Morgunblaðið - 16.02.2001, Qupperneq 18
AKUREYRI
18 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Akureyri - Atvinnuhús
Þessi húseign við Furuvelli á Akureyri er til sölu. Heild-
arstærð er um 1.660 fm og stærð lóðar um 2.300 fm.
Húsnæðið er tvískipt, þ.e. framhús, sem er á tveimur
hæðum, svo og bakhús sem er á einni hæð. Stað-
setning er mjög góð og hentar húsnæðið mjög vel til
hvers konar verslunar-, þjónustu- eða atvinnustarf-
semi.
Upplýsingar hjá
fasteignasölunni Eignakjör ehf.,
Akureyri, sími 462 6441
NÁM í nýrri upplýsingatæknideild
hefst við Háskólann á Akureyri næsta
haust, en þar verður kennd tölvunar-
fræði til BS-prófs. Mark O’Brien er
ráðgjafi háskólans við uppbyggingu
þessarar nýju deildar og hefur hann
sótt um stöðu deildarforseta og pró-
fessors við deildina. Hann er eini um-
sækjandinn um stöðuna og verður
væntanlega gengið frá ráðningu hans
á næstu vikum. Mark O’Brien er nú
aðstoðardeildarforseti við raunvís-
indadeild Háskólans í Nottingham í
Englandi.
Þorsteinn Gunnarsson rektor Há-
skólans á Akureyri sagði að gert væri
ráð fyrir að nemendur yrðu 20-30
talsins til að byrja með. Þessi nýja
deild við háskólann er sett upp í sam-
vinnu við Íslenska erfðagreiningu, en
samningar þessa efnis voru undirrit-
aðir skömmu fyrir síðustu jól. Mun
fyrirtækið að sögn rektors kosta
rekstur þessarar deildar að verulegu
leyti. Deild af svipuðum toga var kom-
ið á fót við Háskólann í Nottingham
árið 1986 og þar stunda nú um 1.000
manns nám, þannig að uppbyggingin
hefur verið hröð. Gert er ráð fyrir að
töluvert samstarf verði milli háskól-
anna tveggja, á Akureyri og í Nott-
hingham, í kjölfar þessa.
Mikill hvalreki
„Það er afskaplega ánægjulegt að
við höfum náði í svo góðan og færan
mann sem Mark O’Brien, það er mik-
ill hvalreki,“ sagði Garðar Birgisson
forstöðumaður Íslenskrar erfðagrein-
ingar á Akureyri. Hann sagði að nám-
ið í hinni nýju upplýsingatæknideild
yrði metnaðarfullt og myndi standast
það besta sem byðist í þessum efnum.
Fram kom á fundi þar sem starf-
semi hinnar nýju deildar var kynnt að
mikil eftirspurn væri eftir fólki með
menntun af þessu tagi og hún virtist
ekkert vera að minnka. Þess væru
jafnvel dæmi að fyrirtæki þyrftu að
leita út fyrir landsteinana til að fá
nægan vinnukraft.
Morgunblaðið/Kristján
Hin nýja deild við Háskólann á Akureyri kynnt. F.v. Reynir Eiríksson, framkvæmdastjóri Mekka hugbún-
aðarlausna, Mark O’Brien, sem sótt hefur um stöðu deildarforseta og prófessors, Þorsteinn Gunnarsson, rektor
HA, Garðar Birgisson, forstöðumaður ÍE á Akureyri, og Helgi Gestsson, lektor við rekstrardeild HA.
Samstarf Háskólans og ÍE um
nám í upplýsingatæknideild
Mark O’Brien, aðstoðardeildarstjóri raunvísindadeildar Háskólans
í Nottingham, verður ráðinn deildarforseti við Háskólann á Akureyri
VALGERÐUR H. Bjarnadóttir
framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu
hefur sent bæjarráði Akureyrar
erindi, þar sem hún fer fram á leið-
réttingu launamismununar sem
hún telur sig hafa orðið fyrir sem
jafnréttis- og fræðslufulltrúi á ár-
unum 1991-1995. Valgerður sagðist
í samtali við Morgunblaðið ekki
hafa reiknað það út hversu mikla
peninga þarna væri um að ræða en
þó einhverjar milljónir króna.
Bæjarráð tók erindið fyrir á
fundi sínum í gær og þar var bæj-
arstjóra og bæjarlögmanni falið að
taka saman greinargerð um málið
sem verður lögð fyrir næsta fund
bæjarráðs, á fimmtudag í næstu
viku. Valgerður sagðist hafa gefið
bæjarráði frest til næsta mánu-
dags til að svara erindi sínu. „Þeir
eru búnir að hafa 10 ár og mér
finnst það orðið ágætt. Ég er ekki
að fara fram á að bæjaryfirvöld
gefi mér endanlegt svar en vil
heyra frá þeim eftir helgi. Ég þarf
á upplýsingum frá þeim að halda
til að geta reiknað þennan mun út
en einhvern tíma höfðum við þó
fengið út að þessi munur væri í
kringum þrjár milljónir króna.“
Valgerður sagðist ekki vita
hvort grein Kristjáns Þórs Júlí-
ussonar bæjarstjóra í Morgun-
blaðinu í vikunni væri svar en þar
segi hann um hið svokallaða Ragn-
hildarmál að ekki væri um for-
dæmismál að ræða nema í algjör-
lega sambærilegu máli. „Ég álít að
mitt mál sé algjörlega sambærilegt
við mál Ragnhildar. Að þeirri nið-
urstöðu höfðu bæjaryfirvöld kom-
ist árið 1998 og bæri því að leið-
rétta laun okkar beggja þess
vegna. Bæjaryfirvöld voru að
ganga til samninga við okkur þeg-
ar skyndilega var hætt við, vegna
bæjarstjórnarkosninga og meiri-
hlutaskipta.“
Valgerður fer fram á að fá
greiddan þann mismun sem var á
launum hennar og launatengdum
greiðslum umræddan tíma og þeim
sem greidd voru til þeirra karla
sem gegndu starfi atvinnumálafull-
trúa þann sama tíma og eðlilega
vexti af upphæðinni.
Fyrrverandi jafnréttis- og fræðslufulltrúi Akureyrarbæjar
Fer fram á fulla leiðréttingu
vegna launamismununar
„KVEÐJUR“ nefndi Davíð
Stefánsson þriðju ljóðabók
sína, sem hann sendi frá sér ár-
ið 1924, þá 29 ára að aldri. Ljóð-
in úr þessari bók skáldsins frá
Fagraskógi ætlar Erlingur Sig-
urðarson, forstöðumaður Húss
skáldsins, að flytja í Davíðs-
húsi, Bjarkarstíg 6, á föstu-
dagskvöld, 16. febrúar. Dag-
skráin hefst kl. 20.30, en húsið
verður opið kl. 20–22.
Ljóðakvöld
í Davíðs-
húsi
FRÁ huga til handar er yfirskrift
sýningar sem opnuð var á Amts-
bókasafninu á Akureyri um
helgina, en hún stendur til 15.
mars næstkomandi. Yfirskrifin á
að vísa til lestrar almennt, bækur
miðla hugsun, boðun og trú til þess
sem les þær frá þeim sem ritar. En
á milli þess sem miðlar og þess sem
tekur við á sér stað heilmikið ferli.
Á sýningunni er saga prents og
bókaútgáfu á Íslandi í sviðsljósinu
með sérstakri áherslu á útgáfu
Biblíunnar. Þetta er löng og fjöl-
breytileg saga sem snert hefur alla
þætti íslensks samfélags og mótað
það. Sagan er dregin fram með
margvíslegum hætti. Þar eru
gamlar Biblíuútgáfur til sýnis og
gerð grein fyrir þeim. Munir sem
varðveist hafa úr sögu prentiðn-
aðarins í tímans rás eru einnig til
sýnis og notkun þeirra skýrð. Þá
er í máli og myndum tvinnuð sam-
an útgáfusaga Biblíunnar og þró-
un prentiðnaðarins á Íslandi og
hún rakin frá fyrstu tíð og allt til
vorra daga.
Félag bókagerðarmanna, Hið ís-
lenska Biblíufélag, Landsbókasafn
Íslands – Háskólabókasafn, Sam-
tök iðnaðarins, Amtsbókasafnið á
Akureyri og Minjasafnið á Ak-
ureyri standa fyrir þessari sýn-
ingu.
Morgunblaðið/Kristján
Lárus Zophaníasson og Jón Arn-
þórsson spjalla saman og skoða
sýninguna á Amtsbókasafninu.
Amtsbókasafnið
á Akureyri
Sýningin
Frá huga
til handar
opnuð
Mark O’Brien var á ferð ásamt eig-
inkonu sinni um Norðurland síðasta
sumar og fóru þau m.a. í Mývatns-
sveit og til Akureyrar og heilluðust
þau svo af að þau gátu vel hugsað
sér að flytja búferlum. Eiginkonan
nefndi við hann hvort verið gæti að
háskóli væri á Akureyri en slíkt
taldi hann ekki líklegt. Þegar þau
voru komin heim aftur athugaði
O’Brien að gamni sínu á Netinu
hvort svo gæti verið og komst að
því sér til mikillar ánægju að þar
væri starfandi Háskólinn á Ak-
ureyri. Fyrirspurn hans um hugs-
anlegt starf við háskólann kom ein-
mitt á sama tíma og farið var að
huga að uppbyggingu þessarar
nýju deildar. Samstarfið við Ís-
lenska erfðagreiningu gerði svo
kleift að hægt var að ráða hann að
deildinni.
Skyldi vera háskóli
á Akureyri?