Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ 8 SÍÐUR Sérblöð í dag www.mb l . i s  Teiknimyndasögur  Myndir  Þrautir  Brandarar  Sögur  Pennavinir ÍBV fær tvo leikmenn frá Stoke /B1 Hörkuspenna í meistara- deildinni/B4 4 SÍÐUR 4 SÍÐUR Í VERINU í dag er meðal annars greint frá sölu- horfum á grásleppuhrognum, sagt frá sölu línu- kerfa í frönsk skip og fjallað um möguleika Íslendinga á fiskveiðum við Brasilíu. Á FUNDI ríkisstjórnarinnar í gær var samþykkt að leggja fyrir þing- flokksfundi í dag frumvarp til laga um rafrænar undirskriftir. Með því er ætlunin að setja í lög reglur um rétt- aráhrif rafrænna undirskrifta, vott- unaraðila sem gefa út fullgild vottorð, eftirlit með þeim og bótaábyrgð þeirra. Valgerður Sverrisdóttir við- skiptaráðherra lagði frumvarpið fram í ríkisstjórninni. Frumvarpið kveður á um þá meg- inreglu að fullgild rafræn undirskrift skuli ætíð vera jafngild handritaðri þegar lög, stjórnsýslufyrirmæli eða annað mælir fyrir um að handrituð undirskrift sé forsenda réttaráhrifa. Mælt er fyrir um strangar kröfur sem slíkar undirskriftir skuli fullnægja og kröfur sem gerðar eru til vottunar- aðila sem gefa út vottorð er styðja rafrænar undirskriftir. Með rafrænni undirskrift er í frum- varpinu átt við gögn sem verða til þegar tiltekinn búnaður eða aðferð eru notuð til að brengla efni sending- ar með ákveðnum hætti. Sendandi notar þá dulritunarlykil til að dulrita gögn sín og móttakandi annan lykil til að lesa úr þeim. Jónína Lárusdóttir hjá viðskipta- ráðuneytinu segir að lengi hafi verið kallað á lög um rafrænar undirskriftir og með nýjum möguleikum Netsins þurfi að búa svo um hnúta að öruggt megi teljast að senda um Netið reikn- ingsskil, svo sem skattskýrslur og virðisaukaskattsskýrslur. Kannanir hafi sýnt að menn telji að öryggi skorti í rafrænum samskiptum. Þetta hafi getað leitt til þess að sendandi hafi möguleika á að neita að hafa sent upplýsingar, óvissa hafi verið um að sendandi sé sá sem hann segist vera og óvissa um að upplýsingum hafi hugsanlega verið breytt á leið sinni frá sendanda til móttakanda. Jónína benti einnig á að með kerfi rafrænna undirskrifta og dulritunarkerfi sem þeim tengjast væri stuðlað að því að senda megi trúnaðarskjöl um Netið með dulkóðun. Grundvöllur að trausti í rafrænum samskiptum Í frétt frá iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytinu um frumvarpið segir að erfitt geti verið að koma í veg fyrir öll vandamál sem skapist við samskipti í opnu kerfi. Stöðugt sé verið að þróa aðferðir til þess að gera rafræn við- skipti öruggari og að rafrænar undir- skriftir og dulritun séu þær aðferðir sem mest sé horft til nú. „Talið er að vel heppnuð framkvæmd við útfærslu á rafrænum undirskriftum sé grund- vallaratriði til að byggja upp traust í rafrænum samskiptum og geti þannig orðið til þess að samskiptin nái betri útbreiðslu sem vonir standa til. Í því sambandi er ekki nauðsynlegt að komið verði upp einu undirskriftar- kerfi, heldur að kerfi geti virkað sam- an. Fyrirsjáanlegt er að rafrænar undirskriftir verði notaðar í viðskipt- um, í samskiptum á milli borgara og stjórnsýslu og stjórnvalda innbyrðis, t.d. á sviði opinberra útboða, skatta- mála, félagslegrar aðstoðar, heil- brigðismála og réttarfars.“ Frumvarp um rafrænar undirskriftir lagt fyrir þingflokka í dag Rafræn undirskrift verði jafngild handritaðri LÖNG bið var loks á enda hjá fjölskyldum skipverja á Fossánni, kúfiskveiðiskipinu sem kom til Þórshafnar í gærmorgun eftir tveggja mánaða siglingu frá Kína en þaðan var lagt af stað um miðjan desember síðastliðinn. Upp- haflega var búist við að skipið kæmi til lands- ins í marsmánuði í fyrra en þær áætlanir stóð- ust ekki í skipasmíðastöðinni í Kína. „Siglingin heim gekk vel þrátt fyrir að kú- fiskveiðiskip séu í raun ekki ætluð til úthafs- siglinga, eru t.d. með opnar lestar, en Fossáin er mjög gott sjóskip,“ sagði Þorsteinn Þor- bergsson skipstjóri. Miklar vonir eru bundnar við kúfiskvinnsluna hér á Þórshöfn en reiknað er með að skipið hefji veiðar kringum næstu mánaðamót, að sögn Þorsteins. Mannfjöldi var á hafnarbakkanum þegar skipið sigldi inn og flugeldum var skotið á loft. Síðdegis var almenningi boðið að skoða skipið og voru veitingar á boðstólum. Bergný Birg- isdóttir, sambýliskona Þorsteins Þorbergs- sonar skipstjóra, nefndi skipið og séra Svein- björn Bjarnason vígði það og bað áhöfn og skipi blessunar. Löng dvöl í Kína Dvölin í Kína var áfallalaus og heilsufar manna ágætt, þrátt fyrir mikið breyttar mat- arvenjur og annan staðal í hreinlætisvenjum en Íslendingar búa við, eins og Þorsteinn orð- aði það. Á þetta langri leið, milli Íslands og Kína, má þó búast við einhverjum uppá- komum. Í Súezskurðinum varð áhöfn Fossár að taka um borð egypska eftirlitsmenn af ýmsu tagi og þar kynntust Íslendingarnir óvenjulegum vinnubrögðum sem kostuðu nokkurt taugastríð. „Þetta eru lágt launaðir menn sem drýgja tekjur sínar með því að hafa með sér eitt og annað af skipunum og var Fossáin orðin matarlítil og hreinlætisvörur langt til búnar eftir veru þessara manna þar. Ekki þýddi að malda í móinn því það hefði þýtt meiri töf og útistöður við yfirvöld,“ sagði Þorsteinn. Þetta var ekki eina dæmið um einkennileg vinnubrögð því á Sikiley var skipið kyrrsett eftir að hafa tekið olíu og matvæli en þar bar mönnum ekki saman um olíumagnið sem skip- ið tók. Íslendingarnir kunnu ekki þessar „vinnureglur“ og stóðu fast á sínu en eftir sex daga töf gáfust þeir upp og greiddu tryggingu sem Ítalirnir settu upp. Það var töluverð upp- hæð, að sögn Þorsteins skipstjóra, en því máli er alls ekki lokið. Skipverjar kynntust einnig hjálpsömu og góðu fólki á siglingunni en skammt frá Mallorca fékk stýrimaðurinn hjartaáfall og komst ekki í land fyrr en eftir sólarhring vegna veðurs. Þegar færi gafst sótti þyrla sjúklinginn sem fékk góða aðhlynningu á Mallorca og Íslendingar búsettir þar reyndust honum afar vel. Hann er nú á batavegi á heimaslóðum og annar stýrimaður kominn í hans stað, búsettur á Þórshöfn. Nýfæddur sonur heima á Íslandi Meðan Þorsteinn Þorbergsson skipstjóri beið eftir skipi sínu í Kína eignaðist hann nítján marka son. Drengurinn fæddist seint í júní og faðirinn sá hann fyrst í september en hann var þá heima í rúman mánuð. Síðan hef- ur hann ekki séð fjölskylduna fyrr en við heimkomuna núna. Íslenskar sjómannskonur hafa þurft að taka á þolinmæðinni og sann- arlega hefur Bergný Birgisdóttir, sambýlis- kona Þorsteins, ekki farið varhluta af því. Aðspurð sagði hún þennan tíma hafa verið erfiðan og hvorugt þeirra hjóna vill upplifa hann aftur. Má nærri geta að fagnaðarfundir eru hjá fjölskyldum áhafnarinnar við heim- komuna. Fossá fagnað við komuna til Þórshafnar Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Fossá var vel fagnað við komuna til Þórshafnar í gærmorgun. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Þorsteinn Þorbergsson með fjölskyldunni; Bergný Birgisdóttir, sambýliskona hans, og litlu bræðurnir Viktor Sindri og hinn átta mánaða gamli Gunnlaugur Berg. Þórshöfn. Morgunblaðið. NIÐURSTAÐA í talningu atkvæða um nýgerðan kjarasamning milli leikskólakennara og sveitarfélag- anna á að liggja fyrir síðdegis á morgun hafi öll atkvæði borist í tæka tíð, samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Félags íslenskra leik- skólakennara í gær. Í tengslum við samninginn var gerð sameiginleg yf- irlýsing um að hefja viðræður við menntamálaráðherra um reglugerð- arbreytingar um starfsemi leikskóla. Meðal breytinganna er að lækka á svokallað barngildi á hvert 5 ára barn úr 1,0 í 0,8 þannig að hver kenn- ari mun hafa umsjón með fleiri börn- um á þeim aldri en verið hefur. Að sögn Bjargar Bjarnadóttur, formanns Félags íslenskra leikskóla- kennara, þýðir þessi breyting að hægt verði að fjölga börnum á leik- skólum og minnka þar af leiðandi biðlista eftir leikskólaplássi. Talið er að börnum gæti fjölgað um 600 í leik- skólum á landinu öllu, án þess að leikskólakennurum verði fjölgað, og þá einkum 2–3 ára börnum af bið- listum í stærri sveitarfélögunum þar sem pláss fyrir 5 ára börnin eru yf- irleitt fullnýtt. Samfara breyttum stuðli fyrir 5 ára börn þurfti að breyta reglugerð- inni varðandi heildarrými á hvert barn í húsnæði leikskólanna, og seg- ir Björg þá breytingu vera umdeild- ari meðal leikskólakennara en breytt barngildi. Í gildandi reglugerð er miðað við 7 fermetra á hvert barn en í samningnum er talað um 6,5 fer- metra. Þá er í gildandi reglugerð miðað við lóð upp á 30–40 fermetra fyrir hvert barn en í samningnum verður heimilt að miða við færri en 20 fer- metra í leikskólum í eldri hverfum og/eða ef aldurssamsetning barna í viðkomandi skóla gefur tilefni til slíks. Við framkvæmd þessara ákvæða þarf að taka tillit til að- stæðna í hverjum leikskóla. Gangi þessar reglugerðarbreyt- ingar eftir munu þær gilda um alla starfandi leikskóla í landinu, bæði á vegum sveitarfélaga og einkaaðila. Björg segir menntamálaráðherra hafa tekið jákvætt í þessar breyting- ar og verða viðræður settar á fullt, verði kjarasamningurinn samþykkt- ur á morgun. Ábati fyrir alla Karl Björnsson, formaður launa- nefndar sveitarfélaganna, segir breytingar á barnafjölda og húsnæði í leikskólum einkum hafa komið til svo að nýta megi leikskóla og starfs- menn þeirra betur en áður. „Þetta er verulegur ábati fyrir alla, sérstaklega börnin. Það munar um að geta hleypt inn 600 börnum á fyrsta skólastigið, sem annars hefðu verið á biðlista eða þurft að byggja yfir, án þess að rýra gæði leikskóla- starfsins. Enda hefur menntamála- ráðherra tekið vel í breytingarnar.“ Fleiri 5 ára börn á hvern leikskólakennara Gæti þýtt heildar- fjölgun um 600 börn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.