Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 57 DAGBÓK HJÓNIN Pam og Matthew Granovetter gefa út tímarit- ið Bridge Today og skrifa auk þess greinar í bridsblöð víða um heim. Þau hafa fast- an dálk í málgagni Banda- ríska bridssambandsins, sem er óvenjulegur að því leyti að þau rökræða um að- ferðir og eru sjaldnast á sama máli. Hér er dæmi frá þeim komið og við skulum fyrst setja okkur í spor norðurs, sem þarf að segja í erfiðri stöðu: Vestur gefur; allir á hættu. Norður ♠ ÁK7 ♥ 743 ♦ K7 ♣109874 Vestur Norður Austur Suður 1 hjarta Pass 2 hjörtu 3 tíglar Pass ??? Hvað myndi lesandinn segja við þremur tíglum makkers? Pamela hefur umræðuna með því að rifja upp þrjá sleggjudóma um sagnir: 1. Ef þú ert í vafa – meld- aðu. 2. Ef þú er í vafa – pass- aðu! 3. Ekki beita sögn sem makker gæti misskilið. Það er augljóst að eitt og tvö stangast á, en dálkahöf- undur er hallari undir sleggjudóm eitt og algerlega sammála þeim þriðja. Þegar spilið kom upp, sagði norður þrjá spaða. Hann hugsaði dæmið þannig: „Ég meldaði ekki einn spaða við einu hjarta og á því ekki ekta spaðalit. Makker á því að skilja sögnina sem svo að ég sé að sýna styrk í spaða með þrjú grönd eða fimm tígla í miðinu.“ En makker hans skildi ekki neitt í neinu og sagði pass: Norður ♠ ÁK7 ♥ 743 ♦ K7 ♣109874 Vestur Austur ♠ 108 ♠ D65432 ♥ ÁK652 ♥ DG108 ♦ D954 ♦ 6 ♣Á6 ♣G4 Suður ♠ G9 ♥ 9 ♦ ÁG10832 ♣KD52 Matthew bendir á að norður gæti hugsanlega átt veik spil með sexlit í spaða, sem ekki réttlættu inná- komu á spaða strax. Og því ekki það. Þriggja spaða sögnin dæmist því „loðin“ og líkleg til að misskiljast. Hjónin eru sammála um að norður ætti að passa þrjá tígla, en frá bæjardyrum dálkahöfundar virðist allt í lagi að segja þrjú hjörtu, sem leit að þremur grönd- um. Við því gæti suður hæg- lega stökkið í fimm tígla, jafnvel fimm lauf á grund- velli einspilsins í hjarta. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson. SKÁKÞINGI Reykjavíkur er nýlokið með sigri Íslands- meistarans Jóns Viktor Gunnarssonar. Hann hefur þrátt fyrir ungan aldur orðið nokkr- um sinnum Skák- meistari Reykja- víkur og mun án efa með sama framhaldi jafna met Þrastar Þór- hallsonar í fjölda skipta að bera þennan merka titil. Staðan kom upp á mótinu á milli Kristjáns Arnar Elíassonar (1685), en hann skipulagði sterkt hraðskák- mót fyrir stuttu á skemmti- staðnum Players, og Val- garðs Ingergssonar (1590). Ekki gat Kristján sýnt mik- ið listir sínar í Kópavogi en hann gerði það sannarlega í þessari skák á Skákþinginu. 42.Hxf6+! Rxf6 og svartur gafst upp um leið enda fokið í flest skjól eftir 43.Rd6+. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik Árnað heilla LJÓÐABROT STÖKUR Augun mín og augun þín, ó, þá fögru steina. Mitt er þitt, og þitt er mitt; þú veizt, hvað eg meina. * Langt er síðan sá eg hann, sannlega fríður var hann; allt, sem prýða má einn mann, mest af lýðum bar hann. * Man eg okkar fyrri fund forn þó ástin réni; nú er eins og hundur hund hitti á tófugreni. Vatnsenda-Rósa. STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake VATNSBERI Afmælisbarn dagsins: Þú ert góður vinur vina þinna og stundum svo að góðsemi þín gengur of langt og breytist í stjórnsemi. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það skiptir miklu máli að fyrstu kynni séu góð, sérstak- lega þegar um er að ræða við- kvæm störf þar sem fá önnur tækifæri gefast til kynningar. Naut (20. apríl - 20. maí)  Farðu eftir sannfæringu þinni því svo mikið veistu um málin að þú þarft ekki að elta fjöldann. Láttu sem ekkert sé þótt einhver mótbyr verði. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það tekur tímann sinn að kanna alla þá möguleika sem í boði eru og þú skalt flýta þér hægt því það skiptir sköpum að val þitt sé vel ígrundað. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú kemst nú ekki lengur hjá því að viðurkenna ákveðið vandamál. Það mun ekki leggja allt í rúst en þú getur ekki haldið áfram án þess að leysa það fyrst. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þeir eru margir sem líta til þín í von um ráð og leiðsögn. Ef þú ákveður að gefa kost á þér verðurðu að gæta þess vandlega að sýna tillitssemi og sveigjanleika. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Ef þú ert með einhverja drauga úr fortíðinni í far- angri þínum skaltu nú taka til og afgreiða þessi mál í eitt skipti fyrir öll. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Leyfðu gleði þinni að njóta sín því að hláturinn lengir líf- ið og það er ólíkt skemmti- legra að starfa í gleði en þar sem þyngslin ráða. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Fylgdu áætlun þinni fast eft- ir, hvað svo sem vinnufélagar þínir segja því þú hefur á réttu að standa en of mikil öf- und stýrir viðbrögðum þeirra. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það er eins og allt leiki í höndunum á þér og því skaltu nýta þér byrinn. En búðu þig jafnframt undir það að skjótt skipast veður í lofti. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú skalt alls ekki liggja á skoðunum þínum ef eftir þeim er leitað. En hafðu í huga að oft má ná sama marki eftir mismunandi leið- um. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú ættir að gera þér glaðan dag með einhverju móti, bara til þess að vera góður við sjálfan þig. Sýndu þínum nánustu tillitssemi. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú átt einkar auðvelt með að ná til annarra með boðskap þinn. En reyndu ekki að stytta honum leið; það hefnir sín alltaf fyrr en síðar. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 60ÁRA afmæli. Á morg-un, laugardaginn 17. febrúar, verður sextugur Davíð Gíslason læknir á Landspítala Vífilsstöðum, Eskiholti 8, Garðabæ. Hann og eiginkona hans, Guðrún Jónsdóttir, taka á móti gest- um í sal Læknafélags Ís- lands, Hlíðasmára 8, Kópa- vogi, kl. 16-19 á afmælis- daginn. 50ÁRA afmæli. Á morg-un, laugardaginn 17. febrúar, verður fimmtugur Sigurður Jónsson, skipu- lags- og byggingarfulltrúi sveitarfélagsins Ölfuss, Reykjabraut 4, Þorláks- höfn. Sigurður, ásamt konu sinni Sigríði Guðnadóttur, er með opið hús og tekur á móti gestum á afmælisdag- inn í samkomusal Grunn- skólans í Þorlákshöfn, Eg- ilsbraut 35, kl. 18 -21. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Með morgunkaffinu Ég ætla að fá fjóra eggjabakka. Krakkarnir fá að fara með í fríið.              DÚNDUR TILBOÐ Yfirhafnir tvær fyrir eina Greitt fyrir dýrari flíkina Opið laugardag frá kl. 10—16 Mörkinni 6, sími 588 5518 LAUGAVEGI 36 Opnaðu augun 30% verðlækkun á öllum gleraugnaumgjörðum & gleri. Gullsmiðir  Innilegt þakklæti til allra sem glöddu mig með gjöfum, heimsóttu mig og þeirra sem sendu skeyti eða hringdu á 80 ára afmæli mínu 9. febrúar. Guð blessi ykkur og launi. Markús Grétar Guðnason, Kirkjulækjarkoti. Ný verslun í Hamraborg 7. Glæsilegt úrval fyrir ungar konur á öllum aldri. YAZZ-Cartíse Hamraborg 1 sími 554 6996 Hamraborg 7 sími 554 4406
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.