Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 47 Mig langar til að kveðja vin minn, Reyni Sigurjón Sigurjónsson, sem andaðist hinn 21. janúar sl. Reynir var mjög góð- ur vinur minn, jafnaldri, félagi, og það skemmtilegur félagi, og tryggur vinur. Og hann reyndist mér ávallt sannur vinur og sýndi mér sín- ar bestu hliðar og þeim gleymi ég aldrei. Það var mikið áfall fyrir mig þegar ég frétti af andláti hans, og enn þá trúi ég því varla, jafnvel þótt ég hafi fylgt honum til hans hinstu hvílu, að hann sé ekki á meðal okkar. Enn er ég að spila lög sem við hlustuðum á svo mikið, með Rolling Stones og Guns ’n’ Roses og fleiri góðum. Og mörg þeirra minna mig al- veg hrikalega mikið á hann og okkar stundir sem við áttum saman sem vinir í gegnum tíðina. Að kveðja slíkan vin er mjög erfitt, það erfitt að ég ætlaði aldrei að geta komið orðum á blað til að kveðja hann endanlega á blaði. En í minningunni mun Reynir alltaf lifa hjá mér, sem góður maður, góður vinur og með gott hjarta sem hann, sem betur fer, opnaði ekki fyrir öllum.Hann stóð fast á sínu og hvikaði hvergi væri hann viss í sinni sök um einhvern ákveðinn hlut, eða einhvern ákveðinn þátt í lífinu. REYNIR SIGURJÓN SIGURJÓNSSON ✝ Reynir SigurjónSigurjónsson fæddist 29. október 1961. Hann lést 21. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá kapellunni í Hafnarfirði 26. janú- ar. Við lentum bæði „í ruglinu“ eins og það er svo oft kallað þegar fólk fer að drekka meira en „venjulegt“ fólk og jú – við komumst í kast við lögin. Og við lentum í fang- elsum annað slagið og fleira sem tilheyrir því að ganga ekki þennan gullna meðalveg í lífinu, sem ég get ekki skil- greint enn þá daginn í dag hver er, né hvernig á að feta hann. Við Reynir höfum þekkst í um 25 ár og var hann skemmtilegur og hæfileikaríkur, sem því miður naut sín ekki of oft. Og barngóður var hann – það fór aldrei á milli mála. Og þegar ég kom inn á heimili þeirra, hans og Huldu Ingi- bergsdóttur, sá ég hvernig föðurleg áhrif hann hafði á dætur hennar, hvað þær litu upp til hans og hvað þau áttu skemmtilega tíma saman. Gat ég ekki betur séð en að dætur hennar Huldu hreint dýrkuðu hann Reyni á sinn hátt, með virðingu.Og svo sannarlega átti hann Reynir þetta skilið. Hann var ánægður að vera með heimili og börn, það gaf honum óendanlega mikið. Hann dýrkaði stelpurnar og Alexander litla, það veit ég. Hann talaði oft um þau og heimilið. Reynir átti svo margt til að bera- sem ég ætla ekki að tíunda hérna núna, það yrði of langt mál, en það vita þeir sem hann þekktu, hans vinir, ættingjar og fleiri. En ég ber mikinn söknuð í hjarta og hugsa svo oft til Reynis og okkar vinanna sem eru ófá- ir og ég veit að Reynir Sigurjónsson hvílir í góðum höndum Drottins vors. Ég er viss um það. Mig langar til að segja nokkur orð við þig, Reynir minn, áður en ég lýk við þessi fátæk- legu orð til þín, og þau eru: Ég breiði úr dögunum fyrir framan mig, dögunum sem við höfum átt saman. Sumir voru bjartir eins og köld stjörnunótt, sumir gáfu frá sér ljóma eins og töfrasteinn, sumir voru kaldir, eins og djúpur hylur, sumir eins og logandi eldur. En hvað hefðu þeir verið án þín? Ég veit að æskuvinur þinn, sem er ekki staddur hérna núna, tekur undir þetta með mér og hann sendir þér sínar bestu vinarkveðjur og hinstu kveðjur og sárnar að hafa ekki getað verið viðstaddur jarðarför þína þar sem hann var staddur erlendis þá og vissi þetta ekki fyrr en allt var um garð gengið. En þú veist að hann hugsar til þín á ykkar sérstaka hátt og hann veit að þú ert hjá Guði, elsku Reynir okkar. Að lokum finnst mér að þú eigir að fá eitt af því fáa frum- samda eftir mig og kveð ég þig nú, minn ástkæri vinur. Megi Drottinn almáttugur styðja og styrkja móður þína, föður, systkini, ættingja, vini, Huldu, dætur hennar og Alexander og alla þá sem þig þekktu og sakna þín, hjartans vinur minn. Er dimma tekur, drýpur höfði strá er lifað hefur stormasaman vetur, nú vorið hefur vakið mína þrá á vogarskálar lífs og dauða setur. Er dagsins ljómi lýsir dal og grund geng ég ein – löngu troðna slóð, þögul sest – og horfi stutta stund á staðinn þar sem litla stráið stóð. Nú er þar ekkert nema landið kalt í lífi mínu myndast þáttaskil, en gjöfin – hún var göfugri en allt er gafstu mér með því að vera til. (B.G.) Þín vinkona alltaf, Bergþóra Guðmundsdóttir. Hann Emil er farinn í sína hinstu för en minningin um hann lif- ir. Vinir kveðja og í hugann koma óteljandi minningar. Fjölskylda okkar hefur átt mikið og farsælt samstarf við Emil og hans fjöl- skyldu. Við fengum að fylgjast með er faðir okkar og Emil tóku ákvarð- anir um að byggja fiskverkunarhús og við fórum líka með er farið var í sunnudagskaffi til Gústu og Emils. Þetta leiddi til órofa vináttu við Emil og fjölskyldu hans. Sumir okk- ar fengu fyrstu launin frá Emil, en það var fyrir að bera út það blað sem þetta er skrifað í. Emil sagði að allt sem í þessu blaði stæði væri hinn eini sannleikur, sem auðvitað var trúað eins og öðru sem hann sagði. Þegar Emil var heimsóttur spurði hann frétta af öllu mögulegu og ómögulegu. Hann fylgdist vel með öllu sem gerðist í okkar litla sam- henta samfélagi. Ef Gunnu Gjalda hafði verið gerður hrekkur spurðist EMIL JÓHANN MAGNÚSSON ✝ Emil JóhannMagnússon fæddist á Reyðar- firði 25. júlí 1921. Hann lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 8. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Garða- kirkju 15. febrúar. hann fyrir um hvort við hefðum verið að því eða ekki. Stundum þurfti maður að viðurkenna sökina og þá fékk mað- ur bágt fyrir hjá Emil og umvöndun, en sagði svo að lokum: Þetta var helv... gott hjá ykkur og hló svo hátt og hvellt á eftir. En Gunna var ein af hans bestu vin- um. Tiltal átti hann til að gefa okkur strákunum ef hann sá okkur ganga um eins og hengilmæn- ur og sagði: Réttið úr ykkur, annars verðið þið eins og gamlir menn með heypoka þegar þið verðið eldri. Mörg voru þau verk sem Emil tók að sér fyrir sveitunga sína, svo sem eins og að skrifa bréf til skattstjóra, sýslumanns og annarra höfðingja til að fá úrlausn hinna ýmsu mála, enda maðurinn sérlega pennafær og ís- lenskumaður góður. Emil var heimsborgari og átti virðingu allra er til hans þekktu. Hafði maður stundum á tilfinning- unni að þarna væri einn af þeim mönnum sem stjórnuðu landinu og segðu alþingismönnum og öðrum ráðamönnum hvernig þeir skyldu leysa sín vandamál. Emil skilur eftir sig stór spor í okkar byggðarlagi, byggðarlagi sem hann átti stóran þátt í að er það sem það er í dag. Verk hans voru myndarleg og vel gerð, hvort sem við horfum til barnanna, bygginga eða ráðlegg- inga. Munu spor hans standa um óm- unatíð. Að leiðarlokum viljum við öll sem eitt þakka Emil vináttu, sam- starf, skemmtileg kynni og öll þau óteljandi atriði sem ekki er tóm til að telja hér upp. Guð styrki fjölskyldu hans og ást- vini. Guðmundur Runólfsson, Ingibjörg Kristjáns- dóttir og fjölskyldur. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Útfararþjónustan ehf. Stofnuð 1990 Rúnar Geirmundsson útfararstjóri Símar 567 9110 og 893 8638 www.utfarir.is runar@utfarir.is                             +   (% #( ')'!'#  "!' 2  '!( ')'!' 2 8(4 '#  9:              .)        '    3#'. ! $# ; <' #="(!! &" ' %!# . !&" '  '  $# *#*#$*#*#*# ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Sjáum einnig um útfararþjónustu á allri landsbyggðinni. Áratuga reynsla. *     =  > =?<;  3% ($! '      !   % !    ,/)  ) ,-)00) &'   '  '  8(4 '# &" '  !* 8(4 '# &" '                            '      5 >     ;  )2@    .'!)="  '# $#     "##1$     =   ')$#.'!) &" '     ' "# $#   ( <' 2# $# 3#('!& =$ '# &" ' *          ;+><< 5 ? '#($! '  #&      +     ,/) (  ),-)00) 1)##;%  $# <' #- "# &" ' <' '##3 A( <' #;%  &" '  ##< ) #& $# <!;%  $# ##3 ' "# &" '    *#*#$*#*#*# *    %         B   ;#* 'C =$!2 (7#      1       ,/) (  ) ,-)00)  <! $# '    $# ! ## &" ' =$ '##  $# 3'# "# &" ' ))< #  &" ' . )## "# $# 5 &   &" ' '#5)## $# '   &" ' "(## 3#! '7 $# <' '##<!  $# =" %!&" ' *#*#$*#*#*# 2  - 3 < ? 723 ' *"!'      3) (   # $%    +(       (      40) ) ,5)50) 72# %! $#
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.