Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN hefur lagt til að leyfðar verði veiðar á 200 tonnum af innfjarðarrækju í Öx- arfirði í vetur. Mjög lítið varð vart við rækju í árlegum haustrannsókn- arleiðangri á innfjarðarrækju fyrir Norðurlandi sl. haust vegna mikillar fiskgengdar. Lagði Hafrannsókna- stofnunin þá til að ekki yrðu stund- aðar rækjuveiðar í Húnaflóa, Skaga- firði, Skjálfanda og Öxarfirði á þess- um vetri. Í bráðabirgðatillögum Hafrann- sóknastofnunar sl. vor var lagt til að leyfðar yrðu veiðar á 350 tonnum af innfjarðarrækju í Öxarfirði í vetur en tillögurnar átti að endurskoða með hliðsjón af niðurstöðum haust- leiðangursins. Fremur lítið fannst af rækju í leiðangrinum í haust, en mik- ið af bæði ungþorski og ungýsu, og var svæðið ekki opnunarhæft af þeim sökum. Rækjukvótinn í Öxar- firði var 500 tonn á síðasta vetri. Mælingum á innfjarðarrækju- stofninum í Öxarfirði er nú nýlokið og segir Unnur Skúladóttir, fiski- fræðingur á Hafrannsóknastofnun, að mælst hafi meira af rækju þar en í mælingum í haust, auk þess sem töluvert hafi dregið úr fiskgengd í firðinum. Þó sé þar ennþá töluvert af ýsu. „Þó að við höfum ekki orðið vör við mikið af rækju í Öxarfirði teljum við óhætt að leyfa veiðar á um 200 tonnum af rækju þar í vetur. Það er góð nýliðun í rækjunni og jafnframt er hún þokkalega stór, eða um 28 stykki í kílói. Svo virðist sem þorskurinn hafi hopað af svæðinu frá því í mæling- unni í haust. Hins vegar er töluvert af tveggja ára ýsu á svæðinu og því höfum við sett sem skilyrði að not- aðar verði seiðaskiljur við veiðarn- ar.“ Kvótinn í Arnarfirði aukinn um 150 tonn Eins hefur Hafrannsóknastofnun in lagt til að innfjarðarrækjukvóti í Arnarfirði verði aukinn um 150 tonn eða í 650 tonn. Unnur segir að í Arn- arfirði virðist nú vera töluvert meiri rækja, miðað við mælingar sl. vor. Þar sé tveggja ára rækja ára mjög áberandi. Mælingum á innfjarðarrækju í Skálfanda, Húnaflóa og í Ísafjarðar- djúpi er einnig lokið en niðurstöður mælinganna liggja ekki fyrir. Ekki voru stundaðar neinar rækjuveiðar í Húnaflóa og Skjálf- anda á síðasta vetri. Hafrannsóknastofnun leggur til 200 tonna rækjuveiði í Öxarfirði Þorskurinn hefur hopað ALÞJÓÐA flugmálastofnunin, ICAO, hefur sent samgönguráðherra bréf þar sem fram kemur að ekki verði liðnar truflanir á alþjóðlegu flugi um ís- lenska flugstjórnarsvæðið og að endurteknar truflanir muni leiða til þess að flugumferðarþjón- ustan verði tekin úr höndum Íslendinga. Bréfið var sent í kjölfar þess að Þorgeir Pálsson flug- málastjóri sendi Alþjóða flugmálastofnuninni bréf þar sem hann tilkynnti um yfirvofandi verkfall flugumferðarstjóra í næstu viku. Í bréfi Alþjóða flugmálastofnunarinnar, sem undirritað er af Assad Kotaite, forseta ICAO, er samgönguráðherra bent á þær skyldur sem Ís- lendingar hafi tekist á hendur með samningi um umsjón með alþjóðlegu flugi á svæðinu umhverfis Ísland. Þar kemur m.a. fram að samkvæmt reglum sé lögð áhersla á að ríki sem veiti flug- umferðarþjónustu eigi að hyggja tímanlega að úr- lausn óvissuástands sem geti skapast og gera við- unandi ráðstafanir til þess að tryggja eðlilega flugumferðarþjónustu á því alþjóðlega flugsvæði sem þjónustan nær til. Í bréfinu segir jafnframt að endurteknar trufl- anir á flugumferðarþjónustu á flugstjórnarsvæð- um séu óviðunandi í augum alþjóða flugsamfélags- ins og hins almenna flugfarþega, hvort sem þær stafi af völdum verkfalla eða annarra aðstæðna. Finna þarf framtíðarlausn vegna hættunnar á verkföllum „Þar af leiðandi er nauðsynlegt að finna fram- tíðarlausn á þeirri yfirvofandi hættu sem verkfall skapar. Í því sambandi er rétt að benda yður á, varðandi svæðin yfir höfunum, að stjórn ICAO út- hlutar þeirri ábyrgð að veita þar flugumferðar- þjónustu. Ef ríki eru ófær um að veita þessa þjón- ustu í samræmi við ákvæði Viðauka 11 getur stjórnin þurft að endurúthluta þessari ábyrgð,“ segir síðan í lok bréfs ICAO til samgönguráð- herra. Á síðasta ári flugu um 94.000 alþjóðleg loftför í gegnum flugstjórnarsvæði Íslendinga, auk veru- legs herflugs sem ekki er talið með. Samkvæmt viðmiðunartölum sem alþjóðasamtök flugfélaga nota og fjölda þeirra flugvéla sem fljúga í gegnum svæðið má áætla að um svæðið fari í kringum 25 milljón flugfarþegar á ári og að um 60–120.000 far- þegar fari um svæðið daglega. Alþjóða flugmálastofnunin varar við afleiðingum verkfalls Truflanir á alþjóð- legu flugi ekki liðnar SNJÓRINN er mönnum misjafn- lega kærkominn og ekki endilega víst að þessir vinnandi menn fagni honum mjög. Öll él birtir þó upp um síðir og eflaust er hægt að nudda verkunum áfram þótt misjafnlega vel sjái út úr augum. Morgunblaðið/Jim Smart Kærkom- inn snjór? TALSMENN Bjarkar Guð- mundsdóttur hér á landi hafa nú staðfest að hún muni koma fram á Óskarsverðlaunahátíð- inni hinn 25. mars næstkom- andi. Þar mun hún flytja lagið „I’ve Seen it All“ sem tilnefnt er í flokki frumsaminna söng- laga ásamt hljómsveit sinni og 55 manna sinfóníuhljómsveit.  Vespertine/63 Björk syngur Óskarsverðlauna- hátíðin ÍSLENSK rannsókn gefur til kynna að yfir 20% þeirra sem beita börn kynferðislegu ofbeldi séu sjálfir yngri en 18 ára. Unglingar, sem misnota börn, hafa oft sjálfir verið misnotaðir, þeir eiga almennt í erfiðleikum með að tengjast jafnöldrum sínum og kvarta undan því að vera einmana, einangraðir og skildir út undan. Þetta er meðal þess sem kom fram á námstefnu dr. Rich- ards Beckett, bresks sérfræðings í málum ungra kynferðisbrotamanna, sem haldin var á vegum Barnaheilla og Barnaverndarstofu í gær. Dr. Beckett segir þetta ekki vera að ástæðulausu þar sem þessir ein- staklingar hafi iðulega orðið fyrir erf- iðri, niðurbrjótandi reynslu í æsku, verið misnotaðir, oftast með kynferð- islegu ofbeldi en einnig með líkam- legu ofbeldi. 20% barnaníðinga eru yngri en átján ára  Einangraðir/12 HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt mann í 12 mánaða fangelsi fyrir kyn- ferðisbrot gegn tveimur drengjum. Drengirnir voru 11 og 12 ára þegar maðurinn braut fyrst gegn þeim, en þeir voru 13 ára þegar mæður þeirra fóru fram á opinbera rannsókn. Maðurinn kynntist fyrst öðrum drengnum þegar hann flutti í sama hús. Hinn drengurinn var vinur þess fyrri. Þeir voru oft á heimili manns- ins og braut maðurinn gegn þeim þar. Við rannsókn málsins játaði mað- urinn allar sakargiftir. Héraðsdóm- ur Reykjavíkur dæmdi hann í 12 mánaða fangelsi og til að greiða drengjunum 450 og 200 þúsund krónur. Í dómi Hæstaréttar segir að brot mannsins séu alvarleg og þau hafi staðið yfir í langan tíma. Með hliðsjón af því að hann játaði brot sín undanbragðalaust þyki þó mega una við refsiákvörðun héraðsdóms um 12 mánaða fangelsi, en engin efni séu til að skilorðsbinda refsinguna. Hæstiréttur ákvað jafnframt að hækka miskabætur til drengjanna tveggja í 500 og 300 þúsund krónur. Árs fang- elsi fyrir brot gegn drengjum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.