Morgunblaðið - 16.02.2001, Side 28
ERLENT
28 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
RÉTTARHALD í máli erfingja
auðkýfingsins Howards Marshalls
II tók á sig nýja mynd í vikunni
þegar ekkja hans, Anna Nicole
Smith, mætti í vitnastúku á nýjan
leik. Orðaskipti Nicole Smith og
Rusty Hardins, lögfræðings sonar
Marshalls, E. Pierce Marshall, hafa
vakið mikla kátínu meðal þeirra
sem fylgjast með réttarhaldinu.
„Hr. Hardin, þú ert öfuguggi,“
sagði hún þegar lögfræðingurinn
hélt því fram að hún hefði fækkað
fötum til að ginna níræðan eig-
inmann sinn til að lesa yfirlýsingu
inn á segulband um að hún ætti að
vera fjárhaldsmaður hans. „Þetta
er ekki satt og mér býður við þér,“
sagði hún.
Smith er 33 ára gömul og kynnt-
ist Marshall þegar hún var við
vinnu sína á nektardansstað í Hou-
ston 1994. Þau gengu í hjónaband
skömmu síðar og var hún þá 26 ára
en hann 89 ára gamall. Marshall
lést ári síðar úr elli. Smith höfðaði
ásamt syni Marshalls, J. Howard
Marshall III sem sviptur hefur ver-
ið arfi, mál á hendur fjárhalds-
manni Marshalls, syninum E.
Pierce Marshall, í því skyni að fá
sinn hlut í auðæfunum. Smith féll
þó frá kröfum sínum í Texas eftir
að dómstóll í Kaliforníu komst að
þeirri niðurstöðu að 450 milljónir
dollara ættu að falla í hlut hennar
eftir að hún færði rök fyrir því að
Marshall hefði lofað henni helm-
ingi eigna sinna. Eignirnar hafa
verið metnar á tvo milljarða doll-
ara, andvirði 170 milljarða króna.
Pierce Marshall var ekki sáttur við
þau málalok og áfrýjaði úrskurð-
inum. Lögfræðingar hans benda á
að nafn Smith komi ekki fyrir í
erfðaskrá og segja hana ekki eiga
rétt á neinu fé.
Smith bar vitni í réttarhöldunum
fyrir tveimur vikum og sneri aftur
í vitnastúkuna sl. mánudag. Íbúar
Houston hafa fylgst spenntir með
framburði hennar og fjölmiðlar
hafa verið duglegir að flytja fréttir
úr réttarsal. The New York Times
segir næstvinsælustu (á eftir amer-
ískum fótbolta) afþreyingu íbúa
Texas vera þá að fylgjast með ríku
fólki rífast um peninga og því beri
vel í veiði nú. Anna Nicole Smith
þykir líka einkar skemmtilegt
vitni, grætur og hrópar á víxl.
Vitnisburður hennar þykir einnig
jafn óútreiknanlegur og hún sjálf.
„Þetta er betri afþreying en
sápuópera,“ sagði hin 58 ára
gamla Lillian Seifried sem í stað
þess að gæta barnabarna sinna
fylgdist með réttarhöldunum.
„Hún er mjög skemmtileg og hún
virðist vera skemmtilegur félagi.
Þar að auki er hún sæt.“
Sl. þriðjudag brast Nicole Smith
í grát þegar hún lýsti því hvernig
henni hefði verið útskúfað af fjöl-
skyldu Marshalls, henni hefði ekki
einu sinni verið sagt að hann væri
dauðvona. „Allir hötuðu mig og
gáfu mér ekki einu sinni tæki-
færi,“ sagði hún þegar hún ræddi
um atburði vorsins 1995 þegar hún
fékk aðeins að umgangast eig-
inmann sinn í 30 mínútur á dag eft-
ir að Pierce hafði verið úrskurð-
aður fjárhaldsmaður föður síns,
eftir málaferli.
Á miðvikudag var rætt um áð-
urnefndar segulbandsupptökur.
Lögfræðingur Pierce, Hardin,
gaf í skyn að Smith hefði berað
brjóst sín til að fá Marshall til að
segja að hún ætti að verða fjár-
haldsmaður hans. Hardin benti á
að milljónamæringurinn segði
hvergi berum orðum á spólunum
að Smith ætti að erfa helming auð-
æfa hans. Lokaspurning Hardins
þann dag réttarhaldanna, sem
spáð er að vari fram í mars, var
hvað stæði á stuttermabol Frú
Marshall eins og hann kallar hana.
„Spillt,“ svaraði Anna Nicole að
bragði.
Anna Nicole Smith kemur fyrir rétt vegna deilu erfingja auðkýfingsins Howards Marshalls II
Grætur og hrópar á víxl
J. Howard Marshall II var orðinn 89 ára gamall þeg-
ar hann kvæntist Nicole Smith sem var þá 26 ára.
Houston. AP.
AP
Anna Nicole Smith segir sænsku leikkonuna Anitu
Ekberg vera eina af fyrirmyndum sínum.
ÍBÚAR í Persaflóaríkinu Barein
greiddu í gær og í fyrradag at-
kvæði um hvort endurreisa ætti
lýðræði í landinu. Búist er við að
tillagan verði samþykkt með
miklum meirihluta atkvæða.
Kosið er um stjórnskipunar-
yfirlýsingu, sem emírinn lagði
fram, en hún felur í sér að ein-
ræði emírsins er afnumið og að
tekið verður upp þingbundið
konungdæmi. Samkvæmt tillög-
unni verður neðri deild þingsins
þjóðkjörin en emírinn tilnefnir
fulltrúa í efri deild. Dómstólun-
um verður einnig veitt sjálf-
stæði. Ef tillagan verður sam-
þykkt munu breytingarnar taka
gildi að fullu eigi síðar en árið
2004.
Í Barein býr tæplega hálf
milljón manna og um helmingur
þeirra er á kosningaaldri, yfir 21
árs.
Emírinn vill friðmælast
við meirihluta sjíta-múslima
Lýðræði ríkti í Barein í
skamman tíma á 8. áratugnum.
Fyrsta þing landsins var leyst
upp árið 1975, eftir tveggja ára
setu, og síðan hefur emírinn far-
ið með völdin. Emírinn og fjöl-
skylda hans eru súnníta-múslim-
ar, en sjíta-múslimar eru hins
vegar í nokkrum meirihluta í
landinu og hafa þeir á undan-
förnum árum krafist lýðræðis-
umbóta. Nokkurs óróa gætti í
Barein af þessum sökum á ár-
unum 1994 til 1998, en þáverandi
þjóðhöfðingi var ekki reiðubúinn
að taka upp lýðræðislega stjórn-
arhætti og bældi niður alla and-
stöðu. Sonur hans og núverandi
emír, Sheikh Hamad, hefur hins
vegar reynt að friðmælast við
sjíta-meirihlutann frá því hann
tók við völdum árið 1999.
Tillögurnar um endurreisn
lýðræðis í landinu eru liður í
þeirri viðleitni, en þær fela með-
al annars í sér að tekin verði upp
stjórnarskrá, þar sem öllum
borgurum séu tryggð jöfn rétt-
indi, óháð trú, trúflokki eða
kyni. Emírinn hefur einnig veitt
um 1.100 pólitískum föngum úr
röðum sjíta lausn úr haldi síðan
hann kom til valda.
Sheik Abdul-Ameer al-Jamri,
sjíta-klerkur og einn af leiðtog-
um stjórnarandstöðunnar, hefur
lýst yfir stuðningi við þjóðarat-
kvæðagreiðsluna og fagnað um-
bótavilja emírsins. Ýmis mann-
réttindasamtök, þar á meðal
Amnesty International og Hum-
an Rights Watch, hafa einnig
lýst ánægju með þróunina í
landinu frá valdatöku Sheik Ha-
mad.
AP
Bareinskar konur á kjörstað í höfuðborginni Manama í gær.
Kosið um lýð-
ræði í Barein
Manama. AFP, AP.
FYRSTU afskipti George W. Bush,
forseta Bandaríkjanna, af málefnum
Miðausturlanda þykja benda til þess
að hann hyggist reyna að gæta hlut-
leysis í deilum Ísraela og Palestínu-
manna. Stjórnmálaskýrendur segja
líklegt að þetta valdi óánægju meðal
Ísraela, sem hafa notið góðs af sterk-
um tengslum við Bandaríkin.
Bush hringdi í Ehud Barak, fráfar-
andi forsætisráðherra Ísraels, til að
fordæma árás á strætisvagnabiðstöð í
Ísrael, sem kostaði átta manns lífið í
fyrradag, og votta Ísraelum samúð
sína. Forsetinn skoraði einnig á Ís-
raela og Palestínumenn að slíðra
sverðin.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
gagnrýndi her Ísraels fyrir að vega
einn af yfirmönnum lífvarða Yassers
Arafats, leiðtoga Palestínumanna, í
þyrluárás á þriðjudag. Ráðuneytið
sagði að Ísraelar ættu einnig sök á of-
beldinu sem hefur magnast á síðustu
dögum.
Bush hyggst ekki hafa jafn mikil af-
skipti af friðarviðræðunum og forveri
hans í forsetaembættinu, Bill Clinton,
og Ariel Sharon, verðandi forsætis-
ráðherra Ísraels, er ánægður með þau
áform. En sú viðleitni nýju stjórnar-
innar í Washington að gæta hlutleysis
er hins vegar ekki líkleg til að gleðja
Ísraela.
Ísraelskir embættismenn reyndu
að gera lítið úr gagnrýni bandaríska
utanríkisráðuneytisins. „Ég tel að
Bandaríkjastjórn skilji hvernig
ástandið er. Utanríkisráðuneytið þarf
að gera ákveðna hluti til að viðhalda
ákveðnu jafnvægi og sýna að það
dragi ekki taum Ísraela,“ sagði hátt-
settur embættismaður í Jerúsalem.
„Sjálfsvörn“ verði ekki
jafnað við „hermdarverk“
Fram hafa þó komið skýrar vís-
bendingar um að Ísraelar séu ekki
ánægðir með þá afstöðu Banda-
ríkjastjórnar að báðum þjóðunum
sé um að kenna.
Yfirlýsing frá Ísraelsstjórn um
samtal Bush og Baraks bendir til þess
að ísraelski forsætisráðherrann hafi
látið í ljósi óánægju með gagnrýni ut-
anríkisráðuneytisins. „Forsætisráð-
herrann lagði einnig áherslu á að við-
brögðum Ísraela – sem einkennast af
yfirvegun og nærgætni og eru liður í
sjálfsvörn þeirra – ætti ekki að jafna
við hermdarverk Palestínumanna
sem skaða saklausa borgara,“ sagði í
yfirlýsingunni.
Ísraelska dagblaðið Jerusalem
Post gagnrýndi Bandaríkjastjórn í
forystugrein í gær og sagði að hún
hefði valdið „skaða með því að neita að
gera greinarmun á fórnarlömbum og
árásarseggjum“. „Ekki er ljóst hvers
vegna stjórn Bush hyggst halda þeirri
misheppnuðu stefnu Clintons að gera
ekki siðferðilegan greinarmun á
hermdarverkum og baráttunni gegn
þeim.“
Blaðið skoraði á Bush að lýsa því af-
dráttarlaust yfir að stjórn hans styddi
Ísraela í baráttu þeirra gegn hermd-
arverkum. „Engin haldbær rök eru
fyrir því að umbuna Palestínumönn-
um fyrir hryðjuverk með því að jafna
þeim við sjálfsvörn.“
Heimildarmaður á þingi Ísraels
sagði að það myndi taka ísraelsku
ráðamennina nokkurn tíma að sætta
sig við hlutleysisviðleitni Bandaríkja-
stjórnar. „Ísraelar bjuggust við því að
Bandaríkjastjórn myndi votta þeim
samúð sína. Hún fékk tækifæri til að
lýsa yfir samstöðu með Ísraelum. En
Bush beindi einnig athyglinni að
þeirri staðreynd að báðir aðilar verða
að reyna að binda enda á ofbeldið,“
sagði heimildarmaðurinn. Palestínu-
menn hafa lengi sakað Bandaríkja-
menn um að draga taum Ísraela og
Yasser Arafat fagnaði í gær áskorun
Bush um að Ísraelar og Palestínu-
menn slíðruðu sverðin.
Stjórn Bush haldi að sér
höndum í friðarviðræðunum
Sharon hefur sagt að hann sé
hlynntur friðarviðræðum við Palest-
ínumenn ef ofbeldinu linni og sam-
starfsmenn hans segja að bandarískir
embættismenn hafi stutt þá afstöðu í
viðræðum í Washington fyrr í vikunni.
„Viðræðurnar voru mjög hlýlegar og
andinn var mjög góður,“ sagði hátt-
settur embættismaður í Ísrael. „Gert
er ráð fyrir því að stjórn Bush haldi
sig í hæfilegri fjarlægð í friðarviðræð-
unum og skipti sér ekki af þeim nema
þegar tækifæri gefst til að þoka þeim
áfram eða koma þeim úr sjálfheldu.“
Sharon álítur þetta góð tíðindi en
aðstoðarmenn hans vilja einnig að
Bandaríkjastjórn láti í ljósi eindreg-
inn stuðning við Ísraela. „Afstaða
þeirra er sú að milliganga af hálfu
Bandaríkjanna verði óhjákvæmilega
á kostnað vináttusambands þeirra við
Ísrael,“ sagði stjórnmálaskýrandinn
Gerald Steinberg, við Bar-Ilan há-
skóla í Ísrael.
Stefna Bush veldur
áhyggjum í Ísrael
Jerúsalem. Reuters.
AP
Ísraelskar konur syrgja ættingja sinn, einn af átta Ísraelum, sem biðu
bana í árás Palestínumanns á strætisvagnabiðstöð, þegar hann var bor-
inn til grafar í suðurhluta Ísraels í gær.