Ásgeirssyni vini mín- um fyrir samferðina og við hjónin vottum aðstandendum og vinum hans okkar dýpstu samúð. Guðlaugur Bergmann. Góður vinur okkar og ferðafélagi er nú allur. Margra mánaða veikindastríði er lokið. Gegnum hug- ann streyma minningar um dagfars- prúðan og þægilegan mann. Á góðri stund var oft stutt í glettnina. Því fengum við að kynnast bæði á ferða- lögum og öðrum samverustundum. Vinátta fjölskyldna okkar á umliðn- um árum hefur verið ómetanleg. Með þessum fátæklegu orðum vilj- um við þakka Ragnari allt of stutta samfylgd. Elsku Jonný og fjölskylda; við vottum ykkur innilega samúð á þess- um erfiðu tímum. Vonandi munu góðar minningar verka sem smyrsl á sorgmæddar sálir. Kristbjörg, Guðlaugur, Aðalheiður og Björgvin. Látinn er langt um aldur fram gamall vinnufélagi minn, Ragnar Örn Áseirsson. Frá árinu 1965 unnum við saman í tíu ár á skemmtilegasta vinnustað þess tíma, Morgunblaðinu við Aðal- stræti. Þá var unnið í blýi og síðan tókum við þátt í að þróa vinnuferlið út í offset. Þá var haldin ógleyman- leg „blýkveðjuhátíð“ og við þurftum allir að venjast offsetinu ungir sem gamlir. Það gekk oft mikið á, sumir fóru með hálsbindin í vaxvélarnar og enn aðrir skáru sig í puttana. Við Ragnar vorum ungir þá og alltaf þegar við hittumst á förnum vegi eft- ir þetta skemmtum við okkur við að rifja upp þennan frábæra tíma. Ragnar er einn af þessum ógleym- anlegu vinnufélögum sem unnu með mér, sérstaklega vegna þess að hann var ósérhlífinn í vinnu, samvisku- samur og drengur góður og auðvelt að láta hann hlæja sínum smitandi hlátri. Það er erfitt að horfa á eftir þessum ljúfa dreng aðeins 55 ára gömlum, en Ragnar veiktist af alvar- legum sjúkdómi sem dró hann til dauða á stuttum tíma. Ég vil þakka Ragnari fyrir ógleymanlega við- kynningu og votta öllum aðstand- endum hans innilega samúð mína á þessum erfiðu tímamótum. Guð veri með ykkur öllum. Gamall vinnufélagi, Magnús Ólafsson. RAGNAR ÖRN ÁSGEIRSSON Það er mér bæði ljúft og sjálfsagt að minnast Ólafs Péturs Sigur- linnasonar með nokkr- um orðum. Ótrúlegt, að hartnær hálf öld sé liðin síðan ég fyrst leit þenn- an tilvonandi mág minn og oft finnst okkur eins og sumt hafi bara gerst í gær. Gylfi varð sautján ára þennan dag og þetta var fyrsta heimsókn mín á heimili foreldranna á Miklubraut 42. Ólafur kom inn í stofuna með tveggja ára Guðmund Pál á handleggnum og myndin í huga mínum gleymist ekki. Glæsilegur maður, samsvaraði sér vel, bjartur yfirlitum og svipurinn hreinn. Þá hafði hann líka dálítið ljóst liðað hár. Sem eldri bróðir hefði hann allt eins getað litið á okkur Gylfa sem krakkakjána en sannarlega var það ekki í eðli hans. Handtakið var hlýtt og taugaóstyrk stelpuhöndin mín varð pínulítil í lófanum hans Óla. Aldrei heyrðist hann tala illa um ÓLAFUR PÉTUR SIGURLINNASON ✝ Ólafur Pétur Sig-urlinnason fædd- ist 12. maí 1929. Hann varð bráð- kvaddur 5. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Garðakirkju á Álfta- nesi 12. febrúar. náungann og tók iðu- lega upp hanskann fyrir lítilmagnann án þess þó að hafa sig í frammi. Óli var að eðlisfari hlé- drægur en í vinahópi glaður á góðum stund- um og hafsjór af fróð- leik um samferðafólk á lífsins götum. Varla var nefndur svo bær á land- inu, að hann þekkti ekki fólkið sem þar bjó, stundum mann fram af manni. Faðirinn Sigurlinni Pétursson, bygginga- meistari og listamaður, var frum- kvöðull í smíði einingahúsa hér á landi og frá unga aldri var Óli hans hægri hönd, enda lærður smiður og laginn vel, eins og svo margir í ætt- inni. Sigurlinnahúsin svonefndu voru reist víðs vegar um landið og áttu sinn þátt í kynnum Óla við land og fólk. Hjálpsemi og greiðvikni Óla var einstök, það ber öllum saman um. Hvort sem það var gluggi, hurð eða þak, sem við hin höfðum engan tíma til að laga, var Óli óðara boðinn og bú- inn til verksins og áreiðanlega í hverju húsi systra hans og bræðra liggja handtök hans ótalin. Hann Óli mágur minn gaspraði ekki hæst á málþingum eða tróð sér fram í kapphlaupinu um lífsins gæði. Með allan darraðardansinn í kringum sig hló hann oft góðlátlega og sagði gjarna: „Já – það er skondið, þetta mannlíf.“ Þannig vil ég og margir fleiri muna góðan dreng, Ólaf Pétur. Við Gylfi og fjölskylda okkar vott- um börnum hans og öllum aðstand- endum innilega samúð. Þórunn Ólafsdóttir. Manns er hugvit lítið, lítið lífs þó von sé há, ekki skulum orðum eyða, aðeins hlusta – sjá. Allt á jörð og úti í geimnum á sinn tónamátt eilífðin í lit og ljóðum, lífs með hjartaslátt. Þar er guð með gæði lífsins get ég fundið hann, viltu ekki banka, bróðir og biðja fyrir mann? Þökk fyrir hjálpsemi og trygglyndi alla tíð. Hvíl í friði. Gylfi Eldjárn Sigurlinnason. ✝ Svava GuðrúnBaldvins Hauks- dóttir fæddist í Hveragerði hinn 17. júní 1951. Hún lést á heimili sínu í Reykja- vík hinn 7. febrúar síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Hauks Baldvinssonar og Vilmu Magnús- dóttur sem bæði eru látin. Systkini henn- ar eru: Svavar, Edda (látin), Örn og Hrafn. Svava eignaðist eina dóttur, Vilmu Kristínu Guðjónsdóttur, f. 26.7. 1971. Maki hennar er Kristleifur Leósson, f. 29.9. 1970, og eiga þau tvö börn, Sesselíu Dögg, f. 25.3. 1991, og Leó, f. 16.12. 1999. Svava stundaði hefðbundið nám í Barna- og gagn- fræðaskólanum í Hveragerði og vann eftir það við að- hlynningu aldraðra á Dvalarheimilinu Ási, en lengst af á hreppsskrifstofunni í Hveragerði sem nú er Bæjarskrifstofan. Eftir að hún flutti úr Hveragerði vann hún ýmis störf bæði í Reykjavík og á Hvolsvelli, en þar bjó hún síðustu árin. Útför Svövu fer fram frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður á Kotströnd í Ölfusi. Amma mín, hún Svava, er látin. Amma mín var góð kona. Ég fór oft á sumrin til hennar og langafa á Hvolsvöll. Þá brölluðum við mikið saman og það var alltaf gaman. Þegar ég var hjá henni töluðum við mikið saman. Amma var alltaf að gera eitthvað skemmtilegt fyrir mig eins og að setja upp hengirúm í garðinum hans langafa og fylgjast með sólmyrkvanum. Eitt kvöld þegar ég var hjá henni og við vorum að fara að sofa kom jarðskjálfti. Ég hélt að amma væri að hrista rúmið og amma hélt að ég væri að hrista rúmið. Svo sáum við að óróinn í loftinu hreyfðist og stytturnar í hillunni, þá vissum við að það var jarðskjálfti. Amma kom líka oft að heimsækja mig í Reykjavík og þá gerðum við líka oft eitthvað skemmtilegt sam- an. Amma ólst upp í Hveragerði. Seinna flutti hún til pabba síns á Hvolsvöll. Hún var kattavinur og hafði tvo ketti heima hjá sér, Mikki og Pasc- al. Hún hugsaði líka vel um kisur sem áttu hvergi heima eins og villi- köttinn sem hét SS og fékk oft mat hjá henni. Amma var dugleg að sauma og prjóna og kunni að mála silki. Hún gerði marga fallega hluti handa mér og við gerðum oft hluti saman. Amma hafði lengi verið veik og var lengi á sjúkrahúsi, þar leið henni vel. Henni leið líka vel ef hún var með fjölskyldunni eða vinum sín- um. Ég sakna ömmu minnar en veit að hún er núna hjá langafa, lang- ömmu og systur sinni. Sesselía Dögg. Oft gantaðist Svava vinkona okk- ar með það hér áður fyrr að á sautj- ánda júní væri alltaf flaggað fyrir deginum hennar. Þá sagði hún allt- af: „Nú býð ég sko á ball í kvöld.“ Þegar við horfum til baka þá finnst okkur svo stutt síðan allt lék í lyndi hjá henni og engar áhyggjur voru til. En í dag kveðjum við hana hinstu kveðju. Svava átti marga mjög góða kosti, hún var bráðskörp og allt sem hún tók sér fyrir lék í hönd- unum á henni. Það var alltaf svo gaman að finna hvað hún tók vel á móti okkur þegar við heimsóttum hana. Alltaf var svo fínt og hreint hjá henni og húmorinn ekki langt undan. Svava var virkur félagi til margra ára í Leikfélagi Hvera- gerðis og var leiklist og leikhús hennar aðal áhugamál. En einhvern veginn brosir lífið ekki við öllum og það gerði það svo sannarlega ekki við henni Svövu okkar. Hún barðist við þunglyndi mörg síðustu ár og var það henni og hennar nánustu mjög erfitt. Stundum var logn og stundum var stormur. Við sem „heilbrigð“ erum eigum oft erfitt með að skilja sjúkdóm sem þennan, hugsum gjarna: Þetta hlýtur að lagast. Nú er hennar þrautagöngu lokið hér á jörðu og er það trú okkar og von að henni líði vel þar sem hún er núna. Elsku Vilma Stína, Krissi og börn, megi góður guð styrkja ykk- ur á þessum erfiðu tímum í lífi ykk- ar. Hugur okkar er hjá ykkur. Einnig vottum við bræðrum Svövu og fjölskyldum þeirra samúð okkar. Hólmfríður Hilmisdóttir, Sigríður Sigurjónsdóttir. Kæra frænka. Nú þegar að kveðjustund er komið rifjast upp allar góðu æskuminningarnar. Í mínum uppvexti varstu alltaf nærri. Það var stutt að hlaupa nið- ur í Lindarbrekku, þar sem þú bjóst með afa og ömmu, og alltaf hafðir þú tíma fyrir litla frænku. Það var í raun ótrúlegt hversu mik- inn tíma þú gafst mér og hversu mikið lag þú hafðir á að vera á sama plani og maður sjálfur. Það gerði það að verkum að í huga mín- um varstu miklu meiri félagi en uppalandi, en það var jú í þann flokk sem flestir fullorðnir voru settir. Fyrsta skýra minning mín um þig er frá því að ég gekk inn spít- alaganginn til að heimsækja þig eftir að þú eignaðist litla dóttur. Þótt ég væri lítið að passa skipuðuð þið mæðgur alltaf sérstakan sess í huga mér. Á unglingsárum mínum var um- gengni okkar kannski mest. Starf þitt í leikfélaginu heillaði mig mik- ið, og það var sennilega sú braut sem þú hefðir helst viljað fara, hefðu hlutirnir æxlast öðruvísi. Það voru margar góðar stundir þegar ég sat á leikfélagsfundum eða fékk að fylgjast með þér á æfingum, ég var alveg klár á því að þú hefðir mikla hæfileika og bærir nafn lang- ömmu með miklum sóma, þú hefðir vel getað orðið mikil leikkona eins og hún. Þótt samgangur væri ekki eins mikill á síðari árum á ég alltaf mín- ar góðu minningar; ég mun muna þig eins og þú varst þegar ég var stoltust af þér – leikkona á sviði og virkur félagsmaður í leikfélaginu. Unnur Svavars. SVAVA GUÐRÚN BALDVINS HAUKSDÓTTIR Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.