Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 33
FJÖLMIÐLUN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 33 LO N D O N • E GI LS TA Ð IR • M A N H A TT A N • H ÚS A VÍ K • L O N D O N • B A R CE LO N A • A KU R EY R I • A LI CA N TE Saxoline Verð: 4.900.- 4 stærðir: VERÐ KR. 7.000.- 8.500.- 9.500.- 10.500.- 4 stærðir: VERÐ KR. 5.200.- 6.000.- 7.000.- 8.000.- 4 stærðir: VERÐ KR. 5.200.- 6.000.- 7.000.- 8.000.- Verð: 5.300.- MJÚKI og vinalegi slúð-urstíllinn, sem Spán-verjinn Eduardo Sanch-ez Junco hefur ásamt móður sinni þróað í Hola! hefur gengið ágætlega í Breta síðan breska útgáfan, Hello!, fór að koma út fyrir tólf árum. Það er reyndar merkilegt, því flest dagblöð í Bret- landi, sem sérhæfa sig í slúðri um frægt fólk, gera það af nánast mis- kunnarlausri hörku. Þar sem Hello! virðist liggja í al- gjörlega gagnstæðum hluta blaða- heimsins miðað við þessi blöð vakti það mikla athygli þegar Phil Hall tók við í janúar sem ritstjóri tíma- ritsins. Þar til síðastliðið vor var hann ritstjóri News of the World, sem er eitt allra svæsnasta og ósvífnasta dagblað í heimi og hefur líklega komið fleiri breskum stjórn- málamönnum frá en flestir aðrir miðlar með kynlífssögum af þeim. Það er kannski stefna, sem borgar sig, því blaðið er stærsta dagblað Bretlands og tilheyrir fjölmiðlaveldi Ruperts Murdochs, auk blaða eins og Sun, Times og Sunday Times. Í viðtali við Financial Times tek- ur Hall undir að þessi kúvending hans kunni að virðast undarleg, en aðalatriðið sé að hann skilji þann markað, sem hann miði á. Hann hef- ur reyndar í hug að breyta um áherslur, spyrja skarpari spurninga í stað kjánaspurninga um útlit og klippingu, en síðdegisblaðastíllinn verður þó ekki tekinn upp. En það veitir heldur ekki af að hugsa á nýj- um brautum, því samkeppnin er gallhörð í slúðurgeiranum. Hola!-veldinu fjarstýrt frá Spáni Útgáfa Hola! hófst 1944 og það hefur frá upphafi verið glanstíma- rit. Fastur liður er heimsókn til frægs fólks eins og aðalsmanna, konungborinna, auðmanna, kvik- mynda- og poppstjarna og stöku stjórnmálamenn fljóta með. Þá er heimilið myndað og bæði heimafólk og heimilið sýnt í sem bestu ljósi. Oftast eru hinir heim- sóttu ánægðir með að fá þessa góðu umfjöllun, sem allir vita hver er, en þegar mikið liggur við hikar tíma- ritið ekki við að borga fyrir aðganginn. Svo eru það auðvitað myndir frá ýms- um uppákomum er frægt fólk heimsækir og svo fréttir af brúðkaupum og öðrum merkisatburðum. Þrátt fyrir æ harðari og ófyrirleitna framgöngu síð- degisblaða er lifa á slúðri og meiri áherslu þar á alls kyns afhjúpanir, hvort sem er ástalífið, eiturlyfja- neysla, fjármál eða eitt- hvað annað, þá hefur hið spænska Hola! haldið sínu milda striki. Þar er enn allt með felldu, allir brosa, eru fallegir og hamingjusamir. Sama gildir um frönsku og ensku útgáfuna. Því hefur oft verið spáð að dagar þessarar frétta- mennsku hlytu senn að vera taldir, en svo virðist öldungis ekki vera. Þótt það sé vísast að hluta sömu lesendur sem lepja í sig harðsnúið og oft nánast ill- kvittið slúður síðdegisblað- anna og svo sætsúpuna í Hola! og systurblöðunum þá virðist krafan um hörku ekki snerta útbreiðslu þessara blaða. Junco og móðir hans hafa ekki farið sér í neinu óðslega, en stýrt tímaritinu með harðri hendi. Þrátt fyrir að tímaritið eigi að baki tólf ára útgáfusögu í Bretlandi hafa þau mæðginin ævinlega átt síðasta orðið um hvert tölublað og jafnvel hefur oft verið flogið með umbrotnar síð- ur til Spánar svo þau gætu metið út- komuna. Þessu verður nú breytt. Hall á að hafa frjálsar hendur. Keppt um dreifingu og velstæða kaupendur Hall, sem er 46 ára, var ritstjóri New of the World 1995–2000, þegar honum var sagt upp nokkuð harka- lega til að rýma fyrir hinni 31 árs Rebekuh Wade, sem hafði gert það gott sem aðstoðarritstjóri Sun. Uppsögnin var mikið blaðaefni í fyrra og talin þungt áfall fyrir Hall. Ástæðan var talin sú að Hall þætti ekki nógu harður. Hann átti sæti í nefnd, sem tekur fyrir klögumál á hendur breskum blöðum og þar kom hans eigið blað ekki ósjaldan við sögu. Það var talið draga úr nauðsynlegri hörku, auk þess sem sala News of the World var fallandi. Hann gerðist fjölmiðlaráðgjafi, studdi meðal annars Mohamed Fay- ed, eiganda Harrods, í misheppn- aðri tilraunum til að kaupa Daily- blöðin og hafði vísast vonast til að komast þar í ritstjórastól, tækjust þau kaup. Þá kom tilboðið frá Hello! upp í hendur hans. Helstu keppinautar Hello! eru OK!, sem er bein stæling á Hello!, hóf göngu sem mánaðarrit 1993, var síðan breytt í vikublað eins og fyr- irmyndin og hefur oft á undanförn- um árum tekist að krækja í góðar einkasögur. Síðasti uppslátturinn var einkaréttur OK! á myndum úr brúðkaupi filmstirnanna Michaels Douglas og Catherine Zeta-Jones. Hello! hefur enn vinninginn með tæp 459 þúsund seld eintök á viku fyrri hluta 2000, en þá var OK! að- eins 3500 eintökum undir. Þessar tölur gætu hafa snúist við, ekki síst vegna mikillar sölu þegar sagt var frá áðurnefndu brúðkaupi. Hall segist stefna á sölu upp á 500 þúsund eintök, en þeirri tölu náði blaðið, þegar sal- an var mest. En samkeppn- in kemur einnig frá tíma- ritum eins og Tatler og Harpers & Queen, sem eru reyndar með aðeins öðru- vísi áherslur, en sinna einn- ig slúðri af krafti. En keppnin um seld ein- tök er aðeins hluti af sam- keppninni. Annar hluti hennar er samkeppnin um auglýsendur. Hér stefnir Hall á að Hello! höfði til vel stæðra kaupenda, því það gerir blaðið verðmætara sem auglýsingamiðil. Til þess að ná til þessa hóps og verða klárlega kjörið viku- rit hinna velstæðu álítur Hall að það þurfi að breyta efnisáherslum. Það mun því ekki aðeins duga að vera frægur til að komast í Hello! Fótbolta- menn og sjónvarpsstjörn- ur, sem verða tilfallandi frægar eru ekki efni, sem höfða til hinna velstæðu, álítur Hall. Heldur ekki konungsfjölskyldur eða þeir, sem hafa verið frægir árum saman. Galdurinn liggur í að ná annars vegar í efni um þá, sem eru að verða frægir, hins vegar að fylgjast vel með tískuheiminum, hræringum þar og tískuhönnuðun- um sjálfum. Samstarf við fleiri miðla nauðsynlegt Ef þessi stefna Hall gengur upp gæti honum tekist að gera nægilega greinargóðan mun á Hello! og OK! og aðgreina lesendahóp tímarit- anna. Það ætti þá að duga til að aug- lýsendur gerðu greinarmun á tíma- ritunum tveimur og Hello! laðaði til sín þá sem auglýsa dýrar vörur. Það gæti aukið auglýsingatekjur um- fram það sem dreifingin ein gefur tilefni til. En það er fleira í farvatninu en eingöngu dreifing og skýr afmörk- un lesendahópsins. Fyrir tveimur árum hætti Hello! við að hleypa af stokkunum sjónvarpsþætti, því til- raunaframleiðsla gaf ekki tilefni til bjartsýni. OK! gerði tilraun í sömu átt nýlega, en það þótt ekki takst vel. Hello! fer því varlega í sakirnar, en fyrri áætlanir hafa nú verið tekn- ar til endurskoðunar. Það er ein- faldlega álitið nauðsynlegt að vera á vettvangi fleiri miðla en útgáfunnar einnar. Netútgáfa er auðvitað þegar til. En það er hægt að auka sýnileika tímarits á fleiri vegu. Það vakti óhjákvæmilega taugatitring á Hello! í haust þegar Richard Desmond, sem á bæði OK! og ýmis klámrit, keypti Sunday Express, Daily Express og Daily Star. Þar með er OK! tryggð aðganga að dag- blöðum með mikla dreifingu, auk þess sem tímaritið getur þá deilt sögum og kostnaði með dagblöðun- um. Að sögn Guardian stefnir Hall á gott samstarf við dagblöðin bresku, en hefur ekki sama aðgang og OK! Hins vegar bindur hann vonir við að nýlegt samband Junco og Roth- ermere lávarðar stjórnarformanns Daily Mail og General Trust Group, sem ræður yfir öflugri fjölmiðla- maskínu, muni skila Hello! góðu samstarfi við blöð. Líkt og um OK! sér hann fyrir sér að dagblöð lá- varðarins gætu komið efni Hello! á framfæri og deilt með sér kostnaði við dýrar sögur. Það leiðir nefnilega eitt af öðru í þessum geira. Eftir því sem slúð- urblöðin ganga harðar fram í efnis- öflun reyna fórnarlömbin æ frekar að skýla sér. Um leið verður dýrara að afla efnisins, því það verður erf- iðara að komast að fræga fólkinu. Og þá þarf líka oft að greiða ein- hverjum lausmálgum fyrir að slúðra. En Hall ætlar reyndar einnig að leggja áherslu á góða blaða- mennsku og það þykja uppgrip fyr- ir hann að hafa ráðið Ben Fogle, sem annars er þekktur fyrir nátt- úruefni að Hello! Fogle á að ferðast um og skrifa ferðaefni. Miðað við fyrri áherslur kemur á óvart að fyrsti viðkomustaðurinn gæti að sögn Hall orðið Galapagos eyjarnar, því Hello! hefur ekki verið þekkt fyrir áhuga á náttúruvernd – en það þarf að minnsta kosti ekki að borga risaskjaldbökunum fyrir einkasögur af olíulekanum. Tímaritið Hello! stefnir á nýjan markhóp Reuters Meðal þeirra sem hafa verið á forsíðu breska blaðs- ins Hello! eru hjónin David Bowie og Iman. Hér eru þau með nýfæddu barni sínu, Alexandriu Zahra, á forsíðu tímaritsins í september á síðasta ári. News of the World er frægt fyrir óvægna elt- ingarleiki við frægt fólk. Nú er fyrrverandi rit- stjóri þess orðinn rit- stjóri slúðurtímaritsins Hello! sem er frægt fyr- ir smjaðurslegan stíl og hyggst breyta áherslum Hello!, segir Sigrún Davíðsdóttir, þótt hann ætli ekki að taka harka- lega á fræga fólkinu. Mörkinni 3, sími 588 0640G læ si le ga r gj af av ör ur Bjórglös kr. 1.550 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14. Með prentara og án prentara Fyrir rafhlöðu og 220 V AC RÖKRÁS EHF. Kirkjulundi 19, sími 565 9393 Hágæða vogir á góðu verði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.