Morgunblaðið - 16.02.2001, Page 8

Morgunblaðið - 16.02.2001, Page 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Því miður, herra, fósturvísarnir hafa verið teknir út í bili en kokksi hefur bætt tveimur nýjum riðuréttum á seðilinn, kálfariðu gúllas og kjötmjöls velling. Söguvefur Heimdallar Vefurinn hluti af frelsi.is Í GÆRKVÖLD varformlega opnaðurSöguvefur Heimdall- ar en í dag er það félag 74 ára gamalt. Björgvin Guð- mundsson er formaður Heimdallar. Hann var spurður hvert væri hlut- verk Söguvefjar Heimdall- ar. „Hlutverk Söguvefjar Heimdallar er að taka saman allt það mikla efni sem hefur verið skrifað um starfsemi Heimdallar und- anfarna sjö áratugi og gera það aðgengilegt öllum á vefnum. Saga Heimdallar er bæði löng og skemmti- leg og geta allir heimdell- ingar verið stoltir af henni.“ – Hvernig er þessi vefur skipulagður? „Við byggjum vefinn á annálum félagsins sem hafa ver- ið ritaðir í afmælisritum Heim- dallar í gegnum tíðina. Þessi frá- sögn er skreytt með myndum úr starfi Heimdallar frá upphafi árið 1927.“ – Er mikið varðveitt af upplýs- ingum um starf Heimdallar á fyrstu áratugunum? „Já, menn voru duglegir að skrá þá miklu og öflugu starfsemi sem ungir sjálfstæðismenn stóðu fyrir á upphafsárum félagsins og er gaman að skoða upplýsingar frá þessum árum og sjá hve margir voru virkir í starfsemi félagsins.“ – Hverjir komu að gerð Söguve- fjar Heimdallar? „Stjórn Heimdallar hefur skipulagt uppsetningu vefjarins en við Gísli Hauksson höfum séð um efnistök. Konráð Jónsson skipulagði hönnun og uppbygg- ingu vefjarins. Á Söguvef Heim- dallar má t.d. sjá tímalínu, þ.e. línu með árum þar sem helstu viðburð- ir hvers árs eru tilgreindir. Þarna eru allar gamlar stjórnir félagsins nefndar, sagt frá aðdraganda stofnunar félagsins og skemmti- legt er að lesa hvernig helstu for- ystumenn Sjálfstæðisflokksins sáu hlutverk Heimdallar árið 1947 – en það sjónarmið gæti alveg eins átt við í dag og þannig er það með margt fleira úr sögunni.“ – Hvernig kemst fólk inn á þennan vef? „Söguvefur Heimdallar er und- irvefur frelsis.is. Þá fara menn fyrst inn á frelsi.is, síðan smella þeir á mynd sem á stendur Sögu- vefur Heimdallar, sem leiðir þá inn á vefinn.“ – Hvers vegna fóruð þið út í þennan „söguvefnað“? „Þegar við fórum að lesa gömul afmælisrit fannst okkur gaman að geta séð alla þá löngu sögu sem Heimdallur á, hversu öflugt félag- ið hefur verið á vettvangi stjórn- málanna og haft mikil áhrif á gang mála, sérstaklega innan Sjálf- stæðisflokksins. Þarna hafa marg- ir merkilegir menn starfað og unnið að hugsjónum Heimdallar sem forystumenn á öllum tímum hafa talið mikilvæga rödd í innra starfi flokksins. Félag- ið hefur líka verið mik- ilvægt flokknum til þess að ná til unga fólksins og vinna það til fylgis við stefnu Sjálf- stæðisflokksins.“ – Fer fram mikil starfsemi á vegum Heimdallar? „Já, það hefur verið öflugt starf í vetur. Okkar starf felst m.a. í því að halda úti daglegri útgáfu á Frelsi.is, þar sem sjónarmiðum okkar er komið á framfæri og veitt er mikil athygli. Frelsi.is á nú tveggja ára afmæli og það telst hár aldur í heimi vefrita.“ – Heimsækja margir frelsi.is? „Já, vefurinn hefur verið í stöð- ugri sókn. Hann var endurbættur í sumar og síðan þá hefur heim- sóknum fjölgað mikið og er enn að fjölga.“ – Um hvað skrifið þið? „Bæði tökum við fyrir mál sem eru í deiglunni á hverjum tíma og einnig er nokkuð skrifað um hug- myndafræði. Þá er hægt að nálg- ast þarna allar greinar sem birtast eftir sjálfstæðismenn annars stað- ar og er þeim safnað í gagnagrunn sem allir, ungir sem aldnir, geta nálgast. Þar má sjá og lesa hug- myndir og skoðanir um ýmis mál, einnig er léttmeti inn á milli.“ – Eruð þið með myndasafn? „Já, á frelsi.is er hægt að fletta upp í myndasafni Heimdallar myndum sem sýna bæði atburði og aðgerðir sem stjórn Heimdall- ar hefur staðið fyrir.“ – Er mikið mál að koma á lagg- irnar svona vef eins og Söguvef Heimdallar? „Það krefst mikils tíma og vinnu að koma svona miklu gömlu efni á tölvutækt form. Sjálfboðaliðar hafa unnið þetta starf í sínum frí- tíma. Við höfum verið að lesa okk- ar til um sögu Heimdallar frá ára- mótum en mesta vinnan við innslátt hefur farið fram sl. vikur. Við vorum fjórir sem skrifuðum á tölvur allt þetta efni.“ – Til hvers voruð þið að þessu núna? „Öll blaðaútgáfa er orðin svo kostnaðarsöm fyrir svona félag að vef- ur af þessu tagi hefur gjörbreytt tækifærum til þess að miðla upplýs- ingum til þeirra sem áhuga hafa á starfsemi félagsins. Vegna þess að þetta eru dagleg skrif er hægt að bregðast fljótt við öllu sem gerist í samfélaginu og hópurinn sem nálgast getur efnið er ekki bara félagsmenn, en áður var lesendahópurinn miklu ein- skorðaðri við félaga Heimdallar. Björgvin Guðmundsson  Björgvin Guðmundsson fædd- ist í Hafnarfirði árið 1973. Hann lauk stúdentsprófi frá Flens- borgarskóla 1994. Eftir að hafa verið til sjós um tíma hóf hann nám í stjórnmálafræði við Há- skóla Íslands og stundar þar nú nám í hagfræði. Auk sjómennsk- unnar hefur hann starfað við rannsóknarverkefni á vegum Nýsköpunarsjóðs Háskóla Ís- lands og verið aðstoðarmaður við rannsóknir hjá Birgi Þór Runólfssyni dósent. Björgvin er formaður Heimdallar og ritstjóri Frelsi.is, áður sat hann í stjórn Varðbergs og var oddviti Vöku í stúdentaráði HÍ. Vefur af þessu tagi gjörbreytir möguleikum á að miðla upplýsingum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.